Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 40

Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 40
40 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SAMEINING SVEITARFÉLAGA SÉRSTÖK nefnd, sem starfað hefur á vegum Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu frá því í nóvember sl. leggur til að ítarleg könnun fari fram á sameiningu þeirra í eitt eða tvö sveitarfélög eða að lögbundið verði sameigin- legt svæðisskipulag þeirra. Jafnframt leggur nefndin til, að atkvæðagreiðsla fari fram á meðal íbúa sveitarfélaganna um þessar tillögur að ári liðnu og að kosið verði á grundvelli þeirrar niðurstöðu, sem þar fæst í borgar- og sveitarstjórn- arkosningum að tveimur árum liðnum. Nefndin hefur sett fram þrjár hugmyndir. Ein er sú, að öll sveitarfélögin á þessu svæði verði sameinuð undir einn hatt. Hinar tvær snúast um tvö sveitarfélög á svæðinu en munurinn á þeim byggist á því hvort Kópavogur yrði sam- einaður Reykjavík og öðrum sveitarfélögum eða Garðabæ, Hafnarfírði og Bessastaðahreppi. Það er fagnaðarefni, að mál þetta er komið til umræðu á ný. Það var töluvert rætt fyrir nokkrum árum og þá lýsti Morgunblaðið þeirri skoðun, að eðlilegt væri að sameina í eitt sveitarfélag, Reykjavík, Seltjamarnes, Kópavog, Mos- fellsbæ og Kjalarneshrepp. Og síðan Hafnarfjörð, Garðabæ og Bessastaðahrepp í annað sveitarfélag. Frá því að þær umræður fóru fram hefur Kjalarneshreppur sameinast Reykjavík en nú leggur nefndin til að Kjósarhreppur sam- einist höfuðborginni einnig. Skoðun Morgunblaðsins er óbreytt. Skynsamlegt er að tvö sveitarfélög verði á þessu svæði. Rökin fyrir þeirri skiptingu eru bæði efnisleg og tilfínningaleg. Samstarf og samskipti og söguleg tengsl Hafnarfjarðar, Garðabæjar og Bessastaðahrepps hafa lengi verið með þeim hætti, að eðli- legt er að þar verði til eitt sveitarfélag, sem hugsanlega mundi sameinast byggðunum sunnan Hafnarfjarðar og þar með teygja sig langleiðina til Suðurnesja. Þótt Kópavogur hafi eflzt mjög á undanförnum árum er eðlilegt engu að síður, að bæjarfélagið sameinist Reykjavík eins og hugmyndir komu raunar upp um fyrir nær hálfri öld og urðu þá ekki að veruleika af pólitískum ástæðum. Kópa- vogur er jafnmikill hluti af Reykjavík og Breiðholtshverfí eða Grafarvogur í skipulagslegu tilliti. Samstarf sveitarfélaganna á þessu svæði er orðið svo mikið og náið og hagsmunir þeirra samantvinnaðir að engin rök eru l'engur fyrir núverandi skiptingu. Það er alveg ljóst, að hún hefur í fór með sér mikinn kostnað fyrir íbúa og skattgreiðendur í sveitarfélögunum. Það er ekkert vit í því að halda uppi mörgum sveitar- stjórnum með öllum þeim sérstaka kostnaði, sem þeim fylg- ir í byggðum, sem hafa runnið saman. Það er tæpast hægt að fínna nokkur rök gegn sameiningu sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. I minni sveitar- félögunum er fyrst og fremst um að ræða tilfinningaleg rök um sjálfstæði og í einhverjum tilvikum er hægt að halda því fram, að minni sveitarfélög og það návígi sem í þeim er kunni að tryggja betri þjónustu en ella og betri þekkingu embættismanna og þjónustuaðila á þörfum íbúanna. Þessi rök vega hins vegar ekki þungt þegar litið er á heildarmyndina. Þar blasir við, að kostnaður vegna yfir- stjórnar minnkar. Skipulagsmál verða einfaldari viðureign- ar og margvíslegt hagræði er af því, að ein sveitarstjórn eða tvær fjalli um mál en ekki átta sveitarstjórnir. Það eru ekki fyrst og fremst íbúar sveitarfélaganna, sem hafa lýst andstöðu við þessar hugmyndir, þegar þær hafa komið til umræðu. Það eru stjórnmálamennirnir og að ein- hverju leyti embættismenn, sem hafa lagzt gegn þeim. Þeir aðilar geta hins vegar ekki verið andsnúnir því, að íbúarnir ákveði þetta sjálfír í atkvæðagreiðslu eins og nefnd Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu lejggur til. íbúarnir eru hinn endanlegi dómari í þessu máli. I aðdrag- anda slíkrar atkvæðagreiðslu mundu fara fram miklar um- ræður, þar sem röksemdir með og móti yrðu dregnar fram og lýðræðið réði ferðinni. íbúum í öllum sveitarfélögunum mundi gefast tækifæri til að koma skoðunum sínum á fram- færi. Slíkar umræður mundu áreiðanlega verða mjög gagn- legar fyrir sveitarfélögin öll. Vel má vera, að einhver sveit- arfélaganna kæmust að þeirri niðurstöðu, að þau vildu enga sameiningu en önnur mundu sameinast í kjölfar atkvæða- greiðslunnar. Vonandi bera forystumenn umræddra sveitarfélaga gæfu til að taka þessum hugmyndum vel og efna til slíkrar at- kvæðagreiðslu. Þeir eiga ekki að taka frá íbúunum réttinn til þess að taka þessa grundvallarákvörðun sjálfír. Nýja hafrannsóknaskipið Árni Friðriksi Guðmundur Bjamason skipstjóri staðfestir komu skipsins í bók hafnsögu- mannsins Helga Magnússonar. Bjarni Sveinbjömsson yfirvéls Þetta er stór sti Guðmundur Bjarnason, skipstjóri á nýja hafrannsóknaskipinu Arna Friðrikssyni RE 200, var að vonum ánægður, þegar hann hafði lagt því við Miðbakkann í Reykjavíkurhöfn í gær. Steinþór Guðbjartsson, blaðamaður, og Þorkell Þorkelsson, ljósmyndari, fóru með hafrannsóknaskipinu Dröfn út í nýja skipið og voru með Guðmundi í brúnni síðasta spölinn. EIR voru hressir, karlarnir á Árna, þegar Dröfnin lagðist upp að hlið nýja skipsins upp úr hádeginu í gær, enda ekki nema von, loksins komnir heim eftir að hafa verið tvo mánuði í burtu, Guð- mundur skipstjóri reyndar heldur lengur eða síðan í lok febrúar. Þeir buðu gesti velkomna en horfðu annars til lands og biðu rólegir eftir stóru stundinni. Fullkomið og gott skip Guðmundur segir að heimferðin hafi verið mjög ánægjuleg. „Við fórum frá Talcahuano í Chile, þar sem ASMAR- skipasmíðastöðin er, 20. apríl, vorum 29. apríl við Panamaskurðinn og fórum þaðan tveimur dögum síðar. Það var mjög heitt við miðbauginn og í Karíba- hafinu og það var helst hitinn sem fór í menn en eftir að það fór að kólna var ekki yfir neinu að kvarta. Við lentum í mikilli brælu, meira en 10 vindstigum, í Suðurdjúpi rétt áður en við komum inn í íslensku lögsöguna en skipið gekk mjög vel.“ Bjarni Sveinbjömsson, yfirvélstjóri, tók í sama streng. „Þá voru aðeins þrjár af fjórum dísilvélunum í gangi en við keyrðum samt á 11 til 12 mílna hraða.“ Dröfnin er aðeins um 25 metra langt skip og nánast hverfur við hliðina á nýja skipinu sem er 69,9 m að lengd, 13,8 m að breidd. Það djúpristir 6,5 m og ganghraði er 16 sjómílur. Ibúðir eru fyrir 33 skipveija og rannsóknamenn og hefur hver skipveiji sérsturtu og salerni. I skipinu eru fjórar dísilraf- stöðvar, 1.080 KW hver, sem framleiða rafmagn íyrir 3300 KW rafmótór sem knýr skrúfu skipsins. Sérstök áhersla hefur verið lögð á að vélar skipsins hafi sem lægstan mengunarstuðul. I botni skipsins að framan og aftan eru tvær hliðarskrúfur sem hægt er að snúa í 360 gráður og geta drifið skipið áfram á 7 sjómflna hraða. Við hönnun á bol skipsins og vali á vélbúnaði var sérstök áhersla lögð á að hávaði frá skipinu yrði sem minnstur og truflaði ekki fisk eða bergmálstæki. Skipið er hannað sem rannsókna- skip með fullkomnum togbúnaði. Það er með fjórum heilum þilförum og bakkaþilfari. Á brúarþaki er útsýnis- turn í mastri. Ibúðir yfirmanna og leið- angursstjóra, ásamt tækjaklefa og sjúkraklefa, eru á bakkaþilfari. Tog- þilfarið er opið stafna á milli og fjórum grandaraspilum er komið fyrir fremst. Á þriðja þilfari eru rannsóknastofur og sameiginlegar vistarverur áhafnar, svo sem matsalur, setustofa, og fundarsal- ur. Aðgerðar- og vinnslurými er þar aftast. Ibúðir áhafnar eru á öðru þilfari og þar aftast er 140 rúmmetra frysti- og kælilest. N eðst er vélarrúm. Nýja skipið verður búið rúmgóðum rannsóknastofum og nýjustu tækjum til söfnunar og úrvinnslu gagna um eðl- is- og efnafræðilega eiginleika sjávar, þörunga- og dýrasvif. Á undan áætlun Smíði skipsins dróst um nokkra mánuði en skipveijar létu það ekki á sig fá og Guðmundur leit á björtu hlið- amar. Eftir því sem skipið nálgaðist höfnina meir jókst spennan í brúnni. „Það er ótrúlegt að vera kominn heim og ég melti þetta ekki almennilega ennþá en við erum aðeins á undan áætlun,“ sagði Guðmundur skipstjóri eftir að hafa sagt Ama Sverrissyni stýrmanni að láta heyrast fjóram sinn- um í skipsflautunni þegar skipið kom að hafnargarðinum. „Það var mjög gott að vera í Chile, fólkið vingjamlegt og þægilegt, en það er líka ánægjulegt að vera kominn heim.“ I því kom Bjami vélstjóri upp í brú, klæddur í sitt fínasta tau. „Bjami minn, velkom- inn heim. Það er gott að hafa vélstjór- ann hjá sér til halds og trausts.“ Lúðrasveitin Svanur lék lög á Mið- bakkanum og þegar skipverjar urðu þess varir sagði Guðmundur Árna að gefa þeim tóninn og langt flaut kom í kjölfarið. „Þama er Gunni á Svanin- um,“ sagði Guðmundur og veifaði út um gluggann. „Eg hef ekki siglt héma inn síðan í janúar. Þá voram við að koma úr síldarleiðangri á litla Ama, voram í sfld vestur af Jökli. En ég hlakka til að fara á þessu skipi í leið- angra og til stendur að byrja í júlí á kolmunna, makrfl og sfld.“ Tólf skipveijar vora í áhöfn á leið- inni heim, tveir menn frá skipasmíða- stöðinni og franskur sérfræðingur í rafbúnaði skipsins auk eiginkonu kokksins. Þau biðu spennt eftir að hitta ættingja og vini. „Andskoti er kulda- legt hérna,“ sagði Árni stýrimaður og reyndi að finna fjölskylduna í mann- fjöldanum á bakkanum. „Þetta er gríð- arlega skemmtilegt skip, stórt, mikið og öflugt og ég hlakka til að starfa á því en það er gaman að koma heim og hitta ættingjana." „Er skuturinn sloppinn?" spurði skipstjórinn. Svarið var jákvætt og þá Guði var ekkert annað eftir en að kvitta fyrir komu skipsins í bók hjá hafnsögu- manninum. „Þetta er flott, þetta er búið. Þetta er stór stund - við eram komnir heim.“ Sennilega fullkomnasta skip sinnar tegundar í heiminum Ráðamenn gengu um borð, heilsuðu skipstjóranum og Brynjólfur Bjama- son, stjórnarformaður Hafrannsókna- stofnunar, færði honum blómvönd fyrir hönd áhafnarinnar. Árni M. Mathiesen sjávarútvegsráðherra flutti því næst ávarp og afhenti skipið á tákn- rænan hátt með áletruðum skildi. Hann sagði ánægjulegt að skipið héti í höfuðið á Áma Friðrikssyni fiskifræð- ingi sem hafði forystu fyrir skipulögð- um hafrannsóknum bæði hér á landi sem erlendis. Hann gat þess að skipið ætti eftir að fara um stórt svæði og rannsaka dýpra en íslendingar hafi hingað til getað gert. „Því er skipið ein- stakt um allan búnað og sennilegast fullkomnasta skip sinnar tegundar í heiminum í dag,“ sagði ráðherrann og bætti við að hann teldi að það væri líka einstakt fyrir það að hagsmunaaðilar, þ.e.a.s. útvegsmenn, stæðu straum af kostnaði við smíði þess. „Það undir- strikar þá miklu samstöðu sem er með- al þjóðarinnar um það að byggja fisk- veiðstjóm okkar á bestu fáanlegu vísindalegu upplýsingum. Enda kost- um við kapps um það að vera þar í fremstu röð með Hafrannsóknastofn- unina í fylkingarbijósti. Við skulum samt sem áður umgangast móður nátt- úru af fullri tillitssemi og hógværð því að þótt við vitum margt, vitum við aldrei allt og náttúran mun halda áfram að koma okkur á óvart.“ Hann sagði endalaust verkefni að rannsaka

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.