Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 58

Morgunblaðið - 19.05.2000, Page 58
58 FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Skólagjöld við Háskóla íslands? í SÍÐASTA Reykja- víkurbréfi Morgun- blaðsins var fjallað um skólagjöld í tilefni um- ræðna á Alþingi um upptöku skólagjalda í MBA-námi við Há- skóla íslands. í bréf- inu ítrekaði Morgun- blaðið fyrri afstöðu ^gína um að taka eigi upp skólagjöld. MBA- málið snýst reyndar fyrst og fremst um það hvort Háskólanum sé heimilt að rukka nem- endur um skólagjöld fyrir þetta nýja nám en ekki hvort það sé æskilegt. Nám við Háskóla íslands á að vera ókeypis samkvæmt lög- um. Morgunblaðið ræddi hins vegar almennt um upptöku skólagjalda og tel ég nauðsynlegt að svara því sem þar kom fram. Tryggja skólagjöld betri skóla? J Morgunblaðið setti fram þrenn rök fyrir skólagjöldum. í fyrsta lagi að skólagjöld tryggi betri skóla. Var vísað til reynslu þeirra landa þar sem skólagjöld eru við lýði, eins og t.d. Bandaríkjanna og Bretlands, og ástandið þar borið saman við reynslu Þýskalands þar sem há- skólamenntun er ókeypis. I Þýska- landi ríki „stjórnleysi og öngþveiti“ í skólunum og gefið í skyn að það sé vegna þess að aðgangur að æðri menntun sé ókeypis. Það vakti athygli mína að Morgunblaðið skyldi velja Þýskaland í þessum samanburði en ekkert Norðurland- anna þar sem háskóla- menntun er líka ókeypis og skólakerfin líkari því sem hér ger- ist. Ástæðan var auð- vitað sú að þar er ekki þetta hörmungar- ástand eins og í Þýska- landi. Á síðasta ári var ég við nám í Árósahá- skóla í Danmörku og þar er aðstaðan til fyr- irmyndar bæði fyrir námsmenn og kennara þrátt fyrir að skólagjöld séu ekki til staðar. Af hverju er ekki allt í kaldakolum í Danmörku eins og í Þýskalandi? Það skyldi ekki vera að ástæða bágs ástands í Þýskalandi sé önnur en sú að þar séu ekki skólagjöld? Háskólar þurfa á miklu fjármagni að halda til þess að geta boðið upp á menntun sem er samkeppnisfær við það besta sem gerist í heiminum. Morgunblaðið telur að með skóla- gjöldum fái skólar aukið fjármagn og því geti þeir boðið upp á betri menntun en ella. Það er hins vegar ekkert sem tryggir að háskólar fái meira fjármagn rukki þeir inn skólagjöld. Ég minni á að þegar Há- skóli Islands tók upp 25 þúsund króna innritunargjöld á hvern nem- anda lækkuðu fjárveitingarnar til skólans um samsvarandi upphæð. Á nýlegri ráðstefnu Norrænu ráð- Skólagjöld Skólagjöld eru ekki sjálfkrafa trygging fyrir auknu fjármagni til handa skólum, segir Þorvarður Tjörvi Ólafsson, heldur leið til að velta kostnaðinum við menntakerfíð yfír á námsmenn. herranefndarinnar kom fram í máli dr. Terry Falconer frá Kanada að samfara hækkandi skólagjöldum þar í landi hefðu fjárveitingar hins opinbera farið minnkandi. Skólagjöld eru ekki sjálfkrafa trygging fyrir auknu fjármagni til handa háskólum og betri skólum. Skólagjöld eru hins vegar enn ein leið til að velta kostnaðinum við menntakerfið yfir á námsmenn. Eru námsmenn að leika sér í skólanum? „Það er auðvitað ljóst að nem- andi, sem greiðir gjald fyrir há- skólamenntun, leggur meiri áherzlu á að ljúka námi sínu á tilskildum tíma. Sá nemandi eyðir ekki áratug í námið, ef hann getur lokið því á fimm árum, eða þremur árum í framhaldsnám, ef hann getur lokið því á tveimur árum“. í þessum orð- Þorvarður Tjörvi Ólafsson um Reykjavíkurbréfsins birtast hin klassísku rök skólagjaldssinna að skólagjöld efli „kostnaðarvitund“ námsmanna. Skólagjaldssinnar tala eins og námsmenn beri engan kostnað af námi sínu og séu að leika sér í skól- anum. Staðreyndin er hins vegar sú að stúdentar eru að skuldsetja sig og fjölskyldur sínar til þess að geta stundað nám við háskóla. Námslán- in eru heldur ekki þess eðlis að menn leiki sér að því að vera á lán- um svo árum skipti eins og Morgun- blaðið gefur í skyn. Fara skólagjöld og jafnrétti saman? Loks telur Morgunblaðið hægt að tryggja jafnrétti til náms þó skóla- gjöld verði tekin upp. Þetta dreg ég stórlega í efa. Kannanir sýna að þjónustugjöld í heilbrigðiskerfinu hafa aftrað þeim fátækustu að leita sér læknisaðstoðar. Skólagjöld munu gera það sama. Þeir efna- minni munu síður komast í háskóla- nám. Eru menn búnir að gleyma þeim hörmulegu afleiðingum sem breyt- ingarnar á Lánasjóði íslenskra námsmanna árið 1992 höfðu á þá hópa sem þurftu mest á lánunum að halda? Þá hrökklaðist 30-40% barnafólks og fólks utan af landi frá námi. Þessar breytingar jafnast þó ekkert á við upptöku skólagjalda. Þau munu hafa enn verri afleiðing- ar. Menntun fyrir alla gagnast öllum Meginrökin gegn skólagjöldum eru einkum tvenn. í fyrsta lagi brjóta þau gegn þeirri grundvallar- hugmynd að allir eigi jafnan rétt á menntun óháð efnahag eða öðrum félagslegum aðstæðum. Menntun er mannréttindi og menntun á ekki að takmarka við þá sem hafa efni á henni. Háskóli íslands á að vera þjóðskóli þar sem jafnrétti ríkir og skólagjöldum er hafnað. I öðru lagi er löngu vitað að menntun er aflvaki framfara og því er mikilvægt að virkja alla þá krafta sem þjóðfélagið hefur á að skipa. Ohagkvæmt er að útiloka einstakl- inga frá námi, sem ef til vill eru fluggáfaðir, vegna bágs efnahags. I flóknu og tæknivæddu samfé- lagi verður menntunin lykillinn að virkri þátttöku í þjóðfélaginu. Því er mikilvægt að koma í veg fyrir að ný stéttaskipting myndist. Stétta- skipting sem er grundvölluð á að- gengi að þekkingu. Hvergi á hinum Norðurlöndunum er litið á skólagjöld sem valkost fyr- ir ríkisháskóla. Þessir skólar njóta hins vegar miklu meiri stuðnings stjómvalda en Háskóli Islands og þeir geta boðið nemendum og kenn- urum upp á mun betri kjör en hér þekkjast. íslendingar eru eftirbátar flestra annarra þegar kemur að fjárveitingum til háskólastigsins. Leið íslenskra stjórnvalda hefur verið að hvetja Háskólann til að óska eftir skólagjöldum. Það hefur Háskólinn ekki gert fram til þessa. Nú á hins vegar að rukka stúdenta sem vilja leggja stund á nýtt MBA- nám um rúma eina milljón króna. Skólagjaldaaúrræðið er afleiðing fjárskorts og skeytingarleysis stjórnvalda um langt árabil. Þrátt fyrir að allir stjórnmálaflokkar, stúdentar og Háskólinn sjálfur hafi hafnað skólagjöldum hafa stjórn- völd sett Háskólann í þá stöðu að geta ekki boðið upp á nýjungar í námi án þess að nemendur borgi milljónir fyrir námið. Þetta er hættulegt fordæmi og brýtur í bága við þá grundvallarhugmynd um jafnrétti til náms sem hefur lifað í takt við réttlætiskennd þjóðarinnar allt frá stofnun Háskóla Islands. Höfundur situr í Stúdentaráði Háskóla íslands fyrir hönd Röskvu. Go undir fölsku flaggi FYRIR nokkru fór breska flugfélagið Go að auglýsa fargjöld frá Islandi til London á 10 þúsund krónur. Sá sem þetta ritar hafði í hyggju að næla _sér í utanlandsferð á pessu góða verði og fór því á vefsíðu Go til að bóka farið. Skammt er frá því að segja að eftir margra daga tilraunir hefur ekki tekist að finna eina einustu ferð á vefsíðu Go fyrir 10 þús. kr. til London. Hins vegar stendur til boða fjöldi ferða milli íslands og London á verðbilinu 13.750 kr. til 23.750 kr. Úrvalið er þó mest á hærra verðinu og einnig á 18.750 kr. Sömu daga og leitin stóð yfir að Go-ferðunum á lága verðinu, birt- Fargjöld Ekki verður betur séð, segir Tómas Jónsson, en Go sé að hafa ---3------------------------- Islendinga að fíflum. ust stórar auglýsingar frá flugfé- laginu um 10 þús. króna ferðir - sem hins vegar voru ekki til. Þarna er bersýnilega verið að selja þessar flugferðir undir fölsku flaggi og spurning hvaða vernd www.mbl.is neytendur hafa fyrir sölumennsku af slíku tagi. Vel getur verið að Go hafi eina og eina ferð á boðstólum fyrir 10 þúsund krón- ur. En ef maður getur ómögulega fundið þær, hvað er þá verið að auglýsa? Ekki verður betur séð en Go sé að hafa Islendinga að fíflum, því talsmaður fyrir- tækisins sagði í viðtali í Morgunblaðinu að flestar 10 þús. kr. ferðirnar væru upp- seldar. Ekki nóg með það, heldur upplýsti hann um að ódýru ferðirnar hefðu að mestu leyti selst upp í Bretlandi. Á vef- síðu Go er frétt um að salan á ferðum til Islands hafí verið kynnt í Bretlandi um miðjan febrúar. Þetta var hins vegar ekki kynnt hér á landi fyrr en um miðjan apr- íl. Á meðan höfðu breskir við- skiptavinir Go haft tveggja mán- aða næði til að fá allar ferðirnar á 10 þús. kr. Samt er haldið áfram að telja okkur Islendingum trú um að Go bjóði ferðir á 10 þús. kr. þegar raunin er sú að þær kosta 40% til 140% meira. Þá er allt eins gott að ferðast bara til London með Heimsferðum, SL eða Flugleiðum. Þar fást ferðir á bilinu 18 til 20 þús. kr. og þar er engin flókinn leit, því þetta verð stendur til boða í öllum auglýstum ferðum fyrir- tækjanna, ekki bara örfáum. Eftir á að hyggja skiptir líka talsverðu máli að þessi félög fljúga til Lond- on að morgni eða seinnipart dags, en ekki um miðja nótt eins og Go gerir. Höfundur er íþróttanuddari. Ætlar háskólinn að gefast upp? UNDANFARIÐ hefur talsverð umræða verið í þjóðfélaginu um það hvort eðlilegt sé að taka upp skólagjöld fyrir væntanlegt MBA- nám við Háskóla ís- lands. Með því yrðu í fyrsta sinn tekin upp skólagjöld í framhalds- námi við skólann og er áætlað að námið kosti hvem nemanda 1,2-1,4 milljónir króna. Stúd- entaráð hefur mótmælt íyrirhugaðri gjaldtöku og málið hefur tvisvar komið til kasta Alþing- is þar sem gjaldtök- unni var einnig mótmælt. Skólagjöld ekki heimil Umræðan í þjóðfélaginu hefur að miklu leyti snúist um almenn skoð- anaskipti á því hvort eðlilegt sé að taka upp skólagjöld í framhaldsnámi við Háskóla Islands. Margt hefur verið tínt til, svo sem að erlendis séu innheimt skólagjöld fyrir MBA-nám, námið sé hugsað fyrir þá sem hafa góða tekjumöguleika og verði að miklu leyti borgað af vinnuveitend- um nemenda. Einnig hefur verið nefnt að af samkeppnisástæðum sé nauðsynlegt að Háskóli Islands hefji innheimtu skólagjalda að einhverju marki. Þessi atriði eiga einfaldlega ekki við núna, enda verður umræðan að taka mið af þeim lagaramma sem skólanum var settur í fyrra. Háskól- inn fjallaði um þessi atriði fyrir rúmu ári þegar hann fékk frumvarp að sérlögum um skólann til umsagn- ar og svaraði þeim þannig að ekki væri rétt að taka upp skólagjöld. Al- þingi svaraði á sama máta og ný sér- lög voru sett um skólann þar sem sú stefna var klárlega mörkuð að skóla- gjöld skyldu ekki tekin upp, hvorki í grunn- né framhaldsnámi. Hin nýja löggjöf er skýr og um- ræðan í háskólanum snýst því eingöngu um það hvort sú leið sem gert er ráð fyrir til inn- heimtu skólagjalda sé í samræmi við lögin. Svo tel ég ekki vera. Farið í kringum lögin Meginregla laganna um engin skólagjöld er skýr og afar óeðlilegt að teygja heimild lag- anna til að innheimta gjöld fyrir endur- menntun yfir MBA- nám. Rökin fyrir því að fella meistaragráðu líkt og MBA undir endurmenntun eru mjög óljós, Skólagjöld Háskólayfírvöld og stúdentar, segir Eiríkur Jónsson, ættu að sam- einast í baráttu fyrir auknu fjárframlagi. enda augljóst að slík meistaragráða er lokaáfangi nemenda á námsleið sinni. Hér er því um sjálfstætt nám en ekki endurmenntun að ræða. Af því leiðir að óheimilt er að innheimta skólagjöld fyrir námið. Alþingi vill aðrar leiðir Það er afar hryggileg staða ef há- skólayfirvöld leggja til að lögð verði skólagjqld á nemendur með þessum hætti. Með því gefst háskólinn al- gjörlega upp fyrir fjársvelti undan- farinna ára og gefur upp á bátinn grundvallarsjónarmið um skólann. Ekkert virðist hafa verið reynt að leita til fulltrúa ríkisvaldsins um fjármögnun námsins heldur hefur frá upphafi verið gert ráð fyrir að lögð yrðu á skólagjöld. Þetta er ótrú- leg staða í ljósi umræðna á Alþingi þar sem meirihluti þingmanna virð- ist andsnúinn þessu fyrirkomulagi og fulltrúar bæði stjórnar og stjórnarandstöðu hafa lýst yfir áhuga á því að leita annarra leiða, t.d. með auknum fjárframlögum. Tillaga stúdenta Nú stendur yfir háskólafundur Háskóla Islands og í dag verður rætt um drög að reglugerð fýrir skólann þar sem gert er ráð fyrir framan- greindu skipulagi námsins. Stúdent- ar hafa lagt fram tillögu þess efnis að háskólayfirvöld leiti allra leiða til þess að treysta fjárhagslegan grundvöll námsins, svo sem með við- ræðum við ríkisvaldið, með það að leiðarljósi að farið verði að lögum um Háskóla íslands og skólagjöld ekki tekin upp. Þetta er sameiginleg til- laga allra stúdenta á háskólafundi. Reyna þarf til þrautar Háskólayfirvöld og stúdentar ættu að sameinast í baráttu fyrir auknu fjárframlagi til að hið nýja nám verði án skólagjalda. Það er af- ar jákvætt að Háskóli Islands auki námsframboð sitt með þessum hætti, en mikilvægt er að hann við- haldi þeirri stefnu sinni að bjóða upp á góða og fjölbreytta menntun fyrir alla og leggi ekki til að haldið verði inn á braut skólagjalda. Reyna þarf til þrautar að fjármagna námið með öðrum hætti, enda væri í meira lagi sérkennilegt ef háskólinn samþykkti álagningu skólagjalda eftir þessari vafasömu leið sem er í ósamræmi við vilja löggjafans og stríðir gegn vilja stúdenta. Höfundur er formaður stúdentaráðs Háskóla íslands. Eiríkur Jónsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.