Morgunblaðið - 19.05.2000, Síða 71
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ 2000 71
FÓLK í FRÉTTUM
KK og Magnús Eiríksson í Salnum í kvöld
Kvarta ekki á
krossgötunum
I kvöld ætla þeir KK og Magnús Eiríksson
að halda tónleika í Tonlistarhúsi Kópavogs.
Birgir Örn Steinarsson laumaði sér á æf-
ingu til þeirra og komst að því að það er
margt sem hann á eftir ólært.
ANNAR þeirra er eldsneyti pól-
fara (og næstum því pólfara).
Hinn er maður sem reið á vaðið
fyrir íslands hönd í Söngva-
keppni evrópska sjónvarpsstöðva
og er fjöldi útvarpssmella hans
líklegast hærri en fólksfjöldi
minnsta sjálfstæða lýðveldis
heimsins. Báðir eiga þeir aragrúa
af lögum sem hafa heillað þjóðina
og það er eflaust hægt að fullyrða
að það líður ekki sá dagur hjá án
þess að lag eftir annan hvorn
þeirra hljómi á einni af útvarps-
stöðvum þjóðarinnar. Þeir era
KK og Magnús Eiríksson og hafa
þeir verið að rekast hvor á annan
á krossgötum gítarblúsins síðast-
liðin fjögur ár. Nú þegar eru þeir
búnir að gefa út tvær geislaplötur
saman, þ.e. Ómissandi fólk árið
1996 og Kóngur einn dag sem
kom út í fyrra. Það eru vissulega
óslitnir strengir sem liggja frá
lögum þeirra til tónlistarunn-
enda.
Hugsanleg útgáfa
Morgunblaðið/Golli
Magnús Eiríksson og KK voru ekk-
ert að stressa sig yfir öllum undir-
búningnum sem fylgir tónleikahaldi.
í kvöld ætla þeir félagar að halda
tónleika í þeirri afbragðs aðstöðu
sem tónlistarhús Kópavogs býður
upp á. Tónleikunum verður einnig
útvarpað beint um allt land.
„Ef þetta verða góðir tónleikar er
sjálfsagt að gefa þetta út,“ segir
Magnús Eiríksson aðspurður um
orðróm sem blaðamaður heyrði
framfleygt á krossgötunum.
„Þetta verður tekið upp á fjölrása
upptökutæki þannig að við höfum
möguleika á því að vinna í þessu eft-
irá ef við viljum,“ segir KK og gefur
þannig orðróminum byr undir báða
vængi.
Aðspurðir segjast þeir félagar
ekki getað ímyndað sér að mikill
gróði hafist af tónleikunum, eins og
oft vill verða af íslensku tónleika-
haldi.
„Það eru margh' tónlistarmenn
sem bera ekki mikið úr býtum,“ segir
Magnús sem ætti að þekkja bragðið
af þeim kaffibolla eftir áralangt
svaml í honum. „Ég er ekki að segja
að við séum í þeirra hópi. Margir af
þessum ungu strákum era að spila
fyrii- bjórkrúsir.“
„Það era líka margir að kvarta,
bæði tónlistarmenn og aðrir,“ bætir
KK við. „Við ætlum ekki að kvarta."
Endurkoma blúskóngsins
Hvernig lýst þeim félögum á tón-
listarhúsið? „Þetta var afar
skemmtileg aðkoma,“ segir KK. „Ég
hélt að þetta yrði jafnstórt og í leik-
húsi en svo er þetta bara ljúft, lítið og
nett. Eins og í góðum klúbbi."
„Tilefnið [fyrii’ því að tónleikarnir
verði í Tónlistarhúsi Kópavogs] er að
það eru liðin 38 ár frá því að ég spil-
aði síðast í Kópavoginum," segir
Magnús. „Mér fannst vera kominn
tími til að spila hér aftur. Ég byrjaði
minn hljóðfæraleik í Sjálfstæðishús-
inu hér í Kópavogi. Ferðaðist með
strætisvagni á milli með pínulítinn
gítarmagnara sem ég átti ásamt gít-
arnum og spilaði á mínum fyrsta
launaða dansleik."
Vanar aukahendur
Þeim blúsbræðram til aðstoðai’ í
kvöld verða þeir Þórir Baldursson,
orgelleikari sem veit til hvers svörtu
nótumar eru, og Ásgeir Óskarsson,
trommuleikari sem heldur takti bet-
ur en skeiðklukka. „Við höfum alltaf
verið tveir. Þetta er svona lúxus,“
segir Magnús og er greinilega sáttur
við aukahendurnar. Þetta er líkleg-
ast í fyrsta skipti í lengri tíma sem
KK kemur fram ásamt hljómsveit og
játar hann því að hann hafi verið
byrjaður að sakna þess örlítið. „Já,
það er svo gaman að spila með svona
„grúfboltum" eins og Þóri og Asgeiri.
Það eru engar áhyggjur af neinu.
Maður getur treyst því 100% að allt
gengur upp í kringum mann. Maður
þarf bara að hugsa um sjálfan sig,“
segir hann í rólegheitunum. „Maður
á helst alltaf að spila með mönnum
sem era betri en maður sjálfur," seg-
ir Magnús hógvær að lokum. „Það er
eina leiðin til að læra eitthvað nýtt.“
Blaðamaður leyfir sér þó að efast um
það í laumi að Þórir eða Ásgeir kunni
að plokka strengina jafnsnyrtilega
og KK og Magnús gera.
Bh r m sala
Rymingar
á minkapelsum /r/7J
JAKOBSPELSAR
*—Garðatorgi 7 - s(mi 544 8880
Opið þriðjudaga-föstudaga frá kl. 14.00-18.00 og laugardaga frá kl. 10.30-14.00
Góður strákur með
f u 11 kom n u narárátt u
sos
SPURT OG SVARAÐ
Ham
urOrn
sson
ÞJÓÐIN fylgdist spennt með því þegar
Haraldur Örn Ólafsson náði fyrstur ts-
lendinga þeim merka áfanga 10. maí
síðastliðinn að ganga á norðurpólinn.
Þessi mikli ævintýramaöur hefur nú
sigraö báða pólana sem er einkar
fágætt en þar með er ei öll sagan
sögð því síöan 1978 hafa einungis
fimm manns náð einir síns liðs á
norðurpólinn, með eða án stuðnings.
Haraldur er aldrei þessu vant í byggð
um þessar mundir og hvílir lúin bein.
Hvernig hefur þú það í dag?
Ég hef sjaldan haft það betra enda er
ég að njóta lífsins eftir langan leið-
angur.
Hvað ertu með í vösunum í augna-
blikinu?
Ekki neitt.
Morgunblaðið/Einar Falur
Hvaða hiut myndir þú fyrst bjarga úr
eldsvoða?
Myndasafninu mínu.
Hver er þinn heisti veikieiki?
Fullkomnunarárátta.
Hver er furðuiegasti matur sem þú
hefur bragðað?
Grænlenskt hvalspik (maddak) borið
fram af grænlenskum veiðimanni í Is-
ortoq.
Ef þú værir ekki lögmaður hvað vild-
irðu þá helst vera?
Ég er mjög sáttur við lífiö eins og það
er og langar í raun ekki að vera neitt
annað en éger.
Hvemig eru skilaboðin á símsvaran-
um/talhólfinu hjá þér?
„Þetta er hjá Haraldi og Unu Björk.
Við komumst ekki í símann núna-
.Vinsamlegast skildu eftir skilaboð."
Hvenær táraðist þú síðast í bíó?
Ég man ekki eftir að hafa tárast ný-
lega í bíó nema þá á ítölsku myndinni
Lífiö erdásamlegt.
Finndu fimm orð sem lýsa persónu-
leika þínum vel.
Konan mín segir: einbeittur, sterkur,
viðkvæmur, duglegur, traustur.
Hvaða lag kveikir blossann?
Hvaða plötu keyptirðu síðast?
„12. ágúst 1999“ með Sálinni hans
Jóns míns.
Hvaða leikari fer mest í taugarnar á
þér?
Jodie Foster. Of væmin fýrir minn
smekk.
Hverju sérðu mest eftir í lífinu?
Ég séekki eftirneinu.
Hverjir voru fyrstu tónleikarnir sem
þú fórst á?
Stuðmenn í Laugardalshöll. Man ekki
hvaða ár þetta var.
„(Come on Baby) Light My Fire" með
The Doors.
Hvert er þitt mesta prakkarastrik?
Égergóöurstrákur.
Trúir þú á líf eftir dauðann?
Ég erí miklum vafa. Ég er þó alveg
viss um að við munum aldrei fá að
vita rétta svarið í þessum heimi.
Rjómasprauta með
10OO kr. afslætti!
Verð nú aðeins
Hin sígilda og vinsæla
loftvog með hita-
og rakamæli.
Sparaðu meira en
1000 kr. Verð aðeins
Alveg tilvalin
I bústaðinn þegar
gesti ber að garði.
Garðáhöld á
frábæru verðil
Þrjú stykki saman
með 40% afslætti
á aðeins
Allar stærðir af
rimlagluggatjöldum með
Bráðnauðsynleg I
(slensku miðnætursólinni.
Grlmseyingar fá 5% aukaafslátt!
Kælifata með
25% afslætti!
Upp með kampavinið og
beint I fötuna. Aðeins
Hjólalás á hálfvirði!
Nlðsterkur, festist beint
á gjörðina, þvælist ekki
fyrir og kostar aðeins
Grillskál á aðeins ooy Kr.
35% afsláttur! Góð hjá grillinu. Tilvalin fyrir
kjötið, kartöflurnar og grænmetið.
3 Brúðkaup - Gjafalisti
• "* Útbúum skrá yfir óskir brúðhjónanna.
; , Allt fyrir heimilið á góöu verði.
Sumarbústaðaeigendur!
Sýndumyndaf
sumarbústaðnum
þínurn við kassann og
verðið lækkar
k um 10% af MajfpffSidji
SW öllum vörum!
Rýmingarsala
á ferðaspilurum
og vasadiskóum!
Sími 568 9400
Opið sunnudag 13-17