Morgunblaðið - 28.05.2000, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000 31
stöðugum breytingum undirorpið frá
degi til dags?“
Menn þurfa víðtæka reynslu
„Við Islendingar höfum ekki þjálf-
að starfsfólk okkar sérstaklega til
þessa, það hefur hins vegar verið
hluti af okkar menningu að ýta undir
það að fólk tolli vel í vinnu, það hefur
þótt viss dyggð. í dag hugsa menn í
ríkari mæli öðruvísi, þeir vita að þeir
þurfa víðtæka reynslu til þess að búa
sig undir vinnumarkað framtíðarinn-
ar. Nærtækt dæmi eru ungir lista-
menn; þeir fjárfesta í sjálfum sér og
það skilar þeim árangri. Við getum
einnig nefnt fyrirtæki á borð við
X-18, Marel og OZ; þetta eru hug-
vitsfyrirtæki og þar eru menn nær
því að skilja að þeirra eigin þekking
er starfsöryggi þeirra en ekki það
umhverfi sem þeir „planta" sér í.
Þetta þykir sumum beinh'nis ógn-
vekjandi tilhugsun, en aðrir átta sig á
því að þeir þurfa að vera gerendur
fremur en þolendur við slíkar að-
stæður - þeir þurfa að afla sér þekk-
ingar og fá upplýsingar, þannig að
þegar að þeim kemur hvað breyting-
ar snertir komi það þeim ekki á
óvart.“
Krafa um meiri framleiðni
hjá hverjum starfsmanni
„Langflest fyrirtæki eru nú að
skoða einhvers konar starfsþróun
fyrir sína starfsmenn af þessum
ástæðum. Það hefur orðið umtals-
verð breyting í þessum efnum á þeim
tíu árum sem liðin eru síðan Sfs tók
til starfa; þá sögðu menn: „Þekking-
arfyrirtæki, hvað er það?“ Eimskip
er t.d. mjög gott dæmi um fyrirtæki
sem byrjaði á þessu árið 1993, á
næstu þremur árum lét fyrirtækið
þjálfa alla sína starfsmenn til þess að
takast á við breytingar. Islandsbanki
vann vel með þá hugmyndafræði að
búa þyrfti til sameiginlega menningu
og undirbúa starfsmenn fyrir breyt-
ingar áður en sameining varð hjá
bankanum. Aður hugsuðu menn bara
um hvort það yrðu uppsagnir, en nú
velta þeir fyrir sér alls konar þáttum
sem lúta að nýju umhverfi. Atvinna
er grundvallarþáttur í lífi okkar og
hún er forsenda fyrir flestöllu því
sem við gerum. Þess vegna er mikil-
vægt að fyrirtækið og starfsmenn
undirbúi sameiginlega þær breyting-
ar sem verða eiga; vellíðan í rekstri
og velliðan á vinnumarkaði felst í því
að menn hafi aðgang að upplýsingum
og hún skilar sér m.a. í ýmisskonar
hagnaði fyrirtækja. Ef sú staða kem-
ur upp að við lendum í umtalsverðum
sviptingum á vinnumarkaðnum, þar
sem við búum við hækkandi verð-
bólgustig og erfiðleika á fjár-
magnsmarkaði, kemur það að sjálf-
sögðu niður á fyrirtækjunum, sem
svo aftur verða þá að endurskoða
starfsemi sína og starfshætti. Þá
verður vafalaust gerð krafa um meiri
framleiðni hjá hverjum starfsmanni,
sem myndi svo aftur hafa áhrif á
samsetningu starfsmannahópsins.
Eitt af því sem við höfum lagt
megináherslu á er að vekja hinn al-
menna starfsmann og stjórnendur
fyrirtækja til umhugsunar um það að
hver og einn starfsmaður verði að
bera ábyrgð á eigin starfsöryggi.
Þess vegna ættu allir kjarasamning-
ar í dag að ganga út á það að hver og
einn starfsmaður hafi aðgang að svo
og svo miklu fjármagni og aðstöðu til
þess að tryggja eigin stöðu. Þetta
væri skynsamleg viðbót við krónu-
tölusamningana.
Skref fyrir skref hefur ekki verið í
rekstrarráðgjöf, en allt sem viðkem-
ur stefnumótun, stjórnun, starfs-
mannamálum og sameiningarmálum
og öllu sem lýtur að mannlega þætt-
inum í rekstri, það er verksvið fyrir-
tækisins. Annað sem mótar sérstöðu
þessa fyrirtækis er rannsóknarvinn-
an. Ekkert einkafyrirtæki sem gerir
rannsóknir á þessu sviði nýtir þær í
þágu vinnumarkaðarins eins og Sfs
gerir. Það er líka sérstakt að svona
lítið fyrirtæki sé með jafn stór
Evrópuverkefni og raun ber vitni.
Fyrirtækið hefur vaxið hægt og bít-
andi og við leggjum mikla áherslu á
að gleði ríki á vinnustöðum og þá
einnig hjá okkur. Starfsfólkið er á
aldrinum 27 til 55 ára, hópur ólíkra
einstaklinga með ólíkan bakgrunn,
en ég hugsaði mér að byggja upp
samstarfsnet einstaklinga sem hefðu
þroska og þekkingu til að búa til
þekkingarafurðir sem við gætum selt
öðrum fyrirtækjum. Ég hef aldrei
fundið fyrir því í starfi mínu í at-
vinnulífmu að það sé hindrun að
glíma við karlmenn á þeim vettvangi.
Mikið af stjómendum fyrirtækja eru
karlmenn og ég hef átt mjög góð
samskipti við þá. Hjá Sfs erum við
með leiðtoganám sem hentar þeim
vel og annað nám sem hentar konum
sem vilja vaxa sem stjórnendur og
verða leiðtogar og fyrh’myndir hinna
yngri. Við megum ekki gleyma að við
eigum ekki aðeins í samkeppni á inn-
anlandsmarkaði, við erum í harðri
samkeppni við aðila erlendis og við
þurfum að miða menntun og þjálfun
starfsfólks okkar við þá staðreynd.
Búið er að innrétta og fullbúa
rösklega 400 fermetra af húsnæðinu
okkar, en ráðgert er að útbúa m.a.
glæsilegan kennslu- og ráðstefnusal í
þeim 200 fermetrum sem eftir eru.
Hér er mikil áhersla lögð á að starfs-
fólkinu líði vel, en þess má geta að
60% af allri starfseminni fara fram
utan fyrirtækisins."
Jóga gegn kvíða með Ásmundi Gunnlaugssyni
Ásmundur
hefst 8. júní - þri. og fim. kl. 19.30
4ra vikna uppbyggjandi námskeiö, m.a. byggt á eigin reynslu Ásmundar, fyrir
þá, sem eiga við streitu, kvíða og fælni að stríða og/eða eru að ganga í gegn-
um miklar breytingar í lífinu. Kenndar verða leiðir til þess að slaka á og öðlast
aukið frelsi og lífsgleði. Engin reynsla eða þekking á jóga nauðsynleg.
Ásmundur tekur fyrir þætti eins og jógaleikfimi (asana), öndun, slökun og
andleg lögmál, sem stuðla að velgengni, janfvægi og heilsu.
Næsta grunnnámskeið hefst 5. júnf
YOGA^
STU D I O
Auðbrekku 14, Kópavogi,
sími 5-44-55-60.
www.yogastudio.is
HALUR OG SPRUND ehf.
halur@yogastudio.is
Biotone nuddvörur, Oshadhi ilmkjarnaolíur
og Custom Craftworks nuddbekkir
WMBBSSÍ
Veður og færð á Netinu
/§> mbl.is
Talenta - Hátækni
Áhættufjárfestingarsjóður
Hlutafjárútboð og skráning á VÞÍ
Aukin notkun upplýsinga- og fjarskiptalausna í fyrirtækjum og á heimilum
hefur verið einn af drifkröftum mikils hagvaxtar og tækniframfara á
liðnum árum.
Talenta-Hátækni er áhættufjárfestingarsjóður sem fjárfestir í fyrirtækjum
á sviði upplýsingatækni, fjarskipta- og tölvuþjónustu. Sjóðurinn leggur
áherslu á fjárfestingar í óskráðum félögum með mikil vaxtartækifæri.
Þriðjudaginn 30. maí n.k. hefst sala á hlutafé í Talentu-Hátækni en þá
verður hlutafé sjóðsins aukið um 350 m.kr. að nafnverði.
• Til sölu er hlutafé að nafnverði kr. 350.000.000.-
• Hlutabréf verða boðin til sölu á genginu 1,5
• Lágmarksáskrift er kr. 100.000.- að nafnverði
• Hámarksáskrift er kr. 20.000.000,- að nafnverði
• Áskriftartímabil hefst 30. maí og lýkur 2. júní
• Móttöku áskrifta mun ljúka fyrr ef allt hlutaféð
selst áður en sölutímabili lýkur
Kynningarfundur
Mánudaginn 29. maí verður kynning á Talentu-Hátækni fyrir
áhugasama fjárfesta kl. 16:30 að Kirkjusandi, 5. hæð.
Unnt er að nálgast útboðs- og skráningarlýsingu hjá FBA, umsjónaraðila
útboðsins. Einungis verður tekið á móti skráningum á rafrænu formi á vef
FBA www.fba.is.
Talenta hf.
Kirkjusandí
155 Reykjavík
Sími 580 5000
Fax: 580 5130
talenta@fba.is
Umsjónaraðiti útboðs:
FBA er hiuti af Islandsbanka-FBA