Morgunblaðið - 28.05.2000, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
HEIMUR Á HVERF-
ANDA HVELI?
FYRIR rúmum 30 árum stund-
aði höfundur rannsóknir í næring-
arfræði prótína og sótti nokkrar
ráðstefnur i því sambandi. Um það
leyti var mikið rætt um prótínskort
og hungur meðal fólks í þriðja
heiminum; í Afríku, á Indlandi og í
Asíu. Allir þekktu myndir af börn-
um með útblásinn kvið og þveng-
mjóa fætur. Höfundur flutti þá
nokkra fyrirlestra um málin og
hvatti til ráðstafana af hálfu ríkra
þjóða. Einhvern veginn leit fólk á
þetta ástand sem sér óviðkomandi
og óviðráðanlegt, en litlar breyting-
ar hafa orðið síðan, og vandamálin
versnað mjög.
Leit að leiðsögn
Eitt sinn var gamall maður sem
hafði varið mörgum árum ævi sinn-
ar í leit að framtíðinni. Hann hafði
lesið ósköpin öll af bókum eftir
vitrustu menn sem höfðu spáð því
hvemig framtíðin liti út. Gamli
maðurinn átti erfítt með að átta sig
á því hvernig hún væri og hvar
hana væri að fínna, því spádómar
hinna vísustu manna voru mjög
mismunandi. Hann ákvað því að
leggja af stað sjálfur í leit að henni.
Um eitt voru flestir spámannanna
þó sammála, að ekki væri það spek-
in ein, sem sem hefði svör við
spurningunum. Ungir og óreyndir
menn, sem ekki hefðu spillst af
- heimsins lystisemdum, hefðu dýpri
tilfmningar og gætu því betur leið-
beint mönnum, hvert fara ætti með
svo vandasamar spurningar.
Gamli maðurinn kynntist miklum
ósköpum á leið sinni; volæði, spill-
ingu og beiskt hungur mátti víða
sjá en einnig sólskin, fegurð og
frið. A leiðinni hitti hann ungan
dreng, sem leiðbeindi honum; hann
sagði að ferðin tæki marga daga í
vesturátt þangað til komið væri að
fjalli miklu, en þá ætti að fara
vinstra megin við það og ganga síð-
an í tvo daga til viðbótar. Par fengi
gamli maðurinn svör. Að langri og
erfiðri göngu lokinni hitti hann
ungan mann, sem augljóslega virt-
.ist vera sá sem hafði svör, og þá
bar hann upp spurningu sína. „Já,“
sagði ungi maðurinn, „þú ferð beint
í suður þangað til þú kemur að
göngustíg sem liggur þvert á
gönguleið þína, en þá ferð þú til
Nútímamaðurinn verð-
ur að vera sveigjanlegur
og reiðubúinn að lifa frá
degi til dags og takast á
við vandamál, segir Jón-
as Bjarnason, sem jafn-
vel gætu stangast á við
eigin siðferðisviðhorf.
hægri.“ „Nei - heyrðu annars - þú
kemst ekki til framtíðarinnar héð-
an. Þetta ættir þú að sjá eins vel og
ég.“ Gamli maðurinn tárfelldi en
þerraði svo tárin með vasaklút sín-
um. Sá hann þá að ungi maðurinn
var með hvítan staf. Þegar gamli
maðurinn hafði jafnað sig að
nokkru dró hann djúpt andann, en
þá fannst honum sem loftið væri
ertandi fyrir lungun; hann hafði
ekki veitt því athygli fram að þessu
sökum eftirvæntingar. Hann sá þá
að hann hafði ratað leiðina sem
ekki var fær og of seint var að leita
áfram, hann fyndi varla leiðina til
baka; að einu leyti var hann þó vís-
ari, þetta var ekki leiðin.
Spá er spaks geta
í dag eru spámenn og framtíðar-
spekúlantar orðnir fremur
þegjandalegir eftir aragrúa af
spám og áætlunum um framtíðar-
þróun á síðustu tugum aldarinnar.
Flestar þeirra hafa reynst rangar
eða alrangar. Hinn
kunni félagsvísinda-
maður í Berlín, Eric
Hobsbawm (höfund-
ur bókarinnar „Öld
öfganna"), sagði ný-
lega í blaðaviðtali að
núverandi ástand í
heimsmálum líktist
mest villtri samsuðu
af óeirðum eða út-
brotum, pólitískum
og efnahagslegum. í
þessum hrærigraut
væri nánast tilgan-
gslaust að leggja
það erfíði á sig að
gera áætlanir eða
forspár um þróun. Aðeins eitt væri
óyggjandi: Regla fari minnkandi en
ringuleiðin aukist. Meira að segja
væri eina tæknilega og hernaðar-
lega ofurveldi heims, Bandaríkin,
með öllu óhæft til að halda uppi aga
í heiminum eða stjórna honum. Frá
því að kalda stríðinu lauk fyrir ára-
tug hafa 200 stór vopnátök átt sér
stað með mörgum milljónum
dauðsfalla.
Ekki eru allir spámenn eins og
Nostradamus sem, með frjálslegri
túlkun þó, sá fyrir ýmsa stórat-
burði eins og t.d. valdabrölt og
glæfragang Napóleons Bonaparte
og Hitlers, öldum áður en atburð-
irnir áttu sér stað.
Nýlega hefur verið gerð könnun í
Bandaríkjunum á framtíðarspám
síðustu áratuga og þær bornar
saman við reynsluna. í ljós hefur
komið að þær reyndust rangar eða
alrangar í 80% tilvika. „Rómar-
klúbburinn" svokallaði sendi frá
sér „pragmatíska" og í bland mjög
svartsýna spádóma (apokalypsis,
dómsdagsspár). „Endimörk vaxtar-
ins“ sem kom út árið 1972 (D.L.
Meadows og samstarfsm.) var
fyrsta verkið úr þeim herbúðum, en
þegar hafa verið gefín út 26 sérrit,
sem skrifuð hafa verið af einstök-
um fræðimönnum eða hópum, en
gefin út á vegum klúbbsins. Það
síðasta er „The Oceanic Circle:
Governing the Seas as A Global
Resource", þ.e. „Hafstraumafæri-
bandið“ fræga og umdeilda, eftir
E.M. Borgese. Þjóðverjinn Stefan
Rahmstorf gerði síðan stærðfræði-
líkan fyrir færibandið og komst að
þeirri niðurstöðu, að aukinn hiti í
andrúmslofti (vegna gróðurhúsa-
áhrifa) gæti breytt leiðum golf-
straumsins á þann veg m.a., að
hann færi alfarið fram hjá Islandi,
en þá myndi kólna mjög í veðri hér.
Þetta hefur, að því er virðist, haft
mikil áhrif á marga hérlendis, þótt í
reynd sé um tilgátu að ræða og síð-
an tölvukeyrslu á líkani um tilgát-
una. Er sú spá nokkuð gáfulegri en
allar hinar? Full ástæða er þó til að
skoða málin af alvöru.
Fleiri spámenn koma við sögu og
í þeirra hópi eru margir bandarísk-
ir hugsana- eða hugmyndabankar
(aðallega kostaðir af bandaríska
varnarmálaráðuneytinu); Hermann
Kahn („euphora", þ.e. allt lagast),
Hudson-stofnunin og ýmsir áhuga-
framtíðarspámenn.
Spárnar köstuðust síðan á milli
of eða van í flestum efnum, eða
voru alveg út í hött, margar þeirra
voru gerðar á sjötta áratugnum,
þegar geimflug var nýhafið. Því
gerði t.d. H. Kahn og Rand-félagið
spá um að mannaðar bækistöðvar
yrðu á tunglinu og mannaferðir til
Mars þegar á níunda áratugnum.
Um aldamótin núverandi áttu flug-
vélar að fljúga með tíföldum
hljóðhraða á milli heimshorna.
Einnig var spáð um að almennar
bólusetningar gegn öllum bakter-
íum og vírusum yrðu staðreynd um
aldamótin. Einnig átti að vera unnt
að leiðrétta erfðagalla með inngrip-
um eða breytingum á DNA. Það
mál er nú talið mjög langt undan
eða ómögulegt. Enginn sá fyrir fall
kommúnismans.
Spár um tölvubransann voru
einnig of eða van. Ekki sáu menn
fyrir sér hina geysilegu þróun nets-
ins og á allskonar tölvubúnaði sem
er svo smár að unnt er að stinga
honum í vasann og að verð tækj-
anna væri almenningi engin hindr-
un. Hinsvegar spáðu menn því að
löngu fyrir aldamót yrðu komnar
tölvuþýðingarvélar, sem þýtt gætu
hvaða tungumál sem er, eftir töluð-
um orðum. Kauphallarsérfræðing-
urinn E. Garzarelli spáði rétt fjór-
um dögum fyrir verðfallið mikla í
Wall Street 1987. Eftir það naut
hún mikils álits sem slík, en úttekt
á spám hennar frá 1987-1996 sýndi,
að hún hafði rétt fyrir sér í 38% til-
vika, þ.e. betra hefði verið að kasta
upp teningi.
Bjartsýnismenn spáðu fyrir um
almennt mjög bætt lífsgæði fólks
um aldamótin en fátt er því til stað-
festingar um þessar mundir nema í
nokkrum ríkum þjóðum og reið fá-
mennra hópa spekúlanta á öldu-
faldi viðskiptabyltingar. Ef miðað
er við spádóma liðins tíma eru litlar
líkur á því að núverandi spámenn
spái rétt; kannski einhver þeirra,
en hver? Að öllu undangengnu varð
til hin þverstæðufulla kennisetning.
Virtar og faglegar framtíðarrann-
sóknir hafa eina grundvallarreglu;
ekki er unnt að segja fyrir um
framtíðina (Eckard Minx).
Það er eins og allar stórar breyt-
ingar á þróun gerist með stökk-
breytingum á hugsanamynstri en
ekki með framlengingu á þróun
sem menn sjá eða geta mælt. Vísir
menn sjá margt en þeir eru flestir
bundnir í ákveðnu mynstri sem
takmarkar sýn.
Framlenging þróunar
Ef horft er til heimsins í heild og
reynt að meta hvaða þróun á sér nú
stað kemur hryggðarmynd í ljós.
Sem dæmi má nefna:
• Rúmur helmingur íbúa heimsins
þjáist af almennri neyð og hún
fer vaxandi.
• Um helmingur jarðarbúa býr
við algjöran skort á hreinlæti.
Um einn milljarður hefur ekki
aðgang að neinu vatni í venju-
legum skilningi. Vatnsskortur
er vaxandi vandamál.
• Hungur fer vaxandi í heiminum.
í Afríku hefur íbúatala tvö-
faldast á þrjátíu árum en á sama
tíma hefur matvælaframleiðsla
dregist saman um 20% í heims-
álfunni.
• Eyðimerkur halda áfram að
stækka og sums staðar með
meiri hraða en verið hefur.
Þetta á sérstaklega við um lönd
í Afríku á jöðrum stóru eyði-
merkursvæðanna svo og í Suð-
ur- og Austur-Afríku. Einnig í
Asíu á stórum svæðum í Síberíu,
Mongólíu og á svæðum beggja
vegna Gobi-eyðimerkurinnar.
Löndin fyrir botni Miðjarðar-
hafs eru meira eða minna að
eyðast eða eru í hættu svo og
Astralía á stórum svæðum.
Vesturhluti Bandaríkjanna ligg-
ur undir eyðingu á stórum
svæðum svo og vesturhluti Suð-
ur-Ameríku.
• Svokölluð þrávirk og mjög
hættuleg lífræn efnasambönd,
sem eru pláguvarnar- og iðnað-
arefni, safnast fyrir í heimshöf-
unum og eru þegar farin að hafa
áhrif á líf þar á einstökum stöð-
um. Að undanförnu hafa banda-
rískir vísindamenn kynnt niður-
stöður sem benda til þess að
skordýraeitur, m.a. í úðabrús-
um, geti framkallað ofvirkni, at-
hyglisbrest og greindarskort
barna vegna áhrifa efnanna á
fósturskeiði.
• Koltvísýringur hefur vaxið í
andrúmsloftinu um 40% frá iðn-
byltingunni og vex áfram. Lang-
stærstur hluti hans er þó í sjón-
um. Þýðing þessa er umdeild.
• Ruðningur skóga í Brasilíu held-
ur áfram og á eyjunni Borneo
einni eru nú felldir 7,5 ferkíló-
metrar af skógi á dag.
• Á hverju ári hverfa 24 milljarð-
ar tonna af gróðurmold. Það er