Morgunblaðið - 28.05.2000, Qupperneq 38
38 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
%---------------------
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
BRYNJÓLFUR MAR-
EL VILBOGASON
+ Brynjólfur Mar-
el Vilbogason
fæddist í Reykjavík
7. maí 1915. Hann
lést á Elli- og hjúkr-
unarheimilinu
Grund í Reykjavík
20. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Kristín Brynjólfs-
dóttir, f. á Hjalla
(koti) á Álftanesi 4.
október 1875, d. 19.
janúar 1944 og Vil-
bogi Pétursson,
vegagerðarmaður,
f. í Hólshúsum i
Gaulverjabæjarhreppi, 13. sept-
ember 1869, d. 2. október 1958.
Eldri bróðir Brynjólfs var Geir
Vilbogason, bryti, f. 12. október
1912, d. 16. maí 1995.
Brynjólfur kvæntist 26. júní
1942, Huldu Bogadóttur frá Ak-
ureyri, f. 25. janúar 1919, d. 15.
september 1984. Dóttir þeirra
er Kristín Brynj-
ólfsdóttir, f. 11.
júní 1952. Hún er
gift Rick Sweet jr.
og eru þau búsett í
New York fylki í
Bandaríkjunum.
Dóttir Kristínar og
Steinþórs Ómars
Guðmundssonar af
fyrra hjónabandi er
Lilja Huld, f. 28.
desember 1969.
Börn Lilju Huldar
og Róberts Ólafs-
sonar sambýlis-
manns hennar eru
Albert Marel og Eyþór Darri.
Brynjólfur var atvinnubíl-
stjóri lengstan hluta starfsævi
sinnar, þar af lengi leigubíl-
stjóri hjá BSR þar til hann lét af
störfum fyrir aldurs sakir.
Útför Brynjólfs fer fram frá
Áskirkju, mánudaginn 29. maí
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
Svo mælti Almítra: „Mál er nú
að spyrja um dauðann.
Og hann sagði: Þú leitar að
leyndardómi dauðans.
En hvernig ættir þú að finna
hann, ef þú leitar hans ekki í æða-
slögum lífsins? Uglan, sem sér í
myrkri, en blindast af dagsbir-
tunni, ræður ekki gátu ljóssins.
Leitaðu að sál dauðans í líkama
lífsins, því að líf og dauði eru eitt
eins og fljótið og særinn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum þeim, sem
sýndu okkur stuðning og hlýhug við fráfall
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
ELÍSABETAR SÓLVEIGAR
HARÐARDÓTTUR,
Stórholti 28,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild A-5 á
Landsþítalanum í Fossvogi.
Elfa Björk Sigurjónsdóttir,
Jóhanna Friðbjörg Sigurjónsdóttir, Magnús Gunnarsson,
Katrín María Andrésdóttir, Rúnar Gíslason,
Matthías Rúnarsson.
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
ÖNNU ÞORBJARGAR SIGURÐARDÓTTUR.
Sérstaklega viljum við þakka starfsfólki á
Hrafnistu í Hafnarfirði kærleiksríka umönnun
síðustu æviár hennar.
Ingibjörg Þorkelsdóttir, Guðni Þorgeirsson,
Salome Þorkelsdóttir, Jóel Kr. Jóelsson,
Sigurður Þorkelsson, Jóhanna Guðbrandsdóttir,
Kristln Þorkelsdóttir, Hörður Daníelsson,
barnabörn og langömmubörn.
Lokað
Fjölbrautaskólinn við Ármúla verður lokaður frá kl. 12.00 mánu-
daginn 29. maí vegna útfarar HAFSTEINS Þ. STEFÁNSSONAR,
fyrrverandi skólameistara.
Skólameistari
Frágangur afmælis-
og minningargreina
MIKIL áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprent-
uninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyrir tvíverknað.
Þá er enn fremur unnt að senda greinamar í símbréfi (569 1115) og í
tölvupósti (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höfundar/
sendanda fylgi.
Um hvem látinn einstakling birtist formáli, ein uppistöðugrein af
hæfilegri lengd, en aðrar greinar um sama einstakling takmarkast við
eina örk, A-4, miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd, - eða 2.200
slög (um 25 dálksentimetra í blaðinu). Tilvitnanir í sálma eða ljóð tak-
markast við eitt til þrjú erindi. Greinarhöfundar em beðnir að hafa
skímarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
í djúpi vona þinna og langana
felst hin þögla þekking á hinu yfir-
skilvitlega, og eins og fræin, sem
dreymir undir snjónum, dreymir
hjarta þitt vorið.
Trúðu á draum þinn, því að
hann er hlið eilífðarinnar.
Óttinn við dauðann er aðeins ótti
smaladrengsins við konung, sem
vill slá hann til riddara.
Er smalinn ekki glaður í hjarta
sínu þrátt fyrir ótta sinn við að
bera merki konungsins? Og finnur
hann þó ekki mest til óttans? Því
að hvað er það að deyja annað en
að standa nakinn í blænum og
hverfa inn í sól- skinið? Og hvað er
að hætta að draga andann annað
en að frelsa hann frá friðlausum
öldum lífsins, svo að hann geti ris-
ið upp í mætti sínum og ófjötraður
leitað á fund guðs síns? Aðeins sá,
sem drekkur af vatni þagnarinnar,
mun þekkja hinn volduga söng.
Og þegar þú hefur náð ævitind-
inum, þá fyrst munt þú hefja fjall-
gönguna.
Og þegar jörðin krefst líkama
þíns, muntu dansa í fyrsta sinn.“
(Spámaðurinn).
Elsku afi, nú hefurðu fengið
hvíldina, eftir að hafa barist svo
hetjulega við sjúkdóm ellinnar.
Þín mun verða sárt saknað af
langafastrákunum.
Hvíl í friði.
Þín
Lilja Huld.
Elsku pabbi.
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaðar viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna,
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guð sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guð þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Guð geymi þig.
Kristín og Rick.
Með nokkrum orðum langar
okkur að minnast mágs og föður-
bróður, Brynjólfs Marels Vilboga-
sonar, sem alltaf var kallaður
Malli. Hann lést 20. þ.m., á 86. ald-
ursári. Hann og fjölskylda hans
var okkur mjög kær. Malli fæddist
7. maí 1915 á Hverfisgötu 89, en
það hús fer nú að hverfa af sjónar-
sviðinu. Hann ólst upp í foreldra-
húsum á Grettisgötunni. Þar eign-
aðist hann sína æskuvini. Sú
vinátta hélst fram á fullorðinsár.
Af Grettisgötunni fluttist fjöl-
skyldan á Þórsgötu 22a. Tengjast
minningarnar því húsi sterkum
böndum, þar sem þrír ættliðir fjöl-
skyldu okkar hafa búið. Ungur að
árum var Malli sendill hjá Kaupfé-
lagi Borgfirðinga á Laugavegi 20.
Einnig stundaði hann lítilsháttar
sjómennsku á fragtskipum sem
messagutti og háseti. Allt frá
barnæsku hefur Malli verið mikill
bílaáhugamaður, en ævistarf hans
var bifreiðaakstur, lengst af hjá
BSR, og voru Ramblerarnir hans
vel þekktir. Malli hafði brennandi
áhuga á íþróttum, einkum fótbolta,
og fylgdist hann vel með þeim í
öllum fjölmiðlum fram á síðustu
stundu. Fór íþróttafólkið í fjöl-
skyldunni ekki varhluta af því,
þegar hann, með sínum ljúfu,
glettnu athugasemdum, sagði sín-
ar skoðanir. Malli bjó allan sinn
aldur í Reykjavík, ásamt konu
sinni, Huldu, og dóttur þeirra,
Kristínu. Okkur eru sérstaklega
minnisstæð jólaboðin hjá Huldu og
Malla, heitt súkkulaði með rjóma,
ásamt tíglakökunni gómsætu. Þeg-
ar faðir okkar stundaði sjó-
mennsku hafði Malli þann sið að
aka okkur fjölskyldunni til móts
við hann niður að höfn. Við viljum
þakka Malla samfylgdina, og biðj-
um góðan Guð að varðveita sálu
hans. Við sendum Kristínu og
Rick, Lilju Huld, Róbert og strák-
unum, okkar innilegustu samúðar-
kveðjur. Blessuð sé minning
Brynjólfs Marels.
Gegnum Jesú helgast hjarta
í himininn upp ég líta má,
Guðs míns ástar birtu bjarta
bæði fæ ég að reyná og sjá,
hryggðarmyrkrið sorgar svarta
sálu minni hverfur þá.
(Hallgr. Pét.)
Sigurbjörg Sigfinnsdóttir,
Grétar, Vilborg, Sigrún,
Kristín og fjölskyldur.
+ Konráð Mýrdal
Ásgrímsson
fæddist á Mýrum í
Sléttuhlíð í Skaga-
firði 13. maí 1917.
Hann lést á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á
Akureyri 22. maí síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru Ásgrímur
Halldórsson, bóndi
og vegaverkstjóri á
Tjörnum, og Ólöf
Konráðsdóttir hús-
freyja. Systkini Kon-
ráðs eru Herbert,
Indiana, sem bæði
eru látin, Sigrún og Jón.
Konráð kvæntist árið 1942 Guð-
rúnu Þorsteinsdóttur húsfreyju, f.
13. september 1918. Þau eignuð-
ust sjö börn: 1) Alda Björk, f. 1942,
búsett á Sauðárkróki, gift Trausta
Pálssyni, þeirra börn eru Linda,
Edda og Páll Rúnar. 2) Eyjólfur
Eðvald, f. 1944, búsettur í Svíþjóð,
í sambúð með Yvonne Hjelm. Áð-
ur var Eyjólfur kvæntur Onnu
Sigmarsdóttur, þeirra börn eru
Eðvald og Eydís, og með seinni
eiginkonu sinni, Kristrúnu
Óskarsdóttur, átti hann Guðrúnu
Björgu og Kristján Valdimar. 3)
Þorsteinn Ingi, f. 1948, búsettur á
Akureyri, kvæntur Sólveigu Jen-
sen, þeirra synir eru Konráð Vest-
mann og Anton. Fyrir átti Sólveig
Anniku M. Guðnadóttur. 4) Ómar
Bragi, f. 1950, d. 1952. 5) Ólöf
Sigrún, f. 1950, búsett á Sauðár-
króki, gift Halldóri Arnarsyni, d.
1999, þeirra synir eru Öm Sölvi
Þá er komið að kveðjustund og
viljum við minnast afa okkar með
fáeinum orðum. Afi var orðinn
aldraður og við andlát hans hrann-
ast upp minningar frá bernskuár-
um okkar systkina. Afi var það
sem kalla mætti „dellukarl“, hann
var nýjungagjarn og þurfti alltaf
að eignast eða prófa öll nýjustu
tæki og tól. Gaman var að koma í
heimsókn til hans á Oddeyrargöt-
unni á Akureyri og sjá hvað hann
var að sýsla við í kjallaranum.
Ahugi á þessu sviði sneri ekki síst
að bílum. Hann eignaðist það
marga bíla um ævina að hann
og Halldór Heiðar.
6) Guðlaug Veron-
ika, f. 1955, búsett á
Dalvík, gift Steinari
Steingrímssyni,
þeirra börn eru Sól-
rún, Steingrímur
Rúnar og Ólafur
Ingi. 7) Ásgrímur
Bragi, f. 1962, bú-
settur á Galtartungu
á Fellsströnd, í sam-
búð með Evu Maríu
Ólafsdóttur, þeirra
dóttir er Guðrún
Erla. Barnabarna-
börn Konráðs eru
nfu talsins.
Konráð ólst upp í foreldrahús-
um á Tjörnum í Sléttuhlíð til 25
ára aldurs og starfaði á búi for-
eldra sinna þar til hann kvæntist.
Á unglingsárunum stundaði hann
öll almenn sveitastörf, var í vega-
vinnu og stundaði nám við bænda-
skólann á Hólum einn vetur. Kon-
ráð og Guðrún hófu búskap á
Tjörnum árið 1942. Bjuggu í Mýr-
arkoti á Höfðaströnd 1944-1954
og keyptu þá jörðina Skálá í
Sléttuhlið. Á Skálá voru þau til
1967, en þá fluttu þau til Sauðár-
króks. Þaðan fluttu þau til Akur-
eyrar árið 1972. Á Akureyri starf-
aði Konráð hjá Niðursuðu-
verksmiðju K. Jónssonar í 18 ár
eða á meðan heilsan leyfði.
Útför Konráðs fer fram frá
Glerárkirkju á Akureyri mánu-
daginn 29. maí og hefst athöfnin
klukkan 14.
sjálfur hafði ekki einu sinni tölu á
þeim þegar rifja átti upp bíleign-
ina. Og það var ætíð tilhlökkunar-
efni að sjá hvernig bíl hann væri
nú kominn á þegar við heimsóttum
hann og ömmu eða að þau komu í
heimsókn til okkar í Skagafjörð-
inn. Tilhlökkunin fólst ekki síst í
því að fara á rúntinn með afa því
alltaf lumaði hann á einhverju góð-
gæti í hanskahólfinu, brjóstsykri
eða brenni. Áhugann á bflum
missti afi aldrei og hann átti erfitt
með að sætta sig við að hætta að
aka þegar heilsan brást á efri ár-
um. Til vitnis um áhugann á bílun-
um þá áttu aðrir „bíladellukarlar" í
fjölskyldunni hans fyllsta skilning.
Þannig tók afi ætíð málstað bróð-
urins í okkar systkinahópi þegar
verið var að býsnast yfir tíðum
bílaskiptum hans fyrst eftir bíl-
prófið. Afi stóð sannarlega með
sínum.
Við eigum einnig góðar minning-
ar frá heimsóknum afa og ömmu í
sveitina til okkar, einkum þegar
þau voru hjá okkur þegar foreldr-
ar okkar fóru í sumarfrí. í þau
skipti fórum við með þeim í heim-
sóknir til skyldmenna í Skagafirð-
inum. Þá naut afi sín við aksturinn
um þveran og endilangan fjörðinn.
Eftir því sem árin liðu, við full-
orðnuðumst og fluttum að heiman
fækkaði heimsóknunum til afa og
ömmu. Því varð hver heimsókn
dýrmætari og alltaf tók afi jafn vel
á móti okkur. Það var til dæmis
gaman að fylgjast með því þegar
hann tók sig til á efri árum og fór
að mála með olíulitum. Margar
myndir hans sýna að hann bjó yfir
listhæfileikum sem hann hafði ekki
hátt um.
Elsku amma. Við biðjum Guð að
styrkja þig við að fylla upp í tóma-
rúmið sem afi skilur eftir sig. Þið
voruð saman í flestu sem þið gerð-
uð en við vitum að þangað sem afi
er kominn núna þar líður honum
vel.
Linda, Edda og Páll Rúnar.
Þeir falla óðum fomir, traustir kvistir,
er fyrrum bára uppi smáa þjóð.
Þrotlaust starf um allar íslands byggðir,
eljumannsins var það sigurljóð.
Þú varst einn af þessum eðalkvistum,
er þol og seiglu gamla tímans bar.
Bóndastarfið var þín nautn og vinna,
en víða lagtæk höndin þegin var.
I Sléttuhlíð nú grænka grös í móum,
gróðri breiðir faðminn sól og vor.
A Skálárbreidd mun lyngið lága hvísla,
látnum vini þakka gengin spor.
Þess gætir lítt þó gamall maður kveðji,
er geysist þjóðin fram á nýjan skjá.
Bn Konráð sem að byggði bú á Skálá,
hann byggði hljóður framtíð undir þá.
Skaparans á æðri akurreinum,
andi þinn mun reisa að nýju bú.
I ljúfri hvíld í fósturjarðar faðmi,
þig fjölskyldan á Tjömum kveður nú.
(K.Á.)
Fjölskyldan á Tjörnum.
KONRAÐ MYRDAL
ÁSGRÍMSSON