Morgunblaðið - 28.05.2000, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000 39
MINNINGAR
ÞÓRÓLFUR ALVIN
G UNNARSSON
+ Þórólfur Alvin
Gunnarsson
fæddist á Hvamms-
tanga 16. janúar
1981. Hann lést á
heimili sínu á
Hvammstanga 20.
apríl síðastliðinn og
fór útför hans fram
frá Hvammstanga-
kirkju 5. maí.
„Festið sjónar á
ljósinu, því skugginn
þrífst ekki sólarmegin
við tréð.“ (Óðurinn til
lífsins - Gunnþór Guðmundsson.)
Vorið er komið með vaknandi
gróður og loforð um marga bjarta
sumardaga. En þessir fyrstu sum-
ardagar hafa svo sannarlega verið
daprir. Það er svo erfitt að trúa þvi
að hann Þórólfur sé farinn frá okk-
ur. Hann Þórólfur með blíða brosið,
en þó með glettnis- og stríðnis-
glampa í augunum.
Hann var ekki gamall þegar hann
fór að koma hingað út að Gröf í
fylgd Bangsa. Það var fastur siður
að Unnur systir hans og Sunna
Þórðardóttir kæmu í heimsókn til
okkar á aðfangadaginn með Bangsa.
Og nú bættist hann í hópinn.
Þegar leið að jólum var haíist
handa á jólasveinaverkstæðinu í
Nausti. Börnin hjálpuðu Bangsa við
að útbúa eitthvað til að færa okkur
Tryggva. Mikil leynd hvíldi yfir því
hvað þar væri verið að smíða. Svo
strax eftir hádegi á aðfangadag
birtust þau með pakka og gleðin og
eftirvæntingin skein úr augunum. -
Hverig skyldi nú Stellu lítast á?
Pakkinn var opnaður og fallegur
smíðisgripur bættist í hornið.
Efth- að Þórólfur fór burtu til
náms og vinnu, fækkaði ferðum
hans hingað til okkar. Samt brást
ekki að hann og Bangsi kæmu í sína
árlegu aðfangadagsheimsókn, síð-
ast núna í vetur.
Minningabrotin koma í hugann,
hvert af öðru. Bíll rennur í hlað,
svolítið flaut heyrist. Þeir eru mætt-
ir vinirnir. Skipt hefur verið um
ökumann niðri við hlið. Þórólfur
kominn í ökumannssætið, heldur
maskaralegur en Bangsi er farþegi.
Þeir eru komnir að sækja kartöflur
sem hér eru í geymslu.
- Mamma var orðin al-
veg kartöflulaus, segir
drengurinn. Á björtu
vorkvöldi birtast þeir.
Nú er verið að koma úr
veiðiferð. Þeir hafa
farið að veiða í Hópinu
eða Vesturhópsvatni.
Sýna veiðina stoltir á
svip, ekki við annað
komandi en að gefa
okkur í soðið.
Það er vetrardagur,
snjór yfir öllu, vélsleði
brunar upp túnið.
Ungur og áræðinn
stígur ökumaðurinn af sleðanum og
kveður dyra. - Mig langaði bara að
vita hvernig þið hefðuð það.
Þetta eru ómetanlegar stundir,
sem aldrei gleymast. Og þessar
ljúfu og björtu minningar eigum við,
þær getur enginn frá okkur tekið.
Eg vona svo innilega að sóknar-
prestinum okkar sr. Sigurði Grétari
Sigurðssyni takist að sá því fræi í
brjóst barna og ungmenna hér,
reyndar okkar allra, að alltaf sé til
ljós, þótt stundum virðist skuggsýnt
og lífið tilgangslaust.
Af eilífðarljósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir,
vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir
og upphiminn fegri
en auga sér,
mót öllum oss faðminn breiðir.
(EinarBen.)
Elsku Gréta, Gunnar, Unnur,
Steini, Elvar, Bangsi og aðrir ást-
vinir. Við Tryggvi biðjum algóðan
guð að styrkja ykkur og blessa
minningu Þórólfs. Minningin um
góðan dreng lifir og yljar okkur um
hjartarætur og við þökkum fyrir að
hafa fengið að kynnast honum.
Stella í Gröf.
Elsku strákurinn minn. Fótunum
er kippt undan veröldinni, missirinn
er mikill. Ég á engin orð til að lýsa
líðan minni, ég get ekki trúað að ég
fái ekki að hitta þig aftur og heyra
hlátur þinn, að við fáum ekki að eiga
þig lengur.
Þú varst alltaf svo léttur og kát-
ur. Ég man svo vel eftir því þegar
þú komst til okkar skömmu eftir að
Elvar Austri fæddist. Þú ætlaðir
ekki að þora að halda á honum. Þér
fannst hann svo lítill og brothættur.
Þið urðuð svo góðir vinir og áttuð
alltaf fjörugar og kátar stundir
þann tíma sem þú bjóst hjá okkur.
Það brjótast um margar hugsanir í
litlum kolli og hann biður Guð að
passa þig á hverju kvöldi, er hrædd-
ur um að það sé engin eldavél hjá
Guði og að þú verðir svangur. Við
eigum öll yndislegar minningar og
þökkum öll fyrir að hafa kynnst þér
og fengið að eiga þig.
Fram í hugann hljóðar streyma
hugsanir um liðnar stundir.
Mynd þína ég mun vel geyma,
hún máist ei þó rofni fundir.
Þó sorgin að hjartanu herði sitt tak
um hugann sú vissa smýgur.
Að dauðans vald er brotið á bak
mót birtunni sál þín flýgur.
Þitt ævifley á boða þú braust
bátnum ei komst í var.
Örlagadóm þann erfiða hlaust
- og aðeins í þögninni er svar.
Ég brýt um það heilann bróðir minn kær
hve brothætt er - lífið og stutt.
En minningar skírar, eins og gerst hefði í
gær
þá geta burt sorginni rutt.
Nú aftur er fornar götur ég geng,
það geymst hefur innst í sinni.
Þegar ég leiddi þig lítinn dreng
þinn lófi í hendi minni.
Við leiddumst ung systkin um lautir og
mó
löngum hjá afa við dvöldum.
Eða komum í kapp niður að sjó
þar kuðung í lófanum földum.
Gersemar margar í fjörunni fundum
þann fjársjóð skal minningin geyma.
Saman svo glaðvær í æsku við undum
við öryggi í „plássinu" heima.
Það hugarró veitir í harmanna tíð
ef horfum við fram á veginn.
Að hláturinn glaði og brosin þín blíð
bíða okkur hinum - megin.
Bráðum þorna trega tárin,
trúin okkur veitir þrótt,
getur að lokum grætt öll sárin,
Guð þig blessi. - Hvíldu rótt.
Elsku Þórólfur minn, ég kveð þig
með virðingu og söknuði. Hvíl í friði.
Unnur Elva.
+
Alúðarþakkir fyrir samúð og vinarhug vegna
andláts elskulegrar móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
MAGNEU G. GUÐMUNDSDÓTTUR,
Seljahlíð,
áður Hólmgarði 20,
Reykjavík.
Elvar Bjarnason,
Jóna Bjarnadóttir,
Ester J. Bjarnadóttir,
Sigurgeir Bjarnason,
Bjarni Már Bjarnason,
barnabörn og
Ásta Kristinsdóttir,
Erling Georgsson,
Hjálmar Markússon,
Margrét Jónsdóttir,
Helga B. Atladóttir,
langömmubörn.
+
Elskulegur faðir minn, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
BRYNJÓLFUR MAREL ViLBOGASON
fyrrverandi ieigubílstjóri,
Hringbraut 50,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn
29. maí kl. 13.30.
Kristín Brynjólfsdóttir Sweet, Rick Sweet,
Lilja Huld Steinþórsdóttir, Róbert Ólafsson,
Albert Marel og Eyþór Darri.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MATTHILDUR JÚLÍANA SÓFUSDÓTTIR
frá Drangsnesi,
Suðurgötu 121,
Akranesi,
sem lést á Sjúkrahúsi Akraness miðvikudaginn
24. maí sl., verður jarðsungin frá Akraneskirkju
þriðjudaginn 30. maí kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á Sjúkrahús Akraness.
Magnús Bakkmann Andrésson,
Sófus Magnússon, Gunnfrfður Magnúsdóttir,
Andrés Magnússon, Súsanna Ernudóttir,
barnabörn og langömmubörn
REYNIR
SIGURÞÓRSSON
+ Reynir Sigur-
þórsson fæddist í
Reykjavík 28. febr-
úar 1930. Hann lést á
heimili sínu í Kópa-
vogi 27. apríl síðast-
liðinn og fór útfór
hans fram frá Foss-
vogskirkju 5. maí.
Það var á áttunda
áratugnum sem ég
hitti Reyni í fyrsta
sinn. Hann var þá
stöðvarstjóri í Nes-
kaupstað en ég á ein-
hverju mælingaferða-
lagi. Báðir störfuðum við hjá Póst-
og símamálastofnun. Þegar ég kom
til Neskaupstaðar og hugðist fá gist-
ingu á símstöðinni voru aðrir menn
þar fyrir og ekkert pláss. Gistihús
höfðu ekkert pláss í þetta sinn en
hann gafst ekki upp fyrr en hann
hafði útvegað mér gistingu úti í bæ.
Okkar fundum bar ekki saman
aftur fyrr en 1979 en þá var hann
orðinn umdæmisstjóri í Umdæmi
IV, Austurlandsumdæmi, hjá Póst-
og símamálastofnun, með aðsetur á
Egilsstöðum. Þetta starf heyrði
beint undir póst- og símamálastjóra.
Ég undirritaður var ráðinn í starf
umdæmistæknifræðings snemma
árs 1979. Mitt starf var m.a. fólgið í
því að vera umdæmisstjóra til ráð-
gjafar í tæknimálum. Ég kynntist
því Reyni allnáið.
Ég minnist þess, að
þá voru 300 númer í
sjálfvirku símstöðinni
á Egilsstöðum, og eng-
in númer laus, en hún
hafði verið opnuð 1970.
í þá daga voru númer
ekki á lausu, og stöðvar
voru ekki stækkaðar
fyrr en notendur voru
fyrir hendi. Stækkun
var í 100 númera þrep-
um og þurftu því að
liggja fyrir því sem
næst 100 umsóknir til
að stöðin yrði stækkuð.
En þar eð flestir vissu
að engin númer voru til, sóttu ekki
allir um, það virtist þýðingarlaust.
Reynir hvatti fólk til að sækja um
síma, og árið 1982 voru númerin orð-
in 600 þrátt fyrir að fólksfjölgun
hefði aðeins orðið um 200 á svæði
stöðvarinnar. Þetta litla dæmi sýnir
betur en löng saga, hvernig hann
beitti sér fyrir framförum til hags-
bóta fyrir símnotendur í sínu um-
dæmi. Hann barðist með kjafti og
klóm fyrir bættri símaþjónustu í
landsfjórðungnum. Það var þó að-
eins hálft starfið, því að hann var
einnig yfirmaður póstmála fjórð-
ungsins.
Reynir var stjórnsamur, fljótur að
taka ákvarðanir og það velktist eng-
inn í vafa um hver stjórnaði. Hann
vildi hafa skýrar línur í sínu stjórn-
skipulagi og fylgdist náið með því
sem verið var að vinna að, allt niður í
smæstu verkefni, enda leit hann svo
á að sín væri ábyrgðin að sérhvert
verk yrði sómasamlega af hendi
leyst.
Ekki þætti mér ólíklegt að þeir,
sem ekki kynntust Reyni að ráði,
hafi álitið hann nokkuð hvatvísan en
við sem kynntust honum nánar kom-
umst að raun um að alltaf var stutt í
glettnina. Hann var hins vegar oft
snöggur til svars og menn voru varla
búnir að sleppa síðasta orðinu, hvað
þá ná andanum, þegar svarið kom.
Hann var fljótur að setja sig inn í
mál, greina aðalatriðið, og tók alltaf
skjótlega ákvörðun og stóð við hana.
Hann kenndi hjartasjúkdóms árið
1983 og dvaldist þá um hríð á
sjúkrahúsi og átti jafnan við þann
sjúkdóm að stríða eftir það en and-
inn var alltaf hress.
Reynir lét af störfum eftir að gerð
var skipulagsbreyting á Póst- og
símamálastofnuninni, og hún var
„háeffuð" 1. janúar 1997.
Það kom mér nokkuð á óvart þeg-
ar ég frétti um andlát Reynis því að
nokkrum dögum áður hafði hann
hringt til mín, andlega vel hress að
vanda, og beðið mig að aðstoða sig
lítillega við tölvu sem hann var að at-
huga fyrir annan mann. Þetta var í
hádeginu á föstudaginn langa. Hann
spurði mig fyrst hvað ég væri að
gera. Ég kvaðst hafa verið að borða.
„Ertu að éta og það á föstudaginn
langa!“ Svaraði hann að bragði í um-
vöndunartón. Andinn var greinilega
ennþá fullhress og alltaf jafnstutt í
glettnina. Þannig minnist ég Reynis
og þakka honum fyrir samstarfsár-
in.
Guðmundur Ingvi Jóhannsson.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug við andlát og útför móður okkar, stjúp-
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁGÚSTÍNU BERNHARÐSDÓTTUR
frá Kirkjubéli
í Valþjófsdal.
Guðmundur Steinar Björgmundsson, Sigríður Magnúsdóttir,
Anna Kristín Björgmundsdóttir, Markús Guðmundsson,
Sigríður Björgmundsdóttir, Sigmundur Þorkelsson,
Eyjólfur Björgmundsson, Berglind Rós Pétursdóttir,
Edda Björgmundsdóttir, Bragi Björgvinsson,
Bragi Björgmundsson, Guðrún Jóhannsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir til allra er auðsýndu okkur
hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
HÖNNU GUÐRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR
frá Garðhúsum á Akranesi,
síðast til heimilis í Hjallaseli 45,
Reykjavík.
Magnús Þ. Sigurðsson,
Björn Júlíusson, Guðrún Ásmundsdóttir,
Anna Vigdís Gunnlaugsdóttir, Sigurjón Markússon,
Sigurður Magnússon, Agnes Agnarsdóttir,
Guðleif Unnur Magnúsdóttir, Sverrir B. Þorsteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
i