Morgunblaðið - 28.05.2000, Síða 42
42 SUNNUDAGUR 28. MAÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Umhverfisdagur
á Flateyri
Flateyri. Morgunblaðið. ^
HEFÐ er fyrir því að ljúka skólaúr-
inu í Grunnskóla Önurularljarðar á
umhverfisdegi. Nemendur og kenn-
arar ganga um bæinn með svarta
ruslapoka og tína ofan í þá það sem
lent hefur utan við ruslatunnurnar
um veturinn.
Á umhverfisdeginum í ár voru,
auk ruslatínslunnar, gróðursettar
175 birkiplöntur sem fengnar voru
Úr Yrkjusjóði Skógræktarfélags fs-
lands. En 118 skólar víðsvegar um
landið fengu úthlutað samtals um
40.000 plöntum úr sjóðnum á þessu
ári.
Svæðið þar sem gróðursetningin
fór fram er innan við varnargarð-
ana ofan við Flateyri. Þar er fyrir-
hugaður minningarlundur um nátt-
úruhamfarirnar sem dundu á
bæjarbúum 26. október 1995 og
voru plöntur nemendanna þær
fyrstu sem gróðursettar eru í til-
vonandi lundi.
EIGNAMIÐIXMN
<*OVO * I
55 ooor, • SíAihiiiíL
Tryggvagata 28 - til leigu
Húsið nr. 28 við Tryggvagötu í Reykjavík. Um er að ræða heila húseign (Gjaldheimtu-
húsið) og er eignin alls u.þ.b. 1200 fm og skiptist í kj., götuh., 2. og 3. hæð og rishæð.
Mögul. er að leigja alla eignina í heilu lagi eða i hlutum. Húsið er í mjög góðu ástandi
og hefur allt verið endum. að utan. Húsið er laust nú þegar. Að innan er eignin í góðu
ástandi. Húsið er laust nú þegar. Allar nánari uppl. veita Stefán Hrafn og Sverrir. 9535
CCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCC
4>iþiþ4)iþi4>i^iþiPiþ4>4>4>»P4>4)4>iþ4)4>i4>4>4>4>iþ4>iþiþ4>
Fasteignasalan Hreiðrið
Hverfisgötu 105. S: 5517270 & 8933985
hreidrid@hreidrid.is www.hreidrid.is
CCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCCC
^ i^ i^ i^ lP cp Cp i^ 4) Cp 4) »^ ^ i^ i^ i^ i^ Cp Cp Cp Cp ^p
Fvrirtæki til sölu
Rótgróin ísbúð í Revkjavík. Góð velta.
Sðluturn í Grafarvogi. Hægt að kaupa eða leigja húsnæðið.
Vaxtarmöguleikar.
Söluturn á Seltjarnarnesi. Góð staðsetning.
Veitingastaður. Matur, fullt vínveitingaleifí o.fl.
Skvndibitastaður. Mjög góð velta.
Laugavegur. Af sérstökum ástæðum verslun á mjög góðu
verði.
Sólbaðstofa. í Hafnarfirði, mikil föst viðskipti. Trimmform, leir
og sjúkraþjálfari. Verslun með ýmsa nauðsynjavöru.
Sólbaðstofa. í Reykjavík; 9 bekkir, strada. í stóru hverfí.
Stradastofa. 3 stradatæki, leir (parta) og ljós. Til flutnings eða
með leiguhúsnæði.
Innflutningsfvritaeki. Tengt bílum. Framundan markaðssetning
inn alla Skandinavíu, Sviss, Austurríki, Þýskaland og
netviðskipti. Til sölu 50% eða 100%.
Sjóstangaveiði. Bátur og búnaður. Mjög skemmtilegur rekstur.
Frumupplýsingar veittar í síma, nánari upplýsingar aðeins á
skrifstofu.
Aðalsteinn Torfason, sölustjóri sími 893 3985
4)4)4)4)4)4)4)»4)kP4)4>4)LP4)kPkP4)4)4)4>i]p»4)kP4)4)»4)kP4)4)
Þorlákshöfn aðaltollhöfn frá næstu áramótum
Lögreglan og tollvörður
fá aðsetur í ráðhúsinu
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Sólveig Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra og Sesselja Jóns-
dóttir, bæjarstjóri Ölfuss, undirrita samninginn.
Þorlákshöfn. Morgunblaðið.
SVEITARFÉLAGIÐ Ölfus og
dómsmálaráðuneytið hafa gert með
sér samning um að ráðuneytið leigi
40 fermetra húsnæði í nýja ráðhús-
inu undir starfsemi lögreglu og toll-
varðar í Þorlákshöfn. Samningurinn
er til 5 ára. Það var Sólveig Péturs-
dóttir, dómsmálaráðherra sem und-
irritaði samninginn af hálfu ráðu-
neytisins.
Sólveig sagði að sótt hefði verið
um fjármagn til að auka einu stöðu-
gildi við embætti sýslumanns á Sel-
fossi til að tollvörður gæti starfað í
Þorlákshöfn. Hún sagði einnig að
stefnt væri að því að bæta löggæsl-
una í Þorlákshöfn með aukinni við-
veru á staðnum.
Sesselja Jónsdóttir, bæjarstjóri
Ölfuss, sagði að lögreglan hefði ekki
verið með fast aðsetur í Þorlákshöfn
lengi og skipakomur til Þorlákshafn-
ar hefðu aukist verulega að undan-
förnu því hefðu kröfur um úrbætur í
þessum málum verið háværar og nú
sæjum við fram á betri tíma. Alþingi
hefur samþykkt að Þorlákshöfn
verði aðaltollhöfn frá næstu áramót-
um og lögreglan fær fast aðsetur svo
vænta má meiri viðveru hennar á
staðnum.
Dómsmálaráðherra ræddi um
fíkniefnavandann og sagði hún að
vandamál sem honum fylgja hefðu
stóraukist á undanförnum árum og
kallaði það á aukna löggæslu og vak-
andi augu íbúanna og benti á að
grenndargæsla hefði víða reynst vel.
Hún sagði að fyrsta fíkniefnamál
sem lögreglan í Arnessýslu hefði
fengist við hefði verið 1975, síðan
hefur fjöldinn aukist jafnt og þétt,
1994 voru málin sex en á síðasta ári
hefðu þau verið þrjátíu og fjögur.
Útskriftarárgangur Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum.
Skólaslit Framhaldsskólans í Eyjum
VESTMANNAEYJAR - Laugardaginn 20. mai var skrifaðir 24 nemendur, þar af þrír nemendur af grunn-
Framhaldsskóla Vestmannaeyja slitið, en skólinn var deild rafiðna, fjórir sjúkraliðar og tveir af 2. stigi vél-
að ljúka 21. starfsári sínú. Að þessu sinni voru út- stjórnar.
Fjölmennasta æsku-
lýðsmót Norðurlanda
UM þrjú þúsund norræn ungmenni
munu taka þátt í æskulýðsmóti í
Reykjavík 21. til 28. júní nk., hinu
fyrsta sinnar tegundar sem fram fer
hérlendis. Mótið ber yfirskriftina
Kultur og ungdom eða Menning og
æska.
Það er NSU - Nordisk samorgan-
isation for ungdomsarbejde, félaga-
samtök 15 norrænna ungmennasam-
taka með um tvær milljónir félaga
Sjálfbær ferða-
mennska á
norðurslóðum
ARI Trausti Guðmundsson jarðeðl-
isfræðingur og ráðgjafi hjá Línu-
hönnun heldur fyrirlestur á vegum
Stofnunar Vilhjálms Stefánssonar
og Ferðamálaráðs íslands um sjálf-
bæra ferðamennsku á norðurslóð-
um. Fyrirlesturinn verður haldinn í
Deiglunni á mánudagskvöld, 29. maí
og hefst kl. 20.
í erindi sínu fjallar Ari Trausti um
mikilvægi ferðaþjónustu á norður-
slóðum og framtíðarþróun; mikil-
vægi vistvæns rekstrar og ferða-
máta og rekur.
innan sinna vébanda sem að mótinu
stendur en framkvæmdin er í hönd-
um Islendinga.
Laugardalurinn verður miðstöð
mótsins í Reykjavík, en dagskrá
þess verður mjög viðamikil og fer að
mestu fram í höfuðborginni. Nor-
rænu ungmennin fara í dagsferð um
Suðurland og skoða meðal annars
Þingvelli, Gullfoss og Geysi, planta
trjám í Aratungu og taka þátt í ungl-
ingahátíð á Selfossi í lok dags.
Arlega er haldin norræn ung-
mennavika á vegum NSU, en aldrei
fyrr hefur verið skipulagt jafn viða-
mikið og fjölmennt mót sem þetta.
Dagskrá mótsins verður fjölbreytt
og má m.a. nefna setningarhátíð,
tónleika, ljósmyndamaraþon, fata-
hönnunarkeppni, lófaþrykk gegn of-
beldi, Jónsmessuhlaup og margt
fleira.
Ungmennafélag íslands ber
ábyrgð á framkvæmd æskulýðs-
mótsins, en það nýtur til þess stuðn-
ings íslenska ríkisins, Reykjavíkur-
borgar, Norrænu ráðherranefndar-
innar og ýmissa stofnana og
fyrirtækja. Formaður undirbúnings-
nefndarinnar er Ólafur G. Einars-
son, fyrrverandi forseti Alþingis.
Umsóknarfrestur fyrir íslensk
ungmenni er til 10. júní.
Ljósmyndasýning á
Amtsbdkasafninu
Saga utan-
ríkisþjón-
ustunnar
HALLDÓR Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra opnar Ijósmynda-
sýningu um sögu utanríkisþjón-
ustunnar í Amtsbókasafninu á
Akureyri mánudaginn 29. maí
kl. 17.00. Utanríkisráðherra
mun einnig halda fyrirlestur
um utanríkisþjónustuna og ut-
anríkismál íslands.
Jafnframt mun utanríkisráð-
herra taka þátt í kynningu á
starfsemi Viðskiptaþjónustu
utanríksráðuneytisins á meðal
fyrirtækja á Akureyri og af
Éyjafjarðarsvæðinu, í sam-
vinnu við Atvinnuþróunarfélag
Eyjafjarðar. Kynningin verður
haldin á Hótel KE A og hefst kl.
15.30.
Ljósmyndasýningin er sett
upp í tilefni af sextíu ára afmæli
utanríkisþjónustunnar og
stendur til loka júnímánaðar.
Sýningin var fyrst opnuð í Þjóð-
arbókhlöðunni á afmælisdegi
utanríkisþjónustunnar þann 10.
apríl sl.