Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 138. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Suðurlandsskjálfti af stærðinni 6,5 varð á þjóðhátíðardaginn Líkur á fleiri jarðskjálftum PÁLL Einarsson, jirófessor í jarðeðlis- fræði við Háskóla Islands, telur að jarð- skjálftinn, sem varð á þjóðhátíðardaginn, hafi orðið á sama misgenginu og olli upp- hafi landskjálftanna árið 1784 en þeir eru taldir vera stærstu jarðskjálftar sem gengið hafa yfir landið á sögulegum tíma. Jarðvísindamenn segja að sagan sýni að á Suðurlandi komi oft fleiri stórir jarð- skjálftar saman. Jarðskjálfti reið yfir klukkan 15:40 á þjóðhátíðardaginn 17. júní og er talinn hafa verið 6,5 á Richter. Upptök skjálft- ans eru í Kaldárholti í Holtum á jarðhita- svæði Hitaveitu Rangæinga. Fyrstu mæl- ingar vísindamanna á Veðurstofu Islands SUÐURLANDSSKJÁLFTAR 16 fjölskyldur heimilislausar BLAÐC ■ Forystugrein/42 bentu til að skjálftinn væri nokkru minni eða 5,5-6, en þegar leið á daginn kom í ljós að skjálftinn var mun harðari. Mikið tjón varð í jarðskjálftanum, eink- um á Hellu og í Holtum og Landsveit. Á milli 60 og 70 íbúar eru heimilislausir, en enn fleiri yfirgáfu heimili sín um helgina af ótta við annan skjálfta. Páll Halldórsson, jarðeðlisfræðingur á Veðurstofu íslands, segir að sagan sýni að á Suðurlandi komi oft fleiri stórir skjálftar saman. Hann bendir á að árið 1896 hafí jarðskjálftahrinan gengið yfir á hálfum mánuði, 1784 hafi það gerst á tveimur dögum, en árið 1732 á tveimur árum. Páll Einarsson segir að reikna megi með að fyrsta skjálftanum fylgi fleiri stórir skjálftar og þá væntanlega vestar á svæðinu. Reynslan kenni mönn- um þetta. Ragnar Stefánsson jarðeðlis- fræðingur telur meiri líkur en minni á að allstór jarðskjálfti gæti orðið vestur af upptökunum 17. júní og allt vestur um Bláfjöll eða Brennisteinsfjöll, þótt ekki sé hægt að segja um þetta með neinni vissu. Mildi þykir að enginn slasaðist alvar- lega í jarðskjálftanum. Er það ekki síst þakkað því að skjálftann bar upp á þjóð- hátíðardag og var því færra fólk heima en annars þar sem mjög margir voru að fagna. Þrennt slasaðist í skjálftanum. Kona fótbrotnaði í Vestmannaeyjum þeg- ar féll á hana grjót. Maður féll og axlar- brotnaði á Hellu og barn meiddist á Hellu í troðningi þegar fólk flúði út úr Hellubíói. Páll Halldórsson sagði í gærkvöldi að fremur lítil skjálftavirkni væri á svæðinu, en vakt yrði í nótt og óvíst um framhaldið. Rætt um þátttöku NATO-ríkja utan ESB í varnarsamstarfi Santa Maria da Feira. Reuters, AFP. LEIÐTOGAR Evrópusambandsins (ESB) ræddu í gær tillögur sem gera ráð fyrir því að þeim ríkjum Atlants- hafsbandalagsins (NATO) sem ekki eiga aðild að sambandinu verði gert kleift að taka þátt í varnarsamstarfi þess. Samkvæmt tillögunum, sem Portúgalar hafa lagt fram, er gert ráð fyrir því að reglulegt samráð verði haft við NATO-ríki sem standa utan ESB um framkvæmd sameigin- legrar öryggis- og varnarmálastefnu sambandsins. Er lagt til að samstarf- Tveggja daga leiðtogafundur Evrópusambandsins í Portúgal ið verði aukið ef og þegar hernaðar- aðgerðir eru fyrirhugaðar. Fundur leiðtoganna hófst í gær í Feira-kastala skammt frá portú- gölsku hafnarborginni Oportó og mun Ijúka í dag. í tillögunum kemur fram að NATO-ríkin utan ESB muni geta tekið þátt í þeim aðgerðum þar sem sambandið þarf að fá afnot af tækjabúnaði NATO ef þau óska þess. í þeim tilvikum þegar ESB þarf ekki á tækjabúnaði Átlantshafs- bandalagsins að halda mun ráðherr- aráðið geta tekið ákvörðun um að bjóða NATO-ríkjum sem standa ut- an ESB að taka þátt í aðgerðum. Leiðtogunum mistókst í gær að leysa þráláta deilu um samræmingu skattheimtu af fjármagnstekjum í aðildarríkjunum 15. Er þó talið hugsanlegt að ný málamiðlunartil- laga Portúgala, sem nú eru að ljúka tímabili sínu í forsæti leiðtogaráðs- ins, geti orðið til að leysa deiluna. MORGUNBLAÐIÐ 20. JÚNÍ 2000 690900 090000 Hvatt til samstöðu á Hellu UM hundrað manns, flestir frá Hellu, sóttu fund almannavarna- nefndar Rangárvallasýslu um að- hlynningu einstaklinga í kjölfar náttúruhamfara sem haldinn var í grunnskólanum á Hellu í gær- kvöldi. Fundargestir virtust al- mennt yfirvegaðir og spurðu lítið en hlýddu af þeim mun meiri áhuga á mál þeirra fagaðila sem þar héldu erindi. Á fundinum hvatti séra Sigurður Jónsson íbúa til samstöðu. Minnti hann á að á tímum sem þessum kæmi ekkert í staðinn fyrir ást og umhyggju fjöl- skyldunnar og náinna vina. Á fundinum kom einnig fram að við- brögð við áfalli, eins og náttúru- hamförum, væru einstaklings- bundin, en að flestir kæmust í gegnum þau klakklaust. Morgunblaðið/Gom Bæði ungir og aldnir íbúar Hellu og nágrennis fjölmenntu á fræðslufund um áfailahjálp sem haldinn var á Hellu í gærkvöldi. Segjast hafa fellt Basajev Moskva. AFP. RÚSSNESKI herinn til- kynnti í gær að hann hefði vegið Shamil Basajev, einn helsta foringja tsjetsjenskra uppreisnarmanna. Samkvæmt frásögn rússnesku AVN-fréttastofunnar, sem er fréttastofa hersins, var Basaj- ev felldur á sunnudag í árás sérstaklega búinnar herþyrlu nálægt heimabæ hans, Vede- no, sem er í suðausturhluta Tsjetsjníu. Talsmaður Vladimírs Pút- íns Rússlandsforseta í málefn- um Tsjetsjníu, Sergei Yastr- zhembsky, sagði þó í gær að rússneskum stjórnvöldum væri ókunnugt um víg Basaj- evs. Áður hafa borist fréttir af því að Basajev væri allur en þær hafa ávallt verið bornar til baka síðar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.