Morgunblaðið - 20.06.2000, Side 14

Morgunblaðið - 20.06.2000, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Ylströndin í Nauthólsvik formlega opnuð Borgarstjóri stakk sér til sunds Morgunblaðið/Jim Smart Talsverður fjöldi lagði leið sína í Nauthólsvík íblíðunni 17. júní. Nauthólsvík INGIBJÖRG Sólrún Gísla- dóttir, borgarstjóri Reykja- víkur, opnaði ylströndina í Nauthólsvík formlega á þjóð- hátíðardaginn með því að synda yfir víkina ásamt böm- um úr Sundfélagi Reykjavík- ur og Eyjólfi Jónssyni, 75 ára gömlum sundkappa. Ingibjörg sagði sundsprett- inn hressandi, sjórinn hefði verið hlýrri en hún hefði átt von á og hún gerði fastlega ráð fyrir því að hún myndi aft- ur svamla i Nauthólsvíkinni í sumar. „Það er ekkert sem jafnast á við sjóböð," sagði Ingibjörg. Borgarstjórí lofaði fyrir nokkrum ámm að synda yfir Nauthólsvíkina þann 17. júní árið 2000. Ingibjörg sagði að ýmsir hefðu misskilið sig og haldið að hún ætlaði að synda yfir í Kópavog, slíkt hefði aldrei staðið til enda hefði hún ekkert þangað að sækja, sérstaklega ekki á þjóðhátíðardaginn. Ingibjörg sagði það gamlan draum borgaryfirvalda að í Nauthólsvík yrði sjóbaðsstað- ur. „Eins og þeir muna sem komnir em um eða yfir miðj- an aldur var oft fjömgt bað- strandarlíf á fögmm sumar- dögum hér í Nauthólsvík en vegna mengunnar varð að loka þessum vinsæla útivist- arstað," sagði Ingibjörg. Opn- un ylstrandarinnar er þó að- eins fyrsti áfanginn. „Þegar yfir lýkur er ætlun okkar að hér verði fyrirmyndaraðstaða fyrir börn og fullorðna," sagði borgarstjóri. Eyjólfur Jóns- son sundkappi sagði sjóinn álíka hlýjan og vatnið í sund- laugunum. „Það er meirihátt- ar framtak að gera víkina að sundstað," sagði Eyjólfur. „Það eykur þrótt, eljan og heilsu að stunda sjóböð." Sundspretturinn yfir víkina var reyndar með þeim styttri fyrir Eyjólf sem æfði og stundaði sund í sjó af krafti á sínum yngri ámm, en hann synti m.a. á milli Reykjavíkur og Akraness hinn 6. júlí 1958. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Eftir sundið slökuðu borgarstjóri og Eyjólfur Jónsson sundkappi á í heitri laug sem komið hefur verið fyrir á ströndinni. Morgunblaðið/Jim Smart Ingibjörg Sólrún Gísladóttir opnaði ylströndina í Nauthólsvík með því að synda yfir víkina. Hjólreiðadagur í Laugardalnum Laugardalur FJÖLDI hjólreiðarmanna kom á hjólreiðadag í Laug- ardalnum á sunnudag. Dagurinn er Iiður í Sum- aríþróttahátíð í Reykjavík og stendur hún dagana 17.- 24. júní. íþróttabandalag Reykjavíkur stendur fyrir hátíðinni í samvinnu við Reykjavík Menningarborg 2000 og fþróttahátíð ÍSÍ. Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir setti hátíðina jafn- framt því að vígja nýja yl- strönd í Nauthólsvík. Hjólreiðadagurinn í Laug- ardalnum var haldinn í sam- vinnu við Islenska fjalla- hjólaklúbbinn og VIS. Safnast var saman í Laugar- dalnum, á svæðinu við gervi- grasvöllinn klukkan 15. Gestum gafst kostur á að þreyta hinar ýmsu hjóla- þrautir. Kynntur var margs konar búnaður tengdur hjól- reiðum auk þess sem Fjalla- hjólaklúbburimi aðstoðaði fólk við að stilla sæti reið- hjóla sinna rétt. Spennandi dagskrá er framundan á fþróttahátíð- inni og ættu flestir að finna eitthvað við sitt hæfi. I kvöld fer fram hjólabrettamót á Ingólfstorgi í samvinnu við Brettafélag Reykjavíkur. Miðvikudaginn 21. júní gefst golfáhugamönnum kostur á að sýna listir sínar í Laugardalnum. Þar verður haldið golfkvöld. Gestum verður boðið upp á golf- og púttkennslu. Knattspyrnuveisla fyrir almenning verður á gerv- igrasvellinum á fimmtudags- Morgunblaðið/Jim Smart Ungir hjólreiðamenn sýndu listir sínar í Laugardalnum. kvöld þar sem fimm manna lið keppa. Skipt verður í riðla eftir aldurshópum. Föstudaginn 23. júní fer fram sambærileg körfubolta keppni, en þá leika þriggja manna lið. Hið árlega Jóns- messuhlaup hefst svo klukk- an 23. Hátíðinni lýkur laugar- daginn 24. júní með ýmsum uppákomum í dalnum. Gest- ir geta fylgst með og tekið þátt í ýmsum íþróttagrein- um, fjöllistamenn skjóta upp kollinum, Götuleikhúsið mætir á staðinn og margt fleira. Borgarskipulag fundaði með íbúum Kvisthaga Vesturbær „VIÐ erum á móti því að það sé byggð önnur hæð of- an á húsið. Við teljum að minnsta kosti að svo komnu máli sé ekki tryggt að þarna verði starfsemi sem íbúar sætti sig við,“ segir Reynir Jónsson, íbúi við Kvisthaga, í samtali við Morgunblaðið. Fundur var haldinn með íbúum hverfisins fyrir helgi vegna mótmæla þeirra við tillögum um breytingar á deiliskipulagi lóðarinnar við Hjarðarhaga 45-49. Tillagan felur í sér lítils- háttar stækkun lóðarinnar og viðbyggingu við húsið. Einnig er lagt til að byggt verði ofan á húsið að hluta til og þar gert ráð fyrir hverfisbundinni þjónustu. Hugmynd var uppi um að þar gæti Tónskólinn Do- Re-Mí fengið aðsetur. Reynir segir meirihluta íbúanna geta sætt sig við hæðina ef tryggt sé að þar verði starfræktur tónskóli sá sem nefndur hefur verið. Hann bætir við: „Við mót- mælum annarri hæðinni að óbreyttu en erum tilbúin til að endurskoða afstöðu okk- ar ef það verður tryggt að þarna verði þessi starf- semi.“ Hjá borgarskipulagi var boðað til fundarins vegna mótmæla íbúanna. Þar voru sjónarmið þeirra rædd. „Við erum hrædd við hið óþekkta. Við viljum ekki sjá þetta breytast úr einni starfsemi smám saman yfir í aðra sem er okkur ógeð- felld. Við vitum ekkert hvað verður,“ sagði Reynir. í bréfi sem íbúar sendu skipulags- og umferðar- nefnd komu fram helstu at- hugasemdir þeirra. Þar eru gerðar athugasemdir við ýmis formsatriði, gögn eru sögð ófullnægjandi og skipulagsuppdráttur ekki talinn standast kröfur. At- hugasemdir eru einnig gerðar við fjölda bílastæða við Hjarðarhaga 47-49. Helsta gagnrýni íbúanna er þó sú óvissa sem ríkir um starfsemi annarrar hæðar- innar. I greinargerð með tillögunni var gert ráð fyrir tónskóla á hæðinni. íbúar Kvisthaga hafa bent á að hvergi komi fram trygging fyrir því að slíkur skóli verði starfræktur í húsnæðinu. Engir samningar skól- ans, borgaryfirvalda og eig- enda húsnæðisins liggi fyr- ir. Eru líkur á að Tónskólinn Do-Re-Mí sem nú er til húsa í Frostaskjóli 2 muni flytja starfsemi sína? „Þetta er alls ekki í hendi," segir Vilberg Viggósson, skólastjóri tónskólans. „Við hefðum gjarnan áhuga á að komast í eigið húsnæði." Vilberg telur helstu fyrir- stöðuna geta orðið fjár- málalegs eðlis. Ekki liggja þó enn fyrir tölur um hverj- ir skilmálar húseigendanna eru í þeim efnum. Næsta skref í málinu að sögn ívars Pálssonar, lög- fræðings Borgarskipulags Reykjavíkur, er að ræða við forsvarsmenn tónskólans og eigendur húsnæðisins og fara yfir málið með þeim áð- ur en aðhafst verður frekar. Húsnæðismál í eina nefnd Reykjavík Á borgarstjómarfundi á fimmtudag var samþykkt með þrettán atkvæðum gegn tveimur sameining félags- málaráðs og húsnæðisnefndar. Á sama fundi fór fram fyrri umræða um sameiningu skipulags- og byggingamefnd- ar og var þeirri tillögu vísað til síðari umræðu. Kosið var til hins nýja fé- lagsmálaráðs á fundinum. Ráðið skipa Helgi Hjörvar, Guðrán Erla Geirsdóttir, Hreinn Hreinsson, fyrir Reykjavíkurlista, og Olafur F. Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson íyrir Sjálfstæðis- flokk. Fyrir sameininguna sátu í félagsmálaráði Helgi Hjörvar, Páll R. Magnússon, Hreinn Hreinsson, Olafur F. Magnús- son og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson. í húsnæðisnefnd áttu sæti Guðrán Erla Geirs- dóttir, Stefán Jóhann Stefáns- son, Leifur Guðjónsson, Jóna Gróa Sigurðardóttir og Krist- ján Guðmundsson. Sameining þessi er liður í heildarendurskoðun á póli- tísku stjómkeifi borgarinnar sem hófst á síðasta kjörtíma- bili. Breytingamar miða að því að einfalda stjómkerfi borgai-- innai- og auðvelda aðgang al- mennings að þvi. Ein nefnd mun eftirleiðis vinna að stefnumótun borgarinnar í húsnæðismálum og fylgjast með framboði og eftirspum eftir félagslegu húsnæði í borginni, hvort sem um er að ræða leiguíbúðir eða eignaí- búðir. Til þessa hefur verið fjallað um húsnæðismál í tveimur nefndum. Annars vegar í fé- lagsmálaráði þar sem félags- legt leiguhúsnæði hefur verið tekið fyiir og hins vegar I hús- næðisnefnd þar sem fjallað hefur verið um félagslega eignaíbúðakerfið. „Með sam- einingunni viljum við ná fram heildarsýn yfir húsnæðismál í borginni“ segir Helgi Hjörvar, formaður hins nýja félagsmálaráðs. Hvað varðar þjónustuna við borgarbúa, segir Helgi, felst í hluta af þeim stjómkerfis- breytingum sem verið er að vinna að hverfavæðing borg- arinnar. Á þessu ári munu koma fram tillögur um skipt- ingu borgarinnar í a.m.k. átta þjónustuhverfi. I hverju hverfi verður starfrækt hverfisráð sem tryggja skal samstarf borgarstjómar og íbúa hvers hverfis. Jafnframt er verið að fjölga þjónustuskrifstofum fé- lagsþjónustunnar og unnið er að því að flytja sem mest af þjónustunni út í hverfin til íbúanna. „Með því að sameina félagsmálaráð og húsnæðis- nefnd gemm við ráð fyrir því að fólk geti sótt ráðgjöf og upplýsingar um félagsleg úr- ræði í húsnæðismálum í fram- tíðinni til einnar stofnunar." Aðspurður segir Helgi sam- eininguna hafa lítil áhrif á starfsmannafjöldann. Dregið hefur mikið úr umsvifum hús- næðisskrifstofunnar. Þai- eru nú á annan tug starfsmanna. Starfsmenn félagsþjónustunn- ar era hins vegar á annað þús- und. Helgi gerir ráð fyrir að starfsemi húsnæðisskrifstof- unnar verði samþætt starf- semi félagsþjónustunnar. Sameiningin gekk strax í gildi og var fyrsti fundur fé- lagsmálaráðs haldinn í gær kl. 14. Of snemmt er þó að segja til um hvenær búið verður að sameina skrifstofurnar og hve langan tíma breytingamar taka, að sögn Helga. Allir nefndai-menn í hús- næðisnefnd höfðu í sameigin- legri bókun mótmælt áform- um um sameiningu nefndanna. Við afgreiðslu borgai’stjómai' var sameiningin samþykkt með þrettán atkvæðum gegn tveimur. Sjálfstæðismennirnir Jóna Gróa Sigurðardóttir og Kristján Guðmundsson vara- borgarfulltrái greiddu at- kvæði gegn sameiningunni, en þau áttu sæti í húsnæðisnefnd fyrir sameiningu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.