Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 73
ÍDAG
BRIDS
Umsjón Uuómundur
Páll Arnarson
„ÞETTA er ótrúleg vörn - en
er hægt að finna hana við
borðið?“ Ekki reyndi á varn-
arsnillina þegar spihð hér að
neðan kom upp á landsliðs-
æfingu í síðustu viku, en í
krufningunni á eftir gátu
menn ekld annað en hrifist af
möguleikum spilsins. Við
skulum sjá hvað lesandinn
getur. Hann er í austur og
hefur það hlutverk að verjast
fjórum spöðum suðurs:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
*10
v AK87
♦í>
* AG109753
Austur
*D864
VG943
♦ÁK2
+K2
Vestur Norður Austur Suður
- - ltígull 3spaðar
4 tíglar Pass 4spaðar Pass Pass
Vestur kemur út með
hjartatvistinn, sem er líklega
þriðja hæsta frá drottning-
unni. Sagnhafi tekur með ás,
spilar svo laufás og trompar
lauf. Síðan tígli að blindum
og makker sýnir jafna tölu
spila, væntanlega sexlit.
Þetta er allgott veganesti og
nú er að finna vömina.
Fyrst er að reyna að átta
sig á skiptingu suðurs. Það
er vitað fyrir víst að hann á
eitt lauf. Næstum þvi örugg-
lega á hann sjö spaða og ef
makker er heiðarlegur í
sögnum og vöm á suður tvilit
í hjarta og þrjá tígla. Sem
sagt: 7-2-3-1. Ekki má sagn-
hafi trompa tígul í blindum
og því virðist blasa við að
trompa út eftir að hafa tekið
á tígulkónginn.
Norður
A 1,0
* AK87
* í>
* AG109753
Vestur Austur
*9 ♦D864
vD62 vG943
♦ G98763 ♦ÁK2
+D84 *K2
Suður
♦ÁKG7532
»105
♦ 1054
+6
En fegurðin og snillin felst
í því að velja til þess drottn-
inguna!
Ef austur spilar smáu
trompi kemst sagnhafí inn í
borð á tíuna og getur notað
þá innkomu til að trompa
laufið frítt. Síðan spilar hann
ÁK í spaða og á innkomu á
hjarta til að spila frílaufi og
henda einum tígli heima. En
drottningin neyðir suður til
að taka slaginn og kostai- þó
ekkert, þar eð makker á
níuna blanka. Áttan verður
þá slagur. - En er þetta finn-
anleg vörn? Því ekki það?
Það er vitað að makker á ein-
spil í trompi og það má vera
háspil, til dæmis gosi, án þess
að drottningin gefi spilið.
Eins og áður sagði reyndi
ekki á þennan möguleika, því
þar sem suður spiiaði fjóra
spaða kom vestur út með tíg-
uL Og eftir þá byrjun er eng-
in vörn til. Á öðm borði stökk
suður strax í fjóra spaða og
vestur tók misheppnaða fóm
í fimm tígla.
Ég eignaðist síamstvíbura
í dag. Annar ætlar að
verða dúkari en hinn ætl-
ar að verða flugmaður.
Árnað heilla
A A ÁRA afmæli. í dag,
uU þriðjudaginn 20.
júní, verður níræð Jórunn
Ragnheiður Brynjólfs-
dóttir, kaupkona, Klepps-
vegi 132. Jórunn verður
að heiman á affnælisdag-
P ÁRA afmæli. í dag,
O v/ þriðjudaginn 20.
júní, er fimmtugur Karl
Gislason, umsjónarmaður
á Bessastöðum. Eiginkona
hans er Sigurbjörg Sigur-
björnsdóttir, deildarfull-
trúi hjá Orkuveitu
Reykjavíkur. Þau hjónin
taka á móti ættingjum og
vinum föstudaginn 23. júní
í Rúgbrauðsgerðinni,
Borgartúni 6, frá kl. 18-20.
A /\ ÁRA afmæli. Á
í/V/ morgun, miðviku-
daginn 21. júní, verður ní-
ræður Ólafur Jónsson frá
Árbæjarhjáleigu, síðar á
Bræðraborgarstíg 13, býr
nú á Hrafnistu í Reykja-
vík. Hann mun dvelja á
heimili sonar síns og
tengdadóttur í Víðilundi 8,
Garðabæ á afmælisdaginn
og taka þar á móti ættingj-
um og vinum á milli kl. 15
og 18.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæh,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja
afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns
og símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100,
sent í bréfsíma 569-1329,
eða sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavík
COSPER
Komið inn og sjáið heimsins lengstu og
fallegustu leggi.
UOÐABROT
Úr Hávamálum
Sá er sæll,
er sjálfur um á
lof og vit, meðan lifir;
því að ill ráð
hefir maður oft þegið
annars brjóstum úr.
Byrði betri
ber-at maður brautu að
en sé manvit mikið.
Auði betra
þykir það í ókunnum stað;
slíkt er volaðs vera.
Byrði betri
ber-at maður brautu að
en sé manvit mikið;
vegnest verra
vegur-a hann velli að
en sé ofdrykkja öls.
STJÖRNUSPA
TVIBURAR
Afmælisbarn dagsins:
Pú ert bóngóður og til-
fínninganæmur og átt
einkar auðvelt með að setja
þig í annarra spor.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Fleygðu frá þér öllum nei-
kvæðum hugsunum þess efn-
is að þú ráðir ekki við þau
verkefni, sem þér eru falin.
Mundu að vilji er allt sem
þarf.
Naut
(20. apríl - 20. maí) í*t
Þú hefur ekki haft færi á að
deila áhugamáli þínu með
öðrum. En nú verður breyt-
ing þar á og þú munt bæði
geta kennt öðrum ýmislegt
oglærtaf þeim.
Tvíburar , ^
(21. maí - 20. júní) AA
Þú veizt ekki hlutinn fyrir
vist fyrr en þú tekur á. En
það má búa sig undir eitt og
annað til þess að vera við-
búinn, þegar uppákomurnar
dynjayfir.
Krabbi
(21. júní-22. júlf)
Stundum eiga menn það til að
misskilja góðsemi þína. En
það er þeirra mál. Reyndu
ekki að koma vitinu fyrir þá.
Þú hefur annað við tímann að
gera.
Ljón
(23. júh' - 22. ágúst) M
Án þess að vita af þvi hefur þú
eitthvað í fórum þínum, sem
öðrum finnst eftirsóknarvert.
Hlustaðu vandlega á það sem
þeir segja, þegar þeir tjá sig.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) (DÍL
Lánið kann að leika við þig
þessa dagana, ef þú bara gæt-
ir þess að vera á varðbergi
gagnvart þeim sem alltaf vilja
notfæra sér gósemi annarra.
Vog rrx
(23.sept.-22.okt.)
Þótt eitthvað fari úrskeiðis í
dag er engin ástæða til þess
að leggja árar í bát. Það kem-
ur dagur eftir þennan og þá
átt þú þína möguleika.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.) MK
Þú ert að ganga í gegn um
ákveðin kaflaskipti í lífinu og
þarft því að íhuga vandlega
þær leiðir, sem þér standa
opnar. Gefðu þér góðan tíma.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.)
Nú verður þú að taka þig
saman í andlitinu og fara
vandlega i gegn um fjármálin.
Skerðu niður öll óþarfa út-
gjöld og semdu svo fjárhags-
áætlun.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) 4HÉP
Þú þarft að haga svo máli
þínu við aðra, að þeir séu með
það á hreinu til hvers þú ætl-
ast af þeim og hvað þú ætlar
að gera sjálfur.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Það er fullt af hlutum í kring
um þig, sem þú hefur ekki
hugmynd um. Láttu vera að
ergja þig á þvi, þú færð að
heyra það sem þú þarft að
vita.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur tekizt ____.
skyldur á herðar og verðu
standa við þær. Hikaðu si
ekki við að fá aðra til liðs
þig svo allt verði í lagi.
Stjömuspána á að lesa
dægradvöl. Spár af þessu
eru ekki byggðar á traus
grunni visindalegra staðreyi
Barnamyndatökur
Tilboðsverð í júní og júlí
Fyrstir koma
Fyrstir fá
Ljósmyndastofan Mynd sími 565 4207
Ljósmyndastofa Kópavogs sími 5 54 3020
....
^ 'fjj, - 1 I
Útiljós, iðnaðar-
og sviðslýsingar
Skurðar- og
slípivörur
Þéttiefni, lim
og límbönd
Öryggisvörur
Úti- og inni-
klæðningar
Lyftarar, stigar, tröppur,
trillur og vagnar
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu * www.landlaeknir.is
Lífið er línudans
Okkur getur auðveldlega skrikað
fótur á lífsins leið, en
þurfa ekki að vera alvarlegar,
því mikill munur er á fífidirfsku
og fyrirhyggju.
Áhætta er eðlileg í daglegu
umhverfi okkar.
Hafðu vaðið fyrir neðan
þig og hugsaðu um
afleiðingar gerða þinna:
• Snertu ekki fíkniefni.
Ein tilraun getur gert
útaf við þig
• Spenntu beltin og aktu hægar
en þig langar til
• Njóttu kynlífs með fullri
meðvitund og notaðu smokkinn
• Óvissuferðir eru frábærar en ekki án fyrirhyggju
• Reykingar eru aldrei áhættunnar virði
• Ef þú notar áfengi notaðu það í hófi
• Ekki gleyma hvíldinni, reglubundinn svefn er öllum nauðsynlegur
Lifðu lífinu lifandi og njóttu þess!