Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SIGURÐUR ÞENGILL HJALTESTED + Sigurður Þengill Hjaltested fædd- ist í Tulsa í Okla- homa í Bandaríkjun- um 5. maí 1990. Hann lést á Landspítalan- um við Hringbraut 9. júní síðastliðinn. Foreldrar hans eru Sigríður Guð- steinsdóttir, f. 4.10. 1962, og Sigurður Kr. Hjaltest.ed, f. 5.2. 1962. Sigurður Þengiil ólst upp hjá foreldrum sínum til þriggja ára aldurs, en þá slitu þau samvistir. Fósturfaðir Sigurðar Þengils er Geir Harðarson. Sig- urður Kr. Hjaltested er kvæntur Þórunni Ósk Rafns- dóttur og eiga þau eina dóttur, Línu Rós. Sigurður Þeng- ill átti eina alsystur Nínu Björk, f. 12.11. 1991. Hálfsystkini hans eru Rósa Birg- itta, f. 26.10. 1979; Guðsteinn Þór, f. 18.12. 1984; Ivar Rósinkranz, f. 27.9. 1994; Lína Rós, f. 15.6. 1997; og ein fóstursystir, Dag- björt Ylfa Geirsdótt- ir, f. 30.7. 1984. Utför Sigurðar Þengils fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginniyfirminni. (Sig. Jónsson frá Prestbakka.) Æ, Sigurður, þetta var nú best fyrir þig en þetta er samt mjög sorg- legt. Allir hugsa um þig hérna niðri, -jég sakna þín svo mikið og allir gera það. Við hugsum alltaf um þig og við gleymum þér aldrei. Þú munt nú vaka yfir okkur og vonandi líður þér vel. Allir sem þú þekkir biðja að heilsa, ég mest. Þín systir Nína Björk. Þú ert eins og vorið og sumarið til samans. Þú ert eins og vorsins birta sem flæðir svo hratt að fyrra myrkur er horfið manni úr huga og kemur 'íudrei aftur. Þú ert eins og gróður sumarsins sem nýtir sér allan þann yl og birtu sem sumarið hefur svo allt geti dafnað. Þú ert eins og sumar- vindar sem hratt feykjast yfir til að allir megi njóta anganarinnar. Þú ert eins og íslenskt vor og sum- ar sem kom svo fljótt og hvarf svo skjótt. Neisti guðs líknsemdar ljómandi skær, lífinu bestan er unaðinn fær, móðurástblíðasta! bðmunum háð, blessi þig jafnan og efli þitt ráð guð, sem að ávöxtinn geíur. (Jónas Hallgr.) Drífa, Hinrik, ísak og Amar. „Ég ætla að kaupa mér nýjan hjálm, gönguskó, gúmmíbát, tjald og keppa á Andrés, fara á siglinganám- skeið og í Kerlingarfjöll. Allt þetta og meira til var það sem hann Sig- urður Þengill ætlaði að gera og margt af þessu gerði hann. Honum voru engin takmörk sett og veikindin voru aðeins til þess að efla hann í því sem hann tók sér fyrir hendur, þau kannski seinkuðu verkunum en þau voru framkvæmd af bjartsýni og með bros á vör. En hvemig hann gerði þetta er mér ómögulegt að skilja, áfall eftir áfall alltaf var staðið upp og haldið áfram. Ég kynntist Sigurði þegar ég byrjaði að þjálfa hann og Nínu og svo ívar seinna meir á skíðum hjá KR. Þvflíkt fjör, hann var aldrei kyrr, ekki í mínútu, hann vildi vera fyrstur upp og fyrstur niður. Æfingu eftir Formáli minningargreina ÆSKILEGT er að minningar- greinum íylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og ^ r hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og böm, skóla- göngu og störf og loks hvaðan út- för hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýsingar komi aðeins fram í formálanum, sem er feit- letraður, en ekki í greinunum sjálfum. + Ástkær móðir mín, ELSE AASS, lést á Landspítalanum, Fossvogi, sunnudag- inn 18. júní. Útförin verður í Fossvogskapellu fimmtudag- inn 22. júní kl. 16.00. Duftkerið verður jarðsett í Noregi. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Sidsel Aass Bergland. t Hjartkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÓLÖF KRISTJÁNSDÓTTIR, Kveldúlfsgötu 22, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju miðviku- daginn 21. júní kl. 14.00. Jón Bjarni Ólafsson, Þórdís Ásgerður Arnfinnsdóttir, Gylfi Jónsson, Eyþór Eðvarðsson, Rannveig Harðardóttir, Guðni Eðvarðsson, Guðrún Kristjánsdóttir, Anna Lára Eðvarðsdóttir, ívar Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabarn. æfingu hlustaði hann af athygli á það sem hann átti að gera, gerði það og hvarf svo í smá tíma. „Ég fór bara aðeins að stökkva og leika mér, Kolla, rosa gaman,“ og svo var haldið áfram á æfingu. Þetta er Sigurður í hnotskurn, „rosa gaman“. Styrkurinn sem Sigurður og öll hans fjölskylda býr yfir er ótrúlegur. Ekki gat maður séð það á þeim að þau væru í stríði, stríði þar sem bar- ist var af alefli og er ég nokkuð viss um að enginn her kæmist jafnlangt og hann Sigm'ður komst. Ég fletti orðinu hetja upp í orðabók og þar stendur: hetja, -u, -ur KV kappi, hraustmenni; bera sig eins og hetja/ karlmannlega, afreksmaður, sá sem unnið hefur sérstök afrek. Hér finnst mér vanta: Sigurður Þengill. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er, aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Guð geymi þig, litli vinur. Kolbrún Gunnarsddttir. Kveðja fráSkíða- sambandi íslands I dag kveðjum við ungan skíða- mann, Sigurð Þengil, sem með at- orku sinni og hugrekki lét sig ekki muna að stunda æfingar og keppni þrátt fyrir að hafa glímt vð erfið veikindi stærstan hluta af sínu lífi. Sigurður Þengill var einn fjölmargra þátttakenda á Andrésar Andarleik- unum síðastliðinn vetur þar sem hon- um rættust þær tvær óskir sem hann hafði óskað sér, að taka þátt á And- résarleikunum og að hitta Kristin Bjömsson skíðamann. Skíðahreyfingin tók eftir þeim mikla lífsþrótti sem þessi ungi skíða- maður bjó yfir og margir fylltust að- dáun yfir því hvernig hann tókst á við lífið. Að gefast ekki upp þótt á móti blási eru þau orð sem lýsa þess- um unga manni hvað best, en veik- indin báru hann ofurliði á endanum. Það var mikill dugnaður í þessum unga manni sem ungt fólk ætti að taka sér til fyrirmyndar. Skíðasam- band Islands þakka Sigurði Þengli fyirir þann tíma sem við fengum að njóta félagsskapar hans og við vitum að hann á eftir að fylgjast áfram með skíðaíþróttinni. Skíðasamband íslands vill votta fjölskyldu Sigurðar, vinum og öðrum aðstandendum sína dýpstu samúð. Megi guð styrkja ykkur í þessari miklu sorg. Egill T. Jóhannsson, formaður Skíðasambands íslands. í dag kveðjum við Sigurð Þengil. Það er margt sem fer í gegnum hugann á stundum sem þessari. I þeim erfiðu veikindum sem Sigurður Þengill glímdi við kom hann alltaf jafnglaður í fjallið til að fara á skíði. Þegar Sigurður fékk nýjan stór- svigsgalla mætti hann stoltur í brekkuna og þrátt fyrir að kalt væri úti varð hann að fá að renna sér alla þá æfingu í gallanum á meðan aðrir voru mun betur klæddir. Ég spurði Sigurð hvort honum væri ekki kalt, hvort það væri ekki betra að klæða sig í hlífðarfötin. „Þá fer ég ekki eins hratt,“ svaraði hann. Þannig var keppnisandinn ávallt til staðar. Sigurður náði góðum tökum á þeirri skíðatækni sem verið var að kenna honum þrátt fyrir að stundum kæmist hann sjaldan á æfingar. Hann var alltaf tilbúinn að læra nýja hluti og bæta við þá tækni sem hann bjóyfir. Sigurður setti sér markmið á hverju hausti að komast á Andrésar andarleikana á Akureyri til að taka þátt í þeirri miklu skíðahátíð barn- anna. I ár var mjög gaman að Sig- urður Þengill komst á Andrésar and- arleikana. Þar hitti hann Kristin Björnsson skíðamann. Sigurði fannst gaman að Kristinn gaf sig á tal við hann og hvatti hann til dáða og mætti í startið þar sem Sigurður var að keppa. Það fannst honum gaman. Sigurður sagði eftir keppnina að hann hefði viljað gera betur en bætti við: „Ég geri bara betur næst.“ Að þjálfa böm tel ég forréttindi og að kynnast dreng eins og Sigurði, sem lagði mikið á sig, skilur enginn fyrr en reynt hefur. Ég þakka fyrir þá daga sem við vorum á skíðum í Skálafelli og annars staðar í leik og keppni. Eg vil votta Sissu, Geir, systkinum og öðrum aðstandendum Sigurðar Þengils mína dýpstu samúð. Með saknaðarkveðju, ég gleymi þér aldrei. Guðmundur Jakobsson þjálfari, skíðadeild KR. Nú er kær vinur okkar horfinn úr þessu lífi. Sigurður Þengill var dug- mikill strákur sem lagði mikið á sig til að stunda skíðaíþróttina ásamt fjölskyldu sinni og vinum. Hann og fjölskylda hans hefur átt samleið með okkur í Skíðadeild KR undan- farin ár. Við vissum að Sigurður Þengill hafði lengi barist við alvar- legan sjúkdóm og hver nýr dagur var honum ekki sjálfgefinn, eins og okk- ur flestum finnst. Við fylgdumst með af aðdáun þegar hann barðist á móti veðri og vindum á Andrésar Andar- leikunum í Hlíðarfjalli í vetur. Hann var staðráðinn í að taka þátt í leikun- um og mætti í rauða sviggallanum sínum. Andlit hans geislaði þegar Kristinn Bjömsson, hetja ungra skíðamanna, færði honum hjálm að gjöf fyrir dug og dáð á stuttri ævi. Við kveðjum félaga okkar Sigurð Þengil með yl í hjarta. Við þökkum honum fyrir að sýna okkur að hægt er að ná langt ef lífsviljinn er fyirir hendi. Við biðjum fyrir styrk og huggun til handa fjölskyldu hans allri. Skíðadeild KR. Tíuár þittlíf eittlíf Þú á undan við á eftir einjörð Þúogvið viðogþú nýr hirainn. Baldur Helgi, Þórhildur, Þorkell Máni og Þorkell St. Ellertsson. Kæri Sigurður Þengill eða Siggi eins og þú varst alltaf kallaður i strákahópnum. Nú er samveru- stundum með þér lokið í þessu lífi en + Ástkær eigninkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ÞURÍÐUR SKARPHÉÐINSDÓTTIR Fornhaga 11, Reykjavík, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju á morgun miðvikudaginn 21. júní kl. 13.30. Guðmundur Ellert Erlendsson, Skarphéðinn Kristján Guðmundsson, Kristín G. Guðmundsdóttir, Edvard G. Guðnason, Berglind Hrönn Edvardsdóttir, Sólveig Dögg Edvardsdóttir, Guðni Ellert Edvardsson. þeim hafði farið fækkandi síðasta ár þegar baráttan við sjúkdóminn varð sífellt eifiðari. Strákarnir gátu þó stundum heim- sótt þig og þegar þú komst því við þá mættir þú í skólann. Strákarnir köll- uðu þig Sigga tölvukall, því tölvan átti orðið mikinn þátt í þínu daglega lífi, bæði sem afþreying og gerði þér kleift að vera með félögum þínum í skólanum. Hafsteinn sagði þegar þú varst farinn til guðs: „Ég hélt alltaf að hon- um myndi batna,“ en einnig að hann héldi að þú hefðir viljað fara til guðs því þá myndir þú ekki finna lengur til. Við munum hugga okkur við þá hugsun að nú líði þér vel. Við munum ætíð minnast þín sem Sigga sem var alltaf svo upptekinn og fullur af orku. Hafsteinn hafði orð á því í vetur að Siggi gæti ekki ærsl- ast eins mikið lengur og yrði fljótt þreyttur. Það var ekki sá Siggi sem hann hafði þekkt og ærslast með frá því í 1. bekk. Tár okkar eru lítilfjörleg þegar hugsað er til fjölskyldu þinnar sem misst hefur sinn einstaka Sigurð Þengil. Við biðjum guð að styrkja þau í sorg sinni og um ókomna tíð. Einnig biðjum við guð að hlúa að Guðrúnu kennara þínum sem er búin að fylgja ykkur í bekknum frá því að þið hófuð skólagöngu í litla skúrnum í Melaskóla. Kæri Siggi, við þökkum þér sam- verustundirnar og þann lærdóm sem þér hefur fylgt. Guð verndi þig og umvefji. Kær kveðja, Hafsteinn Reykdal og Halldóra Reykdal. Kveðja frá Melaskóla Við skólaslit núna í vor horfði ég yfir bekkinn minn, 4. bekk B, með söknuði. Við vorum að kveðjast eftir fjögurra ára samveru, sem hafði ver- ið okkur öllum góð. Þau voru full eft- irvæntingar og gleði yfir öllu því sem þau ætluðu að taka sér fyrir hendur í sumarfríinu. Sigurður Þengill var í þessum hópi. Þeim tókst að hrífa mig með sér með frásögnum af spenn- andi námskeiðum og viðfangsefnum sem biðu þeirra. Sigurður Þengill sagði mér frá því að hann ætlaði að fara á framhaldsnámskeið í sigling- um þegar hann þyrfti ekki að vera á spítalanum. Það kom mér svo sem ekki á óvart að hann væri búinn að skipuleggja allt það sem hann ætlaði að gera þrátt fyrir að hans biði erfið meðferð. A undanfömum misserum var hann búinn að sýna okkur hér í skólanum hvernig hann með krafti, þori og jákvæðu hugarfari tókst á við þá baráttu sem hann varð að heyja til að fá að lifa og leika eins og jafnaldr- ar hans. Hálfum mánuði seinna kom þessi hópur aftur saman en núna án Sig- urðar Þengils. I stað gleðinnar sem hafði speglast í augum þeirra er við héldum út í sumarið var núna sorg og söknuður er við komum saman til að kveðja hann. Margar spurningar vakna í huga okkar þegar við stönd- um frammi fyrir því að bekkjarfélagi okkar hefur kvatt þennan heim. Spui'ningar sem við fáum engin svör við. En minningarnar streyma fram í hugann og við sjáum fyrir okkur röskan pilt með fallegt bros og blik í augum takast á við þau verkefni sem skólinn setur honum. Við minnumst sérstaklega frásagnarhæfileika hans en strax í 1. bekk kom í ljós hve gam- an og auðvelt hann átti með að segja okkur sögur sem honum voru sagðar eða hann bjó til sjálfur. Um leið og við kveðjum kæran skólafélaga og vin þökkum við fyrir allar samverustundirnar og góðu minningarnar sem hann skilur eftii- hjá okkur. Fjölskyldu Sigurðar Þengils og ástvinum öllum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðj- ur og biðjum þeim öllum Guðs bless- unar í sorginni. Vaktu, minn Jesús, vaktu i mér, vaka láttu mig eins í þér, sálin vaki þá softiar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgr. PéL) Minning Sigurðar Þengils lifir sem ljós í lífi okkar allra. Guðrún Sturlaugsdóttir og 4. bekkur B.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.