Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI Reuters Ef British Aii*ways og KLM sameinast verður til Hmmta stærsta flugfélag í heiminum. British Airways og KLM ræða samruna Rekstur breska flugfélagsins British Airways og hollenska félagsins KLM hefur ekki gengið vel að undanförnu. Tilkynnt var fyrr í þessum mánuði um viðræður félaganna tveggja um hugsan- legan samruna, í þeim tilgangi að styrkja markaðsstöðu þeirra. A sama tíma eru viðræður í gangi milli flugfélaga í Bandaríkjunum um samruna þar. VIÐRÆÐUR British Airways og KLM um hugsanlegan samruna fé- laganna tveggja, sem til- kynnt var um þann 7. júní síðastlið- inn, eru ekki fyrstu viðræður þeirra í þessa veru. Viðræður milli þeirra fóru fram fyrir átta árum, en gengu þá ekki upp vegna of hárra krafna hollenska flugfélagsins um hlut í sameinuðu félagi, að mati stjórn- enda British Airways. I sameigin- legri fréttatilkynningu frá félögun- um segir að alls óvíst sé um niðurstöður viðræðnanna að þessu sinni og að engar almennar yfir- lýsingar verði gefnar út af þeirra hálfu fyrr en einhver árangur liggi fyrir sem ástæða sé til að segja frá. Eftir því sem fram kemur í vikurit- inu Business Week var það KLM sem leitaði eftir viðræðunum við British Airways, að þessu sinni, eft- ir að viðræður félagsins við ítalska flugfélagið Alitalia um samruna eða samvinnu runnu út í sandinn í apríl síðastliðnum. Þá segir í vikuritinu að Leo van Wijk, forstjóri KLM, telji félagið of lítið til að geta staðist samkeppnina upp á eigin spýtur og þurfi á samruna eða samvinnu við stærra félag að halda. Rekstur British Airways og KLM gengur ekki vel British Airways, sem er stærsta flugfélag í Evrópu, og KLM, það fjórða stærsta, voru með sterka stöðu í farþegaflugi milli Evrópu og Bandaríkjanna, sem lengi vel virtist erfitt að koma höggi á, en miklar breytingar hafa orðið í þeim efnum upp á síðkastið. Þýska flugfélagið Lufthansa, Air France í Frakklandi og svissneska félagið Swissair hafa lækkað flugfargjöld og bætt við flugleiðum, sem hefur leitt til þess að bæði British Airways og KLM hafa neyðst til að lækka sín gjöld, sérstaklega á Evrópuleiðum til og frá Lundúnum og Amsterdam. Þá hafa lág fargjöld írska flugfélagsins Ryanair einnig skaðað British Ainvays og KLM. Rekstur flugfé- laganna beggja hefur því ekki geng- ið vel að undanförnu. Hátt í 28 millj- arða króna tap varð af reglulegri starfsemi British Airways á síðasta fjárhagsári félagsins, sem lauk 31. mars síðastliðinn. Þetta var í fyrsta skipti sem félagið var rekið með tapi frá því það var einkavætt á ár- inu 1987. Robert Ayling, forstjóra félagsins, var vikið frá störfum í mars síðastliðnum vegna slæmrar afkomu og var Ástralinn Rod Edd- ington ráðinn í hans stað í apríl, en hann var áður forstjóri ástralska flugfélagsins Ansett. Hagnaður varð af reglulegri starfsemi KLM á síðasta fjárhagsári félagsins, en hann var einungis um 270 milljónir króna. Úr sér gengið eignarhald á flug- félögum að hrynja til grunna Stærsta flugfélag í heimi, banda- ríska félagið United Airways, keypti einn keppinaut sinn, US Airways, í lok maí síðastliðnum. Þau kaup eru talin styrkja enn frekar hið svonefnda Star Alliance, sem er alþjóðlegt samstarfsverkefni Unit- ed Airways og þýska flugfélagsins Lufthansa. Reyndar hafa bandarísk yfirvöld ekki staðfest samruna fé- laganna og þykir Ijóst að þau muni skoða hann gaumgæfilega. I áður- nefndu vikuriti, Business Week, er talið líklegt að ef bandarísk yfirvöld samþykki samruna bandarísku flug- félaganna muni það auka þrýsting á Evrópusambandið um að heimila stóra samruna flugfélaga í Evrópu. Þá er því haldið fram að stjórnend- ur margra flugfélaga í Bandaríkjun- um, Evrópu og Asíu séu að endur- skoða þá samvinnu milli félaga, sem mörg hafi tekið upp á undanförnum árum, því hún hafi ekki skilað þeim ái-angri sem að hafi verið stefnt. I Business Week segir að úr sér gengið eignarhald á evrópskum flugfélögum sé byrjað að hrynja til grunna. Swissair hafi til að mynda smám saman verið að kaupa upp belgíska flugfélagið Sabena, Luft- hansa, helsti keppinautur British Airways, gæti jafnvel gengið svo langt að kaupa upp samstarfsaðila sína, SAS og Austrian Airlines. Þá hafi Lufthansa einnig hug á að eign- ast stærri hlut en þau 20% sem fé- lagið á í British Midland flugfélag- inu. Swissair keypti einnig nýlega Air Liberté í Frakklandi af British Airways. Til viðbótar sé hugsanlegt að Swissair hafi áhuga á samruna við KLM ef viðræður þess og Brit- ish Airways renna út í sandinn. Áhrif samruna á Bandaríkjamarkað óijós Ef til sameiningar British Airways og KLM kemur verður þar með til fimmta stærsta flugfélag í heiminum, þegar miðað er við fjölda farþega, með 19 milljarða dollara heildartekjur og 56 milljónir flug- farþega á ári. Sameining fyrirtækj- anna tveggja yrði hins vegar ein- stök að því leyti til að aldrei áður hafa jafn stór flugfélög sameinast yfir landamæri. Með sameiningunni myndi Schiphol-flugvöllur í ná- grenni Amsterdam í Holland verða meginflugvöllur hins hugsanlega sameinaða flugfélags auk Heathrow og Gatwick á Lundúnasvæðinu. Auk þeirrar hagræðingar sem samein- ingin gæti haft í för með sér í skrif- stofuhaldi, varðandi flugpantanir og á ýmsum öðrum rekstrarsviðum segir Business Week að hugsanlegt sé að British Airways myndi færa lágfargjaldaflugumferðina til Schip- hol-flugvallar, sem sé betur stað- settur í Evrópu fyrir þær ferðir en Heathrow. Þá sé Schiphol einnig betur fallinn til að taka við aukn- ingu í vöruflutningum félagsins. Hins vegar myndi áhersla verða lögð á að hinar dýrari viðskiptaferð- ir fari um Heathrow-flugvöll. Óljóst er hvaða áhrif samruni British Airways og KLM hefði varðandi Bandaríkjamarkað félag- anna tveggja. British Aii-ways er í samstarfi við American Airlines í svonefndu Oneworld bandalagi, en KLM er hins vegar í samstarfi við Northwest Airlines. Miklar umræð- ur hafa verið í Bandaríkjunum um samruna flugfélaga þar að undan- förnu, til viðbótar við áðurnefnd kaup United Airlines á US Airways. Hvað úr þeim hugsanlegu samrun- um kemur mun hafa áhrif á British Airways og KLM, hvort sem til samruna þeirra kemur eða ekki. I Business Week er því til að mynda haldið fram að það myndi falla vel að samruna British Airways og KLM ef American Airlines og Northwest Airlines sameinuðust eða tækju upp náið samstarf. Hins vegar myndi það ekki vera hagstætt fyrir félögin ef American Airlines og Delta Air Lines tækju upp nána samvinnu. Þann sama dag og British Airways og KLM sendu frá sér fréttatilkynningu, þar sem greint var frá samrunaviðræðum félag- anna tveggja, var greint frá því í Wiill Street Journal að í vikunni áð- ur hefðu stjórnendur American Air- lines og Delta Air Lines hist og rætt um möguleika á samruna þeirra. Þá segir í þeirri umfjöllun að hugsan- legt sé að samruni Brit- ish Airways og KLM geti haft neikvæð áhrif á samstarf British Airways og American Airlines. Hvort þessu er um að kenna eða ekki féll gengi hlutabréfa í British Airways um 5% þegar eftir að félagið og KLM tilkynntu um við- ræður þann 7. júní síð- astliðinn. Gengi bréfa í KLM styrktist hins vegar í framhaldi af til- kynningunni um við- ræðurnar. Business Week telur að lækkun á gengi hlutabréfa British Airways skýrist að hluta til af áhyggjum fjárfesta varðandi hvaða áhrif hugsanleg samein- ing félagsins og KLM hefði á Bandaríkja- markað. Þá segir blaðið að fjármálasérfræðing- ar óttist einnig að Brit- ish Airways muni kaupa KLM of dýru verði og jafnframt að alls óvíst sé hvort sam- einingin muni yfir höfuð leysa þann rekstrarvanda sem félögin eiga við að stríða. Flugleiðir eru að bregðast við sömu þáttum og önnur flugfélög Einar Sigurðsson, framkvæmda- stjóri stefnumótunar- og stjórnun- arsviðs Flugleiða, segir að erfitt sé sjá hvaða áhrif hugsanleg samein- ing British Airways og KLM hefði á Flugleiðir. „Það er óljóst hver nið- urstaðan verður af viðræðunum. Síðan er óljóst hvort þeim verður leyft að gera þetta. Ef þeim verður leyft það vita menn ekki með hvaða skilyrðum það verður. Því er erfitt að draga nokkrar ályktir af viðræð- unum. Þessi tvö félög eru með þessu að bregðast við breytingum í sínu rekstrarumhverfi, þ.e. sam- keppnismarkaðnum og kostnaðar- umhverfinu, og þetta er það sama og önnur flugfélög eru að fást við, sum með svipuðum hætti og önnur með öðrum hætti. Þetta eru sömu þættirnir og við erum að fást við í okkar rekstri. Þessar aðgerðir þeirra eru því viðbrögð við þróun á markaðnum og það eru allt þættir sem við þekkjum og erum að fást við með svolítið öðrum hætti. En hver áhrifin verða af þessum sam- runa fyrir Flugleiðir, ef af verður, er allt of snemmt að segja nokkuð til um.“ Einar segir að viðræður British Airways og KLM snúist fyrst og fremst um rekstraratriði vegna harðnandi alþjóðlegs sam- keppnismarkaðar og erfiðara kostn- aðarumhverfis.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.