Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 39 LISTIR Fallega mótaður samleikur TOIVLIST S a I n r i n n KAMMERTÓNLEIKAR Jón Ragnar Örnólfsson, Naomi Iwase og Sigurbjörn Bernharðs- son, flutt verk eftir Boccherini, Debussy, Rachmaninov og César Franck. Sunnudaginn 18. júní. ÞAÐ eru sannarlega tíðindi er ungur tónlistarmaður kveður sér hljóðs og sl. sunnudag var það Jón Ragnar Örnólfsson sem hélt einleikstónleika í Salnum og hóf tónleikana með sónötu nr. 5 eftir sellósnillinginn Luigi Boccherini. Þetta er fallegt verk í galant-stíl þeim er einkenndi ítalska tónlist, þar sem alvaran var fjarri en leik- ur tónanna átti að vera leikandi léttur. Það kom strax fram að Jón Ragnar er góður sellisti og sam- leikari hans, Naomi Iwase, er góður píanóleikari, þótt ekki reyndi stórt á getu þeirra í þessu saklausa galant-verki Boccherin- is. Annað verkið á efnisskránni var sellósónata í d-moll eftir Debussy. Hann hafði einsett sér að semja sex sónötur á árunum 1915-17 en náði aðeins að ljúka við þrjár, sellósónötuna í d-moll, meistaraverkið fyrir flautu, lág- fiðlu og hörpu og síðast fiðlusón- ötuna, sem margir töldu að merkt væri þreytu. Debussy lýsti því yf- ir, að sellósónata væri næstum klassísk, í bestu merkingu orðs- ins. Þetta er fallegt verk en svo- lítið tilraunakennt, þar sem alls konar tóntiltektir birtast, svo að á köflum er verkið nokkuð slitrótt. Inn á milli glampar á snjallar tón- hugmyndh', t.d. í sérkennilegri Serenöðunni og hinum fjöruga lokakafla. Verkið var mjög vel flutt en stundum stal píanistinn senunni, með yfirýktum ná- kvæmnisleik. Trio Elegiaque í g-moll eftir Rachmaninov er í raun skólaverk, að mörgu leyti vel gert, þar sem heyra má syngjandi lagferli er ber svip af því sem heyra má í seinni verkum hans. Til leiks í þessu verki kom Sigurbjörn Bernharðsson og var leikurinn í heild góður, en frá hendi Rach- maninovs er mest að gera fyrir píanistann og var leikur Naomi Iwase hreint frábær. Fiðlusónatan í A-dúr eftir Cés- ar Franck er ein af glæsilegustu sónötum rómantíska tímans og þótt vel sé leikið á sellóið er tón- staða einleiksraddarinnar hugsuð í samleik við píanóið og á oftast að vera háröddin í samspilinu, nokk- uð sem týnist þegar leikið er á selló. Þetta á ekki við um þau verk þar sem tónmálið er hugsað fyrir selló. Fyrir bragðið nær píanóið oft mestri athygli, enda er píanóröddin sérlega glæsileg frá hendi Francks og var auk þess mjög vel útfærð af Naomi Iwase, sérstaklega í hinum skemmtilega öðrum þætti.I heild var verkið mjög vel flutt og var leikur sell- istans mjög fallega mótaður, t.d. í þriðja kaflanum, sem er tónles- fantasía, og þá ekki síður í loka- kaflanum, þar sem aðalstefið er keðja (kanón). Samspilið var bor- ið upp af öryggi og er Jón Ragnar Örnólfsson mjög góður sellisti, er vænta má mikils af í framtíðinni. Píanistinn Naomi Iwase er afar góður píanisti en hættir til að of- gera í mótun tónhendinga og „stelur senunni“ stundum, sem líklega er vegna þess að hún er vanari að leika ein en í samspili, þótt vissulega mætti oft heyra fallega mótaðan samleik. Jón Asgeirsson Taktur og tregi TONLIST Bláa lónið KAMMERTÓNLEIKAR Bandarísk ljóðasöngslög; Dansa- svíta nr. 3 eftir Gerald Shapiro. Lynn Helding mezzosópran; Jenni- fer Blyth, píanó; Szymon Kuran, fiðla; Armann Helgason, klarínett. Föstudaginn 16. júní kl. 20. BANDARÍSKA mezzosópran- söngkonan Lynn Helding með hinni áströlsku Jennifer Blyth við aðflutt- an Petrof-flygilinn tóku fyrir amerísk ljóðasöngslög á fyrri hluta tónleik- anna á vegum Lista- og menningar- hátíðar Grindavíkur í veitingahúsi Bláa lónsins á Svartsengi á föstu- dagskvöldið var. Þótt hvergi sæist prentað prógramm (dagskráin var öll kynnt af munni fram) voru lögin valin undir yfirskriftinni Langferðir og aðrar ferðir sálarinnar, með tilliti til sjóferðar Leifs Eiríkssonar fyrir þús- und árum, eins og fram kom í viðtali í Mbl. sama dag. Eitthvað hljómaði það langsótt í eyrum undirritaðs. En hvað sem sjó- ferðum víkingaaldar annars leið, þá var alltjent heildarsvipur af þessum sjaldheyrðu lögum - undiralda löng- unar og þrár. Lögin reyndust flest miklu yngri en hlutfallslega hefðbundið yfirbragð þeirra bar með sér, eða frá síðustu áratugum, og fékk undirr. þá skýringu frá söng- konunni eftir á, að landar hennar á vettvangi fagurtónlistar væru nú loks hættir að vanvirða þjóðlegar rætur og djassáhrif, eins og víða mátti greina. Depurð ástarmissis einkenndi fyrsta lagið, „He’s gone away“, þjóð- lag í útsetningu Jakes Hayden. Einn- ig var tregablandið bráðfallegt lag eftir Ned Rorem, „Early in the morn- ing“, innilega sungið og dúnmjúkt spilað af Blyth, svo og „Holy Thurs- day“ eftir Jerry Hagen, samræður elskenda um sambandsslit. í „Lit- any“ eftir John Musto hefði hljóðið í veitingasalnum mátt vera betra, enda örstutt lagið afar viðkvæmt og fallega túlkað með m.a. sléttum tóni, sem vafðist greinilega ekki fyrir söngkonunni, þótt meiriháttar mál virðist hjá hámenntuðum hérlendum söngvurum að ná tökum á slíku. Nafn á lagi eftir Christopher Berg TRIUIVIPH sundbolir og bikini í miklu úrvali Útsölustaðir: útiiíf, intersport, Nanoq, Hringbrautar Apótek, Músik og Sport, Axel Ó, Paloma Grindavík, Vöruhús KB. Borgarnesi, Sporthúsiö Akureyri. Meildsöludreifing: Aqua Sport ehf., Hamraborg 7, sími 564 0035. Súrefoisvörur Karin Herzog Vita-A-Kombi Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147 fórst fyrir í munnlegri kynningu. Það var undir áberandi áhrifum frá djassi og Broadway og gerði m.a. kröfur um gott úthald á endatónum, sem Held- ing fór létt með að uppfylla. í „Poem“ eftir sama höfund var stfllinn orðinn hvassari, nærri ádeflukenndur, og viðfangsefnið, með bros út í annað, var gömul blaðafyrirsögn, „Lana Tumerhas collapsed!" sem tímasetti það nettlega við öndverðan 6. áratug. Aftur kom svo upp Broadway-litað lag eftir vinstrisinnaða óperu-, ball- ett- og söngleikjahöfundinn Marc Blitzstein (1905-64), góðvin Bern- steins. Lagið nefndist „I wish it so“ og fjallaði um eirðarleysi ástarinnar. Flutningur þeirra Heldings og Blyth var hér sem fyrr sléttur og örðulaus, og sérkennileg mezzo-rödd söngkon- unnar, ofurlítið nefkveðin en með mikla fyllingu, naut sín vel í innlifaðri túlkun á þessum tregablendnu lög- um. Undirtektir voru með bezta móti, og luku þær stöllur framkomu sinni á aukalaginu „Over the rainbow", bornu uppi af ljóðrænu svifi og fai- legri mýkt í hæðinni. Tríó píanós, fiðlu og klarínetts í höndum Blyths, Szymonar Kuran og Ármanns Helgasonar flutti næst Dansasvítu nr. 3 frá 1995 eftir tón- skáld dagsins, Gerald Shapiro. Að því er kynnt var hafði hljómlistarfólkið æft verkið á aðeins tveim dögum, og mátti því merkilegt heita hvað hinir oft á tíðum harðsnúnu krossrytmar þess gengu misfellulítið upp. Svítan var fimmþætt, og hét hver þáttur í höfuðið á nútíma dansi eða annarri stiginni alþýðutónmennt. „Funk“ var eins og gefur að skilja hrynvæddur mjög, en hljómaði í mínum eyrum samt nær framsæknum djassi. „Blu- es“-þátturinn stutti við þrástefjóttan píanóleik var að hluta færður yfir í punktastfl seinni Vínarskólans. Mest skemmtigfldi höfðu næstu tveir þætt- ir. „Ballad“ hefði í Jjúfum Parísar- valstakti sínum og impressjónísku- legri lífsgleði vel getað verið saminn á vinstri Signubökkum rétt eftir stríð. „Samba“ var heitari á bárunni en hélt samt ákveðnu gallísku yfirbragði; dá- vel leikinn þótt vottaði aðeins fyrir stressi í pizzicato-fiðluhljómum fyrri hlutans. Loks var hinn mínímalíski „Techno“; æði langsótt stflfæring frá ómennskum dynkjum úr raunveru- leika nútímans, en engu að síður sí- kvikur hraðuðuketill uppfullur af ágengum mínímalískum hryn- og tónhugmyndum, rofinn af stuttri klarínettkadenzu í miðjunni. Svítan var í heild allskemmtileg áheymar, og í raun athyglivert hvað alvarlegt tónskáld úr heimi háskóla- kennslu gæfi með slíku móti jarðsam- bandinu við grasrótina mikinn og hressilegan gaum. Ríkarður O. Pálsson --------*+*--------- Orgeltón- leikar í Neskirkju CSILLA Alföldy Boruss orgelleikari heldur tónleika í Neskirkju í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Hún leik- ur m.a. verk efth- Bach, Kodály, Pál Isólfsson og Gárdonyi. Csilla er kunnur organisti víða um heim eftir að hún útskrifaðist með háskólagráðu 1979 í orgel- og semb- alleik í Ungverjalandi. Hún hefur sótt fjölda námskeiða hjá virtum prófessorum, m.a. Harald Vogel og Klaas Bolt. Csilla hefur haldið fjölda einleiks- tónleika víða um heim og hefur nokkrum þeirra verið útvarpað. Hún kennir á orgel og sembal við Con- servatory of Music í Györg í Ung- verjalandi og er einnig kórstjóri við Reformedkirkjuna í Kelenföld í Búdapest. Tveir fyrir einn tn London í júlí frá .95 með Heimsferðum Ekki fljúga á nóttunni þegar bú getur flogið á daginn Með Heimsferðum færðu besta verðið til London í júlí, og með því að bóka núna getur þú tryggt þér ótrúlegt tilboð tii heimsborgarinnar. Þú bókar 2 sæti, greiðir fyrir annað og færð hitt frítt. Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl eða flug og hótel, og hjá okkur getur þú valið um úrvai hótela í hjarta London á frábæru verði. Flug til London á fimmtudögum, frá London á mánudögum. Verð kr. 8.950 Fargjald kr 17.900/2-8.950,- Flugvallaskattar kr. 3.790,- ckki innifaldir. HEIMSFERÐIR Austurstræti 17, 2. hæð, sími 595 1000. www.heimsferdir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.