Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 72
72 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Bragi og Arnar efst-
ir fyrir síðustu um-
ferð Boðsmotsins
SKAK
T a f 1 f é I a g
Reykjavíkur
BOÐSMÓTIÐ
31.5.-19.6.2000
BRAGI Þorfinnsson og Arnar
E. Gunnarsson voru efstir þegar
ein umferð var eftir á Boðsmóti
TR sem er hluti af Bikarkeppn-
inni í skák 2000. Bergsteinn Ein-
arsson var þriðji
með 4Vz vinning.
Helstu úrslit sjöttu
og næstsíðustu um-
ferðar urðu þessi:
Arnar E. Gunn-
arss. - Bergsteinn
Einarss. 1-0
Bragi Þorfinnss. -
Kjartan Maack 1-0
Stefán Kristjánss.
- Ólafur í. Hanness.
1-0
Einar K. Einarss.
- Björn Þorfinnss.
0-1*
Ólafur Kjartanss.
- Hjörtur Þór Dað-
as. 0-1
Ingvar Þór Jó-
hanness. - Jóhann
H. Ragnarss. 1-0
Röð efstu manna
fyrir síðustu umferð
var sem hér segir:
1.-2. Bragi Þor-
finnsson 5 v.
1.-2. Arnar Gunn-
arsson 5 v.
3. Bergsteinn Ein-
arsson 4'/2 v.
4. -6. Stefán Krist-
jánsson, Björn Þor-
finnsson og Kjartan
Maack 4 v.
7.-10. Ingvar Jó-
hannesson, Ólafur í.
Hannesson, Hjörtur
Daðason, Guðni Stef-
án Pétursson 3Vz v.
Sjöunda og síðasta umferð var
tefld í gærkvöldi og þá mættust á
efstu borðum:
Bragi Þorfinnss. - Arnar E.
Gunnarss.
Bergsteinn Einarss. - Björn
Þorfinnss.
Stefán Kristjánss. - Kjartan
Maack
Ólafur í. Hanness. - Hjörtur
Þór Daðas.
Birkir Örn Hreinss. - Ingvar
Þór Jóhanness.
Shirov og Judit efst í Merida
Alexei Shirov (Spánn), Judit
Polgar (Ungverjaland), Vladimir
Akopian (Armenía) og Gilberto
Hernandez (Mexíkó) tefla nú
tvöfalda umferð á skákmóti sem
haldið er í Merida í Yucatan í
Mexíkó. Mótið hófst 13. júní og
því lýkur hinn 22. júní. Fjórum
umferðum er lokið á mótinu. Úr-
slit fjórðu umferðar urðu þessi:
Gilberto Hernandez - Alexei
Shirov V2-V2
Vladimir Akopian - Judit
Polgar 0-1
Röð keppenda eftir fjórar um-
ferðir:
1.-2. Alexei Shirov 2Vz v.
1.-2. Judit Polgar 2'/2 v.
3.-4. Gilberto Hernandez IV2 v.
3.-4. Vladimir Akopian IV2 v.
Bókhaldið brást!
Hinn 15. júní fór
fram æsispennandi
viðureign Taflfélags
Garðabæjar og Tafl-
deildar Bolungarvík-
ur í Hraðskákkeppni
taflfélaga. Að viður-
eigninni lokinni var
tilkynnt, að Bolvík-
ingar hefðu sigrað
36V2-35V2. Þegar
Garðbæingar fóru
hins vegar að glugga
betur í tölurnar kom-
ust þeir að því að úr-
slit einnar skákar-
innar höfðu verið
rangt skráð. Eftir
þetta reyndust það
vera Garðbæingar,
en ekki Bolvíkingar,
sem sigruðu í viður-
eigninni með
minnsta mun. I und-
anúrslitum tefla því
saman Taflfélag
Garðabæjar og
Skákfélag Akureyr-
ar annars vegar og
Taflfélag Iieykjavík-
ur og Taflfélagið
Hellir hins vegar.
Jónsmessumót
Taflfélagið Hellir
heldur Jónsmessu-
mót félagins í fjórða
sinn föstudaginn 23. júní. Þetta
skákmót hefur þá sérstöðu að
taflið hefst ekki fyrr en klukkan
10 að kvöldi og verður teflt fram
eftir nóttu. Tefldar verða 9x2
umferðir, hraðskák.
Heildarverðlaun eru kr. 10.000
sem skiptast þannig að fyrstu
verðlaun eru kr. 5.000, önnur
verðlaun kr. 3.000 og þriðju ve'rð-
laun kr. 2.000. Þátttökugjald er
kr. 300 fyrir félagsmenn en kr.
500 fyrir aðra.
Mótið er opið öllum skákmönn-
um 18 ára og eldri.
Skákmót á næstunni
22.6. SÍ. Guðmundar Arn-
laugssonar-mótið
23.6. Hellir. Jónsmessumót kl.
22
Daði Örn Jónsson
Amar E.
Gunnarsson
Bragi
Þorfinnsson
/TIGFk
SLATTUVELAR
Útsölustaðir um allt land
Notendavænar
Margar gerðir
Landsþekkt
varahlutaþjónusta
VETRARSOL
HAMRABORG 1-3 • Sími 564 1864
ÍDAG
VELVAKAADI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Aldraðir og
öryrkjar
SENN líður að kristnitöku-
hátíð á Þingvöllum, en það
ber á stóran skugga hjá
stjómvöldum. Kjör aldr-
aðra og öryrkja hafa ekki
verið leiðrétt. Þegar þing
kemur saman ættu aldraðir
og öryrkjar að vera með
söfnunarbauka við Alþing-
ishúsið og fá hluta af því
sem þeim ber að fá sam-
kvæmt lögum. Þingmenn
og ráðherrar ættu svona til
tilbreytingar að fá í sitt
launaumslag það sem aldr-
aðir og öryrkjar fá frá
Tryggingastofnun á mán-
uði. Eg er ansi hræddur um
að þeim brygði við. Eldri
borgara félög og Öryrkja-
bandalagið þurfa að standa
fast á að ná fram rétti aldr-
aðra og öryrkja, kjör þess-
ara hópa eru þjóðinni til
skammar. Framsóknarráð-
herra stýrir heilbrigðis- og
tryggingamálum, sem þessi
málaflokkur heyrir undir,
sjálfstæðisráðherrann út-
deilir svo fjármunum til
þessa ráðuneytis og getur
því alfarið ráðið ferðinni.
Það er svo komið undir
gæsku fjármálaráðherra
hvernig mál þessa hóps
þróast. Aldraðir og öryrkj-
ar verða að bíða og vona að
vel fari.
Gunnar G. Bjarmarsson.
Lifandi leikföng
OFT blöskrar mér, þegar
ég les á miðvikudögum
gjafasíðu DV, um alla þá
hunda og ketti, hvolpa og
kettlinga, sem fást gefins
hverjum sem hafa vill, þessi
lifandi leikföng barna, sem
um stundarbil minntust
spena móður sinnar. Við
eigum töluvert langt í land
með að læra listina að fara
vel með dýr. Enginn kann
betur en dýrið að þakka
hina minnstu velgjörð. I
mörgum þjóðfélögum eru
dýr einskis virt, klaufdýrin
álitin sálarlausir vinnu-
þrælar, aflífuð á hinn
ómannúðlegasta hátt,
hænsfuglinn hengdur lif-
andi upp á markaðstorgum,
þjóðaríþrótt Spánverja er
ekki fótbolti heldur að
murka líflð úr nauti, meðan
múgurinn öskrar af hrifn-
ingu, eins og hverjar aðrar
fótboltabullur. Minnir á
þegar kristnum mönnum
var varpað á leikvanginn
fyrr á öldum. Og þá er nú
grindadráp frænda okkar,
Færeyinga, ekki til fyrir-
myndar, þar sem allir, ung-
ir sem gamlir, flykkjast nið-
ur í fjöru til þess að murka
lífið úr hvalavöðunni með
því sem hendi er næst.
Fólk, sem tekur að sér
hvolp eða kettling, verður
að gera sér grein fyrir þvi,
að máske á það oftar en
einu sinni eftir að skipta um
bústað og á örugglega eftir
nokkrar sólarlandaferðim-
ar í framtíðinni.
Guðrún Jacobsen.
Leyfum köttunum
að njóta sín
VEGNA greinar, sem birt-
ist í á síðu Velvakanda 6.
júní sl.undir yfirskriftinni
„Kattahald í Reykjavík árið
2000“, langar mig að koma
með eftirfarandi athuga-
semd.
Ég tel að kettir ættu að
njóta frjálsræðis rétt eins
og við, að þeim sé gert
kleift að komast út og njóta
náttúrunnar. Vissulega eru
margir með ofnæmi fyrir
köttum en það eru fjöl-
margir með ofnæmi fýrir
gróðri og öðru úr náttúr-
unni. Ekki reynum við að
útiloka þessa hluti, það
væri líklega ógerlegt.
Einnig efa ég að fólk kysi
það, þar sem þetta er órjúf-
anlegur hluti náttúrunnar,
rétt eins og kettirnir og
önnur dýr. Það væri synd
ef köttum yrði útrýmt úr
borginni fyrir það eitt að
vera kettir og ég tel það á
skjön við það sem við erum
að reyna að kenna börnun-
um okkar; að bera virðingu
fyrir náttúrunni og leyfa
henni að njóta sín - með
hennar skilmálum. Ég vona
að Ingibjörg Sólrún borg-
arstjóri leyfi köttunum að
njóta þess sama og við.
A.F.
Tapad/fundið
Barnapeysa hvarf
frá læknastöð
VIÐ hjónin vorum stödd
með dóttur okkay á Hand-
læknastöðinni í Alfheimum
2. júní sl. þar sem hún var í
háls- og nefldrtlatöku og
meðan við sátum yfir henni
eftir aðgerðina var peysan
hennar tekin af biðstofunni.
Þessi biðstofa er mjög lítil
og datt okkur ekki annað í
hug en óhætt væri að skilja
hana þar eftir, þar sem
læknar og hjúkrunai'fólk
voru mikið þar á ferð. En
svo þegar við komum fram
var peysan horfin. Þetta er
okkur mjög kær peysa þar
sem við höfðum nýlega
keypt hana í útlöndun,
handprjónuð, keypt á úti-
markaði og enginn mögu-
leiki að neinn eigi svona
peysu. Við myndum undir
eins þekkja hana ef við sæj-
um barn í henni. Dóttir
okkar gerir sér alveg grein
fyrir þessu og skilur ekki af
hverju einhver var svona
vondur að taka nýju peys-
una hennar. Við þurftum
því að fara með dóttur okk-
ar illa klædda út eftir að-
gerð sem var líka sárt. Ég
skii ekki hvernig fólk getur
átt það til að taka bamafót
og hvað þá heldur að klæða
barn sitt í þannig fengna
flík og sérstaklega þar sem
í þessu tilviki er um mjög
sérstaka flík að ræða. Ég
vona bara að sá sem var svo
ósvífinn að taka peysuna
lesi þessar línur og sjái að
sér og skili henni þangað
sem hann tók hana því
starfsmenn handlækna-
stöðvarinnai' vita af þessu
og myndu þvi láta okkur
vita. Þetta er flík sem við
getum ekki keypt hér og því
enn sárara að missa hana.
Hver á úrið?
HVER tapaði gylltu kven-
úri á göngustíg vestarlega á
Seltjarnarnesi 13. mars sl?
Ef einhver kannast við að
hafa tapað úrinu sínu er
hægt að hafa samband við
Sonju í síma 561-7013.
SKÁK
l iiisjöii Ilelgi \ss
Grétarsson
STÓRMEISTARINN Serg-
ei Tiviakov (2567) er ættaður
frá sléttum Rússlands, en
hefur nú flust búferlum til
Hollands og teflir fyrir sitt
nýja land. Staðan er frá við-
ureign hans á hollenska
meistaramótinu við Loek
Van Wely (2646) sem hafði
svart og átti leik. 36...e5+!
37.Kxe5 Hc5+?! Betra og
einfaldara var að leika
37.. .Db8+! 38.Hd6 (38.KÍ6
Hc6+ og svartur vinnur)
38.. ..a5! 39.Dd4 Hc6 og
svartur vinnur a.m.k. hrók.
38.Kf4 Dc7+ 39.Ke3
Hxd4 40.Dxd4 Hc3+ 41.Hd3
41.KÍ2 gaf ekki kost á hald-
bærari vörn þar sem eftir
41...Dh2+! 42.Bg2 Hxc2+
43. Hd2 Dxh4+ hrynur staða
hvíts til grunna. 41...Bxd3
42.cxd3 Hxa3 43.Db4 Dcl+
44. Kd4 Dal+ 45.Ke3 Dgl+
46.Kf4 Hxd3 og hvítur gafst
upp. Þessi sigur Loek Van
Wely var mikilvægur áfangi
á leið hans til sigurs á sínu
fyrsta hollenska meistara-
móti.
Svartur á leik.
Víkveiji skrifar...
BIFREIÐ Víkverja dagsins
drap skyndilega á sér á þjóð-
vegi númer 1 við upplýsingaskilti
skammt austan við Mývatn á mið-
vikudag í liðinni viku. Ómögulegt
var að koma bílnum aftur í gang
og fór ekki á milli mála að raf-
magnsleysi var um að kenna. Á
þessu átti Víkverji síst von, enda á
tiltölulega nýlegum og nýyfirförn-
um bíl, en það fyrsta sem honum
datt í hug var að fá rafmagn hjá
einhverjum á ferðinni. Ferðalang-
arnir voru reyndar fáir, aðallega
útlendingar á bflaleigubílum, en
allir voru af vilja gerðir til að að-
stoða. Hins vegar var enginn með
nauðsynlega kapla til verksins. Ut-
litið var ekki gott en skyndilega
birti til þegar maður og kona á
dökkbláum vel með förnum Mitsu-
bishi Lancer-langbaki stoppuðu.
Maðurinn kunni greinilega til
verka og eftir að hafa farið yfir
leiðslur og fleira í bíl Víkverja
sagði hann ljóst að bilun væri í alt-
ernatornum eða riðstraumsrafaln-
um. Hann var ekki með kapla en
kaðal og bauðst til að draga bílinn
á verkstæði við Mývatn.
Aðstoð hans var að sjálfsögðu
þegin en Víkverji var svo annars
hugar þegar að verkstæði Sniðils
var komið að hann þakkaði fyrir
greiðviknina, fór síðan inn til að
finna viðgerðarmann en þegar út
var komið á ný var bjargvætturinn
á bak og burt. Það var miður, því
hvorki var fullkomlega þakkað fyr-
ir greiðann né boðin greiðsla fyrir
hann.
XXX
Viðgerðarmaðurinn hætti í
miðju verki og hófst þegar
handa við að greiða götu Víkverja
auk þess sem bílstjóri hjá fyrir-
tækinu hjálpaði til við að komast
að meininu. Þeir fundu fljótlega út
að alternatorinn framleiddi ekki
rafmagn og því væri rafgeymirinn
rafmagnslaus, en til að Víkverji
kæmist á bílnum til Akureyrar að
Ásco, sem er sérhæft verkstæði í
bflarafmagni, hlóðu þeir rafgeym-
inn og lánuðu Víkverja straum-
kapla til öryggis. Ferðin gekk eins
og í sögu en nær allir sem komu á
móti blikkuðu ljósum til að benda
Víkverja á að hann væri ekki með
ökuljósin kveikt. Víkverji gat hins
vegar aðeins leyft sér að aka með
stöðuljósin vegna lítils rafmagns
en umhyggja vegfarenda leyndi
sér ekki. Kaplarnir komu síðan að
góðum notum morguninn eftir
þegar starfsmaður Edduhótelsins
á Þelamörk gaf rafmagn og hlóð
geyminn nægjanlega mikið til að
koma mátti bílnum í gang og aka
honum á fyrrnefnt verkstæði.
Á Ásco var tekið á móti Víkverja
með bros á vör. Að sjálfsögðu
bjarga ég þessu svo þið komist
suður í tíma, sagði starfsmaðurinn
og einbeitti sér þegar að verkinu.
Hann gerði við „díóðuna" í „alt-
ernatornum“ og gat þess að svona
bilun gerði skyndilega vart við sig
en væri frekar óalgeng.
XXX
essi saga er sögð til að vekja
athygli á viðmóti fólksins,
hjálpsemi þess og greiðvikni.
Ferðalag um landið verður óneit-
anlega öruggara og þægilegra
þegar ganga má að því vísu að aðr-
ir leggi hönd á plóg þegar á þarf
að halda. Reyndar var áberandi á
þessari hringferð fjölskyldunnar
hvað þjónusta var almennt góð. I
því sambandi ber sérstaklega að
geta starfsfólks á Edduhótelunum
í Nesjaskóla skammt frá Höfn og
svo á Þelamörk í Hörgárdal. Víða
standa yfir vegaframkvæmdir á
vegi númer 1 en ökumenn tóku al-
mennt tillit til aðstæðna og voru
mjög tillitssamir. Oft þurfti að
koma við í söluskálum til að nær-
ast og var ánægjulegt að fá sér-
staklega góðan fisk í Víkurskála,
sem var góð tilbreyting frá „þjóð-
arréttinum" við þjóðveginn - ham-
borgara, frönskum og sósu - þótt
skammturinn hefði mátt vera
stærri.