Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 71

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 71
 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 71 KIRKJUSTARF Safnaðarstarf Sumardagar í kirkjunni Eins og undanfarin ár verða guðs- þjónustur eldri borgara í Reykjavík- urprófastsdæmum hvem miðvikudag í júnímánuði. Guðþjónustumar fær- ast á milli í kirknanna í prófasts- dæmunum. Að þessu sinni verður guðsþjónusta í Grafarvogskirkju mið- vikudaginn 21. júní kl. 14. Prestur er sr. Vigfús Þór Amason og sr. Miyakó Þórðarson túlkar á táknmáli. Á eftir verða kaffiveitingar í boði Grafar- vogssóknar. Þessar guðsþjónustur era sam- starfsverkefni Ellimálaráðs Reykja- víkurprófastsdæma, Félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, öldrunai’þjón- ustudeildar og safnaðanna sem taka á móti okkur hverju sinni. Nánari auglýsingar em í öllum kirkjum í prófastsdæmunum og einn- ig í félagsmiðstöðvum aldraðra í Reykjavík og Kópavogi. Þess er vænst að sem flestir sjái sér fært að koma og eiga saman góða stund í kirkjunni. Allir velkomnir. Áskirkja. Opið hús íyrir alla aldurs- hópa í safnaðarheimilinu kl. 10-14. Léttur hádegisverður framreiddur. Mömmu- og pabbastund í safnaðar- heimilinu þriðjudagkl. 14-16. Hallgrúnskirkja. Fyrirbænaguðs- þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Laugarneskirkja. Morgunbænir í kirkjunni kl. 6.45-7.05. Neskirkja. Litli kórinn, kór eldri borgara, þriðjudag kl. 16.30 í umsjón Ingu J. Baekman og Reynis Jónas- sonar. Seltjamameskirkja. Foreldramorg- unn kl. 10-12. Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta með altarisgöngu kl. 18.30. Bænar- efnum má koma til sóknarprests í við- talstímum hans. Fella- og Hólakirkja. Foreldrastund kl. 10-12. Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 18. Kópavogskirkja. Foreldramorgunn í safnaðarheimilinu Borgum í dag kl. 10-12. Kyrrðar- og fyrirbænastund í dag kl. 12.30. Fyrirbænarefnum má koma til prests eða kirkjuvarðar. Seljakirkja. Mömmumorgnar kl. 10- 12. Víðistaðakirkja. Aftansöngur og fyr- irbænir kl. 18.30. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir 10-12 ára börn í Vonarhöfn, Strand- bergi, kl. 17-18.30. Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús kl. 17-18.30 fyrir 7-9 ára böm. Grindavíkurkirlga. Foreldi’amorg- unn kl. 10-12. Borgarneskirkja. TTT tíu-tólf ára starf alla þriðjudaga kl. 17-18. Helgi- stund í kirkjunni sömu daga kl. 18.15- 19. Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í Hlíðasmára 5. Allir velkomnir. Hvammstangakirkja. Æskulýðs- fundur í kvöld kl. 20.30 á prestssetr- inu. Þorlákskirkja. Mömmumorgnar þriðjudaga kl. 10-12. Frelsið, kristileg miðstöð. Biblíuskóli í kvöld kl. 20. KEFAS. Almenn bænastund kl. 20.30. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía. Bibl- íulestur kl. 20, Allir velkomnir. FRETTIR BSRB mótmælir auknum álögum á sjúklinga BANDALAG starfsmanna ríkis og bæja hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu: „BSRB vekur athygli á að sam- kvæmt breytingum ríkisstjórnar- innar á reglugerð um hlutdeild Tryggingastofnunar ríkisins í lyfjakostnaði mun hámarks- greiðsluhlutdeild sjúklinga hafa hækkað um 72,22% frá áramótum eða úr 1.800 kr. fyrir hvern lyfseðil í 3.100 kr. Þetta á við um svokölluð B-lyf en í þeim flokki eru meðal annars lyf við hjarta-, astma-, psoriasis- og geðsjúkdómum. Jónsmessu- hátíð í Arnesi UM Jónsmessuna verður hald- in söng- og hljóðfærasláttarhá- tíð í Amesi Gnúpverjahreppi. Hátíðin hefst föstudaginn 23. júní Kl. 18 með grilli og kl. 21 hefjast tónleikar þar sem fram koma: Tamora, KK og Magnús, Gulli og Maggi, Ólafur Þórar- insson, Bubbi „eftirherma". Kl. 0:30 verður dansleikur með hljómsveitinni Mávunum. Laugardaginn 24. júní kl. 16 verður síðdegiskaffi og kl. 18 hefst grill Kl. 21 verða tónleik- ar þar sem fram koma: Vina- bandið, Perluvinir, Gulli og Maggi, Ólafur Þórarinsson, Ingvar Valgeirsson, Blátt áfram tilraunabandið. KI. 0:30 leikur hljómsveitin Mávarnir fyrir dansi. Mjólkursam- salan styrkir rannsóknir á íslensku máli MJÓLKURSAMSALAN hefur ákveðið að veita námsmanni á há- skólastigi styrk til rannsókna á ís- lensku máli. Styrkurinn verður veitt- ur í fyrsta skipti í haust og mun formleg afhending fara fram í tengslum við Dag íslenskrar tungu, þann 16. nóvember næstkomandi. Styrkupphæðin er 400 þúsund krón- ur. Síðastliðið haust hlaut Mjólkur- samsalan viðurkenningu mennta- málaráðuneytisins fyrir störf í þágu móðurmálsins. Við það tækifæri til- kynnti Guðlaugur Björgvinsson, for- stjóri Mjólkursamsölunnar, að ákveðið hefði verið að veita árlegan styrk til háskólanema sem vinnur að lokaverkefni um íslenskt mál. Nem- ar sem vinna að lokaverkefni geta sótt um styrkinn og mun þriggja manna nefnd, skipuð fulltrúum Is- lenskrar málnefndar fara yfir um- sóknir. Nánari upplýsingar um styrkinn eru veittar hjá Islenskri málnefnd. Fjölsótt 17. júní hátíðarhöld 1 Osló ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGURINN, 17. júní, var haldinn hátíðlegur í Osló að þessu sinni eins og venja hefur verið. Það var íslendingafé- lagið sem stóð fyrir hátíðahöldun- um. Björgvin Guðmundsson, sendif- ulltrúi við sendiráð íslands í Ósló, flutti hátíðarræðu dagsins. Hann fjallaði m.a. um íslenska tungu og nauðsyn þess að standa vörð um hana. Mikil þátttaka var í hátíðahöld- unum. Þau hófust með skrúð- göngu frá St. Hanshaugen-garði í Osló að dýralækningaháskólan- um, en þar vora ræður, skemmti- atriði og 17. júní-kaffi. Aftenposten birti heilsíðugrein um Island 17. júní og viðtal var við sendifulltrúa í útvarpinu. Myndlistarsýning var opnuð 17. júní í Iskunst, íslensku galleríi í Osló. Á fimmta þúsund Islendingar búa nú í Noregi. Hækkunin í svokölluðum E-lyfja- flokki er hlutfallslega minni eða 28,57% en í krónum nemur hækk- unin eitt þúsund krónum fyrir hvern lyfseðil, fer úr 3.500 kr. í 4.000 kr. Hvað elli- og örörkulíf- eyrisþega snertir er hækkunin í báðum lyfjaflokkum minni, 58,33% fyrir lyf og 25% fyrir E-lyf. Tekjuviðmiðun endurgreiðslna TR vegna læknis- og lyfjakostnað- ar er hækkuð um tvö hundruð þús- und krónur á ári og frádráttur vegna barna er aukinn og tekur nú til barna og unglinga til 18 ára ald- urs í stað 16 ára áður. Þessi breyt- ing er til framfara og henni ber að fagna. Hins vegar er rétt að vekja athygli á að fjölskyldur með sam- anlagðar tekjur hjóna yfir 267 þús- und krónur á mánuði fá engan stuðning. Þá ber að hafa í huga að ráðstafanir ríkisstjórnarinnar ganga út á að draga úr útgjöldum ríkisins vegna niðurgreiðslna á lyfjum um ríflega eitt þúsund millj- ónir króna á ársgrundvelli. Ljóst er að þetta verður gert á kostnað sjúklinga og því mótmælir BSRB harðlega." Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins fær styrk frá starfsmenntaráði Morgunblaðið/.Jim Smart Eftir afhendinguna sýndu slökkviliðsmcnn hvernig á að bera sig að við að slökkva eld. Staðlaðir vinnuferl- ar auka öryggi og gæði þjónustunnar SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðis- ins hefur hlotið 2,5 milljóna króna styrk úr starfsmenntasjóði starfs- menntaráðs til þróunarverkefnisins „Vinnuferlar slökkviliðs- og sjúkra- flutningamanna". Verkefnið felur í sér að búa til staðlaða vinnuferla við björgun úr bílflökum, neyðar- flutninga og viðbrögð við umhverf- isslysum. Þrátt fyrir að slökkviliðin hafi hingað til brugðist við um- hverfisslysum hefur það ekki verið Iögbundið hlutverk þeirra, en svo mun verða þegar ný lög um bruna- mál taka gildi 1. janúar næstkom- andi. Staðlaðir vinnuferlar auð- velda starfsmönnum slökkviliðs vinnu að vandasömum verkefnum, auk þess sem þeir tryggja öryggi og gæði fyrir alla aðila. Hrólfur Jónsson slökkviliðsstjóri segir að styrkurinn verði meðal annars notaður til þess að þróa svokallaða klippivinnu, það er þeg- ar beita þarf klippum til að ná slös- uðum út úr bílflökum. „Allt sem hægt er að gera til þess að koma í veg fyrir að háls- eða mænuskaðar og alvarleg beinbrot leiði til lömun- ar eða skaddaðrar hreyfigetu er gríðarlega mikilvægt," segir Hrólf- ur. Hluti styrksins verður einnig notaður til þess að byggja upp neyðarbílsnámið. Starfsmenntaráð kynnti nýjar áherslur í stefnu og starfsháttum í byrjun árs og kom þar meðal ann- ars fram aukin áhersla á þróun og nýsköpun á sviði starfsmenntunn- ar. f framhaldi af því var ákveðið að veita 15 milljónir króna til sér- stakra þróunarverkefna á þessu sviði og hlaut verkefni slökkvilið- sins fyrsta styrkinn. Evrópusambandið býður styrki til nýsköpunar EVRÓPUSAMBANDIÐ auglýsti 15. júní eftir umsóknum um styrki til nýsköpunarverkefna. Styrkirnir geta numið allt að 1,7 millj. evram, eða um 124 millj. kr. og ætlast er til að verkefnin taki ekki lengri tíma en 3 ár. Gert er ráð fyrir að þátttakendur í verkefnunum geti m.a. verið eftir- taldir: Þjónustu- og framleiðslufyr- irtæki, fjármálastofnanir, ráðgjaf- ar, opinberar stofnanir, háskólar, viðskiptaskólar, tækniskólar og aðrir framhaldsskólar, tækni- og rannsóknastofnanir, hagsmunasam- tök atvinnulífsins eða opinberir og einkareknir stuðningsaðilar við at- vinnulífið Verkefnin þurfa að bein- ast að því að auðvelda fyrirtækjum nýsköpunarstarfið. Þar spila inn í bæði tæknilegar úrlausnir ásamt stjórnun verkefna, fjármögnun, verndun hugverka og fleiri þættir sem hafa áhrif á nýsköpunarferlið. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á heimasíðunni: www.cord- is.lu/innovation-smes/ Kynningarfundurinn verður haldinn fimmtudaginn 22. júní í Borgartúni 6, kl. 8:30-9:30 Umsjón með kynningunni hefur Emil B. Karlsson, alþjóðafulltrúi Evrópu- miðstöðvar Impru á Iðntæknistofn- liriiiiilisrffii í S L A N D ■ k BRAV0 150S • 150x100x35 • 500 kg *Kr. 89.000,- A BRAV0 2056 • 202x112x35 • 500 l<g -Kr. 119.000,- k BRAVO 225 • 225x145x30 • 746 kg -Kr. 145.000,- ▲ Al 1205 Nyrr • 203x128x30 • 500 kg • Kr. 158.000,- l BRAVO 310 TB • 310x168x30 • 1.600 kg • Kr. 295.000, A £-750 stór og sterk • 260x130x40 • Kr. 189.000,- A Alhliða flutningsvagn • 400x180x24 • 2.400 kg l £kta bílaflutningavagn • 2.500 kg k Mótorhjólavagn fyrir 1-2 hjól Dróttarbeisli fyrir flestar gerðir jeppa og fólksbíla DALVEGUR 16B • KÓPAVOGI SÍMI 544 4454
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.