Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 '7------------------------- MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ KRISTÍN EINARSDÓTTIR + Kristín Einars- dóttir, þjónustu- stjóri SPRON í Graf- arvogi, fæddist í Reykjavík 24. júní 1957. Hún lést 13. júní síðastliðinn. Móðir hennar er Marta Sveinbjörns- dóttir, f. 14.11. 1927, og faðir hennar er Einar Ól. Gíslason, f. 6.4. 1928. Hálfbræð- ** ur hennar sam- mæðra eru Björn og Ingvi Ágústssynir og hálfbræður hennar samfeðra eru Kolbeinn og Einar Einarssynir. Dóttir Kristínar af fyrra hjónabandi er Sandra Sif Mort- hens, f. 20.5. 1980. Eiginmaður Kristfn- ar er Pétur Þór Jónsson, f. 14.3. 1946, starfsmaður SPRON. Dætur hans af fyrra hjónabandi eru Karólína, f. 18.6. 1968, Elena Kristín, f. 10.7. 1970, og Anna Hildur, f. 4.1. 1973. Utför Kristínar verður gerð frá Grafarvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku mamma mín er farin frá okkur. Mamma sem var mér allt. Mamma sem sá fyrir öllu og kenndi mér allt sem ég kann og gerði mig að þeirri manneskju sem ég er. Mamma var svo ósköp góð við alla og var allt- af tilbúin að rétta hjálparhönd. I henni var svo mikill stuðningur. Hún var stoð og stytta í lífi okkar allra og það vantar svo ólýsanlega mikið þeg- ar hún er ekki. Ég veit að öllum ^nnst sínir bestir, en ég veit og hef oft hugsað um hvað ég á bestu mömmu í öllum heiminum. Enginn getur komið í hennar stað því að önn- ur eins manneskja fyrirfinnst ekki. Henni var svo mikið í mun um að allt væri gert rétt og að vel væri staðið að öllu. Þegar ég og Magnús minn ákváðum að fara utan sýndi hún því svo mikinn skilning og stuðning. Þetta var hennar mál rétt eins og okkar. Hún átti okkur og hafði því rétt á að skipta sér af. Svo kemur mamma og fyllir ísskápinn og skiptir sér svolítið af, sagði hún alltaf. „Þið gerið það sem þið teljið að sé best og réttast og við munum alltaf styðja ykkur.“ Þetta lýsti mömmu svo vel. Alltaf til staðar og sýndi öllu því sem maður tók sér fyrir hendur svo mik- inn áhuga. Þegar hún setti mér lífs- reglurnar og sagði svo, þú ert eina barnið mitt og ég mun alltaf skipta mér af þér. Hvað hún var ánægð með Magnús minn og þegar ég sagði að það væri bara eins og hún hefði fund- ið son sinn, sagði hún bara, já við Magnús minn erum nefnilega svo mikið svoleiðis. Þegar hann sagði, Krissa, er í lagi að ég setji þig sem foreldri sem hægt er að ná í í neyð? þegar hann var að sækja um í skól- anum. Mikið ofboðslega var mamma stolt. Mamma var alltaf tilbúin að hlusta. Hún var besti hlustandi í heimi og svo ráðlagði hún á sinn ein- staka hátt. Það er skrítið hvernig þetta smáa stendur upp úr. Hvað það var gaman að fara með henni í búð- t Elskuleg móðir okkar, Jffcb HALLDÓRA S. S. JÓNSDÓTTIR, ■IHf i Hrafnistu, Reykjavík, lést laugardaginn 17. júní. Jóna L. Marteinsdóttir, SðSkakv , ' Steinar Marteinsson, Salgerður Marteinsdóttir. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, EMMA MAGNÚSDÓTTIR, Öldugötu 44, Hafnarfirði, verður jarðsungin frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, þriðjudaginn 20. júní kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Kamilla Sveinsdóttir, Hans Ove Hansen, Gunnlaugur Sveinsson, Elín Ástráðsdóttir, Guðlaug Kristmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. I t Ástkær eiginkona, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTJANA BRYNJÓLFSDÓTTIR, Árskógum 6, Reykjavík, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 20. júní kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Barnaspítala Hringsins. Bjarni Björnsson, Björn Bjarnason, Kristín Helgadóttir, Brynjólfur Bjarnason, Þorbjörg K. Jónsdóttir, Bjarni Bjarnason, Emilía Ólafsdóttir, Birgir Bjarnason, Guðbjörg Sigmundsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ina og koma svo klyfjaðar út aftur, fara í gróðrarstöðina og kaupa blóm og vera saman og tala um allt milli himins og jarðar, mamma var mikið fyrir að skipuleggja. Að koma upp á helgarmorgnum og mamma var búin að taka til morgunmat eins og henni einni var lagið. Maturinn hennar og sósurnar voru engu lík og mikið á ég eftir að sakna alls þess sem manni finnst svo sjálfsagt í hversdagsleik- anum. Að kósa sig fyrir framan sjónvarpið og borða Sigguömmu- brúna á sunnudögum og helgarmat- inn. Mamma hafði það alltaf fyrir venju og henni var það mjög mikil- vægt að allir kæmu saman við kvöld- matarborðið, borðuðu og ræddu saman. Mörgum hefur fundist þessi ósköp sterka venja hálf einkennileg. En það að eiga þennan fasta punkt á hverjum degi var okkur öllum svo mikilvægt. Allt prjál og pjatt var mömmu alveg óskiljanlegt. Hún var sú sem hún var og sagði að snobb væri það heimskulegasta sem til væri, reyndu aldrei að vera önnur en þú ert, sagði hún alltaf. AIls staðar sem hún kom lýsti hún upp umhverfi sitt og henni fylgdi alveg ólýsanleg hlýja. Ó, hvað það var gott að knúsa hana. Ég held að allir sem voru svo heppnir að fá að kynnast henni skynji þann tómleika sem hún skilur eftir sig í brjóstum okkar allra. Það sýnir okkur hvað hún var mikið og skipti okkur miklu máli. Mamma sagði að heimilið væri það mikilvæg- asta sem maður ætti ásamt fjöl- skyldu sinni og mikið ræktaði hún heimilið okkar vel. Var alltaf að bar- dúsa og snúllast, baka, elda og dytta að. Ailt sem hún snerti með höndun- um, hvort sem það var manneskja, matur, mold eða pappírar, allt dafn- aði og blómstraði. Hún sýndi mér og kenndi hvað maður sjálfur er mikil- vægur og það sem þú vilt að aðrir sýni og geri þér það skalt þú sýna og gera þeim. Ég held að það sé ekki hægt að óska sér betra heimili en það sem ég á. Mömmu mína, Pétur, ömmu, Magga og Tótu. Við vorum öll svo samrýmd og erum enn. Að fara upp í bústað þar sem mamma og Pét- ur fundu svo mikla sælu og voru allt- af að moldvarpast og bardúsa, í Borgarfirðinum var alltaf gott að vera. Alls staðar sem mamma var var gott að vera. Henni var líka svo mikið í mun um að ég kláraði skól- ann. Ég sagði alltaf að þó að ég myndi ekki verða stúdent myndi mamma halda veisluna samt. Þetta var hennar hjartans mál. Hvað ætlar þú svo að verða, þú verður að geta séð fyrir okkur í ellinni, sagði hún alltaf. Hún var svo einstök. Mamma sagði að naflastrengurinn myndi aldrei slitna á milli okkar og það var satt, hann mun aldrei slitna. Einka- dóttir mömmu sinnar, prinsessan sagði hún alltaf. Við skildum hvor aðra svo vel. Við þurftum ekki annað en að líta á hvor aðra þá vissum við hvað hin var að hugsa. Við áttum bönd sem enginn fær rofið, aldrei. Ég held að fáar mæðgur eigi jafn gott og náið samband eins og ég og mamma og mikið ósköp á ég eftir að búa að því. Þó að plönin um framtíð- ina breytist þá ert þú þar alls staðar. Þú ert svo stór partur af okkur öll- um. Við fjölskyldan höldum áfram og styrkjum hvert annað, eins og þú sagðir alltaf, æ, verum góð við hvert annað. Elsku mamma, ég veit að lík- ama þínum verð ég að sleppa, þú þráir meiri hvíld. En þér mun ég aldrei sleppa. Elsku mamma, eins og við sögðum alltaf. Góða nótt, Guð geymi þig og dreymi þig vel. Þú átt mig ogégáþig. Þín dóttir, Sandra. Farþúífriði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyri allt og allt, gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V- Briem.) Hún Krissa, eins og hún var alltaf kölluð, er farin frá okkur, ung kona í blóma lífsins. Tilgangurinn er okkur sem elsk- um hana óskiljanlegur. Þar sem ég hef búið erlendis síð- astliðin fjögur ár hefur maður ekki haft eins mikið samband og maður hefði viljað, en hvert skipti sem við komum heim fórum við alltaf og hitt- um pabba og Krissu, borðuðum ljúf- fenga matinn hennar og spjölluðum saman. Það er enginn sem getur eld- að eins góðan mat og Krissa, það vita allir sem þekktu hana. Við höfðum talað um það ekki fyr- ir svo löngu að við ætluðum svo sann- arlega að fara að rækta vinskapinn þegar ég flytti heim og fara að gera fleira saman sem fjölskylda. Pabbi minn var mjög lánsamur að eiga þessi ár með Krissu sinni, hún var honum meira en orð fá lýst. Það var alltaf svo stutt í fallega brosið henn- ar og þannig ætla ég að geyma minn- inguna um Krissu í hjarta mér. Nú þegar komið er að leiðarlokum og ég lít yfir farinn veg finn ég fyrir þakklæti fyrir að hafa þekkt svona yndislega og góða manneskju eins og hún Krissa var sem var alltaf reiðu- búin að gera allt fyrir alla. Elsku pabbi, Sandra og Marta, megi Guð gefa ykkur styrk og varðveita ykkur í gegnum sorgina. Elsku Krissa mín, megir þú hvíla í friði. „Svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf. “ Elena Kristín Pétursdóttir. Árla á þriðjudagsmorgun hringir síminn og pabbi segir okkur að Krissa hafi látist um nóttina. Þvílíkt reiðarslag, út af hverju? Hver er tilgangurinn með því að Krissa, aðeins 43 ára gömul, sé tekin frá okkur? Guð einn hefur svarið við þvi en eftir sitja minningar um yndislega góða og réttsýna manneskju. Krissa hefur alltaf reynst mér mjög vel, og þegar ég bjó hjá henni og pabba á Kaplaskjólsveginum voru þau ófá góðu ráðin sem hún gaf mér varðandi lífið og tilveruna. Hún hvatti mann alltaf til dáða og gaf manni styrk til þess að trúa því að maður gæti allt sem maður vildi ef maður bara reyndi. Minningarnar sem við eigum um Krissu eru margar og erfitt að velja fáar úr til að setja niður á blað en ég verð að minnast á hvað hún var mik- ill listakokkur. Allt sem hún eldaði var gott og alltaf gat maður hringt og fengið ráðleggingar varðandi matargerð. Ég man ein áramótin, þá hringdi ég svona lO.sinnum í hana útaf kalkúninum sem ég var að elda og alltaf var hún jafn þolinmóð og alltaf endaði símtalið með hlátri og orðunum „þetta verður örugglega rosalega gott hjá þér“. Krissa var mikið jólabam og við gátum oft látið okkur hlakka til jól- anna strax á haustin og planað hvað ætti að gera skemmtilegt á aðvent- unni. Krissa og Sandra, hennar einkadóttir, voru mjög natnar við eldri dóttur okkar, Hönnu Margréti, og var það Hönnu alltaf tilhlökkun- arefni að fara til ömmu Krissu og afa Péturs og síðast en ekki síst til Söndru, en hún er í miklu uppáhaldi hjá Hönnu. Þegar María Ósk, yngri dóttir okkar Arnar, fæddist var sko passað upp á það hjá Krissu að Hanna yrði ekki útundan, eins þegar við þurft- um að standa í flutningum rétt fyrir jól, þá voru það Krissa og Sandra sem sáu um að Hanna fengi að baka piparkökur og laufabrauð og fara á jólaball og allt sem því fylgdi, og jóla- sveinninn sem gaf í skóinn í Vætta- borgum var alltaf ansi örlátur. Krissa var mjög lífsglöð, léttlynd og sterk kona og kom það svo sann- arlega í ljós þegar hún veiktist al- varlega fyiir nokkrum árum, hún barðist af hörku enda sigraðist hún á þeim veikindum. Pabbi og Krissa voru búin að búa saman í fjölda ára, en létu loks verða af því að gifta sig fyrir tæpum tveim- ur árum og var það mikill gleðidagur og má segja að það hafi verið mesta gæfa hans pabba að hitta Krissu og ég verð að segja að sjaldan höfum við séð hjón sem voru eins samheldin og eins miklir vinir og þau. Hún var hans sálufélagi og er missir hans mikill. Hinn 25. maí síðastliðinn komum við fjölskyldan í draumahúsið þeirra í Vættaborgum og vorum að kveðja þau þar sem við vorum að fara til Spánar daginn eftir. Ekki gat okkur órað fyrir því að þetta væri í síðasta sinn sem við ættum eftir að sjá Krissu. Hún var svo spennt yfir því að Sandra væri að verða stúdent og hún og Sandra voru búnar að plana fína veislu, en jafnframt var hún leið yfir því að við gætum ekki verið með þeim á þessum tímamótum. Eins hlakkaði hún svo til sumarfrísins sem var á næsta leiti og þá átti að bruna beint upp í Borgarfjörð og vinna í sumarbústaðnum og njóta lífsins þar, en það var draumastaður þeirra pabba. Kæri Einar og fjölskylda, elsku Marta og elsku pabbi og Sandra, sársaukinn er mikill, hugur okkar er ávallt hjá ykkur. Guð gefi okkur öllum styrk til að komast í gegnum þessa miklu sorg. Eftir sitja góðar minningar um yndislega konu. Guð blessi ykkur, Karólína og Om. Ekki gat ég trúað orðum tengda- móður minnar er hún hringdi snemma á þriðjudagsmorgun til að segja mér að hún Krissa hefði dáið um nóttina. Það var eins og tíminn stæði kyrr eitt augnablik. Hvað var hún að segja mér? Hún Krissa dáin? Það gat ekki verið satt, en sú var samt staðreyndin. Mig langar í örfá- um orðum að kveðja hana Krissu mágkonu mína. Við kynntumst fyrir tæplega 30 árum, þegar bróðir henn- ar, síðar eiginmaður minn, var að stíga í vænginn við mig. Hún var þá nýfermd yndisleg stúlka með lífið framundan. Með okkur tókst gott vináttusamband og sakna ég nú sárt vinkonu minnar. Það rifjast upp margar minningar á stundu sem þessari. Eitt sinn á ferðalagi um öræfi Islands sátum við undir hraunvegg inn við Land- mannalaugar og töluðum um lífið og tilveruna til morguns þar til sólin fór að skína á nýjum degi. Minntumst við oft þessarar nætur, því að öllu jöfnu var hún Krissa mín ekki mikill næturhrafn eins og ég gat þó oft ver- ið. Þegar hún veiktist af illvígum sjúkdómi fyrir um tíu árum hitti ég hana rétt eftir að hún kom frá lækn- inum með þessar slæmu fréttir og sagði hún þá að þessari raun skyldi hún sigrast á og það gerði hún svo sannarlega, en tollurinn sem hún þurfti að borga var kannski stærri en við gerðum okkur grein fyrir. Núna stöndum við hnípin og sorgmædd og skiljum ekki neitt í neinu. Hvers vegna hún? En lífið heldur áfram og ég veit að hún Krissa mín vakir yfir okkur og gefur okkur styrk til að halda áfram. Elsku Sandra mín, Pétur, Marta, Maggi, Ingvi minn og aðrir vinir og vandamenn, Guð gefi ykkur styrk í ykkar miklu sorg. Mínar innilegustu samúðarkveðjur. Anna mágkona. Okkur langar að setja nokkrar lín- ur á blað til að kveðja þig, kæra Krissa. Þegar Pétur hringdi í okkur aðfaranótt sl. þriðjudags og sagðist halda að hún Krissa sín væri dáin, þá hætti hjartað að slá eitt andartak og við vorum viss um að þetta gæti ekki verið rétt. Það er svo margt sem við ekki skiljum í lífinu, þar á meðal af hverju fólk í blóma lífsins er hrifið á brott fyrirvaralaust. Við hjónin kynntumst Krissu þeg- ar hún og Pétur fundu hvort annað. í gegnum hugann renna minningar og undantekningarlaust eru þær ánægjulegar, nema helst sá tími þeg- ar þú áttir við mikil veikindi að stríða fyrir nokkrum árum og við héldum jafnvel að við myndum missa þig. Þá gátum við ekki annað en dáðst að lífsviljanum og jákvæðu hugarfar- inu, enda tókst þér að hrekja burt þann vágest. I Munaðarnesi, þar sem þú áttir þínar síðustu stundir, höfum við sennilega átt okkar allra bestu stundir saman. Fyrst í okkar koti þar sem þið Pétur, Sandra og Marta voruð tíðir og kærkomnir gestir og mikið vorum við vinkonurnar lukku- legar þegar okkur kvenvörgunum hafði tekist að neyða Pétur til að
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.