Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 43
42 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 43 fMtvgtiidHbifeife STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Framkvœmdastjóri: Hallgrímur B. Geirsson. Ritstjórar: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. SUÐURLANDSSKJÁLFTAR Fyrir u.þ.b. 15 árum skrifaði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðl- isfræði við Háskóla Islands, merkilega grein í tímaritið Náttúru- fræðinginn, sem hann nefndi: Jarð- skjálftaspár. í grein þessari segir höf- undur m.a.: „Meira en 80% líkur eru til þess, að á næstu 25 árum gangi meiri háttar jarð- skjálftar yfir Suðurlandsundirlendi. Jarðskjálftarnir hefjast líklega á aust- urhluta skjálftasvæðisins með kipp að stærð 6,3-7,5 en á næstu dögum, mán- uðum eða árum færist skjálftavirknin vestur á bóginn, um Skeið, Grímsnes, Flóa eða Ölfus. Þetta er dæmigerð langtímaspá, byggð á þeirri meginfor- sendu, að jarðskjálftavirkni á Suður- landi haldi áfram með líkum hætti og verið hefur síðustu aldirnar. I framhaldi langtímaspár er eðlilegt að spurt sé, hvort hægt verði að gera nákvæmari spá, þegar nær dregur skjálftunum og ef til vill gefa út aðvör- un í tæka tíð. Við núverandi aðstæður verðum við að svara því neitandi...“ Það er ekki oft, sem vísindamenn segja með svo mikilli nákvæmni fyrir hvað gerast muni löngu síðar. En ekki verður betur séð en þessi spá Páls Ein- arssonar fyrir 15 árum hafi verið að koma fram síðustu daga með að því er virðist nákvæmlega þeim hætti, sem hann taldi árið 1985 að verða mundi. Það er ekki hægt annað en bera djúpa virðingu fyrir slíkri þekkingu. Fyrstu klukkutímana eftir jarð- skjálftann 17. júní virtust þeir vísinda- menn, sem fram komu í fjölmiðlum ekki hafa náð áttum eða gert sér fylli- lega grein fyrir því, sem gerzt hafði. En á laugardagskvöld var orðið ljóst, að jarðskjálftinn var mun sterkari en talið var í fyrstu. Ekki leikur nokkur vafi á því, að þeir Suðurlandsskjálftar, sem menn hafa haft nokkrar áhyggjur af síðustu áratugi hafa hafizt og hægt er að búast við að þeir haldi áfram með einhverjum hætti á næstu dögum, vik- um, mánuðum eða árum. Gera verður ráð fyrir, að vísindamenn okkar skoði vinnubrögð og starfsaðferðir í kjölfar atburðanna sl. laugardag, því að það skiptir auðvitað máli, að bæði stjórn- völd og almenningur átti sig þegar í stað á því, sem gerzt hefur og kann að gerast. Þótt mikil vinna og miklir fjármunir hafi verið lögð í það síðustu þrjá ára- tugi að byggja hér upp öflugt almanna- varnakerfi er Ijóst, að ýmsar veikar hliðar á því komu í ljós sl. laugardag. Það var mikil mildi, að þessar náttúru- hamfarir skyldu verða 17. júní, þegar svo háttaði til að fólk var fjarri heimil- um sínum. Ef fólk hefði verið heima við er hætt við að verr hefði farið. Líkur á, að manntjón hefði orðið við aðrar að- stæður eru verulegar. Yfirstjórn almannavarnakerfisins hlýtur að fara rækilega ofan í saumana á því með gagnrýnu hugarfari, sem úr- skeiðis fór, til þess að vera betur búin undir næstu hrinu, sem enginn veit hvenær dynur yfir. Það hefur áreiðanlega komið fólki verulega á óvart hve miklar skemmdir urðu á mannvirkjum í þessum hamför- um. Landsmenn hafa talið sér trú um að hús væru svo sterkbyggð að þau mundu í flestum tilvikum standast öfl- uga jarðskálfta. En auðvitað er ljóst að töluvert af húsakosti þjóðarinnar er frá fyrri tíð, þegar byggingar voru ekki jafn vandaðar og nú. Engu að síð- ur er eðlilegt að fram fari skoðun á þeim reglum, sem um byggingar gilda, í kjölfar atburðanna sl. laugardag. Er kannski nauðsynlegt að gera enn meiri kröfur um styrkleika mannvirkja? Þjóðin þarf að fá svör við því hver staða þessara mála er. í tengslum við náttúruhamfarir síð- ustu áratuga, eldgosið í Vestmanna- eyjum og snjóflóð á Vestfjörðum og Austfjörðum hefur verið byggt upp öflugt kerfi áfallahjálpar. Flest bendir til að það skili sér vel við atburði sem þessa. Töluverður hópur fólks hefur misst heimili sín vegna jarðskjálftanna og enn stærri hópur hefur orðið fyrir verulegu tjóni. Ætlast verður til að viðlagatryggingakerfið, sem byggt var upp í kjölfar eldgossins í Vestmanna- eyjum, afgreiði þau mál með eins mikl- um hraða og framast er unnt. Þátttaka Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, í fundi, sem haldinn var með íbúum Suð- urlands strax í fyrradag mun áreiðan- lega verða til þess að hraða afgreiðslu þeirra mála í opinbera kerfinu. Þótt þessir atburðir hafi komið fólki gersamlega í opna skjöldu, þegar þjóð- in fagnaði á þjóðhátíðardeginum er ljóst, að landsmenn hafa haldið ró sinni. Það skiptir miklu bæði nú og vegna þeirra atburða, sem við getum nánast gengið út frá sem vísu, að eiga eftir að verða. Það sem skiptir höfuð- máli er, að manntjón varð ekki. Eftir jarðskjálftana nú verðum við betur undir búin, þegar hamfarir verða næst. BJARTSÝNI Bjartsýni gætti í 17. júní ræðu Dav- íðs Oddssonar forsætisráðherra um þróun efnahagsmála. Ráðherrann sagði m.a.: „...verðbólga er nú að minnka og hef- ur verðlag þannig hækkað mun minna sl. tvo mánuði en gerðist í sömu mánuð- um fyrir ári. Vjsitala fasteignaverðs í fjölbýli lækkaði í maímánuði í fyrsta sinn í langan tíma en eins og kunnugt er hafa fasteigna- og olíuverðshækkanir aðallega ýtt undir verðbólgu hér á landi. Undirliggjandi verðbólga að þessum liðum frátöldum er á hinn bóg- inn lítil eða aðeins um 1,5-2,0%. Þar sem fasteignaverð virðist nú hafa náð hámarki og fráleitt er talið að heims- markaðsverð á olíuvörum hækki enn frekar, eru allar líkur á, að úr verðbólgu dragi ört á næstu mánuðum og misser- um.“ Margt er áþekkt með stöðu efna- hagsmála á íslandi og í Bretlandi og Bandaríkjunum. I öllum þessum þrem- ur löndum hafa menn haft áhyggjur af því, að efnahagskerfíð væri að ofhitna og fram hafa komið þau sjónarmið und- anfarin misseri, að botninn væri að detta úr hagvextinum og erfíðleikar mundu gera vart við sig. Fram á þenn- an dag hafa þeir, sem talað hafa af meiri bjartsýni, haft rétt fyrir sér og spádómar um verri tíð ekki gengið eftir. Hagsæld þjóða Vesturlanda á næstu árum er undir því komin, að bjartsýnis- mennirnir hafí á réttu að standa. Breytingar urðu á.jarðhitavirkni í borholum á Suðurlandi í skjálftanum Morgunblaðið/RAX Ingvar Baldursson hitaveitustjóri skoðar borholur í Kaldárholti þar sem upptök skjálftans voru, en þar höfðu lok á holum brotnað og vatn fossaði upp úr þeim. Mikið tjón á hitaveitu MILLJÓNATJÓN varð á heitavatnskerfi Hita- veitu Rangæinga þegar aðveituæð fór í sundur á mörgum stöðum milli Rauðalækj- ar og Hvolsvallar. Um tvo sólar- hringa tók að gera við allar skemmdir. Skemmdir urðu einnig á lögnum í götum og í húsum þegar ofnar féllu frá veggjum. Miklar breytingar hafa orðið á virkjana- svæðum víða um Suðurland, en sums staðar jókst í borholum, en annars staðar lækkaði vatnsborð. Aðveitulögn Hitaveitu Rang- æinga er um 35 kílómetra löng, en vatn er sótt í borholur á Laugalandi í Holtum og Kaldárholti. Svæðið í Kaldárholti var tengt við veituna í janúar í vetur og er lögnin niður að Laugalandi úr stáli, en Ingvar Baldursson hitaveitustjóri sagði að stálrör hefðu ekkert skemmst á meðan gamlar aspestlagnir möl- brotnuðu. Við Laugaland tekur við lögn úr aspesti að Rauðalæk og skemmdist hún ekkert á meðan aspestlögn frá Rauðalæk að Hellu mölbrotnaði á mörgum stöðum. Það virðist vera sem lega röranna hafi skipt máli þegar höggbylgjan lenti á þeim, en leiðslan milli Rauðalækjar og Hellu liggur frá vestri til austurs en lögnin að Laugalandi liggur í norðvestur/ suðaustur. Unnu hvíldarlítið í tvo sólarhringa Til að byrja með einbeittu starfs- menn hitaveitunnar sér að því að gera við aspestlögnina milli Rauða- lækjar og Hellu, en aðfaranótt sunnudags kom í Ijós að lögnin var það mikið skemmd að ekki myndi reynast fært að gera við hana. Svo einkennilega vill til að í vor hafa starfsmenn veitunnar verið að leggja nýja leiðslu úr stálrörum við hlið gömlu leiðslunnar. Tengja átti hana á sunnudagskvöld og var ákveðið á sunnudagsmorgun að menn myndu einbeita sér að því að tengja hana og afskrifa gömlu lögn- ina. Áður en vatni var hleypt á lögnina var fólk beðið að skrúfa fyr- ir inntak húsa því víða höfðu leiðsl- ur inni í húsum farið í sundur. Eftir að búið var að hleypa vatni á kom í Ijós að nokkrar skemmdir voru í götukerfinu á fáeinum stöðum og lauk viðgerð á þeim ekki fyrr en í gær. Eftir að búið var að koma vatni á til Hellu sneru starfsmenn hitaveit- unnar sér að því að gera við leiðsl- una til Hvolsvallar, en helmingur hennar er úr aspesti og var sá hluti hennar mikið skemmdur. Ingvar sagði að viðgerð á henni hefði samt sem áður gengið vel og vatni hefði verið hleypt á hús á Hvolsvelli að- faranótt mánudags. I gær einbeittu starfsmenn veitunnar sér síðan að því að ljúka viðgerð á dreifikerfinu á Hellu og Hvolsvelli. Ingvar sagðist vera stoltur af starfsmönnum sínum sem hefðu unnið hvíldarlítið í tvo sólarhringa við að gera við. Því mætti ekki gleyma að mennirnir ættu líka fjöl- skyldur sem hefðu orðið fyrir tjóni og áfalli í jarðskjálftanum. Miklar breytingar á jarðhitavirkni Ingvar sagði að tjón hitaveitunn- ar skipti milljónum. Viðlagatrygg- ing myndi hins vegar bæta það. Hann sagði að það sem hann hefði mestar áhyggjur af væri að enn væru um 10 kílómetrar af aðalæð veitunnar úr aspeströrum. Það væri Ijóst að það væri stórt al- mannavarnamál að skipta um þessi rör og leggja nýja stállögn. Þessi skjálfti hefði orðið um sumar, en það væri ekki víst að jafnauðvelt væri að gera við ef tjón yrði á leiðsl- unni um miðjan vetur. Þá væri þörf fólks fyrir heitt vatn líka mest. Miklar breytingar urðu á virkj- anasvæðum Hitaveitu Rangæinga í skjálftanum. Vatnsborð í borholum á Laugalandi féll um 130 metra. Dælur eru á um 240 metra dýpi og lá við að þær kæmust á þurrt. Hins vegar jókst jarðhitavirkni í Kaldár- holti, en þar átti jarðskjálftinn upp- tök sín. Morgunblaðið skoðaði svæðið ásamt Ingvari hitaveitu- stjóra og kom þá í Ijós að járnlok á nokkrum rannsóknarborholum höfðu losnað í skálftanum og bullaði vatn upp úr þeim. Mikið hefur geng- ið á því að lokin eru skrúfuð niður með nokkrum 16 millimetra boltum. í þéttbýlinu í Brautarholti á Skeiðum jókst jarðhitavirkni skyndilega í borholu þegar jarð- skjálftinn reið yfir. Fólk, sem þar var utandyra, sá skyndilega mitónn gufumökk leggja frá dæluhúsi sem stendur við borholuna. Þegar að var gáð kom í Ijós að dæluhúsið var yfir- fullt af vatni sem bullaði upp úr hol- unni. Þessi skyndilegi vöxtur olli því að rafbúnaður sló út. Fengnar voru öflugar dælur til að dæla vatninu úr húsinu og þegar það hafði tetóst var hægt að gera við. Heitt vatn komst á byggðakjarnann á sunnudags- kvöld. Á Reykjum á Skeiðum er önnur lítil hitaveita og þar gerðist það sama og í Brautarholti. Jarðhita- virkni jókst mitóð og fór raf- og dælubúnaður í kaf. Á Húsatóftum á Skeiðum jókst þrýstingur á kerfinu úr 0,1 kílói í 3,1 kíló. Jarðhitavirkni jókst einnig í Sólheimum í Gríms- nesi. Hins vegar hvarf vatn í Hruna- laug. Vatnsborð lækkar við sprunguna Ólafur Flóvenz, jarðeðlisfræðing- ur hjá Orkustofnun, sagði að ástæð- an fyrir þessum breytingum væru þær að við jarðskjálftann hefði land brotnað við sprungu sem liggur frá Hellu og Laugardal og þaðan til norðurs í Hruna. Við það myndaðist holrými sem leiddi til þess að vatn streymdi niður í jörðina. Á þessu svæði hefði jarðhitavirkni dottið niður og vatnsborð lækkað. Ólafur sagði að beggja megin við sprunguna hefði jarðvegur pressast saman og þar hefði jarðhitavirkni autóst mitóð. Hann sagði að svæðin myndu jafna sig með tímanum, en erfitt væri að segja fyrir um á hvað löngum tíma. Ávarp Davíðs Oddssonar forsætisráðherra 17. júní Margt bendir til að meiri kyrrð sé að fær- ast yfír efnahagslífíð DAVÍÐ Oddsson forsætis- ráðherra ávarpaði lands- menn af Austurvelli á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Ávarpið fer hér á eftir: „Góðir Islendingar. Nokkurs óróa hefur gætt í um- ræðum um efnahagsmál að undan- förnu og hefur jafnvel örlað á full— glannalegum spám um þau. Margt bendir þó til að þar sé að færast meiri kyrrð yfir. Sjávarútvegsráð- herra tilkynnti sl. fimmtudag um ákvörðun sína um aflamark mikil- vægustu fistóstofna okkar á næsta fiskveiðiári. Með því er lokið óvissu um einn mikilvægasta þátt efna- hagslífsins. Afli mun dragast saman eitt fiskveiðiár en gangi langtíma- áætlanir fistófræðinga eftir mun hann síðan vaxa á ný. Upplýsingar fræðimanna báru með sér að þótt ákveðið yrði óbreytt aflamark myndi veiðistofn- inn engu að síður halda áfram að vaxa. Aflaákvörðunin fól því í sér sjálfsagða varúð en um leið var ákveðið að fylgja næstu árin reglu sem leiða á til öruggs vaxtar en jafnframt er dregið úr sveiflum í veiði sem hafa óholl áhrif á efna- hagsþróun til skemmri tíma. Ekki er með neinum hætti gengið á svig við vísindalega aðferðafræði með þessu fyrirkomulagi. Vegna þessarar ákvörðunar munu þjóðartekjur dragast örlítið saman en á móti kemur að mjög góður gangur er í öðrum þáttum efnahagsstarfseminnar. Sérstak- lega má nefna nýlegan samning um stækkun álversins á Grundartanga. Sú stækkun mun hafa varanleg, já- kvæð áhrif á efnahagslífið meðan aflaskerðingin á að ganga til baka strax á næsta ári. Þá er það gleði- legt að verðbólga er nú að minnka og hefur verðlag þannig hækkað mun minna sl. tvo mánuði en gerð- ist í sömu mánuðum fyrir ári. Vísi- tala fasteignaverðs í fjölbýli lækk- aði í maímánuði í fyrsta sinn í langan tíma en eins og kunnugt er hafa fasteigna- og olíuverðshækk- anir aðallega ýtt undir verðbólgu hér á landi. Undirliggjandi verð- bólga að þessum liðum frátöldum er á hinn bóginn lítil eða aðeins um 1,5-2,0 prósent. Þar sem fasteigna- verð virðist nú hafa náð hámarki og fráleitt er talið að heimsmarkaðs- verð á olíuvörum hækki enn frekar eru allar líkur á að úr verðbólgu dragi ört á næstu mánuðum og misserum. Þótt hinn íslenski markaður sé að sönnu smár er hann lifandi og eftir- tektarsamur og bregst hratt við breytingum á efnahagsstarfsem- inni. Þótt svo snör viðbrögð geti vissulega ýkt nokkuð niðurstöður til skamms tíma, þá er viðbragðshr- aði markaðarins í eðli sínu jákvæð- ur og holl og góð breyting frá því handstýrða hagkerfi sem við áður burðuðumst með. Síðustu tíu ár hafa verið mesta umbreytingaskeið í þessu efni og mun umfangsmeira og fjölþættara en síðasta slíkt skeið, viðreisnarárin svonefndu frá 1960-1970. Hið íslenska lýðveldi er ungt. Við höldum nú upp á 56. afmælisdag þess. Þeir 130 þúsund íslendingar sem stofnuðu til lýðveldis árið 1944 ættu flestum öðrum fremur skilið að fá sameiginlega mestu bjartsýn- isverðlaun sem hægt væri að veita. Heimsstyrjöld var enn ólokið og landið hersetið. Ráð þjóðarinnar í utanríkis- og öryggismálum höfðu verið af henni hrifin á einni nóttu. Meginstefnan, hlutleysið, hafði reynst hjóm eitt. Atvinnulífið var afar einhæft. Vega- og samgöngu- kerfi var enn á frumstigi. Húsa- kostur var víða hörmulegur og Morgunblaðið/Jim Smart Davíð Oddsson forsætisráðherra ávarpar landsmenn á Austurvelli. tækjabúnaður atvinnulífsins á lágu stigi. En þjóðin lét ekki þessar óburðugu aðstæður á sig fá og lagði ótrauð út í óvissuna, samein- aðri um þá ákvörðun en um nokk- urt annað mál fyrr og síðar. Til eru ummæli þekktra fræðimanna er- lendra, sem hliðhollir voru íslend- ingum en töldu kröfu smáþjóðar- innar um fullt sjálfstæði hálfgert óráðshjal. En hvernig hefur úr ræst má spyrja? Þjóðinni hefur fjölgað um helming á þessum 56 árum. Engin þjóð er tæknivæddari en þessi og engin nýjungagjarnari í þeim efnum en hún. Sífellt fjölgar stoðunum undir hinum íslenska efnahag og fjölbreytni atvinnulífs- ins eykst dag frá degi. í samkeppni á veraldarvísu munu úrslit ráðast af því hversu fljótt þjóðir geta til- einkað sér nýja þekkingu og gert hana að markaðsvöru. Dæmin hafa þegar sýnt að þar stöndum við vel að vígi. Okkur er því ekkert að vanbúnaði nú en hljótum að mæta nýrri öld full bjartsýni og kjarks. Sá mikli árangur sem náðst hefur sl. 56 ár er fyrsta ágætis einkunn til þess framsýna fólks sem stofn- aði til lýðveldis á íslandi. Við skul- um halda merki þess myndarlega á lofti á næstu árum og áratugum. Til þess höfum við alla burði og umfram allt alla skyldu. Þótt þjóðin hafi að lokum staðið undra þétt saman í sjálfstæðismálinu, þá hafði ekkert eitt mál annað ýtt jafnmitóð undir sundurþykkju meðal hennar og það og brigsl og svigurmæli mætustu manna, hvers í annars garð, voru oft með ólíkind- um. Allir unnu að sama martó en mikil tortryggni ríkti um baráttu- aðferðir og leiðir. Sama gildir enn, þótt nokkuð hafi dregið úr stóryrð- um. Stundum mætti helst ráða það af umræðunni að við stjórnmála- mennirnir séum sannfærðir um að flest orð og flestar gerðir þeirra sem öndvert standa séu allt að því af annarlegri rót runnin. Auðvitað er það ekki svo. En það liggur í eðli stjórnmálabaráttunnar að menn stilla upp andstæðum og gera sem mest úr því sem á milli ber, enda þarfnast það sem er ágreinings- laust ekki skýringa. Þjóðin þarf þó ekki að velkjast í vafa um að kjörn- ir fulltrúar hennar beri hag hennar Með ákvörðun um af lamark er lokið óvissu um einn mik- ilvægasta þátt efna- hagslífsins fyrir brjósti, hvar sem þeim er skipað í flokka og hvort sem þeir eru innan eða utan stjórnar hverju sinni. Það hefur lengi tíðkast að tala af óvirðingu um störf þing- manna og saka þá um að stunda innihaldslaust jag og kjaftagang. Og sjálfsagt erum við þingmenn ekki alveg saklausir í þeim efnum. En umræðan, gagnrýnin og hinar pólitísku skylmingar hafa mikið gildi fyrir lýðræðislega málsmeð- ferð. ÍÁú er það ekki rétt að skerða mun meira en orðið er þann þátt í starfsemi löggjafarþingsins. Góðir íslendingar. Þjóðin, sem stóð sem einn maður að stofnun lýðveldis árið 1944, var áreiðanlega ekki með einn og sama drauminn um hvað sá atburður myndi þýða fyrir íslendinga. Þetta hefur ekkert breyst. Enn er mis- jafn tilgangurinn sem fyrir okkur vakir. Oll viljum við þó að þjóðin nái efnahagslegum árangri. En við deilum um hve langt megi seilast til að ná þeim árangri. Við erum vonandi flest sátt við að náunga okkar vegni vel við í fjárhagslegum efnum. En á sama tíma ætlumst við til þess að réttra leikreglna sé gætt og óhófsæði eins skaði ekki annan. Jónas Hall- grímsson sagði mik- ilvægt að menn gleðji sig hóflega við heimsins gæði, ein- ungis misbrúkunin sé varasöm. En þar sem „hófleg nautn heimsins gæða“ sé leyfileg sé meðalhófið vandratað eins og segir í nýrri afbragðs ævi- sögu skáldsins. Jónas Hallgríms- son leysti þennan vanda fyrir sitt leyti með því að koma sér upp svo- felldri reglu: „Aldrei að gjöra eftir- sókn nokkurra jarðneskra muna að lífsins höfuðaugnamiði." Að þessu skulum við hyggja. Við skulum hvergi slaka á í baráttunni fyrir bættum kjörum þjóðarinnar en gæta þess að missa ekki sjónar af því sem mikilvægast er. Við skulum gleðjast hóflega við heims- ins gæði og forðast að skilja þá eft- ir sem sækist hægara en öðrum af ýmsum ástæðum. Því ef við getum einhvern lærdóm dregið af þjóð- aratkvæðagreiðslunni 1944 þá er hann þessi: Okkur vegnar best þegar við höldum hópinn. Góðir íslendingar, nær og fjær, gleðilega þjóðhátíð."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.