Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 84
Eignaskipti uf7 Ráðgjðf ew
Gerö eignaskiptayfirlýsinga
Sími 5886944
MORGVHBLAÐIÐ, KRINGLUNNl 1,103 REYKJAVÍK, SÍMI6631100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREWSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTIJ
ÞRIÐJUDAGUR 20. JUNI2000
VERÐILAUSASOLU150 KR. MEÐ VSK.
Ljósmynd/Finnur Þorgeirsson
Morgunblaðið/Sigurgeir
Skriðuföll og grjóthrun í Eyjum
JARÐSKJÁLFTINN á laugardag
olli skriðuföllum og grjóthruni úr
klettum í Vestmannaeyjum eins og
þessar myndir bera skýrt með sér.
Onnur myndin er tekin inni í Heij-
ólfsdal þegar ósköpin dundu yfir og
sýnir hrun úr Blátindi, en hin
myndin sýnir meira en mannhæðar-
hátt bjarg sem hrundi úr Klifinu og
niður á jafnsléttu á leiðinni út í Eiði.
Mikill ótti greip um sig í Eyjum
vegna þessa, enda Qölmenni þar
vegna pæjumótsins sem þar var í
fullum gangi þegar jarðskjálftinn
reið yfir. Um 500 stúlkur á aldr-
inum 10-12 ára voru á mótinu
Fjöldi fólks tilkynnti í gær um skemmdir af völdum jarðskjálftans
Viðlagatrygging sögð
ráða vel við tj ónið
*
Alag á símakern truflaði
samskipti Almannavarna
. VIÐLAGATRYGGING íslands
•^rnun ráða vel við það tjón sem orðið
hefur af völdum jarðskjálftans á
Suðurlandi á laugardaginn, að sögn
Jóns Inga Einarssonar, stjórnarfor-
manns Viðlagatryggingar. Hann
segir að sjö milljarðar séu í sjóði
Viðlagatryggingar. Mikill fjöldi
fólks hafði samband við Viðlaga-
tryggingu og vátryggingarfélögin í
gær til að tilkynna um tjón. Engar
tölur liggja þó enn fyrir um umfang
tjónsins. Jón Ingi segir þó að ljóst sé
að glerverksmiðja Samverks á
Hellu hafi orðið fyrir mestum skaða,
en íbúðareigendur og fleiri hafi
einnig orðið illa úti.
Tryggingar bæta
^ ekki rekstrarstöðvun
Viðlagatrygging bætir beint
eignatjón sem verður á bruna-
tryggðum eignum. Hins vegar er
svonefnt óbeint tjón, s.s. rekstrar-
stöðvun sem fyrirtæki verða fyrir
vegna náttúruhamfaranna, hvorki
bætt af Viðlagatryggingu né af vá-
tryggingarfélögum.
Sólveig Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Almannavarna ríkis-
ins, segir að almannavarnakerfið
hafi reynst vel á heildina litið á laug-
ardaginn. Hún segir að vegna gífur-
legs álags sem varð á símakerfi Al-
mannavarna hafi ekki tekist að ná
sambandi við alla þá sem þörf var á
strax.
„Það var gríðarlegt álag á síma-
kerfið hjá okkur og það voru aðilar
sem hefðu þurft að ná inn til okkar,
sem náðu ekki inn vegna álagsins,"
segir hún. Að sögn Sólveigar eru Al-
mannavarnir ríkisins ekki með
beina línu til stjórnstöðva almanna-
varna í héraði.
Milljónatjón
Milljónatjón varð á heitavatns-
kerfi Hitaveitu Rangæinga þegar
aðveituæð fór í sundur á mörgum
stöðum milli Rauðalækjar og Hvols-
vallar í náttúruhamförunum. Fór
heita vatnið af bæði á Hellu og
Hvolsvelli.
Rafmagnslaust varð í skamma
stund á stóru svæði á Suðurlandi og
í Vestmannaeyjum en litlar
skemmdir urðu þó á raforkumann-
virkjum í skjálftanum. Skv. upplýs-
ingum Landsvirkjunar stóðust raf-
orkukerfi og virkjanir jarðskjálft-
ann með þeirri undantekningu að
einn spennir í Búrfellsstöð sló út og
þrjú háspennumöstur urðu fyrir
skakkaföllum.
Hluti GSM-kerfis
Símans datt út
Engar truflanir urðu í almenna
símakerfinu eða NMT-farsímakerfi
Landssímans í jarðskjálftunum en
hluti GSM-kerfisins datt út um
tíma. Þá féllu FM-sendingar Ríkis-
útvarpsins og útsendingar sjón-
varps niður í hálftíma til eina
klukkustund á Suðurlandi.
Að sögn umdæmisstjóra Vega-
gerðarinnar á Suðurlandi urðu al-
mennt séð tiltölulega litlar skemmd-
ir á vegum en töluverðar skemmdir
urðu þó við Hárlaugsstaði í Holtum
þar sem stór sprunga myndaðist í
veginum og beggja vegna brúar við
Hróarslæk, skammt austan Hellu.
Nýheimsmynd
kallará
nýjan Atlas
- iBook Grafít
Sklpholtl 21
Sfml S30 1800
Fax S30 1801
www.apple.ls
Mikil sala á
skápafestingum
STARFSMENN í byggingarvöru-
verslunum á höfuðborgarsvæðinu
höfðu í nógu að snúast í gær þar
sem fjöldi manns kom í verslanir til
að kaupa festingar á skápa og aðra
lausa muni í húsum af ótta við jarð-
skjálfta.
Almannavarnaráð sendi frá sér
tilkynningu á sunnudag þar sem
fólk var hvatt til að huga að lausum
munum sem gætu fallið og valdið
tjóni í jarðskjálfta eins og þeim
sem reið yfir á laugardaginn.
„Menn eru að kaupa hér festing-
ar til að festa saman skápa, verja
glermuni, festa niður sjónvörp og
fleira. Það hefur tvímælalaust stór-
aukist eftirspurnin í dag og gengið
vel á birgðir," sagði starfsmaður í
Húsasmiðjunni síðdegis í gær.
ásamt foreldrum og leiðbeinendum
og voru sumar þeirra að spranga
þegar skjálftinn reið yfir, en aðrar
voru inni í Herjólfsdal. Þar var einn-
ig fólk sem var að fagna þjóðhátíð-
ardeginum og fótbrotnaði kona er
hún forðaði sér frá fjallshlíðinni.
Þrjár fjöl-
skyldur
þiggja
aðstoð
ÞRJÁR fjölskyldur af níu sem
eiga hús á Hellu, sem teljast illa
skemmd eða alveg ónýt eftir
skjálftann á laugardag, hafa
þegið hjálp sveitarstjórnarinn-
ar í Rangárvallasýslu um að
þeim verði útvegað strax hús-
næði til bráðabirgða þeim að
kostnaðarlausu. Rauði kross
íslands hefur einnig boðist til
þess að mæta hluta þess kostn-
aðar. Hinar fjölskyldurnar sex
hafa fundið sér þak yfir höfuðið
eftir öðrum leiðum og gista
m.a. í húsvagni eða hjá ættingj-
um.
20 einstaklingar
í húsunum níu
Þetta var niðurstaða fundar
milli eigenda húsanna annars
vegar og oddvita og sveitar-
stjóra Rangárvallahrepps hins
vegar síðdegis í gær. Að sögn
Guðmundar Inga Gunnlaugs-
sonar sveitarstjóra búa alls um
20 einstaklingar í húsunum níu.
Eiður Smári
samdi við
Chelsea
EIÐUR Smári Guðjohnsen skrifaði í
gærkvöld undir fimm ára samning
við enska knattspymufélagið Chels-
ea, sem greiðir Bolton 460 milljónir
króna fyrir hann. Eiður Smári er þar
með langdýrasti knattspymumaður
íslands frá upphafi. „Þetta er
stærsta stundin á ferli mínum,“
sagði Eiður Smári í samtali við
Morgunblaðið að undirskriftinni lok-
inni.
■ Eidur/Bl