Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Listin að láta sig reka Ljósmynd/Halldór Björn Frá opnun sýningarinnar „Flakk“ í kjallara Norræna hússins. MYNDLIST N o r r a; n a h ú s i ð BLÖNDUÐ TÆKNI TÍU LISTAMENN FRÁ NORÐURLÖNDUNUM, ÞÝSKALANDI & BANDARÍKJUNUM Til 13. ágúst. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 12-17. LISTIN að láta kylfu ráða kasti, berast með straumnum og láta leika á reiðanum tengist flakkinu - flandrinu, randinu, rekinu og ráp- inu - sem franska skáldið Baud- elaire vildi meina að væri hið nýja hlutskipti listamannsins. Hafi þetta ágæta skáld flanað um stræti Parísarborgar um miðja 19. öldina á þar til sniðnum pokabux- um sem einna helst minntu á út- blásnar brækur Sir Walter Ral- eigh eða William Shakespeare var það þó ekki fyrr en með sextíu- ogátta kynslóðinni margumtöluðu að heil kynslóð fór á flakk, íklædd skrautlegum baðmullarklæðum eins og bedúínar eyðimerkurinnar. Undanfara hinna nýju flökku- hugmynda mátti finna meðal lista- manna sem kenndu sig við stafa- gerð - Lettrisme - á árunum eftir seinni heimsstyrjöldina og alþjóð- lega stafagerð - Internationale lettriste - upp úr miðri öldinni, sem síðan þróaðist yfir í það sem kallað var alþjóðlega ástands- stefnu - Internationale Situationn- iste - frá og með 1957. Hugmynd þeirra Isidore Isou og Guy Debord var að fínna beina tengingu milli listar og daglegs umhverfís þannig að venjubundnum athöfnum væri skákað fyrir skapandi ástand. Þótt listamennirnir tíu sem taka þátt sýningunni í Norræna húsinu séu langt frá því að vera jafn póli- tískir og situasjónistarnir á sjötta og sjöunda áratugnum eru hug- myndaleg tengsl þeirra við gömlu Cobra-jaxlana, Asger Jorn og Constant - en báðir gerðust situa- sjónistar eftir upplausn Cobra- hreyfíngarinnar - fólgin í þörf þeirra fyrir að taka mið af borgar- samfélaginu sem þeir eru aldir upp við og gjörbreyttum listræn- um gildum innan þess. Líkt og Jorn og Constant gerðu á sinni tíð hafna tímenningarnir öllum aug- ljósum fagurgildum í listinni og veðja fremur á hættuspilið - vogun vinnur, vogun tapar - sem felst í því að opna vinnustofuna og list sína gagnvart lífinu utan hennar. Vissulega búa listamennirnir í Norræna húsinu við þann munað að geta túlkað afstöðu sína til hinnar „nýju Babýlon" með mun beinni og raunsærri hætti en gömlu Cobra-kempurnar, Jorn og Constant. Þeir þurftu að tjá af- stöðu sína til völundarhúss borgar- innar með óhlutbundnum hætti, annað hvort rýmiskenndu mál- verki eða teikningu á striga eða pappír. Hin tímatengda mynd- bandstækni sem er svo áberandi í kjallara Norræna hússins stóð þeim ekki til boða. Þó gi-unar mann að munurinn milli myndbanda þeirra Aleks- öndru Mir, Anniku Ström, Egils Sæbjörnssonar, Mattias Har- enstam, Ole Jorgen Ness, Sarah Morris, Seppo Renvall og Þórodds Bjarnasonar annars vegar og situasjónistanna áðurnefndu hins vegar sé töluvert minni en virðist við fyrstu sýn. Þegar verk Susu Templin og Frans Jacobi - en hvorugt nýtir sér myndbandatæknina - eru skoðuð má sjá töluverð tengsl milli þeirra og þeirra félaganna Const- ant og Jorn. Jacobi er vissulega danskur eins og Jorn, og tilfinning hans fyrir söknuði - framandlegu augnabliki hins nývaknaða frammi fyrir um- hverfi sem hann þekkir en kannast ekki við að sé eins og það á að sér að vera - er sömu ættar þótt form- ið sé allt annað. Jacobi lætur mannlausa sviðsetninguna tala máli sínu. Það er eins og allir séu nýhorfnir af vettvangi en eftir standi hálf vínflaska, gluggatjöld sem vindurinn bærir eða óumbúið rúm sem vitnisburður um liðna samveru. Titlar á borð við „The Long Kiss Goodnight" eða „One too Many Mornings" segja allt sem segja þarf um endurtekinn einmanaleikann í tilveru okkar. Susa Templin og Sarah Morris eru á svipuðu reiki. Sú fyrri er þýsk en hin ensk, en sækja þó báð- ar andagift í stórborgarheiminn vestan hafs, þar sem þær eru með annan fótinn. Templin býr til skýjakljúfalandslag úr pappír sem sýningargestir eigra um í hálf- rökkrinu líkt og væru þeir í fugls- hæð yfir borginni. Henni verður starsýnt á skipulagið sem hvar- vetna ber fyrir augu í borgar- menningunni; gatnakerfíð, hellu- steinana og baðflísarnar. Allt endurspeglar gefnar forsendur menningarinnar með strúktúral- ískum hætti og leiðir í ljós lands- lag sem kalla mætti eftir-arkitekt- úrískt. Morris bregður hins vegar upp ferðalagi um Ijósadýrð Las Vegas líkt og væri hún kvikt málverk. í staðinn fyrir að skoða borgina of- anfrá sjáum við hana eins og frum- skóg sem við mjökumst um án þess að gera okkur grein fyrir rót- um trjánna. Andstætt þrívíðum áherslum Templin er litadýrðin í myndbandi Morris tvívíð. Bak við regnbogaskotin ljósaskiltin eru vissulega byggingar, en þær hafa ekkert sjálfstætt vægi og sjást varla í næturskímunni. Ljósadýrð Las Vegas er náttúruhofíð sem hvíslar að okkur óræðum orðum, svo vitnað sé til skáldlegrar lýs- ingar ráparans Baudelaire á borg- ardýrðinni um miðja síðustu öld. Svíinn Matthias Hárenstam og Norðmaðurinn Ole Jorgen Ness taka sumpart framkvæmdarlegri afstöðu til upplifunar sinnar í um- hverfinu. Hárenstam skáldar í eyðurnar á næturgöngu sinni. Klisjur skemmtimenningarinnar birtast eins og opinberun á nöturlegu næturröltinu, geimskip, indíánar og portkonan Ulrike Meinhof með tundurrofa til að sprengja skýja- kljúf í loft upp. Tónlistin skipar enn stærri sess í verki Hárenstam en myndbandi Morris enda eru Emmtíví áhrifin í skipan hans lítt duljn. Ólíkt Hárenstam og Morris ger- ir Ness sér mat úr sveitalandslagi í björtu. Það er að vísu suðrænt eyðimerkurlandslag undir jafn sterkum áhrifum klisjumenningar- innar og næturborgarstemman í verkum hinna, en Ness fylgir myndböndum sínum úr hlaði með mun áþreifanlegri umhverfisskip- an. Flekkir hans og klessur upp um alla veggi undirstrika virkni hans gagnvart umhverfinu. Eitt hið sérstæðasta í sköpunarferli Ness er tilraun hans til að finna list sinni nífaldan farveg líkt og væri hann níu ólíkir listamenn. Löngunin til að brjótast út úr takmarkandi flokkun lífs og listar skín sterkt út úr skipan hans í Norræna húsinu. Áþekkt en eilltið glettnislegt óyndi í garð þrúgandi heimilda- myndgerðar fréttasjónvarpsins - sem stöðugt hótar að ræna okkur síðustu leifunum af sjálfsprottnu hugmyndaflugi - einkennir skipan pólsk-sænsku listakonunnar Aleks- öndru Mir. Á ströndum Hollands finnur hún landslag sem minnir á tunglið - hjólförin líkjast meira að segja förum tunglvagnsins góða - og sviðsetur þar móttökuhátíð fyr- ir „Fyrstu konurnar sem stigu á tunglið“. Búningar kvengeimfar- anna voru teiknaðir af tískuhönn- uðinum Thuy Pham og þunga- vinnuvélar sáu um að búa til trúverðuga mánahóla fyrir tökurn- ar. Við hliðina á skjánum má sjá leifar blikkdósamenningarinnar sem fundust í setlögum „tungls- ins“. Egill Sæbjörnsson og sænska listakonan Ánnika Ström leggja bæði höfuðáherslu á þýðingu dæg- urtónlistarinnar fyrir tilveru okk- ar. Ström býr til einstæða heimild- arsápu frá Svalbarða með hjálp „Tíu nýrra ástarsöngva“, þar sem ýmsar persónur sem verða á vegi hennar syngja sig gegnum tilver- una, hver með sínum hætti. Til- raun Ström til að ná gegnum list- ina til venjulegasta fólks er sérkennilega heillandi og falslaus. Einhvern veginn tekst listakon- unni að varpa sér út fyrir sjálfa sig og mæta hinum sérstæðu persónum, sem allar virðast varð- veita heilindi sín með því að vera trúar sjálfum sér. Myndband Egils er fullkomin andstæða „Ástarsöngva" Ström. I stað þess að stefna út fyrir sig dregur hann athygli okkar að sjálfum sér með „Eight Days a Week“ Bítlanna, sem er eins konar leiðarstef undir síbreytilegri hálfteiknimynd þar sem listamað- urinn fer á kostum - amerískum kagga - gegnum safn sitt af ein- stæðum poppskífum. Bestu eig- inleikar Egils - léttleiki og takt- föst myndhvörf, sem fylgt er eftir með skoplegum klippingum - njóta sín til fullnustu í þessu líflega verki sem stundum minnir á aug- lýsingu og stundum á tónlistar- myndband án þess þó að missa nokkurn tíma kraft persónulegrar tjáningar. Sumt í ryþmísku myndbandi Egils endurspeglast í grafískum efnistökum finnska listamannsins Seppo Renvall. Reyndar eiga þess- ir listamenn töluvert meira sam- eiginlegt en ætla mætti af verki Renvall á sýningunni, en það er af manni leiðandi barn sem hvar- vetna má finna málaðan á götur Helsinki. Hið statíska og þögla myndband er að vísu ólíkt leikandi verki Egils en það breytir því ekki að eðli þess er tónrænt jafnvel þótt undir því hljómi allt önnur og rólegri tegund tónlistar. Hið sérkennilega grafíska and- rúmsloft sem Renvall laðar fram með manninum og barninu sem líkt og reika um hin ólíku malbik og rennusteina á sér frásagnarlega samsvörun í sérkennilega einföldu verki Þórodds Bjarnasonar „Inn og út úr stöðum". Þar lýsir hann undarlegri upplifun sinni af dag- legu rápi í Japan, þar sem hann dvaldi við framhaldsnám. Sitjandi að nýju í fullkomlega íslensku um- hverfi hljómar frásögn Þórodds sem ævintýri - myndbandið er textað og eykur það á framandleik heildarinnar - sem litar látleysið kringum hann með sérstæðum hætti. Ekkert er eins, allt er frá- brugðið, og hversdagslegustu búð- arferðir verða eins og upplifun úr Þúsund og einni nótt eða langferð- um Marco Polo. Myndband Þór- odds er að þessu leyti einna helst í ætt við ævintýri Jóns Indíafara. „Flakki" fylgir mjög greinargóð sýningarskrá á ensku og íslensku ásamt greinargóðu útprenti um forsendur verkanna á sýningunni. Halldór Björn Runólfsson Rafmagnaður Selshóll TONLIST Selshóll undir Þ o r b i r n i TONY, DAVÍÐ OG BILLY BOY Tilbrigði um útistef er dr. Guð- mundur Emilsson hljóðritaði og setti saman ásamt Bjarna Braga Kjartanssyni tónmeistara. Morg- unn, dagur, kvöld og nótt. Spuni básúnuleikarans Tonys Bakers yfir útistefínu. Davíð Brynjar Franzson: Edude caracteristica de una aldea de la pesca. William Harper: The Gallowing Sea. Selshóll undir Þorbjarnarfelli kl. 20. Miðvikudaginn 14.6.2000. FYRIR nokkrum mánuðum gengu Guðmundur Emilsson og Bjarni Bragi Kjartansson frá hljóð- mynd er send var ýmsum tónlistar- mönnum og þeir beðnir að nota í tón- verk eða spuna. Á sjómannadaginn var flutt í Grindavík verk Atla Heim- is Sveinssonar, Hafgúur, þar sem þessi hljóðmynd var lögð til grund- vallar gjömingi og sl. miðvikudags- kvöld mátti sjá fólk sitjandi á stólum uppi á Selshóli undir Þorbjarnarfelli hlustandi á þrjú verk byggð á sömu hljóðmynd. Margur vegfarandi til Grindavík- ur undraðist hví stólum hafði verið raðað upp á hólinn við veginn og máski haldið það enn eitt útilista- verkið í stíl við þau er prýða nú Reykjavík og Akraness. Svo var þó ekki. Hér var verið að undirbúa tón- leika undir berum himni og er líða tók á dag voru komir voldugir hátal- arar fyrir framan stólana, svo og hljómflutningstæki. Klukkan átta var svo setið í þeim öllum og básúnu- leikarinn Tony Baker hafði tekið sér stöðu milli hátalaranna og brátt hljómuðu hin aðskiljanlegustu hljóð úr hátöluranum. Mávagarg og brim- hljóð, færibandahvinur, popptónlist og sírenuvæl, barn að æfa Bach og AIli slökkviliðsstjóri að kalla á alla sína menn. Tony upphóf spuna sinn með djúpum löngum breiðum bás- únutónum, ekki ósvipuðum þeim er hann lék í upphafi Grameðlusvítu Mark Phillips í Bláa lóninu kvöldið áður. Síðan brá hann fyrir básúnuna dempurum, bæði venjulegum og vava. Því miður kveikti poppið ekki á honum, en hann blés skemmtilega rennandi tóna yfir sírenuvælinu og henndi eftir gargi mávanna. Svo fengum við smávegis njúorleanskan básúnublástur og göngum, göngum. Hvort sem kuldanum var um að kenna eða hljóðmyndinni var spuni Tonys heldur litlaus og var þetta all- ur annar básúnuleikari en sá sem fór á kostum í verki Mark Philips og með Eyþóri Gunnarssyni og félögum kvöldið áður. Davíð Brynjar Franzson er ungur að árum og enn í tónsmíðanámi þó nokkur verk hans hafi verið flutt op- inberlega, bæði í heimabæ hans Ak- ureyri og í Reykjavík. Hljóðverk hans var stutt en áheyrilegt og m.a. notaði hann upp- töku með gamlli kvæðakonu sem kvað stemmu yfir skröltandi færi- böndum þeirra Grindvíkinga. Það var dálítið gaman að því að William Harper hafði fengið sömu hugmynd og notaði kór syngjandi ísland far- sældar frón, og báðir vora sólgnir í brimið - enda verið að bregða upp mynd af sjávarplássi. Verk Harpers upphófst á brimsogi og sampli úr viðtali við Grindavíkur- doktorinn úr BBC, en verkið hafði Harper, eða Billy boy einsog Emils- son kallaði hann gjarnan, tileinkað doktornum. Það varð þó fljótlega ryþmískt og teknóhi-ynurinn allsráð- andi. Alli verkstjóri var samplaður í rappið með alla sína menn og undir búggakennd raflína. Harper sampl- aði snilldarlega hina frábæra rödd Maggie-Meg Reed í verkið og rímna- blær kom á teknóið þegar kórinn kom til sögunnar og svo fjaraði verk- ið út með briminu grindvíska. Ánægjuleg stund á Selshóli þótt heldur kalt væri í kvöldkulinu, en hann hékk þó þurr. Vernharður Linnet
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.