Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Samruni Vivendi, Seagram og Canal Plus Nýr alþjóðlegur fjöl miðlarisi verður til París. AFP. VIÐRÆÐUR frönsku samsteyp- unnar Vivendi, dótturfyrirtækis hennar Canal Plus, og kanadíska fyrirtækisins Seagram Co. um sam- einingu eru á lokastigi. Stjómir fyr- irtaskjanna funduðu um málið í gær og um helgina og er formlegra til- kynninga og niðurstöðu að vænta á blaðamannafundi Vivendi í dag. Ef af samrunanum verður mun nýr fjölmiðlarisi myndast, Vivendi Universal. Fyrirtældð mun starfa á breiðu sviði fjölmiðla og fjarskipta. Vivendi Universal mun t.d. verða keppinautur stórra fjölmiðlafyrir- tækja eins og AOL-Time Warner og CBS-Viacom, Bertelsmann og fjöl- miðlafyrirtækis Ruperts Murdochs. Vivendi á 25% í breska sjónvarps- fyrirtækinu BSkyB, sem stjómað er af Rupert Murdoch. Á fréttavef CNN kemur fram að Murdoch hafi sóst eftir að kaupa fjölmiðlahluta Seagram, en fyrirtækið starfar einn- ig á sviði drykkjaframleiðslu- og sölu. Fjárfestar hafa áhyggjur af fjárútlátum Vivendi Tilboð Vivendi í fyrirtækin tvö er talið verða um 47,5 milljarðar banda- ríkjadala, að því er fram kemur á fréttavef CNN. Upphæðin samsvar- ar um 3.500 milljörðum íslenskra króna. Að því er fram kemur í frönskum fjölmiðlum, er samningurinn þegar frágenginn og kemur m.a. fram að Seagram sé metið á bilinu 30-33 milljarða bandaríkjadala, eða um 2.500 milljarða íslenskra króna. Upphæðin er 50% hærri en mark- aðsvirði Seagram áður en samninga- viðræður hófust. Forsvarsmenn fyr- irtækjanna hafa neitað að gefa upplýsingar fyrr en eftir stjómar- fundi í þeim öllum. Búist er við að Jean-Marie Mess- ier, núverandi forstjóri Vivendi, verði forstjóri nýja fyrirtækisins, og Edgar Bronfman, forstjóri Seagram, verði aðstoðarforstjóri. Bronfman fjölskyldan verður stærsti hluthafi nýja fyrirtækisins með 8% hlut, að því er fram kemur á fréttavef CNN, og mun fjölskyldan fá 5 af 18 stjóm- arsætum. Fjárfestar hafa áhyggjur af því að Sturtuklefar Ifö sturtuklefamir eru fáanlegir úr plasti eða öryggisgleri í mörgum stærðum og gerðum. Ifö sturtuklefarnir eru trúlega þeir vönduðustu á markaðnum i dag. Ifö - Sænsk gæðavara T€flGI Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur Sími: 5641088 • Fax: 564 1089 Jean-Marie Messier, forstjóri Viv- endi, og Edgar Bronfman, forstjóri Seagram. Sá fyrrnefndi verður for- stjóri sameinaðs félags ef af verður. Vivendi sé að teygja sig of langt. Viv- endi mun einnig bjóða í afar dýr rekstrarleyfi fyrir þriðju kynslóð farsíma í Evrópu og hefur ekki enn fjármagnað uppsetningu búnaðar til að reka slíkt kerfi. Hlutabréf í Viv- endi hafa lækkað um 15% síðustu viku í kjölfar frétta um að fyrirtækið muni kaupa Seagram fyrir 30 millj- arða dollara. Margir hafa áhuga á drykkjahluta Seagram Seagram starfar bæði á sviði fjöl- miðla og drykkjaframleiðslu og á t.d. viskívörumerkið Chivas Regal. For- stjóri Vivendi segir að drykkjahluti Seagram hafi engu hlutverki að gegna hjá nýja fyrirtækinu. Vanga- veltur eru uppi um hugsanlegan kaupanda að þeim hluta, og hefur nafn breska fyrirtækisins Allied Domecq verið nefnt. Samkvæmt breskum fjölmiðlum er fyrirtækið að undirbúa tilboð í drykkjahluta Seagram að upphæð 10 milljarðar dollara, eða um 750 miHjarðar ís- lenskra króna. Franski framleið- andinn Pernod Ricard hefur einnig verið nefndur sem hugsanlegur kaupandi, auk bandaríska framleið- andans Bacardi og hins ítalska Campari. Vivendi er samsteypa sem starfar á tveimur meginsviðum; annars veg- ar á sviði umhverfismála, þ.e. vatns- sölu og sorpeyðingar, og hins vegar fjölmiðla og fjarskipta. Nú hefur ver- ið tilkynnt að umhverfisdeildin verði gerð að sérstöku fyrirtæki og munu hlutabréf þess verða skráð í Frakk- landi 12. júlí nk. Á fréttavef CNN kemur fram að áætlunum um skrán- ingu bréfa Vivendi á hlutabréfa- markað í Bandaríkjunum hafi verið hraðað, enda sé það forsenda þess að af samrunanum við Seagram verði. Ef af samrunanum verður samein- ast tvö kvikmyndaver, Universal Studios, sem er í eigu Seagram, og Canal Plus, að því er fram kemur á fréttavef CNN. Þar verða vatnaskil þar sem frönsk og bandarísk kvik- myndagerð er mjög ólík. Forstjóri Vivendi, Jean-Marie Messier, segir mikla möguleika opnast fyrir franska kvikmyndagerð með sam- runanum þar sem myndir sem fram- leiddar séu af Canal Plus fari um dreifkerfi Universal Studios. Mess- ier segir einnig að Vivendi Universal muni verða alþjóðlegra fyrirtæki en t.d. AOL-Time Warner, sem að mati Messiers er um of miðað við Banda- ríkin. Fjármálaráðherra Frakka, Laur- ent Fabius, leggur áherslu á að rit- stjómarlegt sjáifstæði sjónvarps- stöðvarinnar Canal Plus verði tryggt, þrátt fyrir samrunann. Vísitala ISK frá síðustu áramótum Seðlabankinn hækkar vexti Seðlabankinn hækkar vexti um 0,5% 19. júní 107,00 106,00 105,00 Krónan hækkaði um 0,46% í gær EFTIR lokun markaða síðastliðinn föstudag hækkaði Seðlabankinn vexti um hálft prósentustig, eða 50 punkta. Fyrstu viðskipti með ís- lensku krónuna eftir þessa vaxta- hækkun voru í gær og hækkaði vísi- tala hennar þá um 0,46%, úr 111,50 stigum í byrjun dags í 110,99 stig í lok dags. Fyrsta viðskiptadag eftir síðustu hækkun Seðlabankans, sem var í febrúar, styrktist gengi ki'ónunnar meira en eftir hækkunina nú, eða um 1,34%, þegar vísitalan fór úr 110,05 stigum í 108,59 stig. Þó var vaxta- hækkunin minni þá en nú, eða 30 punktar. Rétt er að taka fram að þegar vísi- talan lækkar þýðir það að gengi krónunnar hefur hækkað. Innherji selur 3% í Þróunarfélaginu VERÐBREFAÞINGI barst í gær tilkynning um að innherji í Þróunar- félagi íslands hf. hefði selt hlutabréf í félaginu, að nafnvirði 33 milljónir króna, á genginu 4,1. Samtals námu því viðskiptin 135,3 milljónum króna. Hlutafé Þróunarfélags íslands nemur 1.150 milljónum króna og því var verslað með tæp 3% hlutafjár í þessum viðskiptum. Ekki fengust upplýsingar um seljanda í gær- kvöldi, en stærstu hluthafar í Þróun- arfélaginu 20. febrúar sl. voru: Burð- arás, með 15,5%, Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins, með 14,4%, Sameinaði lífeyrissjóðurinn 13,95%, Lífeyris- sjóður verslunarmanna 11,97%, Líf- eyrissjóðurinn Framsýn 6,88%, Líf- eyrissjóðurinn Lífiðn 5,03%, Is- landsbanki 3,95%, Hlutdeild 3,86%, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 2,87% og Búnaðarbanki íslands 2,80%. Samtals eru hluthafar u.þ.b. 400 talsins. Telenor kaupir Sonofon í Danmörku TELENOR hefur keypt danska farsímafyrirtækið Sonofon, en bæði Telenor og Telia hafa lengi rennt hýru auga til fyrirtækisins að því er segir í norska dagblaðinu Aften- posten. Sonofon er næststærsta farsímafyrirtækið í Danmörku með um 900.000 símaáskrifendur og eft- ir kaupin er Telenor orðið stærsta farsímafyrirtækið á Norðurlöndum. Telenor keypti 53,5% hlut í Sonofon af Great Nordic og greiddi fyrir hann um 126,3 milljarða íslenskra króna. Það þýðir að heildarverð- mæti Sonofon er um 235 milljarðar íslenskra króna og er það allmiklu meira en menn höfðu áður talið. Dönsk stjórnvöld og eins stjórn Evrópusambandsins eiga eftir að leggja blessun sína yfir kaupin en þar sem Telenor var nánast með engin umsvif í Danmörku fyrir kaupin er það vart talið annað en formsatriði. í grein í Berlingske Tidende seg- ir að norskir skattgreiðendur hafi tryggt Dönum lægra verð fyrir far- símanotkun. Með kaupum Telenor, sem er 1 eigu norska ríkisins, á Sonofon muni samkeppnin á danska fjarskiptamarkaðinum, þ.e. einkum samkeppnin við TeleDanmark, harðna til muna og danskir neyt- endur njóta góðs af því í lægra verði. Henning Dyremose, forstjóri TeleDanmark, segist vera þeirrar skoðunar að þrátt fyrir miklar fjár- festingar Telenor að undanförnu sé fyrirtækið enn of lítið til þess að ná að spjara sig á fjarskiptamarkaðin- um í Evrópu £ framtíðinni og sama gildi raunar um Telia í Sviþjóð. TeleDanmark hefur tekið upp sam- starf við bandaríska fjarskiptaris- ann SBC/Ameritechs með það að markmiði að verða sér úti um sterk- an alþjóðlegan bakhjarl. Coldwater hlýtur bresk framleiðsluverðlaun Fást í hyggingavöruverslunum um land allt COLDWATER Seafood LTD í Bret- landi, dótturfyrirtæki Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna hf., hlaut í síð- ustu viku bæði gull- og silfurverðlaun fyrir framleiðslu sína í árlegri samkeppni, sem Samtök breskra framleiðenda á frosnum matvælum (BFFF) standa fyrir um bestu nýju frosnu matvælin. Gullverðlaunin hlaut Coldwater fyrir þorskstykki í stökkum deighjúp sem Morrisons verslunarkeðjan sel- ur og silfurverðlaunin fyrir ýsu- stykki í stökkri brauðmylsnu, sem Sainsbury’s verslunarkeðjan dreifir. Jafn Coldwater í öðru sæti var fram- leiðandinn Birds Eye Wall’s, sem hlaut viðurkenningu fyrir vöru sína „Simply Fish“. Akvörðun um verð- launaréttina og endanlega röð þeirra er gerð af neytendum, sem valdir eru afhandahófi. Mikil viðurkenning Agnar Friðriksson, forstjóri Coldwater Seafood UK, segir að Coldwater vörur hafi áður fengið við- urkenningu í þessari samkeppni, en Nigel Holt, sölustjóri hjá Coldwater Seafood UK, og Keith Wright, fulltrúi Morrisons verslunarkeðjunnar, taka við gullverðlaunum frá Coleridge Marchment, forseta BFFF. þetta sé í fyrsta skipti sem fyrirtæk- ið hreppi bæði gull og silfur. „Vöruþróun af þeirri stærðar- gráðu, sem Coldwater stundar, út- heimtir náið samstarf við smásöluað- ila og fyrirtæki, sem leggja stund á markaðs- og neytendarannsóknir. Því eru þessi verðlaun viðurkenning á því öfluga vöruþróunarstarfi sem markvisst hefur verið unnið að á undanfömum árum. Þessar viður- kenningar styrkja líka samstarfið við helstu viðskiptavini okkar,“ segir hann. EFA með 7,85% í LandMati EFA hf. (Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn) hefur keypt 7,85% eignarhlut í LandMati ehf., sem er félag á sviði upp- lýsingatækni með megin- áherslur á þróun, markaðs- setningu og sölu landupp- lýsinga og upplýsingakerfa. LandMat ehf. var stofnað árið 1998 og hefur aflað sér markaða innanlands sem og erlendis, samkvæmt tilkynn- ingu til Verðbréfaþings ís- lands. Nýtt hlutafé í félaginu í hálffimm fréttum Búnaðar- bankans kemur fram að kerfið, sem félagið byggir starfsemi sína á, heitir Geographic Information Systems. Islenski hugbúnaðarsjóður- inn keypti nýlega 8,5% hlut í LandMati. Um nýtt hlutafé er að ræða í félaginu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.