Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
Mikill fjöldi lagði Ieið sfna í miðbæinn 17. júní.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, lagði blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnis-
varða Jóns Sigurðssonar á Austurvelli.
Hátíðarhöldin á höfuðborgarsvæðinu 17. júní
Mikil þátttaka
í góðu veðri
SKÚRIR og skjálftar urðu ekki til þess að
trufla hátíðarhöldin á höfuðborgarsvæðinu
þann 17. júní sem að sögn skipuleggjanda
fóru vel fram en þátttaka var alls staðar með
mesta móti.
Frábær stemmning
í miðbæ Reykjavíkur
Höfuðborgarbúar fjölmenntu í miðbæinn
en Gísli Árni Eggertsson, dagskrárstjóri há-
tíðarhaldanna, segir að mannfjöldinn hafi
dreifst vel um miðborgina en hann telur að
a.m.k. 30 þúsund manns hafi verið þar sam-
ankomnir. Gísli segir hátíðarhöldin hafa
gengið vel, skemmtidagskráin við Arnarhól
og opnun ylstrandarinnar í Nauthólsvík
standi helst upp úr en annars hafi dagskráin
verið bæði fjölbreytt og góð. „Stemmningin í
bænum var þrælgóð," segir Gísli. „Við erum
mjög ánægðir með aðsóknina og veðrið var
frábært." Rigning seinnipartinn hafi þó lík-
lega dregið úr aðsókn að skemmtiatriðunum
um kvöldið.
Árni Vigfússon, aðstoðaryfirlögregluþónn
í Reykjavík, sagði að hátíðarhöldin í borg-
inni hefðu farið friðsamlega fram. Reyndar
þurfti lögreglan að hafa afskipti af athyglis-
þurfi manni sem klifrað hafði upp á styttuna
af Ingólfi Arnarsyni á Arnarhóli. Fátt annað
bar til tíðinda og helgin var fremur róleg hjá
lögreglunni.
Eiðistorg hristist og skalf
Haukur Geirmundsson, æskulýðs- og
tómstundafulltrúi Seltjarnarness, segir að
Seltirningar hafi orðið nokkuð skelkaðir
þegar Eiðistorg tók að nötra. Fólk hélt þó ró
sinni en skemmtiatriðunum var svo gott sem
Jóhanna Vigdís Amardóttir, leikkona og
fjallkona, fiutti ljóðið „í upphafi var skip“,
eftir Jónas Þorbjarnarson.
lokið þegar jörðin tók að skjálfa og því frem-
ur fáir inni á torginu. Stefán Á. Stefánsson
tenór vakti mikla lukku með söng sínum og
Leiklistarfélag Seltjamarnes sýndi stuttan
leikþátt auk þess sem íbúar Latabæjar litu í
heimsókn.
Hæstánægðir Kópavogsbúar
Mun fleiri Kópavogsbúar tóku þátt í 17.
júní-hátíðarhöldunum í Kópavogi en fyrri ár.
Linda Udengaard, æskulýðsfulltrúi Kópa-
vogs, giskar á að um 10 þúsund manns hafi
sótt hátíðarhöldin í Kópavogi og þeir hafi
verið hæstánægðir með dagskrána sem hafi
gengið mjög vel. „Við erum orðin tæp 23
þúsund hér í bænum og meira var lagt í dag-
skrá,“ segir Linda sem telur hátíðarhöldin í
Kópavogi fyllilega samkeppnisfær við höfuð-
borgina. Þau séu e.t.v. ekki jafn stór í snið-
í kirkjugarðinum við Suðurgötu var blóm-
sveigur lagður að leiði Jóns Sigurðssonar
forseta.
um en hinsvegar sé meiri nálægð við allt og
alla. Mestur hluti hátíðarhaldanna var á
Rútstúni en í Kópavogsdal var keppt í víða-
vangshlaupi og eldri borgarar reyndu með
sér í púttkeppni á grasflötinni við Salinn á
Kópavogshæð.
Glaðir Garðbæingar
„Hátíðarhöldin gengu mjög vel, við höfum
ekki séð svona mikla þátttöku mörg undan-
farin ár, ég tel að veðrið hafi átt stóran þátt
í því og það virðist sem allir hafi unað glaðir
við sitt,“ sagði Gunnar Einarsson, forstöðu-
maður fræðslu- og menningarsviðs Garða-
bæjar. Gunnar segir að dagskráin hafi verið
þéttingsföst og góð. Hestar voru teymdir
undir börnum og skátafélagið Vífill var með
skátatívolí. Frá rúmlega tvö til hálffimm var
hátíðardagskrá við Garðaskóla en síðan tók
við fjölbreytt skemmtidagskrá í íþróttahús-
inu. Um kvöldið var haldið diskótek fyrir
yngstu börnin sem dönsuðu og skemmtu sér
ásamt foreldrum sínum.
Mosfellingar úti í góða veðrinu
Mosfellingar héldu upp á þjóðhátíðardag-
inn með hefðbundnum hætti. Edda Davíðs-
dóttir, tómstundarfulltrúi Mosfellsbæjar,
segir að þátttaka hafi verið mikil. Gengið var
fylktu liði frá verslun Nóatúns að íþrótta-
svæði Mosfellinga þar sem hátíðarhöldin
voru haldin bæði innan og utandyra, en
flestir Mosfellingar héldu sig þó úti í góða
veðrinu. Skrúðgángan var að sögn Eddu
mjög fjölmenn og vel heppnuð en í farar-
broddi fóru skátar úr skátafélaginu Mos-
verjum og Lúðrasveit Varmárskóla.
Hafnfírðingar fjölmenntu
Veðrið lék við Hafnfirðinga á 17. júní sem
fjölmenntu á hátíðarhöldin í Hafnarfirði.
Regnskúrir trufluðu Hafnfirðinga lítið enda
höfðu bæjarbúar verið svo forsjálir að taka
með sér regnhlífar og létu því rigninguna
ekkert á sig fá enda segir Anna K. Bjarna-
dóttir, rekstrarstjóri æskulýðsmála, að helst
hafi rignt þegar hlé varð á hátíðarhöldunum.
Anna segir að þjóðhátíðardagurinn hafi
verið mjög vel heppnaður og góð þátttaka í
öllum dagskrárliðum. Líkt og aðrir íbúar
höfuðborgarsvæðisins fundu Hafnfirðingar
fyrir jarðskjálftanum á laugardaginn, en
sumir Hafnfirðingar töldu jarðhræringarnar
reyndar stafa af því að hinn hafnfirski leik-
ari, Steinn Ármann Magnússon, hefði
kannski hoppað aðeins of fast uppi á sviði.
Álftnesingar í rjómablíðu
Ómar Stefánsson, íþrótta- og tómstunda-
fulltrúi Bessastaðahrepps, segir Álftnesinga
hafa skemmt sér vel í veðurblíðunni. Um
morguninn kom brúðubíllinn í heimsókn og
Ungmennafélagið hélt frjálsíþróttamót. Eft-
ir hádegishlé leiddu skátar úr Skátafélaginu
Svönum skrúðgöngu hreppsbúa frá Bessa-
staðakirkju að Iþróttamiðstöðinni þar sem
dagskráin hófst á ný. Meðal skemmtiatriða
var söngur hinnar 14 ára gömlu söngkonu,
Vigdísar Ásgeirsdóttur, sem Ómar segir að
hafi vakið mikla hrifningu þjóðhátíðargesta.
Kvenfélagið var með kaffisölu og hestamenn
teymdu undir bömum.
BðK30%
SSyms:
Falleg og fróðleg bók,
ætluð áhugamönnum
um íslenska steinarikið.
Kjörinn ferðafélagi
út í náttúruna, enda í
handhægu broti sem fer
vel i vasa ferðamannsins.
Mál og menningl
malogmenning.isl
Laugavegi 18 • Siml 515 2500 • Síðumúla 7 • Sfmi 510 2500
Stemmning
í kvennahlaupi
KVENNAHLAUP fór fram í ellefta
sinn á sunnudag og tóku um það bil
15.000 konur af öllu landinu þátt í
hlaupinu. Þátttaka á höfuðborgar-
svæðinu var dræmari en undan-
farin ár og átti veðrið trúlega þátt í
því enda úrhellis- rigning fram eft-
ir degi. í Garðabæ hlupu um 5000
konur en í fyrra voru þær 7000. Aö
sögn Onnu Möller, skipuleggjanda
hlaupsins í Garðabæ, eru menn þar
á bæ ánægðir með þátttöku miðað
við veðurhorfur á sunnudagsmorg-
un. Hún sagði að stemmningin hafi
verið feikigóð og meiri rólegheit yf-
ir hlaupurum en oft áður. Elsti þátt-
takandi í hlaupinu í Garðabæ var
Anna Kristinsdóttir sem er 99 ára
vistmaður á Seljahlíð en þetta er í
annað sinn sem Anna tekur þátt í
hlaupinu. Með henni hlupu dóttir
hennar, dótturdóttir og langömmu-
bam þannig að fjórar kynslóðir
mættu þar saman í hlaupið.
í Mosfellsbæ hlupu einnig nokkru
færri konur en í fyrra eða um 600 í
ár en 1000 í fyrra. Þátttaka í öðrum
byggðum landsins var mjög góð en
hlaupið var á 84 stöðum f ár. í
Kvennabrekku í Dölum tóku tut-
tugu konur þátt í kvcnnahlaupi.
Þar var á ferð hópur úr skíðadeild
Hrannar í Reykjavík ásamt nokkr-
um konum úr sveitinni. Staðsetn-
ingin þótti skemmtileg með tilliti til
nafnsins en sú skýring heyrðist
meðal annars á nafngiftinni að
íþróttakappleikir karla hafi í fyrad-
inni verið algengir á sléttum völlum
neðan Kvennabrekku en konuraar
hafi setið í brekkunni og fylgst
með.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Fjórir ættliðir; Finnbjörg Gríms-
dóttir, Anna María Ántonsdóttir
og Elsa Valgarðsdóttir sem hélt
upp á 10 ára afmæli sitt þennan
dag, ásamt Onnu Kristinsdóttur
99 ára sem var aldursforseti í
kvennahlaupinu 2000.