Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 20.06.2000, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000 41 Enn saga um glæp ERLEJVDAR BÆKLR Spennusaga SÍÐASTI DANSINN „THELASTDANCE“ Eftir Ed McBain. Hodder og Stoughton 2000. 278 síður. ED McBain er meistari segir bandaríska tímaritið Newsweek og það er óhætt að taka undir það. Fáir eru leiknari í því að semja löggusögur en MeBain með því einu að lýsa ákaf- lega lýjandi störfum rannsóknarlög- reglumanna í bandarískri stórborg þar sem morð eru daglegt brauð. All- an liðlangan daginn árið um kring leita þeir vísbendinga sem morðingj- ar skilja eftir sig, elta uppi vitni og þá sem þekktu hin myrtu og púsla sam- an úr minnstu smáatriðum hvers- dagslegustu sögum um glæpi. Nýj- asta McBain-sagan heitir Síðasti dansinn eða „The Last Dance“ og kom hún nýlega út í vasabroti hjá Hoddor og Stoughton. Hún er með hans bestu verkum. Carella og félagar McBain hefur lengi verið að og eft- ir hann liggja margir hillumetrar af bókum. Hann skrifar einnig undir sína rétta nafni, Evan Hunter, öðru- vísi bækur sem einnig bera frásagn- ai’hæfileikum hans fagurt vitni. Ein af þeim betri í þeim ilokki er erótíska sagan Privileged Conversation. Hann mun ekki skrifa lengur en í þrjá klukkutíma á dag og reynir að ljúka átta síðum á degi hverjum. Það er ekki að sjá á bókum hans að hann hafi neitt sérstaklega íyrir hlutunum. Þær renna niður ljúflega eins og heitar lummur. Söguhetjur hans í bókunum um 87. hverfi, en þær eru þekktastar af verk- um McBains (hann hefur t.d. einnig skrifað fjölda sagna um lögfræðing í Miami), er hópur rannsóknarlögr- eglumanna en af þeim er Steve Car- ella mest áberandi. Hann er um fert- ugt og hefur verið nógu lengi í löggunni til þess að taka eftir þegar menn ljúga að honum. Einn af félög- um hans er Meyer og svo kemur Ollie feiti mjög við sögu, skapstyggastur þehra allra og kannski þrjóskastur. Allir eru þeir hver með sínum hætti litaðir af því sem þeir hafa séð í starfi sínu en eru fyrir löngu síðan hættir að kippa sér upp við nokkurn hlut. Hversdagsleiki morðsins Síðasti dansinn hefst á því að lík af rosknum manni finnst í læstri íbúð hans. Hann liggur út af í rúmi sínu en þó er greinilegt að hann hefur ekki látist af eðlilegum orsökum heldur hefur hann verið hengdur. I ljós kem- ur að hengingarólin var strengurinn í baðsloppnum hans og gálginn krókur á baðherbergishurðinni. Dóttir Vf'rj.i daynr i Lyfju Léyrnúla Ráðgjöf frá kl. 14-17 i tlag Kemurþér beint að efnínu! Ótvíræður kostur þegar draga á úr ólykt. Lykteyðandi innan frá, vinnur gegn andremmu, svitalykt og ólykt vegna vindgangs, kemur lagi á meltinguna. I Cb LYFJA Lyf á lágmarksverði Lyfja Lágmúla» Lyfja Hamraborg » Lyfja Laugavegi Lyfja Setbergi- Útibú Grindavík~ ____________________________/ mannsins hefur greinilega eitthvað að fela, við fáum að vita það strax á fyrstu síðunum og við sögu kemur uppsetning á gömlum söngleik er get- ur gert alla sem að honum koma ríka. Carella og menn hans fara af stað og hafa uppi á vitnum og ganga manna á milli í leit að upplýsingum og áður en langt um líður er annað morð framið og loks það þriðja. Það eru engir flugeldar í frásögninni, engir skotbardagar, engir bílaeltingaleikir, engar sprengingar og slagsmál, að- eins þramm lögreglumanna frá ein- um stað til annars, vitni sem segja frá og upplýsingar sem síast inn. Hér er byggt á sálfræðilegri spennu og þeirri vissu að lesandann þyrsti eftir frekari upplýsingum í undarlegri gátu. Morð eru svo alvanaleg í lífi rann- sóknarlögreglumannanna, leitin að morðingjum svo daglegt brauð, morð- ingjarnir svo hversdagslegir og þeir sjálfir svo venjulegir að lesandinn getur ekki annað en hrifist með. Það er einmitt þessi yndislegi hversdags- leiki morðrannsóknar í stórborg sem McBain hefúr náð svo frábærum tök- um á að fáu er við að jafna í löggubók- menntunum. Já, það er óhætt að kalla Ed Mc- Bain meistara löggusögunnai'. Arnaldur Indriðason UMRÆÐUFUNDUR atvinnulífsins S.linloK .IIviiiiiulílsm'. i'lii.t fil iiiiii.i-Aiiliiiiil.il .i Hótcl SÖgu Súlnasal liinnilixl.iv'inn ')//,. |iiní Kl. I (.(10 I S.00 tiill '.(.i» l'.'.lvilyi i\i *..tniU<“|*|»nisv’i rui.i i»V» irltMi aí hm liu . Frinrli flytja pftirta IHir; 13.00 Finnur Geirsson formaður SA: Stöðugt starfsumhverfi! 13.10 Almar Guðmundsson forstöðumaður greiningadeildar Islandsbanka-FBA hf.: Rekstrarumhverfi fyrirtækja og þróun þjóðhagsstærða. Hvernig mpta fyrirfapki ng atvinnugreinar stöðu sína í dag? 13.30 Sigurður Helgason forstjóri Flugleióa hf. 13.45 Hörður Arnarson forstjóri Marels hf. 14.00 Gunnar Örn Kristjánsson forstjóri SIF hf. 14.15 Jón SchevingThorsteinsson framkvæmdastjóri þróunarsviðs Baugs hf. 14.30 Framsögumenn svara spurningum blaðamannanna Bjarna Más Gylfasonar, Viðskiptablaðinu og Ómars Friðrikssonar, Morgunblaðinu. 14.50 15.00 Samantekt: Finnur Geirsson formaðurSA. Fundarslit. Fundurinn eröllum opinn. Vinsamlega tilkynnið þátttöku fyrirfram í síma: 511 5000, með símbréfi: 511 5050 eða tölvupósti: sa@sa.is. SAMTÖK ATVINNULÍFSINS 1 f&SWt Samtök SAMTÖK (VlMHTf* íjármálafyrirtækja IÐNAÐARINS gU fjlKVfRHSMlSfOOyA IL D w| ú Jró^3 RHu krónUr? Nú eru Króni og Króna komin I sumarskap Allt sem þau vantar er leikfélagar - og veistu hvaðl? Bestu leikfélagamir eru krónumar sem þú safnar í sparibaukinn þinn. Þú færð flottan sumarlegan bakpoka í Sparisjóðnum Komdu með sparibaukinn í Sparisjóðinn strax og hann fyllist því Króni og Króna ætla að gefa þér flottan bakpoka* með mynd af sér þegar þau sjá hvað þú hefurverið dugleg(ur) að spara.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.