Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 2
2 ÞRIÐ JUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðist á
eldri hjón
í Gdansk
RÁÐIST var á eldri hjón í borginni
Gdansk í Póllandi síðastliðið
fimmtudagskvöld, þeim veittir
áverkar og stolið af þeim lausafé og
vegabréfum. Farið var með hjónin á
sjúkrahús í borginni. Maðurinn
hlaut áverka á öxl og konan áverka
á auga. Manninum stóð til boða að
gangast undir aðgerð vegna axlar-
meiðslanna á sjúkrahúsi í Gdansk
en hann ákvað sjálfur að láta fram-
kvæma hana á íslandi.
Hjónin, sem fædd eru 1925 og
1926, til heimilis í Kópavogi, voru í
skipulagðri ferð í Póllandi með fleiri
ferðafélögum. Þau gistu á hóteli í
Gdansk. Að kvöldi fimmtudags fóru
þau í gönguferð í nágrenni hótelsins
og voru rænd þar í hliðargötu og
þeim veittir áverkar. Árásarmenn-
irnir höfðu aðeins 1.500 sloty upp úr
krafsinu, sem er jafnvirði nálægt
330 ÍSK auk vegabréfa hjónanna.
Stanislaw Laskowski, aðalræðis-
maður íslands í Gdansk, hafði sam-
band við hjónin daginn eftir árásina
og gaf út bráðabirgðavegabréf þeim
til handa. Laskowski sagði í samtali
við Morgunblaðið að þau hefðu ver-
ið við góða heilsu. Til stóð að hópur-
inn færi til íslands sl. sunnudag en
á leiðinni út að fiugvélinni fékk
maðurinn aðsvif og var fluttur á ný
á sjúkrahús þar sem hann var hafð-
ur til eftirlits og skoðunar í einn sól-
arhring. Hann hélt síðan af stað til
Islands í gær.
Morgunblaðið /Arnaldur
Halldór Hansen heiðraður
MARGT var um manninn á Sönghátíð til heiðurs
Halldóri Hansen barnalækni sem haldin var í Saln-
um í gærkvöldi. Fjölmargir listamenn, innlendir og
erlendir, stigu þar á svið og fluttu fjölbreytta efnis-
skrá. Halldór hefur um langt árabil verið kunnur af
áhuga sínum og þekkingu á sönglistinni.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd lauk hátíð-
inni með því að söngvararnir afhentu Halldóri, allir
sem einn, rósir sem þeir höfðu hlotið að launum fyr-
ir frammistöðuna.
■ Halldór er/36
Skemmdir á
Alþingishúsinu
Kvarnaðist
úr iofti og
veggjum
ALÞINGISHÚSIÐ fékk að
finna fyrir jarðskjálftanum á
þjóðhátíðardaginn eins og
aðrar byggingar, en smávægi-
legra skemmda varð vart þar
innan dyra þegar skjálftinn
reið yfir.
Að sögn Friðriks Ólafsson-
ar, skrifstofustjóra Alþingis,
kvarnaðist úr lofti og veggj-
um þegar húsið fór á hreyf-
ingu í skjálftanum, en að hans
áliti var vart hægt að segja að
um verulegar skemmdir væri
að ræða. Þó sagði hann að
þörf væri á viðgerðum á
stöku stað í húsinu þar sem
sprungur hefðu komið í ljós.
Útveggir Alþingishússins
eru hlaðnir en aðrir hlutar
þess eru úr timbri og má því
álykta að töluverður sveigjan-
leiki sé í húsinu. Engu að síð-
ur kastar það tæpast rýrð á
nærri 120 ára gamalt hús þótt
sparsla þurfi í örfáar sprung-
ur eftir kipp eins og þjóðhá-
tíðarskjálftann, enda segir
Friðrik að Alþingishúsið sé
afar traust bygging og vel
búið til að standa af sér
stærri skjálfta en þennan.
Áhersla á samráð
á fundi Reyðaráls
Morgunblaðið/Ásdís
Frá fundi Reyðaráls á Reyðarfirði í gærkvöldi. Frá vinstri: Bjarni Reyn-
holdt, framkvæmdastjóri Reyðaráls, Eyjólfur Árni Rafnsson, verkfræð-
ingur hjá Hönnun, Elín Smáradóttir, lögfra:ðingur Skipulagsstofnunar,
og Geir A. Gunnlaugsson sljórnarformaður Reyðaráls.
MARKMIÐ Reyðaráls er að reisa
arðbæra álverksmiðju við Reyðar-
fjörð með bestu fáanlegu tækni.
Þetta var meðal þess sem fram kom
í máli Geirs A. Gunnlaugssonar,
stjórnarformanns Reyðaráls, á
fundi sem fyrirtækið boðaði til á
Reyðarfirði í gær. Hann sagði að
Reyðarál legði áherslu á að um-
hverfismál yrðu til fyrirmyndar og
að röskun á umhverfi yrði í lág-
marki. Fundurinn var fyrsti liðurinn
í samvinnu Reyðaráls við þá sem að
málinu koma. Geir sagði að Reyðar-
ál áætlaði að leggja tillögu um
hvemig staðið yrði að mati á um-
hverfisáhrifum álvers fyrir Skipu-
lagsstofnun 30. júní nk. og að um-
hverfismat yrði svo lagt fyrir í
janúar á næsta ári. Úrskurður
Skipulagsstofnunar þarf þá, sam-
kvæmt lögum, að liggja fyrir eigi
síðar en í apríl það ár og gert er ráð
fyrir að ákvörðun um hvort ráðist
verður í framkvæmdir eða ekki liggi
fyrir 1. febrúar 2002. Aðspurður
sagði Geir að framkvæmdaraðilar
myndu ekki fara af stað með 240.000
tonna álver við Reyðarfjörð nema
það væri arðbært en að þeir hafi
vilja til að það verði stækkað upp í
360.000 þúsund tonn, því það væri
verulega hagkvæmari kostur. Einn-
ig höfðu framsögu Elín Smáradóttir
lögfræðingur Skipulagsstofnunar og
Eyjólfur Arni Rafnsson verkfræð-
ingur hjá Hönnun hf. Elín greindi
frá nýjum lögum um mat á umhverf-
isáhrifum sem Alþingi samþykkti sl.
vor, ferli málsins og þeim tímamörk-
um sem snúa að Skipulagsstofnun
og fleiri aðilum. Eyjólfur Árni fjall-
aði um drög að tillögu að matsáætl-
un á umhverfisáhrifum álversins
sem nú liggur fyrir. Verkfræðistof-
an Hönnun hefur unnið þá áætlun
auk VST og Hönnunar og ráðgjafar.
Hann sagði að þeir sem að skýrsl-
unni ynnu væru ekki að byrja á byrj-
uninni heldur byggju þeir að þeirri
vinnu sem fram hefði farið á síðasta
ári og þeim athugasemdum sem
skipulagsstjóri hefði gert við hana.
Lögbannsbeiðni hafnað í Sleipnisdeilu
Verkfallið
gæti dregist
LÖGBANNSBEIÐNI Vestfjarða-
leiðar Jóhannesar Erlendssonar ehf.
við verkfallsaðgerðum Bifreiða-
stjórafélagsins Sleipnis var í gær
hafnað af sýslumanninum í Reykja-
vík. Úrskurði vegna lögbannsbeiðni
Guðmundar Tyrfingssonar ehf. var
hins vegar frestað til kl. 11 í dag
vegna mótmæla sem lögð voru fram
við jjeirri beiðni.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, sagði Sleipnismenn ánægða
með úrskurð sýslumanns. „Við sætt-
um okkur við úrskurð sýslumanns
sama hver hann er, hvort sem hann
er jákvæður eða neikvæður," sagði
Óskar og neitaði að tjá sig um lög-
bannskröfu Guðmundar Tyrfingsson-
ar ehf., en sagði greinargerð Sleipnis
um hana lúta að félagsaðild einstakra
manna. „Það var lögð fram ítarleg
greinargerð í málinu frá lögmanni,“
sagði Óskar og kvað lögbannsbeiðni
Guðmundar Tyrfingssonai- hliðstæða
lögbannsbeiðni Vestfjarðaleiðar.
„Þannig að það væri óeðlilegt ef sá
úrskurður væri öðruvísi."
Jóhannes Erlendsson, eigandi
Vestfjarðaleiðar Jóhannesar Er-
lendssonar ehf., sagði í gær ekki Ijóst
hvort íyrirtækið myndi grípa til frek-
ari aðgerða. Að sögn Jóhannesar hafa
verkfallsaðgerðir Sleipnismanna ekki
haft áhrif á ferðir fyrirtækisins. Sagði
hann aðeins tvo af bílstjóium Vest-
fjarðaleiða félagsmenn í Sleipni.
Verkfallsaðgerðirnar hefðu hins veg-
ar áhrif á bæði mannaráðningar og
framtíðaráætlanir fyrirtækisins.
Að sögn Óskars hafa engar viðræð-
ur farið fram hjá ríkissáttasemjara
vegna verkfalls Sleipnis frá því á
föstudag og sagði hann stöðuna
óbreytta því ekki yrði ftmdað fyrr en
16.30 í dag. Óskar sagði verkfallsdeil-
una að sínu mati nú verða fastari með
hverjum deginum ogbyggju Sleipnis-
menn sig undir að verkfallið drægist
enn um sinn. „Nú fórum við að fá
styrk frá Norræna flutningamanna-
sambandinu á 15. degi þannig að
þetta fer að léttast," sagði Óskar, en
verkfallið hófst 8. júní. Hann sagði fé-
lögum í Sleipni hafa verið ljóst í upp-
hafi að verkfallið gæti dregist. „Við
höfum þurft að einbeita okkur að því
að veijast lögbannsumsóknum. Áð-
gerðir sem komu okkur að óvörum og
hafa að mínu mati orðið til þess að
deilan hefur lengst.“
Sérblöð f dag
-i’J BÍDÍIil
A ÞRIÐJUDOGUM
Heimili
Með Morg-
unblaðlnu i
dag er dreift
blaði frá
Landnámi
ehf., „Vík-
ingahátíð í
Hafnarfirði".
lAsOutlJi
Makedóníumaður til
Valsmanna / B1
Tyrkir komust í átta liða
úrslit á EM / B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is