Morgunblaðið - 20.06.2000, Page 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Orkupara-
dísin Island
st.rs-- "
legíð \_/ \
Láttu nú ekki freistast, Eva mín, mundu að þetta er ekki epli, bara ljósapera, góða.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Árekstur og bflvelta á Reykjavíkurvegi í Hafnarfírði á mots við nr. 68.
Endaði á hvolfí á umferðaeyju
UNGUR maður var fluttur á slysa-
deild á sunnudagskvöld eftir
árekstur tveggja bfla á Reykjavík-
urvegi í Hafnarfirði. Rákust þá
saman bfll sem ekið var norður
Reykjavíkurveg og bfll sem ekið
var inn á götuna í veg fyrir hinn.
Við áreksturinn valt annar bfllinn
nokkrar veltur og endaði á hvolfi á
umferðareyju. Ökumaðurinn var
einn í þeim bfl og er talið að hann
hafi beinbrotnað. Tvær konur voru
í hinum bflnum en að sögn lög-
reglunnar í Hafnarfirði sluppu þær
ámeiddar.
Tilvalid
í tækifærisgjafir
Sumarhátíð Sólstöðuhópsins
I hjartans
einlægni
Margrét Kristmannsdóttir
Sólstöðuhópurinn
heldur sumarhátíð-
ina „í hjartans ein-
lægni“ helgina 23. til 25.
júní. Þetta er í sjötta skipti
sem þessi hátíð er haldin.
Núna er hátíðin haldin í
Heiðarskóla í Leirársveit,
sem er um tíu mínútna
akstur þegar komið er upp
úr Hvalfjarðargöngum.
Margrét Kristmannsdóttir
á sæti í undirbúningsnefnd
Sólstöðuhópsins. Hún var
spurð um nánari tilhögun
hátíðarinnar.
„Hátíðin byggist upp á
námskeiðum. Sumarhátíð-
in er í rauninni fyrir alla,
bæði fjölskyldufólk og ein-
staklinga, en mikið er samt
lagt upp úr góðu barnaefni
á hátíðinni og við gleymum
heldur ekki unglingunum,
sérstök námskeið eru fyrir
þá, svo sem um heimasíðu-
gerð, veggjakrot, leiklist, leikhús-
og samkvæmisförðun og síðast en
ekki síst óvissunámskeið sem heit-
ir Út í bláinn og hefur verið vinsæl-
asta námskeiðið fram að þessu.“
- Hvemig námskeið eru fyrir þá
fnllorðnu?
„Við erum með námskeið sem
eru í anda hátíðarinnar og bera yf-
irskrift eins og; lífsgleði njóttu, Uf í
sátt við umhverfið, streita og slök-
un, að láta draumana rætast, gjafir
náttúrunnar og aukin vellíðan með
notkun blómadropa. Síðan erum
við með námskeið sem geta flokk-
ast sem verkleg námskeið líka. Þar
má telja námskeið í grunnatriðum
grænmetisfæðis, námskeið í ræðu-
tækni, í afró eða afrískum dansi,
einnig verður sérstakt námskeið í
trumbuslætti þai- sem bongótr-
ommumar verða nýttar. Við verð-
um líka með listasmiðju fyrir full-
orðna og loks má nefna námskeið
sem heitir Hér gekk Egill og verð-
ur farið í rútu um sögustaði Egils-
sögu.“
- Hvert er markmiðið með öll-
um þessum námskeiðum?
„Sólstöðuhópurinn á sér þann
einfalda tilgang að stuðla að feg-
urra mannlífi. Við teljum að það sé
öllum hollt í þessu nútímasamfé-
lagi, þar sem hraðinn ræður svo
miklu, að staldra aðeins við og
huga að því hvort við forgangsröð-
um hlutunum rétt.“
- Hvað eru margir félagar í Sól-
stöðuhópnum?
„Við erum með póstlista sem tel-
ur nokkur hundruð manns, en
þetta er ekki formlegur félags-
skapur og því í raun öllum opinn.“
-Eru hátíðir Sólstöðuhópsins
vel sóttar?
„Þær hafa verið mjög vel sóttar
hingað til, venjulega hafa verið um
og yfir 200 manns á þeim. Þær
voru haldnar á Laugalandi í Holt-
um en nú ætlum við að breyta til
og færa okkur nær höfuðborgar-
svæðinu og höfum fengið inni í
Heiðarskóla í Leirársveit eins og
fyrr koma fram. Þar er mjög góð
aðstaða. Við höfum all-
an skólann lyrir okkur
þar sem námskeiðin
verða haldin og öll sam-
eiginleg dagskrá. Mjög
góð tjaldaðstaða er fyr-
ir utan og þurfa þátttakendur að
hafa með sér tjald. Sameiginlegur
matur er á laugardagskvöld en að
öðru leyti þurfa þátttakendur að
koma með mat sinn með sér.“
- Hvað ætiið þið að gera börn-
unum til skemmtunar?
„Á meðan fullorðna fólkið getur
sótt hin ýmsu námskeið erum við
með mjög góða bamadagskrá.
Bömin geta sótt það við köllum
► Margrét Kristmannsdóttir
fæddist í Reykajvík 24. febrúar
1962. Hún lauk stúdentsprófi frá
Verslunarskóia íslands 1982 og
viðskiptafræðiprófi frá Háskóla
íslands 1982. MB-námi lauk hún
frá Stetson University 1991. Hún
er nú framkvæmdastjóri Pfaff
hf. Margrét er gift Siguijóni Al-
freðssyni innkaupafulltrúa og
eiga þau tvö börn. Áður átti Sig-
uijón eina dóttur.
smiðjur. Þar má neíha t.d. leik-
smiðju, föndursmiðju, íþrótta-
smiðju, tónsmiðju og víkinga-
smiðju. Þetta er byggt þannig upp
að mjög reyndir leiðbeinendur sjá
um bamadagskrána og mikið lagt
upp úr að bömin séu virkir þátt-
takendur.“
- Hvað kostar þátttaka í hátíð-
inni?
„Þátttökugjald fyrir fullorðna er
5000 krónur og innifalið í því er
tjaldstæði, þátttaka í öllum nám-
skeiðum, sameiginlegri dagskrá,
aðgangur að sundlaug sem er
þarna á staðnum og matur á laug-
ardagskvöld. Verð fyrir böm frá
fjögurra ára aldri er 500 krónur.
Únglingar greiða 2000 krónur.
Nánari upplýsingar um Sólstöðu-
hópinn og starfsemi hans er hægt
að fá á netfanginu mk pfaff.is eða í
síma 552-3056.“
- Eru þessar hátíðir frábrugðn-
aröðrum útihátíðum?
„Já, þetta er fjölskylduskemmt-
un án vímuefna, en fyrst og fremst
er þetta sumarhátíð þar sem við
viljum hvetja fólk til að rækta til-
finningar sínar, samband sitt við
sína nánustu í leik, starfi og
fræðslu."
- Hver stofnaði Sólstöðuhóp-
inn?
„Sólstöðuhópurinn var stofnað-
ur af systkinunum Sigurði, And-
rési og Ásu Helgu leikkonu, böm-
um Ragnars Sigurðssonar læknis.
Með í stofnun Sólstöðuhópsins var
einnig Inga Stefáns-
dóttir sálfræðingur.
Hugmyndin varð til
þegar þessi hópur ætl-
aði á útihátíð með börn
sín, en fannst ekki það
sem í boði var vera fysilegur kost-
ur fyrir fjölskyldufólk. Þá kviknaði
sú hugmynd að halda sína eigin há-
tíð þar sem lögð væri áhersla á
mannbætandi dagskrá og áherslu
á þau gildi sem stuðla að fegurra
mannlífi. Gildi eins og nánd, sam-
eining, ást, virðing og friður verða
í heiðri höfð. Við viljum auka gild-
ismat á gleðinni, samstöðunni og
samheldninni."
Viljum stuðia
að fegurra
mannlífi