Morgunblaðið - 20.06.2000, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Landsvirkjun kynnti mat á umhverfisáhrifum á Egilsstöðum
Mikilvægl að athuga-
semdir berist snemma
. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Um eitt hundrað gestir sóttu fund Landsvirkjunar um
Kárahnúkavirkjun á Egilsstöðum.
Egilsstöðum - Landsvirkjun boðaði
til almenns fundar í Valaskjálf á
Egilsstöðum og kynnti tillögu að
áætlun um mat á umhverfísáhrif-
um Kárahnúkavirkjunar. Friðrik
Sophusson, forstjóri Landsvirkjun-
ar, kynnti aðdraganda matsins en
alls voru sjö frummælendur á mæl-
endaskrá. Friðrik sagði fyrirætlun
Landsvirkjunar að vinna matsáætl-
unina með opnum hætti enda mæl-
ir sú löggjöf, sem nýsamþykkt er,
svo fyrir um.
Kárahnúkar í stað Fljótsdals
Friðrik sagði mikilvægt að fá
ábendingar og athugasemdir á
fyrri stigum umfjöllunarinnar
þannig að hægt væri að taka þau
mál fyrir sem gætu valdið deilum
áður en endanleg niðurstaða um
framkvæmd væri fengin. Hann
sagði vera breytingar frá fyrri fyr-
irhuguðum framkvæmdum en nú
væri miðað að því að virkja við
Kárahnúka í stað Fljótsdals eins
og fyrirhugað var. Yrði vatni veitt í
gegnum göng niður í Fljótsdal.
Hann telur miklar líkur á því að
360 þús. tonna álver verði að veru-
leika á Reyðarfirði og að Hydro
Aluminium sé tilbúið að fjárfesta í
allt að 40% í heildarálveri. Hvað
undirbúningsvinnuna varðaði,
sagði Friðrik að kostnaður við
hana væri verulegur en fjárfestar
þurfa að leggja 300-400 milljónir
króna í undirbúning og Lands-
virkjun um einn milljarð.
Er undirbúningskostnaður
réttlætanlegur?
Friðrik velti upp þeirri spurn-
ingu hvort slíkur kostnaður væri
réttlætanlegur og sagði jafnframt
að lögum samkvæmt ætti Lands-
virkjun að útvega rafmagn og því
bæri Landsvirkjun skylda til að
kanna alla kosti áður en að fram-
kvæmd kæmi og þá fyrst væri
hægt að gera samning við þann
sem kaupa mundi orkuna. Friðrik
taldi áætlun um Eyjabakka ekki
vera úr sögunni, sá kostur væri
enn fyrir hendi en lægi vissulega
niðri á meðan hinn væri skoðaður.
Elín Smáradóttir frá Skipulags-
stofnun kynnti ný lög um mat á
umhverfisáhrifum og Ragnheiður
Olafsdóttir hjá Landsvirkjun fjall-
aði um kynningu og samráð. Hún
ítrekaði að málið yrði unnið á op-
inn hátt og leitað yrði álits um-
sagnaraðila, hagsmunaaðila og al-
mennings. Hún benti á að
Landsvirkjun hefur þegar opnað
heimasíðu um Kárahnúka og ósk-
aði þegar eftir athugasemdum.
Sigurður Arnalds hjá Hönnun
kynnti skipurit og fjallaði um
virkjun og skipulag matsvinnu og
Gísii Gíslason hjá Landmótun
ræddi um skipulagsmál. Sigurður
Þórðarson hjá VST kom inn á
tæknilegar rannsóknir.
Áhrifasvæði þau stærstu sem
menn hafa hingað til glímt við
Kristinn H. Skarphéðinsson frá
Náttúrufræðistofnun var síðasti
frummælandinn og fjallaði hann
um náttúrufarsrannsóknir. Krist-
inn benti á einstakt svæði í kring-
um Snæfell en það hefði í gegnum
árin verið sumarhagar hreindýra.
Kristinn sagði fyiárhugaðar virkj-
unarframkvæmdir við Kárahnúka
vera það umfangsmiklar og áhrifa-
svæði vegna þeirra þau stærstu
sem menn hefðu hingað til glímt
við en það væri allt frá jökli til ósa.
Hann sagði að allt að 30 ferkíló-
metrar gróins lands færu undir
veitu með þessum framkvæmdum
og breytingar á vatnsföllum yrðu
miklar þar sem margar ár myndu
rýrna og fossar þverra og menn
veltu fyrir sér breytingum í Lagar-
fljóti, t.d. varðandi hitastig.
Fundargestir komu með fyrir-
spurnir til frummælenda en Hjör-
leifur Guttormsson gagnrýndi
áætlunina og sagði það mistök að
samþætta ekki álver og virkjun,
þannig að ekki væru ljós öll svör
þess aðila sem kaupa á orkuna áð-
ur en farið væri í framkvæmdir
með orkuveituna sjálfa. Fundurinn
var vel sóttur en alls voru rúmlega
eitt hundrað gestir á fundinum.
Egilsstaðir
Aldrei
fleiri
konur
hlaupið
Egilsstöðum - Metþátttaka var í
kvennahlaupi ISI á Egilsstöðum-
þrátt fyrir votviðrið, sem var á
sunnudaginn. Yfir eitt hundrað
konur voru skráðar til þátttöku og
voru farnar tvær vegalengdir, 2,5
km og 5 km. Veður var stillt en
vætusamt og konurnar, sem tóku
þátt í hinu árlega kvennahlaupi,
létu það ekki á sig fá.
Þær Auður Vala Gunnarsdóttir
og Lillý Viðarsdóttir sáu um upp-
hitun fyrir þátttakendurna fyrir
hlaupið og teygjur þegar hlaupinu
lauk til þess að tryggja að engum
yrði meint af hreyfingunni þótt ein-
hverjir þátttakendur kynnu að vera
í minni þjálfun en aðrir.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sjóstanga-
veiðimót
Sjóve vel
heppnað
Vestmannaeyjum - Um hvítasunnu-
helgina fór fram hið áriega Hvíta-
sunnumót Sjóstangveiðfélags Vest-
mannaeyja, Sjóve. Fjölmargar sveitir
tóku þátt að þessu sinni og var heild-
arveiðin 10,7 tonn sem er mjög gott.
Úrslit voru eftirfarandi: Aflahæsti
karlmaðurinn var Pétur Sigurðsson,
Sjóak, með 257,8 kg og aflahæsti
Vestmanneyingurinn Óiafur
Tryggvason með 348,4 kg.
Aflahæsta sveit karla var sveit Ól-
afs Tryggvasonar en hana skipuðu
auk hans, Amþór Sigurðsson, Auð-
unn Stefnisson og Bogi Sigurðsson.
Aflahæsta sveit kvenna með 895 kg
var sveit Sigfríðar Valdimarsdóttur
Sjóak en auk hennar skipuðu sveitina
Guðlaug Karlsdóttir, Hafdís Gísla-
dóttir og Guðrún Halldórsdóttir.
Aflahæsti báturinn var Sævaldur
VE með_ 905,5 kg, skipstjórinn er
Kjartan ívarsson.
Fjöldinn allur af verðlaunum er
veittur m.a. fyrir flesta ííska, stærstu
fiska af hverri tegund og áfram mætti
telja. Mótið tókst vel og fór fram í
ágætu veðri.
------^-4-*----
Stökkbretti
í notkun í
Hveragerði
Hveragerði - Nýtt stökkbretti hefur
verið opnað við Sundlaugina í
Laugaskarði, Hveragerði. Vígslan á
stökkbrettinu rak endahnútinn á
Vorsmelli Grunnskólans en þá víkur
hefðbundið skólastarf fyrir öðru sem
oft tengist útiveru og vorverkum.
Fjölmörg börn voru mætt í sund-
laugina til að taka þátt í vígslunni en
það voru þeir Þorsteinn Hjartarson,
aðstoðarskólastjóri Grunnskólans í
Hveragerði, Gísli Páll Pálsson, for-
seti bæjarstjórnar og Hálfdán Krist-
jánsson, bæjarstjóri, sem fyrstir
reyndu brettið með tilþrifum. Vöktu
þeir kátínu yngri kynslóðarinnar
sem síðan lét ekki sitt eftir liggja og
lét það ekki aftra sér þó biðröðin að
brettinu lengdist stöðugt.
------*-+-*----
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Nýtt hús Hvalamiðstöðvarinnar.
Hvalavikan
stendur yfir
Húsavík - Nú stendur yfír árleg
hvalavika og hófst með því að opnuð
var málverkasýning í Hvalamiðstöð-
inni, þar sýnir japanska listakonan
Namiyo Kubo málverk sín.
Listakonan, sem þekkt er fyrir
útilistaverk sín, kom hingað fyrir
tveim árum og hreifst mjög af því
sem verið var að gera hér í ferðamál-
um og þá sérstaklega Hvalamiðstöð-
inni. Hún kom því frá Bandaríkjun-
um þar sem hún starfar gagngert til
að halda sýningu og mála fyrir Ás-
björn Björgvinsson í Hvalamiðstöð-
inni.
Ákveðið hefur verið að Hvalamið-
stöðin flytji í gamla sláturhúsið á
Húsavík sem áður var í eigu KÞ og
er Namiyo ásamt þrem aðstoðarkon-
um sínum að mála mynd á stafn
hússins og breytir þar með ásýnd
sem verið hefur óbreytt um áratugi.
Hestamaður
slasast
Hrunamannahreppi - Hestamaður
slasaðist alvariega við bæinn Kot-
laugar hér í sveit síðdegis á laugar-
dag þegar hann datt af baki er hest-
ur hans rauk stjómlaust og stökk
yfir ristarhlið. Lenti maðurinn á
höfðinu.
Var hann fluttur með sjúkrabíl á
Sjúkrahús Reykjavíkur og reyndist
vera með brákaða höfuðkúpu og mar
á heila.
Samkvæmt upplýsingum frá fjöl-
skyldu er maðurinn á góðum bata-
vegi. Maðurinn var ekki með hjálm,
sem hefði sennilega getað bjargað
miklu.