Morgunblaðið - 20.06.2000, Síða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Akralind 1, 200 Kópavogi, sími 564 3000
Reuters
Rússneski Qölmiðlakóngurinn Vladímír Gúsínskí (t.v.) í höfuðstöðvum
fjölmiðlasamsteypu sinnar í Moskvu eftir að hann var leystur úr haldi á
föstudag. Með honum er Jevgení Kíseljov, er stjórnar pólitískum um-
ræðuþætti NTV-sjónvarpsins, sem er í eigu Gúsínskís.
Rússneskir stjórnmálaskýrendur
segja að handtöku Gusínskís megi
rekja til baráttu Pútíns við hags-
munahópa sem voru mjög áhrifa-
miklir á valdatíma Borís Jeltsíns,
forvera hans í forsetaembættinu. A
meðal þessara afla eru héraðsstjór-
ar, sem eru alltof valdamiklir að
mati Pútíns, fjármálamenn sem réðu
miklu á bak við tjöldin í Kreml,
fjölmiðlar þeirra og stjórnendur
stóru orkufyrii-tækjanna. Stjórn-
málaskýrendurnir segja að bíði Pút-
ín ósigur í þessari baráttu sé ljóst að
hann geti ekki losað sig við valda-
klíkuna í Kreml sem tryggði honum
forsætisráðherraembættið í ágúst
og síðan forsetaembættið um ára-
mótin þegar Jeltsín sagði af sér.
Gúsínskí sagði að gagnrýni blaða-
manna út um allan heim, rússneskra
kaupsýslumanna, leiðtoga gyðinga
og Bandaríkjastjórnar hefði orðið til
þess að hann var leystur úr haldi.
„Ég stend í þakkarskuld við allt það
fólk sem studdi mig,“ sagði hann.
Gúsínskí segir Pútín
fliuga fleiri handtökur
Plastlagnakerfi
fyrir þrýstiloft
París, New York. AFP, Reuters.
RÚSSNESKI fj ölmiðlakóngurinn
og auðjöfurinn Vladímíi- Gúsínskí,
sem var leystur úr haldi á föstudag
eftir að hafa verið ákærður fyrir
fjárdrátt, fullyrti í gær að Vladímír
Pútín forseti kynni að láta handtaka
fleiri frammámenn í viðskiptalífinu.
„Ég hef fengið áreiðanlegar upp-
lýsingar um að ráðamennimir í
Kreml séu að íhuga fleiri handtök-
ur,“ sagði Gúsínskí í viðtali við vikur-
itið Newsweek.
Hann bætti við að á meðal þeirra
sem kynnu að verða handteknir
væru Vagit Alekperov, sem rekur
stærsta olíufyrirtæki Rússlands,
LUKoil, og stjórnendur næst-
stærsta olíufyrirtækisins, Yukos,
sem er undir stjóm Míkhaíls
Khodorkovskís.
Alekperov og Khodorkovskí vora
á meðal 17 frammámanna í við-
skiptalífinu sem skrifuðu ríkissak-
sóknara Rússlands opið bréf til að
mótmæla handtöku Gúsínskís.
Fjölmiðlakóngui-inn var ákærður
á föstudag íyrir að hafa dregið sér
andvirði 760 milljóna króna í tengsl-
um við kaup sín á ríkissjónvarpsstöð
í Sankti Pétursborg árið 1997. Hann
var leystur úr haldi gegn því skilyrði
að hann færi ekki úr landi og kveðst
saklaus af sakargiftunum.
Margir litu á handtökuna sem
merki um að Pútín, sem var njósnari
KGB áður en hann komst til met-
orða í stjórnmálunum, hygðist
skerða prentfrelsið í landinu. Fjöl-
miðlar Gúsínskís era einu rússnesku
fjölmiðlamir sem hafa gagnrýnt
hernaðaraðgerðir Rússa í Tsjetsjníu
og rannsóknir á ásökunum um spill-
ingu 1 rússnesku leyniþjónustunni
FSB, sem var áður undir stjórn Pút-
íns.
„Ráðamennirnir í Kreml vilja fá
alræðisvald í landinu og ætla ekki að
sætta sig við neinar gagnrýnisradd-
ir,“ sagði Gúsínskí. „Stöðva þarf
þessi öfl, annars endum við öll í But-
yrka,“ bætti hann við og skírskotaði
til fangelsins í Moskvu þar sem hon-
um var haldið í nokkra daga.
Gúsínskí kvaðst telja að Pútín
hefði vitað af handtökunni fyrirfram.
Forsetinn hefur þó sagt að hann hafi
á engan hátt skipt sér af rannsókn
saksóknaranna á málinu og sagt að
þeir hafi farið offari með þvi að
handtaka Gúsínskí. Málið varpaði
skugga á ferð forsetans til Spánar og
Þýskalands í vikunni sem leið.
-44
^ % .)
ÞAÐ LIGGUR í LOFTINU
Auðvelt í uppsetningu
Gerum verðtilboð
Einnig plastkúlulokar
með Rotor
URKLÆÐNING
TrausC íslensk múrefni
síSan 1972
Kynntu þér ELGO múrklæðningu
áður en þú ákveður annað
ELGO múrklæðning er létt og sterk, sem fegrar, ver og einangrar.
—
Á verði við allra hæfi
tar á nýtt og eldra húsm
Varist eftirlíkingar
Leitið tilboða!
I
I steinprýði
Stangarhyl 7 — Pósthólf 10058 — 130 Reykjavík
Sími 567 2777 — Fax 567 2718
Heiðarskóli Reykjanesbæ 4.400 fm
ELGO MÚRKLÆÐINIINGIN hefur verið undir eftirliti
RB síðastliðin 9 ár og hefur farið í gegnum
ýmsar prófanir, svo sem IMORDEST IMT Build
66, og staðist þær allar. ELGO
MÚRKLÆÐIMIIMGIIM var tekin út af
Birni Marteinssyni, verkfræðingi
hjá RB, ÁIM ATHUGASEMDA.
Flest ELGO efnin hafa
verið prófuð hjá RB.
Bashar
al-Assad
tekur við í
Sýrlandi
Darnaskus. Reuters.
MÁLARAR í Damaskus, höfuð-
borg Sýrlands, festa mynd Bash-
ars al-Assads, væntanlegs leiðtoga
landsins, á striga í gær. Stjórnar-
flokkurinn í landinu, Baath, kaus
Bashar einróma foringja sinn í
gær, og er það frekara skref á
leið Bashars, sem er 34 ára augn-
læknir, í forsetastólinn. Faðir
Bashars og fyrrverandi forseti,
Hafez al-Assad, lést fyrir viku.
Bashar hefur þegar verið út-
nefndur yfirmaður hcrsins og til-
nefndur til forseta. Flokksþing
Baath-flokksins var í gær fram-
lengt, en slíkt hefur ekki gerst í
15 ár, og lýkur þinginu í dag. Kos-
ið verður í miðstjórn áður en
þinginu lýkur, og segja frétta-
skýrendur að samsetning hennar
muni gefa vísbendingar um
hversu mikil völd Bashar hafi.
Súrefiiisvörur
Karin Herzog
Vita-A-Kombi olía