Morgunblaðið - 20.06.2000, Qupperneq 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 2000
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Forsætisráðherra Rússlands g’agnrýndur fyrir stefnuleysi í efnahagsmálum
Ekkí líklegiir
til róttækra
aðgerða
Nýja stjórnin í Rússlandi hefur ekki enn
mótað skýra stefnu í efnahagsmálum, að
mati Alexanders Malkevichs, sem telur
nýja forsætisráðherrann ekki líklegan til
Reuters
Borís Jeltsin, fyrrverandi Rússlandsforseti, ásamt eftirmanni sínum í
embættinu, Vladímír Pútín.
að koma á róttækum umbótum.
ÞEGAR Míkhaíl Kasíanov var skip-
aður forsætisráðherra Rússlands í
maí viðurkenndi hann hreinskilnis-
lega að bið yrði á því að stjórnin lyki
við að móta stefnu sína í efnahagsmál-
um. Hann lagði hins vegar áherslu á
það sem áunnist hefði á þeim ijórum
mánuðum sem hann gegndi embætti
aðstoðarforsætisráðherra áður en
hann varð forsætisráðherra.
Kasíanov sagði að iðnframleiðslan
hefði aukist um rúmlega 10% á fyrsta
fjórðungi ársins. Fjárfestingar á
hlutabréfamarkaðnum hefðu aukist
um 8% á sama tíma, verðbólgan væri
1% á mánuði og gjaldeyrisforði seðla-
bankans hefði ekki verið meiri írá
fjármálakreppunni í ágúst 1998. Þá
hefðu „kröftugar aðgerðir stjómar-
innar“ orðið til þess að meðallaun
landsmanna hefðu hækkað um 25%
og ráðstöfunartekjumar um 8%.
Forsætisráðherrann minntist þó
einnig á vandamálin og sagði að mörg
þeirra yrðu ekki leyst á skömmum
tíma. Hann benti til að mynda á að
framleiðnin í rússneskum iðnaði er
aðeins um 10-25% af framleiðninni í
öflugustu iðnríkjum heims.
Ekki „Pútínisti“
Tilnefning Kasíanovs í forsætisráð-
herraembættið var samþykkt með
325 atkvæðum gegn 55 í dúmunni,
neðri deild þingsins. Leiðtogi Bænda-
flokksins, Níkolaí Kharítonov, sagði
þó að ekki væri hægt að líta svo á að
úrslit atkvæðagreiðslunnar væm til
marks um að Kasíanov nyti mikillar
virðingar í dúmunni. Þingmennimir
hefðu virt val Vladímírs Pútíns og
viljað sýna traust sitt á nýja forsetan-
um.
Kasíanov hefur sjálfur lýst sér sem
„tæknilegum forsætisráðherra“, sem
eigi að hrinda stefnu forsetans í fram-
kvæmd. Hann er ekki einn af Pútín-
istunum svokölluðu, sem forsetinn
hefrn- safnað saman í Kreml og
treystir mest, en flestir þeirra em frá
heimaborg hans, Sankti Pétursborg,
eða störíúðu með honum í sovésku
leyniþjónustunni.
Forðast róttækar umbætur
Á síðustu sex mánuðum hefur Kas-
íanov gefið vísbendingar um hvað
hann hyggist gera til að ná þeim
markmiðum sem Pútín setur. Flest
bendir til þess að hann ætli að forðast
róttækar efnahagsumbætur og Iáta
nægja að grípa til takmarkaðra að-
gerða, þannig að ekki verði hægt að
saka stjómina um aðgerðaleysi. Ann-
aðhvort verður ekkert af þeim rót-
tæku umbótum, sem talað hefm- verið
um, eða að forsetinn verður sjálfur að
knýja þær fram á eigin ábyrgð.
Kasíanov hefur einkum getið sér
orð fyrir árangursríkar samningavið-
ræður við erlenda lánardrottna, en
nokkrir þekktir hagfræðingar í
Rússlandi telja þó að hann hafi aðeins
fylgt fyrirmælum viðsemjendanna.
Eitt af meginmarkmiðum stjómar-
innar er að stuðla að auknum erlend-
um fjárfestingum. Eftir að Borís
Jeltsín lét af embætti forseta um ára-
mótin var stjómin bjartsýn á að er-
lent fjármagn myndi streyma til
landsins, en af því hefur ekki orðið.
Hagfræðingar, sem hafa gagnrýnt
stjómina, segja að í raun hafi enginn
árangur náðst í efnahagsmálum frá
því Jeltsín sagði af sér og rekja efna-
hagsbatann að undanfomu einkum til
verðhækkunar á rússneskum hráefn-
um á heimsmarkaði.
Skortir pólitísk áhrif
Kasíanov hefur þó nokkur spil í
erminni sem gætu hjálpað honum að
ná markmiðum sínum. Hann gæti til
að mynda hafið uppstokkun á stóm
orkufyrirtækjunum og stuðlað að
auknum hagvexti með því að nota
fjármagn þeirra til að styrkja iyrii--
tæki í öðmm greinum atvinnulífsins.
Forsætisráðherrann kann einnig
að beita sér fyrir lögum, sem hafa
verið kölluð „fjármagnssakampp-
gjöf‘, til að hvetja rússneska fjár-
málamenn til að flytja að minnsta
kosti hluta fjármuna sinna í útlöndum
aftur til Rússlands. Þá gæti stjómin
breytt stefnu sinni í utanríkisvið-
skiptum með því að koma á nýjum og
samræmdum innflutningsgjöldum á
erlendar vörar.
Allar þessar aðgerðii- krefjast laga-
breytinga og það er einkum undir
Pútín komið hvort dúman samþykkir
þær - ekki forsætisráðherranum.
Kasíanov er ekki nógu mikill þunga-
vigtarmaður í stjómmálunum til að
geta knúið fram miklar breytingar.
Reyndar virðist forsætisráðherr-
ann h'tið þurfa á róttækum breyting-
um að halda. Samkvæmt hagtölum
stjómarinnar virðist stefna hennar
hafa borið viðunandi árangur þannig
að hún sér enga ástæðu til róttækra
breytinga. Það er miklu auðveldara
að dunda sér við að dytta að
efnahagskerftnu og láta forsetann og
nánustu samstarfsmenn hans um að
hafa áhyggjur af því hvemig koma
eigi á róttækari umbótum.
Tekist á við seðlabankann
Þegar Pútín myndaði stjórnina
lagði hann áherslu á að tryggja að
ekkert eitt stjómmálaafl hefði þar
tögl og hagldir. Hann valdi því ráð-
herra, sem njóta stuðnings óhkra
fylkinga, og það varð til þess að
stjómin er nú skipuð mönnum sem
hafa óbeit hver á öðram.
Þannig hefur t.a.m. borið á óvild
mihi Kasíanovs og Alexejs Kúdríns,
aðstoðarforsætisráðherra og fjár-
málaráðherra, sem tilheyrir „Péturs-
borgarklíkunni".
A meðal annarra óvina forsætisráð-
herrans er Viktor Gerashtsjenko
seðlabankastjóri. Að sögn rússneskra
íjölmiðla er Kasíanov þeirrar skoðun-
ar að ríkisstjómin eigi að fara með
stjóm peningamálanna en ekki seðla-
bankinn. Nái hugmyndir forsætisráð-
herrans fram að ganga er líklegt að
stefnunni í peningamálum verði
breytt, meðal annars þannig að gengi
rúblunnar verði lækkað smám saman
í stað þess að reynt verði að halda því
stöðugu.
Þessi stefna er skynsamleg frá
sjónarhóh stjómarinnar. Haldist
gengi rúblunnar óbreytt þarf stjórnin
að hækka skatta til að ná fram
markmiðum sínum í fjárlögunum.
Gengislækkun kyndir hins vegar
undir verðbólgu sem eykui- tekjur
ríkisins.
Seðlabankastjórinn hefur aftur á
móti reynt að styrkja rúbluna til að
stuðla að auknum fjárfestingum.
Rússneskir fjölmiðlar segja að erf-
itt sé að meta hvor hafi á réttu að
standa, Kasíanov eða Gerashtsjenko.
Ljóst er þó að forsætisráðherrann
hyggst gera allt sem í valdi sínu
stendur tO að hafa betur í deOunni við
seðlabankann.
Kasíanov lýsti því yfir þegar hann
var skipaður forsætisráðherra að
rúblan væri að styrkjast og stjómin
teldi að frekari vöxtur hennar væri
ekki af hinu góða fyrir efnahaginn.
Þeir sem hafa gagnrýnt afstöðu for-
sætisráðherrans og óljósa stefnu
hans segjast aðeins vona að stjómin
telji sér yfirleitt akk í efnahagsvexti í
Rússlandi.
Höfundur er ritstjóri túmirits í
Sankti Pétursborg.
Hvað heitir þú? - hverra manna ertu?
Er ættarmót í
UPPSIGUNGU?
Á stóru ættarmóti er tilvalið að næla nöfn
þátttakenda í barm þeirra. í Múlalundi færð þú
barmmerki fyrir þetta eða önnur tilefni. Einnig
fást þar plastmöppurnar þægilegu fyrir
Ijósmyndirnar.
Hafðu samband við sölumenn okkar
í síma 562 8501 eða 562 8502.
Múlalundur
Vinnústofa SÍBS
Símar: 562 8501 og 562 8502
Krefjast
réttlátari
leikreglna
G-15-FUNDUR leiStoga í Asíu,
Afríku og Rómönsku Ameríku
krafðist þess í gær, að reglumar
um frjáls viðskipti yrðu gerðar
réttlátari og meira tillit tekið til
hagsmuna þróunarríkjanna.
Á fundinum, sem er haldinn í
Kairó í Egyptalandi, sagði Kris-
han Kant, varaforseti Indlands,
að ríku þjóðimar væra með „af-
skiptasamar" kröfur um mann-
réttindi, vinnuvemdarmál og
höfundarrétt og settu það sem
skilyrði fyrir aðstoð, að mai'kað-
ir væra opnaðir.
Kom það einnig fram í máli
margra, að mikO skuldabyrði
gerði fátæku ríkjunum ókleift
að vinna bug á vandamálunum
og gera nauðsynlegar umbætur
í efnahagsmálum.
Christiane
Herzog látin
CHRISTIANE Herzog, eigin-
kona Romans Herzogs, fyrrver-
andi forseta Þýskalands, lést í
gær 63 ára að aldri. Var bana-
meinið krabbamein. Christiane
vai' kennari að mennt en þau
Roman gengu í hjónaband 1958.
Áttu þau tvo syni. Gaf hún út
nokkrar matreiðslubækur og
vann mikið að málefnum barna.
Carlsberg
selur
Tívolíhlutinn
CARLSBERG-braggverk-
smiðjumar í Danmörku hafa
selt allan sinn hlut eða 43% í
Tívolí í Kaupmannahöfn. Er
kaupandinn Skandinavisk
Tobakskompagni, stærsta tó-
baksvörafyrirtæki á Norður-
löndum. Var söluverðið rúmlega
þrír mOIjarðar ísl. kr. en auk
þess ætlar kaupandinn að
ábyrgjast nýja hlutabréfaút-
gáfu upp á 1,8 milljarða króna,
sem eiga að fara í frekari upp-
byggingu á Tívolí. Skemmti-
garðurinn var opnaður 1843 og
er rúmlega átta hektarar. Á síð-
asta ári sóttu hann 3,7 milljónir
manna og var hann þá sá þriðji
íjölsóttasti í Evrópu á eftir
Disney-landi í París og
skemmtigai-ðinum í Blackpool í
Englandi.
Chirac næstur
Milosevic
REFSIAÐGERÐIR Evrópu-
sambandsríkjanna gagnvart
Austurríki hafa haft mikil áhrif
á skoðanir landsmanna á ýms-
um þjóðarleiðtogum. I könnun,
sem birt var sl. föstudag, kemur
íram, að Jacques Chirac Frakk-
landsforseti, sem hefm' verið
mjög andvígur stjórnarþátttöku
Frelsisflokks Jörg Haiders í
Austurríki, er svo óvinsæll með-
al Austurríkismanna, að aðeins
Slobodan Milosevic, forseti
Júgóslavíu, slær honum við
hvað það varðar. Var hann efst-
ur á óvinsældaskalanum með
60% en Chirac með 33%. Vin-
sælastir era Jóhannes Páll páfi
II, Tony Blair, forsætisráð-
herra Bretlands, og Bill Clin-
ton, forseti Bandaríkjanna.
Gerhard Schröder, kanslari
Þýskalands, er ekki vinsæll í
Austurríki þar sem mörgum
finnst sem hann hafi bragðist og
utanrfldsráðherra Belgíu, Louis
Michel, er sá þriðji óvinsælasti.