Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Áhríf skjálftans á vatnsbúskap jákvæð ÞÓ SVO að jarðskjálftinn á laugar- dag hafí valdið tímabundnum truflun- um á vatnsbúskap á Suðurlandi með tilheyrandi tjóni og töfum eru heild- aráhrifin mjög góð íyrir vatnsbú- skapinn, að sögn Ólafs G. Flóyenz, framkvæmdastjóra rannsóknarsviðs Orkustofnunar. Ólafur telur að mestu áhrif skjálftans muni ganga til baka á fáum dögum eða vikum. Eitthvert hlutfall breytinganna verður þó var- anlegt þannig að jarðhitakerfin batna þar sem vatn á greiðari aðgang að hit- anum djúpt í jörðu. Ólafur telur frem- ur ólíklegt að jarðskjálftinn verði til þess að vekja Geysi af dvalanum. Megináhrif jarðskjálfta á vatnsbú- skap eru þau að til verða sprungur sem síðan opna vatninu leið ofan í heita jörðina, jarðskjálftamir búa til jarðhitakerfin og heildaráhrif jarð- skjálfta eru alltaf jákvæð fyrir jarð- hitakerfin, að sögn Ólafs, og gætu jafnvel orðið til þess að lækka hitun- arkostnað húsa á Suðurlandi. Sprungumar stækka og þannig verð- ur leið vatnsins að varmanum djúpt í jörðu greiðari. Ef jarðskjálftamir opnuðu ekki spmngumar aftur og aftur myndi jarðhitinn smám saman hverfa, segir Ólafur jafnframt. Þetta em áhrifin til langs tíma, hundraða þúsunda ára. En skammtímaáhrif jarðskjálftans em þau að þrýstingur vex á ákveðnum svæðum á Suður- landi en fellur á öðram svæðum. Þetta gerist í samræmi við það hvern- ig brotið hreyfist sem myndast við jarðskjálftann, en það gengur til um spmngu. Farið að ganga til baka Ef teiknuð er homrétt lína á lóð- réttar sprungurnar sem mynduðust í skjálftanum á laugardaginn sjást fjórh- fjórðungar (sjá skýringar- mynd). Efri fjórðungur til vinstri, sem og neðri fjórðungur til hægri (bleiklitaðir) sýna svæði þar sem þrýstingur hefur aukist í jarðhita- kerfum og heitt vatn hefur flætt upp úr holum, sums staðar í mjög stómm stíl. En á hinum fjórðungunum tveim- ur (grænlitaðir) em svæði þar sem þrýstingur hefur lækkað og vatn minnkað í holum. En þetta er þó sums staðar farið að ganga til baka, segir Ólafur. Á þeim svæðum þar sem þrýstingur fellur, gerist það að vatns- borð lækkar, og rennsli úr hvemm minnkar, eða þeir hverfa jafnvel, vegna þess að þar hafa opnast spmngur eða holrými í berginu hefur aukist. Við þetta léttir á þrýstingi þannig að vatn flæðir ofan í aukið rúmmál í berginu. Smám saman safn- ast meira vatn í rúmið uns það kemur upp aftur. Ólafur segir að reynslan sýni að þá komi vatn oft upp heitara og meira af því en áður vegna þess að jarðhitakerfið hafi batnað. Til frekari einfoldunai- má líkja bleiku svæðun- um tveimm- við það að svampur sé kreistur þannig að vatnið leki úr hon- um en á grænu svæðunum er eins og takinu sé sleppt á svampinum og hann sogi í sig vatnið. Mestu breytingamar sem hafa orð- ið á vatnsbúskap á Suðurlandi munu að öllum líkindum ganga til baka á nokkrum dögum eða jafnvel vikum, að sögn Ólafs. Hann segir að erfitt sé að spá um hve mikið af þeim breyt- ingum sem skjálftinn olli á vatna- búskapnum muni vara næstu áratugi. Mestu áhrifin muni hjaðna fljótt. Ólafur segir að ef annar öflugur skjálfti verði vestar á Suðurlandi yrðu áhrif á vatnabúskap svipuð. Ef spranga myndaðist í gegnum Hest- fjall þá myndi væntanlega verða þrýstilétting á Skeiðum en við skjálft- ann á laugardag varð þrýstíaukning þar. Það væri hægt að taka skýringar- myndina og færa hana vestar en þetta gildir þó bara um þá tegund jai-ðskjálfta sem nefnist sniðgengi en það einkennir Suðurlandsskjálfta. T I Ý 1 Akbraut '| | I 1 £■ ÍT ' I ? 'Vi. Sprungur og breytingar á vatnsþrýstingi í borholum Hrepphólar Reykir GNÚPV. HR. SKEIÐ m 4 Q pf jr & m Ámes Kaldárholt Skammbeinsstaðir Sprungur á yfirb. ■ ■ ■ Brotalína í jörðu Hærri þrýst. í borholu Lægri þrýst. í borholu 0 5km * Mykjunes ■' HOLT " V.-.í;-'-* . * LAUGALAND i / . 1 ' l I I ‘ a / Kaldakinn f Árbæjarhjáleiga Tíu bj örgunar sveitarmenn frá Reykjavfk til Hellu Þjálfaðir til að fara inn í hálf- hrunin hús TVEIR flokkar björgunarsveit- armanna frá Landsbjörg í Reykjavík, alls tíu manns, að- stoðuðu heimamenn í björgunar- sveitum á Hellu í gærkvöldi við að flytja innanstokksmuni úr skemmdum húsum. Björgunarsveitarmennimir aðstoðuðu fólk við að rýma inn- anstokksmuni úr mjög skemmd- um húsum. Þeir er allir sérþjálf- aðir og geta farið inn í rústir eða hálfhrunin hús. Þegar hafa verið settir fímm 20 feta gámar við nokkur hús á Hellu til að setja búslóðir í og tveimur jafnstórum gámum hef- ur verið komið fyrir í vestursýsl- unni. Sigurgeir Guðmundsson, skólastjóri á Hellu, sem er í björgunarsveitinni á Hellu, sagði við Morgunblaðið í gær- kvöldi að um 20 manns hefðu verið á vegum björgunarsveitar- innar að störfum í bænum. „Þeir verða tiltækir ef fólk óskar eftir aðstoð. Þeir fara ekki inn í hús fyrr en fólkið kallar eftir aðstoð. Það getur verið hættulegt að fara inn í sum húsin, eins og tvílyft hús sem þarf jafnvel að rjúfa veggi til að komast inn í,“ sagði Sigurgeir. Hann átti von á því að tímenn- ingarnir myndu aðstoða áfram á Hellu næstu daga, en kvað þó ekkert ákveðið í þeim efnum. STEYPU @ Steypudælur Nýjar steypudælur spara þér tíma og peninga. Kynntu þér öfluga steypuþjónustu á www.bmvalla.is www.bmvalla.is BMVALLÁ Söltuleild í Fornalundi Breíðhöfða 3 • Sfmi 585 5050 Heimilisfólkið á Brekkum gekk frá búslóð sinni í gær Morgunblaðið/Sverrir Búslóðin - eða það sem bjargaðist úr skjálftanum - var sett í gám á Brekkum í gær. „Óvissan er verst“ HEIMILISFÓLKIÐ að Brekkum, rétt utan Rauðalækjar, var í óðaönn að ganga frá búslóð sinni í gám og flutningabíl þegar Morgunblaðið bar að garði í gærdag. Ibúðarhús þeirra er ónýtt eftír skjálftana miklu á laugardag og margt innan- stokksmuna sömuleiðis. fbúamir, sjö talsins, eru því heimilislausir og hafa haldið til í tjöldum við Rauðalæk. „Óvissan er verst,“ segir Ragn- heiður Jónsdóttir húsfreyja. „Við bíðum enn eftir matsmönnum og vit- um í raun ekki hvað á að gera. Tjón- ið er geysilega mikið, en við vitum ekki hversu mikið. Húsið er ónýtt og maður þorir varla inn,“ bætir hún við. Greinilegt er að áfallið hefúr farið þungt í Ragnheiði og hennar fólk, en þau segjast ákveðin í að standa saman og huga að endur- bótum um leið og tjónið hafi verið metið. Því segja þau bagalegt hve biðin eftir mati reynist löng. Fjölskyldunni hefur verið boðið húsnæði á tveimur stöðum til bráða- birgða, f bústað við fískeldisstöðina að Fellsmúla í Landsveit og í skóla- húsinu að Laugalandi, en hugnast báðir staðir litt til langframa, enda um talsverða vegalengd að ræða. „Við björgum okkur næstu daga. Svo tekur uppbyggingin við.“ Morgunblaðið/Sverrir Hafdis Ágústsdóttir með bangsann sinn í fanginu við Brekkur í gær. Móðir hennar, Ragnheiður Jónsdóttir, situr að baki henni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.