Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 60
50 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
y
Morgunblaðið/Arnaldur
Biskup afhendir borgar-
stjóra minnisvarða
BISKUP íslands, herra Karl Sigur-
björnsson, afhenti á föstudag Ingi-
björgu Sólrúnu Gísladóttur, borg-
arstjóra Reykjavíkur, minnisvarða
um hinn forna Víkurkirkjugarð á
horni Aðalstrætis og Kirkjustrætis.
Þar var kirkjugarður Reykvíkinga
frá upphafi kristni til ársins 1838
þegar Hólavallakirkjugarður við
Suðurgötu var vígður.
Minnisvarðinn er gerður úr
þremur stórum steinum sem á eru
höggnar lágmyndir og eiga þær að
minna á sögu staðarins. Páll Guð-
mundsson, myndhöggvari frá
Húsafelli, vann minnisvarðann en
skipulagsnefnd kirkjugarða stóð að
gerð hans.
Nýr formaður Lands-
sambands veiðifélaga
AÐALFUNDUR Landssambands
veiðifélaga, sem eru samtök veiði-
réttareigenda innan vébanda veiðifé-
laga um land allt, var haldinn á
Laugai’vatni dagana 9. og 10. júní sl.
Við stjómarkjör lét nú af starfí
formanns, að eigin ósk, Böðvar Sig-
valdason, sem gegnt hafði því starfí
sl. 18 ár og voru honum þökkuð mikil
og góð störf í þágu Landssambands-
ins og hagsmunamála veiðiréttareig-
enda. I stað Böðvars var Óðinn Sig-
þórsson, Einarsnesi, kjörinn for-
maður til þriggja ára, en aðrir í
stjóm era Magnús Ólafsson, Sveins-
stöðum, Bragi Vagnsson, Burstafelli,
Sigurjón Valdimarsson, Glitstöðum
og Kjartan Helgason, Haga.
Ýmsar ákvarðanir voru samþykkt-
ar á fundinum og bar þar hæst álykt-
un varðandi sjókvíaeldi á laxi hér við
land, sem fundurinn taldi hættulegt
villtu laxastofnum okkar, og háskann
þeim mun meiri sem eldisfiskurinn
væri fjarskyldari innlendum stofn-
um. Þá skipti ekki máli hvar við land-
Kvöldgöngur
með höfnum
í KVÖLD, miðvikudagskvöld á sum-
arsólstöðum, stendur Hafnagöngu-
hópurinn fyrir fyrstu ferðinni í röð
gönguferða um hafnir höfuðborgar-
svæðisins.
Farið verður frá Hafnarhúsinu,
Miðbakkamegin, kl. 20 út á Faxa-
garð og í stutta heimsókn um borð í
frönsku gólettumar og ms. Nord-
west. Að því loknu verður val um að
aka suður á Hvaleyrarholt við Hafn-
arfjarðarhöfn og ganga þaðan vestur
með höfninni. Síðan verður ekið til
baka að Hafnarhúsinu við Reykja-
víkurhöfn. Allir velkomnir.
Á gönguferðinni verður minnt á að
samkvæmt fornum heimildum voru
það þeir Herjólfur, Hrafna-Flóki og
skipverjar hans og þeir Karli og Víf-
ill í leit að öndvegissúlum Ingólfs
sem fyrstir manna gengu með
strönd höfuðborgarsvæðisins.
ið kvíarnar væra settar. Bent er á í
greinargerð, að reynsla annarra
þjóða við norðanvert Atlantshaf
sýndi glögglega að sjókvíaeldi fylgdi
aukin hætta á margskonar smiti frá
eldisfisknum til villtra stofna og væri
bæði um bakteríu- og veirasmit að
ræða. Sama væri að segja um ýmis-
konar sníkjudýr, sem fjölgaði mjög í
nánd við eldiskvíamar. Síðast en
ekki síst væri óæskileg erfðablöndun
villtum stofnum hættuleg.
Þá ítrekaði aðalfundurinn fyrri
samþykktir sínar um að lokið yrði við
heildarendurskoðun laga um lax- og
silungsveiði. Þá var lýst sérstakri
ánægju með uppkaup laxaneta í sjó
og þeim aðilum sem að því unnu
þakkað. Gerð var krafa um að Fiski-
ræktarsjóði yrðu tryggðar tekjur af
sölu á raforku til nýrra stórnotenda,
eins og gilt hefur um aðra raforku-
sölu. Þá taldi aðalfundur samtaka
veiðiréttareigenda sjálfsagt að for-
ræði samskipta okkar við NASCO,
N orður- Atlantshafslaxvemdarstofn-
unina, yrði hjá fagráðuneyti veiði-
mála (landbúnaðarráðuneytinu) í
stað utanríkisráðuneytisins.
-----------------
Fræðslufundir
um áhrif áfalla
RANGÁRVALLADEILD Rauða
kross íslands heldur fræðslufundi
um áhrif áfalla á fólk á Laugalandi
fyrir Holta- og Landsveit á miðviku-
dag kl. 16 og í grannskólanum á
Hvolsvelli á fimmtudag kl. 20.
Fundimir era opnir öllum íbúum
Rangárvallasýslu og öðram sem
áhuga hafa.
Rætt verður um áhrif áfalla á
böm, unglinga og fullorðna og
hvemig hægt sé að bregðast við
þeim.
Fjöldahjálparstöð Rauða krossins
verður starfrækt á Hellu næstu daga
frá kl. 9-21. Fólk er hvatt til að leita
þar aðstoðar. Hægt er að bóka viðtöl
við sálfræðinga í síma fjöldahjálpar-
stöðvarinnar.
||i
:i n ( ;.sk( ) r
*-. / /
Stúdentamyndatökur
Nethyl 2, sími 587 8044
Kristján Sigurðsson, Ijósmyndari
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Fiskiskútur
1900-1922
MIG vantar upplýsingar
um fiskiskútur sem gerðar
voru út til fiskveiða frá Is-
landi árin 1900-1922. Mig
vantar upplýsingar um
nokkur skip vegna útgáfu á
nýju skipstjóra- og stýri-
mannatali.
Sigurgísli Sigurðsson
sími 554-0418.
Umferð í Fossvogs-
kirkjugarði
ÉG fór í Fossvogskirkju-
garðinn um daginn. í garð-
inum var mikið af fólki og þó
sérstaklega ungu fólki. Það
var mikil bílaumferð þama
þennan dag og keyrt frekar
hratt inn á milli gatnanna
hjá leiðunum. Mér finnst að
það mætti takmarka um-
ferðina þama á milli leið-
anna og hafa hliðið lokað.
Inga Ingóifsdóttir.
Vantar Þorgeir á
Þingvöll
NÚ Á AÐ minnast þess
merkisatburðar að liðin eru
þúsund ár frá kristnitök-
unni og þess era sjálfsagt
engin dæmi að heil þjóð
hafi öll skipt um trú á ein-
um og sama deginum. Þeg-
ar flokkur kristinna manna
kom á Þingvöll árið 1000
voru ásatrúarmenn þar fyr-
ir og í þeirra hópi var Þor-
geir goði, sá er gerði sátta-
gerðina sem allir sættust á.
Nú ætla ásatrúar menn að
minnast þessara atburða
og halda þing á undan hin-
um og vera farnir frá Þing-
völlum áður en þeir kristnu
koma og eru víst allir sáttir
við það en það er bara eitt
að ásatrúar menn mega alls
ekki nota klósett kristinna
manna. Þó er ljáð máls á
því ef þeir borga nógu vel
íyrir það. Alltaf freista þeir
silfurpeningarnir. Ríkis-
sjóður borgar fyrir þá
lóástnu svo þeir þurfa ekki
að borga neitt. Állir lands-
menn borga með sköttum
sínum og ásatrúarmenn
eins og aðrir. Nú vantar
bara sáttargerðarmann
eins og Þorgeir til að leysa
málin svo báðir geti haldið
sín þing til að minnast
þessa merkisatburðar svo
sómi sé að og allir verði án-
ægðir. Þess mættu nú
kristnir menn minnast að
þegar tekið var við trúnni
fylgdi það sem kallað hefur
verið lífsreglan gullvæga,
en Jesús sagði ..allt sem
þér viljið að aðrir menn
gjöri yður það skuluð þér
og þeimgjöra.
Guðmundur Bergsson
Sogavegi 178,
Reykjavík.
Tapað/fundið
Hefúr þú fundið
grátt hnöttótt nisti
á leðursnúru?
LAUGARDAGINN 17.
júní sl. týndi ég silfurnisti,
líklega í miðbænum eða
vesturbæ Reykjavíkur.
Þetta er gráleitt hnöttótt
nisti með mattri áferð. Það
er blómamynstur öðru
megin og hægt er að opna
það. Inni í nistinu eru tvær
myndir. Þetta nisti er mér
mjög kært og bið ég finn-
anda um að hafa samband
við Önnu í síma 695-5890.
Fundarlaun í boði.
Barnabflstóll
o g dýna
BARNABÍLSTÓLL und-
an einu barni og dýna fæst
gefins. Upplýsingar í síma
553-5901.
Gsm sími fannst
GSM sími fannst á Lauga-
vegi helgina 10-11. júm' sl.
Upplýsingar í síma 868-
9938 á milli kl. 15-19.
Grátt ennisband
tapaðist
GRÁTT ennisband úr
þvottabjarnarskinni með
þverröndóttu skotti tapað-
ist annað hvort í Úthlíð í
Biskupstungum eða í
Garðabæ í vetur. Ennis-
bandið hefur sennilega fok-
ið úr bílnum. Ef einhver
hefur fundið ennisbandið er
hann vinsamlegast beðinn
að hafa samband í síma
565-6224.
Sérsmíðaður
hringur tapaðist
SÉRSMÍÐAÐUR karl-
mannsgullhringur tapaðist
í mars sl. einhvers staðar á
Reykjavíkursvæðinu.
Hringurinn er kantaður
og stafirnir HG eru upp-
hleyptir ofan á plötu á
hringnum. Hringsins er
sárt saknað. Upplýsingai- í
síma 552-0338 eða 854-
7900.
Gullúr
tapaðist
GULLÚR með stórri skífu
tapaðist, sennilega við
Glæsibæ, Laugarásveg eða
Barðastaði í Grafarvogi.
Eigandi úrsins er fullorðin
kona og sér hún mikið eftir
úrinu. Fundarlaun. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband í
síma 863-4456.
Gulur bakpoki
tapaðist
GULUR bakpoki fullur af
nýjum fötum tapaðist á
horni Bræðraborgarstígs
og Öldugötu. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að
hafa samband í síma 551-
5048 eða 510-1114.
Lítið svart kvenpen-
ingaveski tapaðist
LITIÐ svart kvenpeninga-
veski með öllum skilríkjum
tapaðist annað hvort á
Gauk á Stöng eða í leigubíl
frá BSR aðfaranótt 17. júní
sl. Á veskinu stendur stór-
um stöfum PARÍS. Fund-
arlaun. Upplýsingar í síma
567-7178 eða 698-1178.
Dýrahald
Svört og hvít læða
fæst gefins
TVEGGJA mánaða svört
og hvít læða fæst gefins á
gott heimili. Upplýsingar í
síma 565-1443.
Hefur einhver fundið
Dísarpáfagauk?
DÍSARPÁFAGAUKUR
týndist í Grafarvogi laugar-
daginn 17. júní sl. Hann er
grár á skrokkinn og með
lítinn brúsk á höfði. Ef þið
vitið hvar hann er látið þá
Eh'nu Ástu vita í síma 567-
7864 eða 698-7864.
Gulrauðbröndóttur
köttur hvarf að
heiman
GULRAUÐBRÖNDÓTT-
UR köttur með hvítar lopp-
ur og hvitan smekk fór að
heiman frá sér að Mið-
stræti 4 Reykjavik laugar-
daginn 17. júní sl. Hann er
eyrnamerktur 6006 og
hann er einnig með 61, en
þar stendur Sólblómi. Ef
einhver hefur orðið hans
var vinsamlegast hafið
samband í síma 551-6006.
Kettlingur
fæst gefíns
ÁTTA vikna kettlingur
fæst gefins á gott heimili.
Upplýsingar í síma 567-
5404 eftir kl. 16.
Kettlingar
FJÓRIR átta vikna, kassa-
vanir högnar, tveir gulir og
tveir gráir, fást gefins.
Upplýsingar gefa Bergur
eða Ester í síma 564-3947.
Erlendir ferðamenn að hjóla frá Reyðarfirði til Egilsstaða.
Morgunblaðið/Ásdís
Víkveni skrifar...
VÍKVERJI var uppi á miðri Mos-
fellsheiði þegar jarðskjálfta-
kippurinn kom um tuttugu mínútum
fyrir klukkan fjögur á þjóðhátíðar-
daginn. Þar var Víkverji í bíl sínum
og varð einskis var, en var að hlusta á
Bylgjuna, þar sem Þorgeir Ástvalds-
son var að lýsa brottför íslendings úr
Reykjavíkurhöfn. Þá allt í einu hróp-
aði Þorgeir upp yfir sig og lýsti jarð-
skjálftanum. Þannig varð Víkverji
skjálftans var.
I fyrstu virtist þetta ekki vera mik-
ill skjálfti og jarðvísindamenn sögðu
5,3 en einhver sem var við hljóðnema
taldi það allt of lítið og nefndi töluna
7. Það var svo ekki fyrr en erlendar
jarðvísindastofnanir fóra að tilkynna
jarðhræringar á íslandi að talan 6,6
komst í loftið og hinn raunveralegi
styrkur hræringanna kom í Ijós. Það
var í senn klaufalegt og ekki til þess
að styrkja trú fólks á íslenzkum jarð-
vísindamönnum allt það hringl sem
fram kom á fyrstu klukkustundunum
eftir skjálftann um styrk hans og
eyðingarmátt.
XXX
RÉTT fyrir jólin keypti Víkveiji
tvennar buxur á konu sína í
sportvöraverzlun í Kringlunni. Aðrar
buxurnar pössuðu, hinar ekki. Eftir
jólin fór konan svo og ætlaði að
skipta buxunum. Þá fékk hún það
svar, að þar sem buxurnar væru upp-
seldar væri ekki hægt að skipta
þeim.
Sérstaklega athyglisvert. Buxur
sem seljast svo vel að þær era upp-
seldar stuttu eftir að þær era keypt-
ar - þeim verður ekki skipt af því að
þær era uppseldar.
Það þarf vart að taka fram að
hvorki konan né nokkur úr fjölskyldu
hennar mun nokkra sinni fara inn í
búðina og kaupa þar nokkum hlut.
Hve lengi skyldi verzlun með slíkt
hugarfar endast?
x x x
VÍKVERJI er að dútla við garð-
störf í lítilli garðholu sem hann
á, raunar á bezta stað í borginni verð-
urfarslega séð. Hann hefur gert ít-
rekaðar tilraunir til þess að bæta
grassvörðinn í garðinum með því að
kaupa sér grasfræ og sá í heldur ljóta
bletti eftir að mosi var rifinn upp úr
flötinni. En svo virðist sem grasfræið
fáist ekki til að spíra, ekkert grænk-
ar í blettunum. Getur verið að það
fræ sem gróðrarstöðvar era að selja
sé dautt? Spyr sá sem ekki veit, en
heldur er þetta skrítið, að ár eftir ár
skuli fræið ekki spfra.