Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Djass á tónleikum
Bláu kirkjunnar
TRÍÓ Ólafs Stephensen leikur í
kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30 í
tónleikaröðinni Bláa kirkjan á
Seyðisfirði. Þetta eru fyrstu tón-
leikarnir í tónleikaröðinni sem hald-
in er nú í þriðja sinn á Seyðisfirði.
Gestur með tríóinu er Ed Nyholm
Debess, bassaleikari frá Færeyjum.
Tríó Ólafs Stephensen er skipað
Tómasi R. Einarssyni bassaleikara,
Guðmundi R. Einarssyni trommu-
og básúnuleikara og Ólafi „djass-
píanista“ Stephensen.
Flutt verður m.a. hefðbundin
djasstónlist, sem hefur stundum
verið kennd við New York-borg
sjötta áratugarins. Þeir bregða oft
á leik og spila þá þjóðlög, sálmalög
og sönglög.
Ed Nyholm Debess er kunnur í
Færeyjum, á íslandi og víðai' og
þeir Tómas munu spila saman
bassadúetta.
Miðar á tónleikana fást á skrif-
stofu Bláu kirkjunnar, Ránargötu 3
á Seyðisfirði, og í kirkjunni fyrir
tónleikana. Aðgangseyrir er kr.
1.000.
Tríó Ólafs Stephensen: F.v. Guðmundur R. Einarsson,
Tómas R. Einarsson og Ólafur Stephensen.
Eðalpennar ehf.
Merktir þýskir pennar
17 kr. stk. án vsk.
Tilboðsverð:
5000 stk. 17 kr.
1000 stk. 26 kr.
Merkiflötur á penna eða klemmu.
Verð er með merkingu í einum iit án vsk.
Eðalpennar er sérhæft í söiu á merktri auglýsingavöru.
Sími 695 3410, netfang meyerl ©simnet.is
heimasíða www.simnet.is/kulupenni/
www.oo.ls
Menningarborgirnar níu
Fleyg orð
grafin
í grjót
REITUR sem tileinkaður er samvinnu menn-
ingarborganna níu árið 2000 verður vígður í
almenningsgarði í Avignon í Frakklandi í
dag. Verður þar að finna níu stóra steina
helgaða borgunum en f hvern þeirra er
höggvin tilvitnun í skáld frá viðkomandi
landi.
íslenska skáldið er Halldór Laxness og eru
orðin sótt í skáldsögu hans Kristnihald undir
jökli: „Sá sem ekki lifir í skáldskap, lifir ekki
af hér ájörðinni."
Hver tilvitnun er bæði á frönsku og móður-
máli skáldsins en auk hennar er nafn viðkom-
andi menningarborgar grafið í steininn.
Steinamir munu standa áfram að menning-
arborgarári loknu í garðinum, Le Jardin des
Neuf Damoiselles, til minningar um sam-
vinnu borganna níu.
Morgunblaðið/Halldór B. Runólfss
Frá sýningu FOS í Gallerí Oneoone.
Félags-
hönnun
MYIVDLIST
fiallerf Oneoone,
Laugavegi 48b
skipan &
MYNDBANDFOS
Til 27. júní. Opið á verslunartíma
FÉLAGSLEG þróun listsköpun-
ar er stöðugt að sækja í sig veðrið.
Sjálfsagt er það afleiðing æ aug-
ljósari viðleitni listamanna til að
viða að sér föngum úr mannlífinu
kringum sig. Segja má að þau um-
skipti sem urðu með impressjón-
ismanum á ofanverðri nítjándu öld
hafi keyrt listina rakleitt til sam-
tímans. Margir impressjónistanna
þoldu ekki akademískar tilvísanir í
fornöldina - grísk-rómversk minni
voru eitur í beinum Manet, sem
taldi klassíska list úrelta og einskis
megnuga - og heimtuðu að menn
beindu augum að mannlífi líðandi
stundar. Þeir Manet og Degas
leiddu þessa litlu byltingu eftir að
sá fyrrnefndi var búinn að sýna hin-
um fram á fáfengileik klassískrar
skírskotunar.
Síðan hefur myndlistin verið
snöggtum tengdari lífinu á líðandi
stund en flest það sem búið var til á
öldunum áður. Þolinmæði nútíma-
mannsins gagnvart sígildum sann-
indum, lögmálum og goðsögnum er
nánast horfin. Hann tekur allt tal
um hefðir og venjur sem hreina
móðgun við sig og samtíð sína því
hvað sem öðru líður þá finnst okkur
sem nú erum uppi - hversu mikil
sem óáran heimsins kann að vera;
stríð; morð; kúgun; nauðganir og
annað svínarí - sem við lifum betri
og bjartari tíð en allar kynslóðir
fyrri alda.
Danski listamaðurinn FOS, sem
fæddur er 1971, er af þeirri kynslóð
sem keyrir hinar félagslegu hliðar
listarinnar á nýjar og róttækar
brautir.
Bæði er að hin rómantíska hug-
mynd um listamanninn sem ein-
stæða manngerð með snilligáfu,
telst ekki lengur vera mjög frumleg
eða spennandi. Ungir listamenn
virðast heldur ekki vera eins áfram
um að skilja sig frá samferðamönn-
um sínum. Þá má geta þess að Dan-
ir hafa löngum átt prýðilega lista-
menn af félagslegu gerðinni.
FOS kallar list sína félagslega
hönnun - social design - og byggir
hana á aðstæðum sem hann virkjar
hvar og hvenær sem er. Hugmynd-
in er að gera
hvaða umhverfí
sem vera skal fé-
lagsvænt með
sem nærtækust-
um meðölum.
Fallegt um-
hverfi eða list-
rænt er þar sem
fólki líður vel og
lætur hrífast af
samneyti við
aðra. „Between
the blaek
house“, kallar
hann skipanina í
Oneoone. Hún
er sumpart
spunnin af fingr-
um fram, kring-
um föst atriði
svo sem mynd-
band, en mynd-
bandsvarpinn
hangir í tilbún-
um trjálundi
innan um tvær
áprentaðar
skyrtur.
Svæðið er af-
girt og hálf-
rökkvað með
kartonpappa, en
á veggjunum
hanga um-
breyttar myndir
og annað veggjaskraut, svo sem
hitapera. Ofan úr loftinu gengur
ljósakróna í grafískum hauskúpust-
fi. Ósjálfrátt verður manni hugsað
til Franz West og skapandi innan-
hússarkitektúrs hans. FOS er þó
snöggtum tískuskotnari í vali sínu
og smíði á innanstokksmunum.
Skipan hans er á stundum smituð af
ákveðnum þungarokksbrag en sem
betur fer eru aðrir hlutar nægilega
persónulegir og óræðir til að vega
móti þreytulegum klisjum vestræns
dægurkúltúrs. Alltént sannar skip-
an hans í Oneoone að hér er á ferð-
inni eftirtektarverður og hugmynd-
aríkur listamaður.
Halldór Björn Runólfsson