Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Skóflu-
stunga tekin
að stækkun
íþróttahúss
Vestmannaeyjum - Laugardaginn
17. júní sl. var tekin skóflustunga
að stækkun iþróttahússins í Vest-
mannaeyjum.
Það voru fulltrúar aðildarfélags
ÍBV ásamt Guðjóni Hjörleifssyni
bæjarstjóra og Birgi Sveinssyni,
varaformannai ÍBV, sem tóku
skóflustunguna í blíðskaparveðri á
þjóðhátíðardaginn.
Fulltrúar félaganna voru Guðni
Davíð Stefánsson frá Ægi, Eva Brá
Barkardóttir frá Golfklúbbi Vest-
mannaeyja og Margrét Lára
Viðarsdóttir.
ŒkZdmr
Morgunblaðið/Sigurgeir
Grindavík
> --------------
Uthlutun lóða
í nýju hverfí
Grindavík - Það var fjölmenni sem
mætti á bygginganefndarfund í
Grindavík enda lóðalottó í gangi. Slík
var ásóknin í sumar lóðirnar að
draga þurfti um hver fengi hvaða lóð.
Alls var úthlutað 29 lóðum á þess-
um fundi af 52 lóðum í nýju bygg-
ingahverfi. Lóðin sem var vinsælust
voru 9 umsækjendur um hana og að
sögn Sigurðar Agústssonar, for-
manns bygginganefndar, er þetta
harla óvenjulegt. „Það fór meira en
helmingur lóðanna á fyrsta fundi í
þessu nýja hverfi. Nú er unnið hörð-
um höndum að nýju aðalskipulagi
fyrir Grindavík. Næsta hverfi sem
verður deiliskipulagt verður austan
Víkurbrautar, þannig að byggðin fer
í austur í átt til Þórkötlustaða," sagði
Sigurður.
Morgunblaðið/Garðar P. Vignisson
Kjartan Adólfsson, ritari byggingarnefndar, dregur nafn úr körfubolta-
bikar að viðstöddum umsæiqendum.
Fróði opnar deild
á Egilsstöðum
Egilsstöðum - Fróði hf., tímaritaút-
gáfa, hefur opnað deild á Egilsstöð-
um og ráðið til starfa sölufólk í tíma-
ritaáskrift.
Búið er að leigja húsnæði undir
starfsemina og sölufólk hefur þegar
tekið til starfa eftir að hafa verið
undirbúið í grunnatriðum sölustarfa.
Deildin er útibú sölu- og þjónustu-
deildar fyrirtækisins og auk sölu í
tímaritaáskrift mun starfsfólkið
selja stærri verk sem fyrirtækið gef-
ur út. Helstu tímarit Fróða eru Nýtt
líf, Mannlíf, Hús og híbýli, Gestgjaf-
inn, Vikan og Séð og heyrt. Magnús
Hreggviðsson, framkvæmdastjóri
Fróða, sagði verkefni þetta vera til-
raun sem metin verður eftir eitt ár.
Deildarstjóri Fróða á Egilsstöðum
er Aðalsteinn Hákonarson.
Óvenjulegt hreiðurstæði skógarþrastar á Blönduósi
Lada Sport varð fyrir valinu
leg hegðun þrastarins í hvert skipti
sem hann hreyfði bflinn. Ungarnir
urðu tveir og ákvað Unnar að að
hvfla bflinn uns ungarnir væru
komnir á legg.
„Maður verður að koma fjöl-
skyldunni á legg áður en maður fer
út að aka,“ sagði Unnar Sæmundur
nokkuð sáttur við nýja nágranna.
fSk.
sstjK^Sí
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Ekki virðist koma að sök þótt
þrastarhreiðrið sé á bflvél.
Blönduósi - Unnar Sæmundur
Friðlaugsson var heldur betur
undrandi þegar hann áttaði sig á því
að skógarþröstur hafði verpt undir
vélarhlífinni á Lödu Sport bifreið
hans. Hann uppgötvaði þetta ekki
fyrr en þrösturinn tók á móti hon-
um eftir eina ökuferðina á bflnum.
Fuglinn hoppaði strax upp á vinstra
framhjól Lödunnar og kom sér inn í
vélarrúmið og lagðist á eggin.
Unnar Sæmundur sagði í samtali
við Morgunblaðið, að hann hefði að
minnsta kosti farið þrisvar sinnum
á bflnum út í bæ eftir að fuglinn
hefði verpt án þess þó að vita af
hreiðrinu. Eftir að han fann hreiðr-
ið rifjaðist upp fyrir honum undar-
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Unnar Sæmundur Friðlaugsson virðir fyrir sér hreiðrið sem þröstur
hafði búið sér undir vélarhlíf Lödu-bifreiðar hans.
Fyrsta áfanga sigling-
ar íslendings lokið
Stykkishólmi - Víkingaskipið ís-
lendingur sigldi inn í höfnina í
Stykkishólmi um klukkan 14 hinn 18.
júní. Siglingin hófst frá Reykjavík
17. júní og var lagt af stað kl. 16 og
tók siglingin til Stykkishólms 22
tíma.
Veðrið á leiðinni var á köflum of
gott. Fyrri hluta leiðarinnar var
vindur hægur og var siglt undir segl-
um og gekk skipið um 4 sjómílur en
eftir miðnætt gerði logn og var grip-
ið til þess ráðs að setja vél bátsins 1
gang og var siglt undir vélarafli það
sem eftir var leiðinnar og var gangur
þess um 8 sjómflur.
Bæjarbúum hefur gefist kostur á
að skoða skipið og vekja tveir úr
áhöfn skipsins athygli unga fólksins,
en það eru tveir hrafnar sem munu
aðstoða við að rata rétta leið yfir Atl-
antshafið.
Víkingaskipið fór héðan til Búðar-
dals í gær, þriðjudag, og þaðan mun
siglingin yfir Atlantshafið hefjast og
verður fyrst haldið til Grænlands
eins og Eiríkur rauði gerði fyrir
meira en 1000 árum.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
Sölufólk Fróða á Egilsstöðum var bjartsýnt á að ný deild á Egilsstöðum skilaði þeim árangri sem vænst er til.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Amason
Víkingaskipið íslendingur siglir inn í Stykkishólmshöfn og þar með
lauk fyrsta áfanga og gekk siglingin frá Reykjavík vel.
Leitin að íþróttaálfínum
Bolungarvík - Íþróttaálfurinn týnd-
ist í Bolungarvík nýlega og hófu
fjölmargir bæði fullorðnir og böm leit
að honum uppúr hádegi sl. laugar-
dag, í formi ratleiks. Þátttakan var
mikil og sýndi að Bolungarvík er ekki
„Latibær". íþróttaálfurinn fannst svo
nokkru síðar þar sem hann var við
íþróttaiðkun sína í íþróttahúsinu Ár-
bæ. Þegar íþróttaálfurinn var fund-
inn dreif hann leitarfólkið með sér út í
góða veðrið og hélt uppi stífum leik-
fimisæfingum í góðan klukkutíma.
Hér var um að ræða hluta úr einni
af þeim heilsudagskrám sem efnt
verður til öðru hverju allt þetta ár
undir slagorðinu „Bolungarvík
heilsubær á nýrri öld“.
Af því tilefni var Magnús Seheving
í heimsókn í Bolungarvík þar sem
hann hélt fræðslufundi íyrir unga
Morgunblaðið/Gunnar Hallsson
íþróttaálfurinn í góðum félagsskap hressra krakka frá Bolungarvík.
sem aldna, auk þess að bregða sér í
hlutverk íþróttaálfsins sívinsæla.
Dagskránni lauk svo með grill-
veislu í góða veðrinu.