Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 45 vmaböndum þeim er hún vann hjá eða með. Mikilvægust var henni þó nálægðin við Kristján. Var hún syni sínum mikill styrkur. Það var henni mikið lán er hún kynntist Jóni Bjarna Ólafssyni í október 1994. Upp úr því hefja þau búskap á Kveldúlfsgötu 22 í Borgarnesi. Attu þau hamingjurík ár saman. Jón, sem sjálfur hafði gengið í gegnum mikla sorg, gat þó gefíð henni mik- inn styrk er hún þurfti svo á að halda í tvísýnni baráttu Kristjáns sem lést í mars 1997. Er það mat barna hennar að án Jóns hefði hún vart komist í gegnum þær raunir. Eru börn hennar þakklát fyrir það. Jón og Anna giftu sig 19. maí 1997. Þann dag hefði Kristján orðið fertugur hefði hann lifað. Mamma var myndarleg kona. Eftir því var tekið hversu smekkleg hún var og vel til höfð. Hún var snyrtileg fram í fingurgóma. Hún átti auðvelt með að ná til fólks þótt hún væri ekki allra og var sterkur persónuleiki. Hún hélt fast í hvert það vinarband er hún bast. Hún var gestgjafi góður, myndarskapur hennar var mikill er kom að heimil- isverkum hvers konar. Hún var hög í höndum og hafði mjög næmt auga fyrir hvers konar fegurð. Eftir hana liggja margar fallegar hannyrðir. Hún var hagsýn og bjó yfir mikilli skipulagshæfni. Hún var glaðlynd, hafði gott vald á samræðulistinni og skemmtileg heim að sækja. Hún bjó yfir skáldagáfu, átti til að setja saman ljóð en oftast var það þó gert til að létta henni erfiðar stundir. Látum við íylgja hér lítið ljóð er hún orti að syni sínum látnum: Sígræn blöð þér breiði björt í fegurri heimi. Mildur blær í meiði minningu þína geymi. Mamma hafði gott minni og minnumst við börn hennar þess er setið var löngum stundum við að hlýða á er hún sagði sögur frá bernskuárunum fyrir vestan, er hún sagði frá síbreytilegri veðrátt- unni, fólkinu og lífinu á þessum harðbýla landshluta. Sögurnar frá Hnífsdal, ísafirði eða úr Arnardaln- um voru henni kærar. Hún gleymdi aldrei rótum sínum og var alla tíð mikill Vestfirðingur. Hún unni gróðri og var mikill náttúruunnandi og hafði gaman af ferðalögum. Mamma var ekki einungis góð móð- ir. Hún var og góð amma. Hún átti auðvelt með, og gerði sér far um, að ná vel til barnanna. I henni áttu þau góðan félaga sem þau sóttu í að koma til og vera hjá. Hláturmildi hennar og léttleiki laðaði þau að henni. Þau hafa nú misst góða ömmu. Hún gekk í ömmu stað barnabörnum Jóns. Er honum og börnum hans ofarlega í huga ein- lægt þakklæti til hennar. 1 janúar sl. fékk hún heilablóðfall. Hún barðist við að ná heilsu sinni að nýju. Um tíma leit út fyrir að hún hefði náð undirtökunum en raunin varð önnur. Við viljum koma á framfæri þakklæti til þeirra er önn- uðust hana á Sjúkrahúsi Reykjavík- ur, Grensásdeild og Sjúkrahúsi Akraness. Hvarvetna var leitast við að létta henni erfiðar stundir. Var það okkur, fjölskyldu hennar, ómet- anlegt. Við viljum að lokum þakka góðri móður allt það sem hún hefur verið okkur á vegferð okkar. Megi náð og friður fylgja henni. Börnin. Elsku Lóa amma, nú ertu komin til pabba. Okkur langar að kveðja þig með þessu ljóði sem ort var á dánarbeði hans. Enn einndaginnfæégnú, í þeirri von og trú. Að ég muni aftur snúa og á lífíð aftur trúa. Trúa á sumar, sem áður sjálfsagt var ogégvarþar. Égvilsjáaftursumar. Marga daga gafstu mér, Þá er þakka vil ég þér. Þeir færðu mér gæfu og gengi, þó ei yrði nógu lengi. En þú veist, að ég treysti bara’á þig. Þú leiðir mig. Vilt þú mér sýna sumar. Ég veit ég hefði gefið allt, í það er aldrei verður falt. Að fá þess meir að njóta, og lengri dags að hþóta. Mega ljúka, því sem aðeins mér var fært ogmérvarkært. Mér finnst ég sjái sumar. Ég horfi inn í himnasal, á iðgræn engi, fagran dal. Ég lít inn í ljóssins veldi, upplýst sólareldi. Ég sé til þín, upp við fjallsins háu skör. Núhefstmínfór. Ég ferðast inn í sumar. Faðir lífsins, faðir minn. Égtilþínerkominn inn. Kominn til að sýna, og lát dæma ævi mína. Til að þakka, allt sem hef haft frá þér. Ég þakka þér. Ég bý við eilíft sumar. (Eyþór Eðvarðsson.) Guð geymi og varðveiti sálu þína. Hinsta kveðja. Ingvar, Ómar og Anna Ólöf. Mig langar að minnast systur minnar, hennar Lóu, eins og hún var kölluð í systrahópnum en við vorum sjö systurnar og var hún elst. Það er stórt skarð komið í þennan systrahóp við fráfall henn- ar. Lóa var sterkur persónuleiki og vinamörg manneskja. Þegar góður einstaklingur fellur frá þá myndast einskonar tómarúm. Það tómarúm verður ekki bætt, en góðar minningar lifa. Elsku systir mín, ég vil þakka þau ár sem ég fékk að vera með þér bæði í sorg og gleði. Sorgin verður aldrei umflúin, það hefur fjölskylda þín fengið að reyna þar sem þrír drengir af sjö börnum þínum voru farnir á undan þér yfir móðuna miklu. Þar hafa þeir tekið á móti þér, elsku Lóa mín. Ég veit að nú líður þér vel þar sem þú ert hjá þeim. Ég kveð þig að sinni með eftirfarandi Ijóði og bið Guð að styrkja ástvini þína. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. þig umvefji blessun og bænir, égbið að þú sofirrótt. Þó svíði sorg mitt hjarta, þásælterað vitaafþví þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfrn úr heimi éghittiþigekkium hríð, þín minning er ljós sem lifir oglýsirumókomnatíð. (Þórunn Sig.) Guð blesíji þig, elsku systir mín. Þín systir, Fríða. Elsku Lóa, mig langar að kveðja þig með þessum örfáu orðum: Við sjáum að dýrð á djúpið slær þó degi sé tekið að halla. Það er eins og festingin færist nær ogfaðmijörðinaalla. Svo djúp er þögnin við þína sæng, aö þar heyrast englar tala, og einn þeirra blakar bleikum væng, svo brjóstið þitt fái svala. Nú strýkur hann barm þinn blítt og hljótt, svo blaktir síðasti loginn. En svo kemur dagur og sumamótt, og svanur á bláan voginn. (Davíð Stef.) Kærri systur þakka ég samfylgd- ina og væntumþykju í minn garð og fjölskyldu minnar. Ég veit að þú hefur fengið góðar móttökur hjá drengjunum þínum á þessari stundu og er það huggun harmi gegn að þið eruð saman á ný. Ást- vinum þínum bið ég guðs blessunar. Hvíl þú í friði. Þín systir, Guðrún. Með þessum erindum viljum við kveðja þig og biðja guð að styrkja ástvini þína: Sárt er frænku að sakna, sorgin er djúp og hljóð. Minningar mætar vakna, svo var þín samfylgd góð. Daprast hugur og hjarta, húmskuggi félli á brá. Lifir þó ljósið bjarta, lýsir upp myrkrið svarta, frænku þó félli frá. Góðar minningar geyma, gefur syrgjendum fró. Til þín munu þakkir streyma, þér munum við ei gleyma, sofðu í sælli ró. (höf.ók.) Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynn- ast þér. (Ingibj. Sig.) Elsku frænka, Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Nanna Ragna, Gunnar Magnús, Þór Reykfjörð og Vernharður Oskar. + Innilegar þakkir til allra, er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, GUÐRÚNAR STEINUNNAR KRISTJÁNSDÓTTUR ijósmóður frá Bæ. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Sólvangs fyrir einstaklega góða umönnun og öll elskulegheit henni auðsýnd. Snorri R. Jóhannesson, Guðrún Hafliðadóttir, Jóhann G. Jóhannesson, Sóley Sveinsdóttir, Kristjana G. Jóhannesdóttir, Hjalti Einarsson, barnabörn og barnabarnabörn. SIGURÐUR JÓNSSON + Sigurður Jóns- son fæddist 4. aprfl 1928. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 13. júní síð- astliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jón Ólafsson, bóndi á Syðri-Björgum á Skaga, f. 28.9. 1894, d. í ágúst 1985, og Sigurbjörg Jónsdótt- ir húsfreyja, f. 22.8. 1903, d. 22.9.1993. Sigurður bjó á Syðri-Björgum fram yfir 1960 með for- eldrum sínum. Eftir það stundaði hann ýmis störf á Kefavíkurflug- velli. Þá lagði hann fyrir sig eigin atvinnurekstur þar til heilsan brast. Sigurður var ókvæntur og barnlaus. Útför Sigurðar fór fram frá Kapellunni í Hafnarfirði 19. júní. Sigurður Jónsson frændi minn var ljúflingur. Hann var ákaflega hóg- vær og rólyndur maður og nægju- samur með eindæmum. Hann var aldrei heilsugóður en kvaðst ávallt þokkalegur viki maður orði að heils- unni. Mestalla ævina vann Sigurður við búskap og útræði með foreldrum sínum að Syðri Björgum á Skaga. Þar var stundaður hefðbundinn bú- skapur án mikillar vélvæðingar fram á seinni hluta aldarinnar. Þar dvald- ist undirritaður í sumarvinnu eftir miðbik aldarinnar og kynntist þar búskaparháttum eins og þeir voru í gamla bændasamfélaginu: ekkert vélarafl. En eins og hefur verið saga svo margra fjölskyldna á öldinni lá leiðin úr sveitinni á mölina eins og sagt er. Þau settust að á fallegum stað í Hafnarfirði rétt við Hellisgerði. Þar leið þeim vel. Sigurður fékkst m.a. við hænsnarækt og verslunarrekstur hér á Reykjavíkursvæðinu eins lengi og heilsan lejrfði. Hann var ákaf- lega þrautseigur og hélt út rekstri sínum lengur en margur hefði gert í hans stöðu. Sig- urður var afar sjálfstæður maður. Sigurður las mikið og fylgdist allt- af vel með þjóðmálum og viðskipta- lífinu. Það var gaman að ræða við hann um þau mál því hann sá aðra fleti á þeim en ég sá og hafði oftast mikið til síns máls. Hann var raun- sær og sýndi mikinn skilning á hvemig hagsmunir móta menn. Sig- urður var um árabil félagskjörinn endurskoðandi í fyrirtækjum okkar hjóna og sinnti því starfi af kost- gæfni. Hann var enda talnaglögguiu. og ráðagóður. Sigurður var á sjúkrahúsum síð- ustu vikurnar. Hann bar sig vel áður en hann gekkst undir hjartaaðgerð. Var búinn að sætta sig við að hún væri nauðsynleg. Sú aðgerð gekk ekki upp og lést Sigurður í kjölfarið. Góður drengur er genginn til feðra sinna. Guð blessi minningu Sigurðar Jónssonar. Bjöm Bjarnason. t Ástkær bróðir okkar og föðurbróðir, ÓLAFUR ÞÓRARINN ÖGMUNDSSON, Norðurbrún 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn 23. júní kl. 13.30. Margrét Ögmundsdóttir, Guðný Ögmundsdóttir, Kristín Haraldsdóttir og systkinabörn. §r + Ástkær faðir okkar og tengdafaðir, PÁLL JAKOB DANÍELSSON, áður Tunguvegi 62, Reykjavík, sem andaðist 12. júní, verður jarðsunginn frá Bústaðakikju fimmtudaginn 22. júní kl. 15.00. Daníel J. Pálsson, Ólöf G. Pálsdóttir, Unnur B. Pálsdóttir, Þórir Pálsson, Linda Garðarsdóttir, Gunnar Ottósson, Oddur Helgason, Ásthildur Bynjólfsdóttir. + Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR ÞÓRU MAGNÚSDÓTTUR, Kirkjulundi 8, Garðabæ. Ólafur Kristján Guðmundsson, Guðmundur Þ.B. Ólafsson, Þuríður Kristín Kristieifsdóttir, Magnea Guðlaug Ólafsdóttir, Þórunn Ólafsdóttir, Daníel M. Jörundsson, Magnús Óli Ólafsson, Erla Dís Ólafsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.