Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Við kirkjudyr var þröngt á þingi. Morgunblaðið/BFH Fyrsta guðsþjónustan í elstu kirkjunni Mývatnssveit. Morgunblaðið ÞAÐ var milt og gott veður í Dimmuborgum eftir hádegi síð- asta sunnudag og fólk í litklæðum setti svip á stórbrotið landslagið. Skógurinn er loks kominn í sum- arskrúða og ilmur í vitum eftir smáskúrir morgunsins. Kl. 14 höfðu um 100 manns safnast saman í kirkjunni sem flestir vilja skoða í Borgunum. I hvclfingunni miðri stóð sóknar- presturinn Sr. Örnólfur J Ólafs- son ásamt listamönnunum Sigurði Snorrasyni, Óskari Ingólfssyni, Kjartani Óskarssyni, en allir eru þeir blásarar í Sinfóníunni og Margréti Bóasdóttur, sópran- söngkonu frá Vogum í Mývatns- sveit. Hún er upphafsmaður og aðalhvatamaður að þessari athöfn svo sem mörgu öðru á menning- arsviði hér við Mývatn. Þarna fór nú fram guðsþjón- usta, með hljóðfæraleik, einsöng og almennum söng og sannaðist það sem fyrir löngu hefur eflaust gefið staðnum nafn að þetta er hin ákjósanlegasta hljómleikahöll með hvelfingu sem ekki gefur eft- ir frægum kirkjum stórþjóða, en vissulega mætti með tiltölulega einföldum lagfæringum bæta að- gengi og aðstöðu á þessum stað. Guðsþjónustan var látlaus en há- tíðleg og ekki löng. Einkar gríp- andi var söngur Margrétar á texta úr Lilju; Almáttugur Guð allra stétta við fornt íslenskt lag. Þetta mun vera fyrsta kirkjuat- höfnin í þessari langelstu kirkju landsins. Að athöfn lokinni hurfu kirkjugestir út milli kletta og birkihríslna en eftir stóð kirkjan þögul og bíður næstu athafnar. Vonandi verður það skemmri bið en þau 2000 ár sem liðin eru frá hamfórum þeim sem skópu Dimmuborgir. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Við hátíðarmessuna í Odda rigndi jafnt á réttláta sem rangláta en sumir voru heppnari en aðrir að hafa tekið með sér regnhlíf. Knstnihátíð í Rangár- vallaprófastsdæmi Hellu - Aðalhátíð Rangárvalla- prófastsdæmis í tilefni 1000 ára kristnitöku var haldin á hvíta- sunnudag í Odda og á Hellu. Há- tíðarmessa var haldin utandyra í trjálundi við Oddakirkju, en svo óheppilega vildi til að skömmu fyr- ir messu fór að rigna, en kirkju- gestir létu það ekki á sig fá og tóku þátt í helgihaldinu í ausandi rigningu. Við athöfnina þjónaði sóknar- prestur Oddakirkju, sr. Sigurður Jónsson, fyrir altari, sr. Sigurður Sigurðsson prédikaði og sameinað- ir kirkjukórar Oddaprestakalls sungu, auk þess sem fermingar- börn sem fermdust annan í hvíta- sunnu tóku þátt í athöfninni. Fjöldi manns gekk til altaris og mun vafalaust minnast þessarar sérstöku regnmessu um langa hríð. Að lokinni messunni var flutt vegleg hátíðardagskrá í hinu nýja og glæsilega íþróttahúsi á Hellu, auk þess sem kvenfélagskonur sáu um að reiða fram kaffi og tertur í boði héraðsnefndar Rangárvalla- sýslu. Forseti íslands, hr. Ólafur Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Forseti íslands, hr. Ólafur Ragn- ar Grímsson, var viðstaddur há- tíðarhöldin í Odda og á Hellu. Ragnar Grímsson, flutti ávarp, en síðan mátti fá smjörþefinn af blómlegu menningar- og tónlistar- starfi íbúa sýslunnar, m.a. einsöng, tvísöng, tónlistar- og leikatriði, auk þróttmikils söngs sameinaðra kirkjukóra vestursýslunnar og stúlknakórs Þykkvabæjar. Umhverfísstefna mótuð í Borgarfjarðarsveit Reykholt - Almennur fundur var haldinn á vegum umhverfisnefndar Borgarfjarðarsveitar fyrir helgi. Þar voru kynnt og rædd umhverf- ismál sveitarinnar og aðalskipulag sem er í vinnslu. Eins og víða annars staðar er markviss umhverfisstefna nú óðum að taka á sig mynd í Borgarfjarð- arsveit. Sem aðili að Sambandi ís- lenskra sveitarfélaga, tekur sveit- arfélagið þátt í samstarfsverk- efninu Staðardagskrá 21 og hefur umhverfisnefnd með höndum framkvæmd þessara mála, en for- maður hennar er Þórunn Reykdal. Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin tímabundið sem verkefnis- stjóri Staðardagskrár í sveitarfé- laginu. Hreinsunarátak hefur verið í sveitinni undir yfirskriftinni „Ný sveit - hrein sveit“ og hafa um 60 tonn af brotajárni verið sótt á bæi, ásamt rúllubaggaplasti sem sótt er tvisvar á ári. Verið er að vinna að endurskiplagningu á gámastöðvum og verða sett upp fimm gáma- svæði: á Hvanneyri, í Reykholti, Árbergi, Bæjarsveit og Brautar- tungu. Þessi uppsetning hefst næsta sumar og á að vera lokið á næsta ári. Sú nýbreytni var einnig tekin upp sl. haust að veita árlega umhverfisverðlaun fyrir snyrti- mennsku á bæjum í sveitinni. Móttaka rafgeyma er á fjórum stöðum, við bæina Arnheiðarstaði, Vélabæ, Skarð og Jörva. Á Hvann- eyri er lifrænum úrgangi safnað í sk. moltu til jarðgerðar og fyrir- hugað er hefja kennslu í umhverf- ismálum, sem sérverkefni, í Anda- kílsskóla nú í haust. Meðal annarra verkefna má geta þess að nýlega var tekin í notkun ný kaldavatnsveita á Kleppjárns- reykjum og að verið er að leggja bundið slitlag á götur í Reykholti. Einnig er verið að vinna að gerð aðalskipulags. Staðardagskrá 21 er samþykkt sem felur í sér að virkja fólk og gera það sér meðvitandi um mál- efni sjálfbærrar þróunar. Verkefn- ið hófst í október 1998 og mund standa yfir til áramóta. Samkvæmt kjörorði umhverfisráðstefnunnar í Ríó „hugsaðu hnattrænt, fram- kvæmdu heimafyrir" er þetta meg- ininntakið í þessari vinnu. Að hver lítil eining sé órjúfanlegur hluti af stærri heild í umhverfismálum. Morgunblaðið/Sigríður Þátttakendur í umræðum á fundi umhverfísnefndar njóta kvöldblíðunn- ar í kaffíhléi: Rfkharð Brynjólfsson oddviti, Auður Sveinsdóttir lands- lagsarkitekt, Auður Lilja Arnþórsdóttir, varaform. umhverfísnefndar, Stefán Gíslason, verkefnissijóri Staðardagskrár 21 á landsvísu, Björg Gunnarsdóttir, verkefnisstjóri Staðardagskrár í Borgarfjaröarsveit, Þórunn Gestsdóttir sveitarstjóri og Guðrún Jónsdóttir arkitekt. Alþýðutónlistarhátíð fyrir alla fjölskylduna! Kl. 18.00 Kl. 00.30 Dansleikur Hátíðin sett og hljóðfærum pakkað upp. HljÓmSVeÍtín Tilraunabandið hefur æfingar. /., mo\/n rmr Kl. 19.00 Grill og góð stemmning Kl. 21.00 Tónleikar Gulli Og Maggi (frá Ólafsfirði Tamóra Ólafur Þórarinsson (Labbi í KK og Magnús Eiríks Kl. 16.00 Kaffitímatónlist með Tilraunabandinu. Kl. 17.00 Barnahornið Kí. 18.00 Grill og góð stemmning Kl 21.00 Tónleikar Perluvinir (Kvartett úr Gnúpverjahreppi) Ingvar Valgeirsson trúbador Gulli Og Maggi (frá Ólafsfirði) Blátt áfram Jón á Kirkjulæk Ólafur Þórarinsson Bubbi "eftirherma" Tilraunabandið o fl. Kl. 00.30 Dansleikur Hljómsveitin Mávarnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.