Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 11 FRÉTTIR Morgunblaðið/Þorkell Gerðum okkur ekki grein fyrir umfangi skjálftans STROMPUR féll af þaki íbúðarhúss- ins á Lýtingsstöðum í Holtum í skjálftanum á laugardag, gerði gat á þakið á leiðinni niður og féll djúpt of- an í jörðina fyrir neðan. Allt heimilisfólkið á Lýtingsstöð- um, sem er félagsbú, var statt neðan bæjaiins í Hvammsrétt \ið hátíða- höld ásamt um sextíu sveitungum sín- um þegar skjálftinn reið yfír og Sig- urjón bóndi Eiríksson segir að fólk hafi fundið skjálftann greinilega, en alls ekki gert sér grein fyrir umfangi hans. Sigurjón, sem er bóndi á Ámunda- stöðum en sonur og bróðir húsfreyj- anna á Lýtingsstöðum, segir að ein- hverjir hafí þegar farið að kanna hýbýli sín eftir skjálftann, en margir hafi verið rólegir og haldið hátíða- höldunum áfram. Þegar heim var komið blasti hins vegar ófögur sjón við. Allir innanstokksmunir meira og minna eins og hráviði ágólfinu, margt mölbrotið og ónýtt. Ibúðarhúsið á Lýtingsstöðum er um sextíu ára gam- alt og Sigurjón segir að við fyrstu sýn virðist það hafa sloppið furðuvel, utan að toppurinn á strompinum á þakinu féll af með viðkomu á þakinu. Gat er í þakinu af þeim völdum og mesta mildi hlýtur að teljast að enginn skyldi vera undir bæjarveggnum þegar stromp- urinn kom fljúgandi niður. Miklar sprungur eru einnig í út- veggjum bæjarhlöðunnar og hún virðist í fljótu bragði ónýt, að sögn Siguijóns. Hann metur tjónið umtals- vert, líklega einhveijar milljónir, en segii' það koma endanlega í ljós þegai' matsmenn sæki bæinn heim á næst- unni. Miklar skemmdir urðu á gamla bænum á Keldum Morgunblaðið/Steinunn Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður stendur hér við hleðslu sem skekktist. TÖLUVERÐAR skemmdir urðu á gamla bænum á Keldum á Rangár- völlum í jarðskjálftanum á laugar- dag, að sögn Margrétar Hallgríms- dóttur þjóðminjavarðar, en hún kannaði skemmdirnar í gær. Veggir í bænum hafa skekkst og hrunið úr þeim og þarf að endurnýja hleðsl- urnar. Margrét kvaðst hins vegar vona að hægt yrði að ganga í það sem fyrst. Margrét var á ferðinni á skjálfta- svæðinu í gær ásamt Þór Magnús- syni, fyrrverandi þjóðminjaverði. Sagði hún að skemmdirnar væru umtalsverðar og að illa gæti farið fyrir bænum ef það kæmi annar skjálfti. Hún sagði að hleðslur í bænum hefðu aflagast og bólgnað, Þór Magnússon hefði orðað það svo, að komin væri ólétta í hleðslurnar. „Við erum búin að hafa samband við sýslumanninn," sagði Margrét, „og munum gera honum grein fyrir aðstæðum. Það þarf að kortleggja nákvæmlega hvað er skemmt og hversu miklar skemmdirnar eru, en þær eru töluverðar." Gerir Margrét ráð fyrir því að bæta þurfi tjónið og sagði hún að verið væri að kanna hvort Viðlaga- trygging íslands myndi koma þar að. Bærinn á Keldum var sá eini sem sendinefnd Þjóðminjasafnsins skoðaði í gær enda sagðist Margrét ekki vita til þess að aðrar minjar hefðu farið iíla í jarðskjálftanum. Bærinn er að stofni til frá 12. öld og er notaður sem safn. Undanfarið hefur verið unnið að endurgerð hans og hafði verið ráðgert að smið- ur Þjóðminjasafnsins væri þar á staðnum í sumar. Bíður hans nú það verkefni að meta betur hversu um- fangsmikið verk það verður að end- urhlaða veggi bæjarins. „Svona hleðslur eru viðkvæmar og þær þarf að endurhlaða reglu- lega,“ sagði Margrét. „Og þegar eitthvað þessu líkt gerist verður það til þess að það þarf að endur- hlaða mun fyrr en ella, það má segja að þarna hafi mörg ár farið á einu bretti.“ Skemmdir urðu við Oddakirkju í Rangárvallasýslu Mannhæðarháir leg- steinar féllu á hlið ÞRIR mannhæðarháir legsteinar í Oddakirkjugarði í Rangárvalla- sýslu féllu á hliðina í skjálftanum sem reið yfir Suðurland á laugar- dag og beygðu við það járngrind- verk sem liggur í kringum graf- reitina. Að sögn séra Sigurðar Jónsson- ar, sóknarprests í Oddaprestakalli, eru legsteinarnir sennilega mörg hundruð kíló að þyngd og voru upphaflega reistir í kirkjugarðin- um á síðari hluta nítjándu aldar. Fjórði legsteinninn sem stendur við hliðina á hinum þremur stóð af sér skjálftann en hann féll hins vegar í óveðrinu í janúar 1991 og var eftir það reistur við. „Legsteinarnir fjórir stóðu í þyrpingu og hafa alltaf verið svip- miklir í garðinum,“ segir séra Sig- urður. í kirkjunni brotnaði Maríu-líkn- eski og kertastjakar féllu en auk þess riðluðust um tveggja metra háar trépípur í orgelinu. Orgel- hljómurinn er því ekki eins og hann á að vera enda glopótt hljóð í einni pedalröddinni. Viðgerð hefst fljótlega. Viðlagatrygging tekur einnig til skemmda á sumarhúsum Hætta á að margir hafí ekki tryggt innbúið GERA má ráð fyrir að viðlagatrygg- ing taki til sumai'bústaða eins og annarra húseigna enda eru sumar- bústaðir tryggðir lögbundinni brunatryggingu. Hins vegar eru lík- ur á að margir sumarhúsaeigendur á Suðurlandi þurfi sjálfir að bera kostnað af því tjóni sem kann að hafa orðið á innbúi í jarðskjálftanum á laugardag því hætt er við að margir hafi látið hjá líða að kaupa frekari tryggingar á húsin. Sveinn Guð- mundsson, lögfræðingur og talsmað- ur Landssambands sumarbústaða- eigenda, segir að auk þess hafi mörg tryggingafélaganna reynst treg til að tryggja sumarbústaði. Hermann Hermannsson, tjóna- matsmaður hjá Sjóvá-Almennum, sagðist ekki þekkja til neinna bú- staða sem ekki væru með bruna- tryggingu. Menn hefðu einfaldlega ekkert val um það hvort þeir keyptu brunatryggingu eður ei. Hitt væri annað mál að misjafnt væri hvort menn hefðu keypt tryggingar vegna innbús. Sagðist Sveinn óttast að al- gengt væri að menn létu það hjá líða. Mörg tryggingafélög væru auk þess treg til að tryggja sumarhús, bæru þá fyrir sig fjölda þjófnaða og ónógs eftirlits, auk þess sem vatnstjón væru algeng í sumarbústöðum. „Sjóvá-Almennar hafa að vísu lagt dálítið upp úr því að bjóða trygging- ai' í þessu umhverfi en önnur trygg- ingafélög hafa ekki verið eins dugleg og jafnvel hreinlega verið frábitin þvi að tryggja sumarhús,“ sagði Sveinn. Munu í framhaldinu efna til könnunar á tryggingamálum Lögreglunni á Selfossi og Hvols- velli hafði í gær borist nokkur fjöldi tilkynninga um skemmdir á sumar- húsum á svæðinu. Var það þó mat lögreglunnar að sumarhús hefðu sennilega sloppið tiltölulega vel í skjálftanum, enda gæfu timburhús betur eftir en steinhús í jarðskjálfta. Einhver hús hefðu þó gengið til og í sumum tilfellum hefði undirstaða þeiri'a skekkst. Sveinn sagði marga hafa hringt á skrifstofu Landssambands sumar- húsaeigenda en samtökin hefðu þó ekki enn fengið neina skýrslu um stöðu mála og hann gæti því ekki fullyrt um ástandið á sumarhúsum almennt í kjölfar skjálftans. Mikið er af sumarhúsum á Suður- landi og sagði Sveinn að Landssam- band sumarhúsaeigenda legði áherslu á það við félagsmenn að þeir tryggðu sumarhús sín vel. í mörgum tilfellum væri um mikil verðmæti að ræða, verðmæti sem fælust í húsinu sjálfu, jarðeigninni, innbúi og þeirri vinnu sem hefði verið lögð í gróður og ræktun. Sveinn sagði engar heild- arupplýsingar liggja fyrir um það hversu margir tryggðu sumarhús sín en hann kvaðst gera ráð fyrir að ráð- ist yrði nú í slíka könnun í kjölfar skjálftans á laugardag. Morgunblaðið/Gíolli Legsteinarnir eru sennilega mörg hundruð kfló að þyngd og voru upp- haflega reistir á síðari hluta nítjándu aldar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.