Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Leyfilegur þorskafli á næsta fiskveiðiári verður 220 þús-
Hókus, pókus, nýtt hávísindalegt 18 þúsund tonna trix.
Norrænir fjármálaráð-
herrar hittast í dag
FJÁRMÁLARÁÐH E RRAR Norð-
urlandanna koma saman til fundar
í Kaupmannahöfn í dag, miðviku-
daginn 21. júní. Geir H. Haarde
fjármálaráðherra situr fundinn
fyrir íslands hönd.
Á fundinum munu ráðherrarnir
m.a. ræða stöðu og horfur í efna-
hagsmálum á Norðurlöndunum,
stöðu Norðurlandanna gagnvart
ESB og evrunni, og samstarf
Norðurlandanna og Eystrasalts-
ríkjanna um efnahagsmál. Enn-
fremur munu ráðherrarnir fjalla
um stöðu og framtíð lífeyrismála á
Norðurlöndum.
Fimmtudaginn 22. júní býður
Norræna ráðherranefndin, undir
formennsku Dana, til ráðstefnu um
áhrif evrunnar á efnahag og vel-
ferðarkerfi Norðurlandanna á Hót-
el Scandic Copenhagen í Kaup-
mannahöfn. Ráðstefnan hefst kl.
10 árdegis með ræðu Poul Nyrup
Rasmussen, forsætisráðherra
Dana, og stendur hún til kl. 18. Á
ráðstefnunni mun Geir H. Haarde
fjármálaráðherra flytja ræðu sem
birt verður á vef fjármálaráðu-
neytisins www.stjr.is/fjr.
100*90
Pastaskápur
kr, 45.700 stgr
kr. 12.800 stgi
Falleg húsgögn
í sumarbústaoinn
SUÐURLANDSBRAUT 22 • SI'MI 553 7I00 & 553 601 I
. Skenkur •—'
kr. 58.600 stgr
Matarbor
kr. 31.600stgr.
Sambandsþing SUF á Hólum
Evrópusamstarf
o g byggðamál
Einar Skúlason
SAMBAND ungra
framsóknarmanna
heldur sambands-
þing sitt á Hólum í
Hjaltadal um næstu helgi,
þ.e. 23. til 25. júní. Á þing-
inu fara fram hefðbundin
stjórnarstörf og kosinn
verður nýr formaður,
stjórn og miðstjóm. Einn-
ig verður tilkynnt um úr-
slit í ritsamkeppni fyrir
ungt fólk um framtíðina.
Einar Skúlason, formaður
SUF, var spurður hvert
yrði megineftn þingsins.
,Á þinginu verða tekin
fyrir drög að ályktunum
um hin ýmsu mál, m.a.
um fjölskyldu- og mennta-
mál, um atvinnu- og
byggðamál og um alþjóða-
mál. Stór hluti af þinginu
er kosningar formanns og stjórn-
ar. Ég hef gefið kost á mér til
áframhaldandi formannsstarfa
en þess má geta að ég tók við um
síðustu áramót þegar fráfarandi
formaður sagði af sér, ekkert
mótframboð hefur borist enn.“
- Er mikil gróska í starfí
SUF?
„Það lýsir sér kannski besti í
því að í þau tólf stjórnarsæti sem
kosið verður um á Hólum hafa
borist yfir tuttugu framboð. Mik-
ill áhugi hefur og verið í málefna-
undirbúningi fyrir þingið. Sem
dæmi get ég nefnt að í drögum
að ályktun um alþjóðamál er sagt
ákveðið að fara beri í aðildar-
viðræður við ESB hið fyrsta. Það
má segja að sé stórt skref. Það
er hins vegar ekki ljóst hver nið-
urstaða þingsins verður um það
mál né önnur sem þar eru á dag-
skrá.“
- Eigið þið von á mörgnm
þinggestum?
„Við reiknum með um sextíu
til sjötíu þátttakendum af öllu
landinu. Við fáum góða gesti á
þingið, meðal annars kemur
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Fram-
sóknarflokksins, Þorsteinn
Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri, ætlar að halda erindi
og Páll Pétursson félagsmála-
ráðherra verður einnig gestur
þingsins. Þingið sjálft verður
blanda af mikilli vinnu og
skemmtun. Við ætlum að enda
þingið á laugardagskvöld á hátíð-
arkvöldverði á Hólum. Ætlunin
er að skella sér svo á sveitaball í
Miðgarði í Varmahlíð og sletta úr
klaufunum."
- Hvaða málefni önnur en þú
hefur þegar nefnt eru á dagskrá
þingsins?
„Við höfum ávallt lagt mikla
áherslu á menntamálin og mun-
um áfram gera það. Ég á von á
að meðal annars verði ítrekuð
grundvallarafstaða ungra fram-
sóknarmanna varðandi jafnrétti
til náms, óháð efnahag og búsetu.
í ljósi þeirrar umræðu sem hefur
verið undanfarið um MBA-nám
við Háskóla íslands á ég von á að
það verði enn frekar
hnykkt á andstöðu
gegn skólagjöldum í
HI. Varðandi kvóta-
umræðu býst ég við að
við munum fjalla um
ákveðnar breytingar á
kvótakerfinu til þess að sætta
andstæðar fylkingar í landinu,
með áherslu m.a. á byggðakvóta
og skattlagningu þeirra sem
ákveða að hætta í útgerð. Mál-
efni bamafjölskyldna verða einn-
ig tekin fyrir. Við höfum látið
þau mál mjög til okkar taka og
munum eflaust þrýsta á frekari
aðgerðir stjómvalda til þess að
► Einar Skúlason fæddist. í
Kaupmannahöfn 22. september
1971. Hann lauk stúdentsprófi
frá Menntaskólanum í Reykjavík
1991, BA-prófi í stjórnmálafræði
frá Háskóla íslands 1998. Nú er
Einar framkvæmdastjóri Foxhall
ehf., einnig er hann formaður
Sambands ungra framsóknar-
manna. Einar á einn son, Gabríel
Gauta, sem er þriggja ára.
bæta hag bamafjölskyldna. Þá
ber að nefna umfjöllun um ríkis-
fjármál og þenslu í þjóðfélaginu.
Búast má við ákveðnum tillögum
um aðgerðir í þeim málum til
þess að sporna gegn verðbólgu
og öllu því upplausnarástandi
sem gæti fylgt í kjölfar hennar.
Loks á ég von á því að rætt verði
um byggðamál og þá óheillavæn-
legu þróun sem verið hefur að
undanförnu í þeim málum. Nú
þegar ráðherra Framsóknar-
flokksins hefur tekið við þeim
málaflokki eftir, að okkar mati,
slælega frammistöðu forsætis-
ráðherra sjáum við ungir fram-
sóknarmenn fram á sóknarfæri."
- Hvað eru margir félagsmenn
í Sambandi ungra framsóknar-
manna?
„Þeir eru tæplega tvö þúsund
og eru starfandi í félögum ungra
framsóknarmanna (FUF) um allt
land. Við höfum lagt áherslu á
það í SUF að reyna að efla og
styðja við starfsemi FUF. Við
hjá SUF fórum m.a. í hringferð
um daginn um landið, ókum um
2.500 kflómetra á fjórum dögum
og hittum ungt fólk um land allt
og ræddum við það um stjóm-
málaástandið og hvað mönnum
liggur á hjarta í því sambandi.
Það er nauðsynlegt að „taka
púlsinn" öðru hvoru.“
- Og hvað liggur ungum fram-
sóknarmönnum helst á hjarta um
þessar mundir?
„Ég held að tvö mál séu mest
áberandi núna fyrir utan
menntamálin, annars vegar er
það umræðan um þátttöku okkar
í Evrópusamstarfi og hins vegar
er það kvótakerfið. Maður finnur
fyrir því úti á landi
hvað menn hafa miklar
áhyggjur af þróuninni
í þeim efnum. Öll þessi
þrjú mál tengjast
byggðamálum með
einum eða öðmm
hætti.“
- Urðuð þið varir við miklar
áhyggjur af byggðarnálunum?
„Það er erfitt fyrir Reykvík-
inga að gera sér grein fyrir
þeirri stöðu að aðstæður neyði
menn til að flytja vegna þess að
fá tækifæri bjóðist - en þannig
horfa málin við á mörgum stöð-
um á landsbyggðinni.
Tillaga um að-
ildarviðræður
við ESB hið
fyrsta