Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hilmar Thors, forstöðumaður rekstrarsviðs Samlífs, Ólafur Haukur Jðns-
son framkvæmdastjóri, Kristján Jóhannsson, framkvæmdastjóri hugbún-
aðarsviðs Nýherja, og Hinrik Hansen, hópstjóri SAP-lausna hjá Nýherja.
Samlíf semur
við Nýherja
SAMLÍF - Sameinaða líftrygginga-
félagið hf. hefur samið við Nýherja
hf. um uppsetningu á mySAP.com
viðskiptahugbúnaðinum. Samlíf
mun til að byrja með nýta fjárhags-
og söluhluta kerfisins fyrir starfsemi
sína bæði á sviði fjármála og trygg-
inga. Áformað er að sérhæfðar
tryggingalausnir SAP verði teknar í
notkun á síðari stigum.
í fréttatilkynningu kemur fram að
um sé að ræða nýja kynslóð hug-
búnaðarlausna frá SAP sem nú er
seld og markaðssett undir nafninu
mySAP.com og kom á markað á síð-
asta ári. Kjami þessarar útgáfu er
SAP R/3 viðskiptahugbúnaðurinn,
ásamt fjölda nýrra lausna m.a. á
sviði stjómunar viðskiptatengsla,
Internetsins, lófatölvutenginga,
netviðskipta, stjórnunarupplýsinga
og einstaklega notendavænu viðmóti
skjámynda.
Viðskiptahugbúnaðurinn frá SAP
hefur notið mikilla vinsælda um all-
an heim og er markaðshlutdeild
hans nú um 40% í Evrópu. Þegar er
um ein milljón notenda komin með
hina nýju mySAP.com útgáfu í notk-
un. Uppsetningin hjá Samlífi verður
fyrsta uppsetning þessa nýja hug-
búnaðar á íslandi en fyrir em upp-
setningar af forvera hans, SAP R/3
sem hefur verið settur upp hjá fimm
fyrirtækjum hér á landi.
Samningurinn kveður á um að
SAP ráðgjafar Nýherja muni vinna í
nánu samstarfi við starfsfólk Samlífs
við uppsetningu kerfisins. „Markmið
Samlífs með kaupum á kerfinu er að
geta þjónað viðskiptavinum sínum
enn betur á komandi ámm og skapa
gmndvöll fyrir áframhaldandi vöxt
fyrirtækisins með staðlaðri en
sveigjanlegri hugbúnaðarlausn,"
segir í fréttatilkynningunni.
Samlíf er stærsta líftryggingafé-
lag landsins, með um helmings
markaðshlutdeild í hefðbundnum
líftryggingum. Á undanförnum ár-
um hefur áhersla félagsins beinst í
auknum mæli að frjálsum sparnaði.
Annað stærsta fjöl-
miðlafyrirtæki heims
París.AFP.
VTVENDI borgar 34 milljarða
bandaríkjadala fyrir kanadíska fyr-
irtækið Seagram. Upphæðin sam-
svarar 2.550 milljörðum íslenskra
króna. Tilkynnt var um samninginn í
gær eftir að stjómir fyrirtækjanna
höfðu samþykkt hann á fundum sín-
um um helgina. Sameinað fyrirtæki
Vivendi, Seagram og Canal Plus,
sem nefnt hefur verið Vivendi Uni-
versal, verður annað stærsta fjölm-
iðlafyrirtæki heims, á eftir samein-
uðu fyrirtæki AOL og Time Warner.
Sameinaðar tekjur nýja fyrirtæk-
isins samsvara rúmum 4.100 millj-
örðum íslenskra króna og verða
hlutabréf þess skráð í kauphöllum í
París, New York og Toronto. Mark-
aðsvirði sameinaðs íyrirtækis verður
yfir 100 milljónir evra eða um 7.300
milljarðar króna.
Bæði Vivendi og Seagram eiga sér
langa sögu, Vivendi hefur löngum
selt vatn og Seagram aðra drykki.
Þessi starfsemi verður færð undir
sérstakt fyrirtæki en kjamastarf-
semi Vivendi Universal verður á
sviði fjölmiðla og fjarskipta.
Jean-Marie Messier, forstjóri Viv-
endi mun starfa sem stjórnarfor-
maður nýja íyrirtækisins, og Edgar
Bronfman, forstjóri Seagram, verð-
ur varaformaður stjórnar, ásamt því
að veita tónlistar- og netdeild nýja
fyrirtækisins forstöðu.
Samkvæmt samningnum mun
Vivendi greiða 0,7 hluti í Vivendi fyr-
ir hvern hlut í Seagram að verðmæti
77,3 dollarar. Verð hlutabréfa í Viv-
endi lækkaði um 4,1% eftir að til-
kynnt var um samninginn í gær og
verð bréfa í Canal Plus um 11,3%.
Samningurinn tekur ekki til úti-
standandi skulda Seagram. Vivendi
á nú 49% í Canal Plus en mun sam-
kvæmt samningnum yfirtaka nær
allai- eignir þess með því að greiða
tvo hluti í Vivendi fyrir hvern hlut í
Canal Plus. Vivendi mun þó ekki
taka yfir allan sjónvarpsrekstur
Canal Plus í Frakklandi.
Úrvalsvísital-
an hækkaði
Rekstur KEA
betri en í fyrra
REKSTUR Kaupfélags Eyfirðinga
batnaði töluvert á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs miðað við sama
tímabil í fyrra. Rekstrartap móður-
félagsins nam einni milljón króna,
samanborið við 114 milljónir í fyrra.
Veltufé frá rekstri nam 44 milljónum
króna, en það var neikvætt um 37
milljónir króna í fyrra. Eiríkur S. Jó-
hannsson, kaupfélagsstjóri, segir
þessa afkomu viðunandi og bera því
vitni að verið sé að snúa rekstrinum
við.
Þetta óendurskoðaða bráða-
birgðauppgjör var lagt fram á fram:
haldsaðalfundi KEA á mánudag. I
því kemur einnig fram að samstæða
Kaupfélags Eyfirðinga sýndi 482
milljóna króna hagnað fyrstu fjóra
mánuði ársins, samanborið við 103
milljóna króna tap á sama tímabili í
fyrra. Inni í þeiiTÍ tölu er söluhagn-
aður KEA af hlutabréfum í Húsa-
smiðjunni fyrr á þessu ári, en hann
nam hálfum milljarði króna.
I uppgjörinu kemur fram að veltu-
fjárhlutfall móðurfélagsins er 1,1,
samanborið við 0,94 um áramótin.
Eiginfjárhlutfall er 24%, en var 21%
um áramótin, nettóskuldir námu
4.593 milljónum samanborið við
5.283 milljónir um áramótin og eigið
fé var 2.923 milljónir, miðað við 2.496
milljónir 31. desember. Sú eigin-
fjáraukning er að mestu vegna fyrr-
nefnds söluhagnaðar.
HLUTABRÉF hækkuðu umtalsvert
í verði á Verðbréfaþingi íslands í
gær og hækkaði úrvalsvísitalan um
2,11% og er 1.552 stig. Bréf Vinnslu-
stöðvarinnar hækkuðu mest, um
8,3%, bréf Flugleiða hækkuðu um
6,2% og bréf Landsbankans um
sama hlutfall. Bréf annarra banka
hækkuðu einnig, Búnaðarbanka um
4,4% og Íslandsbanka-FBA um 2,1%.
Bréf Skýrr lækkuðu mest, um 6,7%.
Viðskipti á Verðbréfaþingi í gær
námu alls 1.398 milljónum króna, þar
af með hlutabréf fyrir um 196 millj-
ónir og húsbréf fyrir tæpar 295 millj-
ónir. Mest viðskipti með hlutabréf
voru með hlutabréf Búnaðai’bankans
fyrir tæpar 38 milljónir, hlutabréf
Samherja fyrir tæpar 30 milljónir og
með hlutabréf Islandsbanka-FBA
fyrir rúmar 29 milljónir.
Yfir 17 milljónir afgreiöslustaöa um allan heim
Láttu Ijós þitt skína!