Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 62
62 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Tásutónlist Pétur Eyvindsson er annar liðsmanna Vindva Mei. j TðNLlST Geisladiskur ON FIRE Geisladiskurinn með hljómsveitinni Vindva Mei skipuð Rúnari Magn- ússsyni og Pétri Eyvindssyni. Fire inc. gefur út 2000 HINN dularfulli rafdúett Vindva Mei hefur í mörg ár kraumað djúpt undir íslenskri jaðartónlistarsenu þó fáir hafi orðið varir við hann. Dúettinn er skipaður Akureyring- unum Rúnari Magnússyni og Pétri Eyvindssyni, en þar sem sá fyrr- nefndi hefur verið búsettur í Dan- mörk síðustu ár hefur lítið verið um tónleikahald hjá Vindva Mei. Reyndar stungu þeir tónlist sinni jafn sjaldan í samband við umheim- inn þegar þeir voru báðir búsettir á íslandi, en þeir tónleikar sem þó voru haldnir sitja þeim mun fastar í minni þeirra sem voru svo lánsamir að vera viðstaddir þá. On Fire er fyrsta plata Vindva Mei en vonandi ekki sú síðasta því hér er afskaplega eigulegur gripur á ferðinni. Völlur tilraunakenndrar ís- lenskrar raftónlistar er víðari en „■margan grunar þó lítill hluti hennar hafi náð eyrum fólks enn sem komið er. Stilluppsteypa er sú hljómsveit sem hefur verið hvað kröftugust út á við í þessum geira og hafa meðlimir hennar verið ansi séðir í að nálgast tónlistarfólk í svipuðum pælingum og þeir og koma efni sínu í eyru fólks. Það má auðveldlega greina nokkur Stilluppsteypuáhrif í tónlist Vindva Mei þó hinir síðarnefndu hafi reyndar mjög persónulegan stíl. Dýrlegir hljóðskúlptúrar flæða í gegnum diskinn að viðbættum takt- fléttum sem keyi'a stemmninguna áfram af yfirveguðu öryggi. Best tekst til í lögum eins og Only love can keep you warm, Creamy after- noon og From space with love. Margt spennandi gerist þó einfald- leikinn ráði ríkjum og angurværar melódíurnar sveima eins og latar hunangsflugur yfir suðandi raf- gróðrinum. Framtfðarlegir ástaróðar From space with love er sérstak- lega gn'pandi lag sem byrjar á rödd- um sem hljóma eins og þeim sé mjög mikið niðri fyrir þó erfítt sé að greina hvað það er sem þeim liggur á hjarta. Undirtónninn er hlýr og dálítið melankólísk hljómborðslína líður ljúflega í gegn, samferða gegn- umgangandi taktlúpunni sem tekur við þung og hrá við af röddunum í upphafi. Það mætti segja að í þess- um lögum kristallist eitthvað sem hægt væri að tala um sem framtíð- arlega ástaróða. Það er ekki endi- lega nauðsynlegt að segja „I love you“ og taka gítarsóló til að tjá til- finningar í tónlist. Hver segir að rafsmellir og bjagaðar raddir hljóð- gervla geti ekki sent sömu skilaboð? Þeir Vindva Mei bræður stefna áhrifum frá níunda áratugnum sam- an við dramatísku rafballöðurnar í vænum skömmtum. Sérstaklega í lögunum Sound of a miracle og loka- laginu Mister new wave no more, sem jafnframt eru einna dansvæn- ust. Ætli þetta sé það sem menn eiga við með orðinu „tásutónlist“? Það er spurning hvort þessi tvö lög hafi staðist tímans tönn. Kannski hefur tíminn nagað þau nóg til þess að þau eru full gamaldags í félags- skap við hin lögin á plötunni. Af hverju að enda svona góða plötu á gamalli lummu? Eða má vera að það sé alveg splunkuný lumma að víra taktvísa skruðninga í anda Pan Son- ic og Autechre saman við yndislegar klisjur hljóðgervla níunda áratugar- ins? Reyndar svífur einhver vand- útskýranlegur, kaldhæðinn húmor yfir vötnum Vindva Mei svo maður fær á tilfinninguna að meiningin sé einmitt að rugla hlustandann ræki- lega í ríminu. En hver getur svo sem dæmt um það hvort alvaran liggi heldur í svífandi hljóðskúlptúrum eða hörðum „teknótransi" af gamla skólanum? Hvernig sem litið er á blikuna er í það minnsta notalega áheyrileg plata hér á ferðinni. Stefnumót þessarra óvæntu póla eru kannski svolítið einkennileg en venjast vel með hverri hlustun. Biðin eftir On Fire var löng, en mikið bragðast steikin vel þegar hún er loks komin á disk hins hungraða. Kristín Björk Kristjánsdóttir flíililli hreinsunin gsm 897 3634 Þrif á rimlagluggatjöldum. LEIKFÉLAGJSLANDS 3000 Sjeikspír eins og hann leggur sig lau. 24/6 kl. 20 fös. 30/6 kl. 20 530 3030 Stjðrnur á morgunhimni fim 22/6 kl. 20 laus sæti Síðasta sýning í sumar Hádegisleikhús með stuðningi Símans - BJÖRNINN ’fors. fdag mið. 21/6 kl. 12 UPPSELT frumsýn. fim. 22/6 kl. 12 UPPSELT fös 23/6 kl 12 örfá sæti laus mið 28/6 kl 12 nokkur sæti laus lau 1/7 kl 12 nokkur sæti laus Leiksýning Yoshi Oida: INTERROGATIONS fös. 23/6 kl. 20 Miðasalan er opin frá kl. 12—18 alla virka daga, kl. 14- 18 laugardaga og fram að sýningu sýningardaga. Miðar óskast sóttir f viðkomandi leikhús (Loftkastalirm/lðnó). Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dðgum fyrir syninqu. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Robbi „Chronic" lét til sín taka ásamt félögum. Eggjandi Exodus Hin ofursvala tískuvöruverslun Exodus hélt á dögunum ennþá svalara partí í húsakynnum sínum í bílageymslunni við Hverfisgötu. Plötusnúð- ar mættu á staðinn og sneru „hip-hop“ skífunum af einskærum rudda- skap við góðan undirtektir viðstaddra sem dönsuðu og dilluðu sér í eggjandi takti. Það var margt um manninn f Exodus-gilinu. Vinsæll leikur á mbl.is Skotið á úrslitin GLÖGGIR sparkspámenn halda áfram að njóta góðs af visku sinni með því að heimsækja mbl.is, skjóta rétt á úrslit leikja í heilli umferð Landssímadeildarinnar og fá GSM- farsíma að launum frá Símanum- GSM. Leikurinnn hefur hlotið fá- dæma góðar viðtökur enda til mitóls að vinna, GSM-farsími af gerðinni Sagem mc 950 og frímiði á leik í Landssímadeildinni í sumar. Sá sem skaut rétt á úrslitin í 4. umferð var Helgi Dan Stefánsson og Öm Pálsson lék sama leitónn í 5. umferð. Þeir sem skotið hafa fram hjá hingað til þurfa þó ektó að örvænta því þeir geta spreytt sig á þessum skemmtilega leik út allt keppnistímabilið og því um að gera að fylgjast vel með boltanum í sumar og venja komu sína á mbl.is. Morgunblaðið/Kristinn Jóhann Friðleifsson, markaðssljóri Símans-GSM, afhendir vinningshafa 6. umferðar, Hrafnhildi H. Grétarsdóttur, verðlaunin veglegu. MYNPBONP Listin að hneyksla Fávitarnir (Idioterne) Dogma/Drama ★★% Leikstjórn og handrit: Lars Von Trier. Aðalhlutverk: Bodil Jorgen- sen, Jens Albinus. (110 mín.) Dan- mörk 1999. Háskólabíó. Bönnuð innan 16 ára. ÞAÐ VAR við búið að þegar Lars Von Trier gerði Dogma-mynd yrði hún ágeng og umdeild. Þessi snjalli Dani er einstaklega hreinstólinn kvik- myndagerðarmað- ur og Dogma-íýrir- komulagið tilvalið því hreinstólni er það sem hið marg- umrædda Dogma gengur öðru fremur út á. Eg Mt svo á að Trier hafi litið á verkefnið sem athugun. Athugun í hvar endamörk almenns velsæmis liggja. Athugun í hversu langt hann gæti gengið. Athugun í hvemig heim- urinn bregst við vafasömum órum og vangaveltum fávita í lító listamanns. Þar liggur annar styrkur þessarar erfiðu myndar; í hugmyndafræðinni. Hinn styrkurinn er fádæma næm til- þrif leikarahópsins sem augljóslega lagði fullt traust sitt á leikstjórann og var tilbúið að vaða fyrir hann eld og brennistein. Galli myndarinnar er hins vegar sá að hún virkar fyrst og fremst sem athugun, djörfungleg til- raun en ektó fullskapað og heildstætt verk. AIls ektó við allra hæfi en skylda fyrir alla alvöra kvikmyndapælara. Skarphéðinn Guðmundsson Ræfílsleg ragnarök Dómsdagur nálgast (Tycus) Vfsindaskáldsaga 'k Leiksljóri: John Putch. Handrit: Michael og Kevin Goetz. Aðal- hlutverk: Dennis Hopper, Peter On- orati. (96 mín.) Bandarikin 1999. Háskólabiö. Bönnuð innan 16 ára. ÞESSI er sögð „í anda“ Armag- eddon en þannig er ansi oft til orða tekið þegar bókstaflega er verið að „stæla“. Þetta er náttúrulega ekkert annað en stæling á dómsdagsmyndum liðinna ára eins og Armageddon og Independence Day og það ómertóleg í meira lagi. Núna er það halastjarna sem stefnir hrað- byri á tunglið sem á að valda heim- sendinum. Vísindamaður nokkur hefur vitað þetta alllengi án þess að tetóð hafi verið mark á honum og til þess að bjarga mannkyninu hefur hann reist fullkomið neðanjarðar- byrgi þar sem fáir útvaldir fá að dvelja þegar hríð ioftsteina dynur yf- ir jörðina í kjölfar eyðingar tungls- ins. Til viðbótar við hina dæmigerðu dómsdagsringulreið veltir myndin upp háalvarlegrum og biblíulegum spurningu um áhöfnina í Örkinni hans Nóa, hvort nokkur geti áskilið sér réttinn til þess að velja lifendur og þá hvernig valinu skuli háttað. Magnaðar vangaveltur, svo endemis vitlausar og alvörugefnar að unun er á að horfa. Þetta er sannur gullmoli fyrir unnendur yndislega vondra mynda og stjarnan hálfa er fyrir það og ekkert annað. En hvað var Denn- is Hopper að spá? Skarphéðinn Guðmundsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.