Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.06.2000, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Dagskrá Lista- sumars 2000 vikuna 19. jum - 25.jum - * tÁ4t&4***fvM- AKU.Ki YRI 2000 17. júní-10. júlí Samsýningin Skyttumar verð- ur í Deiglunni, Kaupvan- gsstræti 23. Listamennirnir Guðmundur Oddm' Magnús- son, Haraldur Ingi Haraldsson og Kristján Steingrímur Jóns- son sýna. Sýningin er opin dag- lega kl. 14-18. Listamaðurinn Joris Rade- maker sýnir í Kompunni, Kaupvangsstræti. Sýningin op- in daglega til 5. júlí. Þann 18. júní opnuðu tvær sýningar í Minjasafninu á Ak- ureyri: Eyjafjörður frá önd- verðu og Akureyri, bærinn við Pollinn. NOVU 2000 stendur til 22. júní Alþjóðleg Leiklistarhátíð mun standa yfir 21.-25. júní. Ein stærsta leiklistarhátíð sem haldin hefur verið hér á landi og stærsti leiklistarviðburður á Islandi á árinu. Samtals 11 leiksýningar, 3 erlendar og 8 innlendar víðs vegar um bæinn. Sex leiksmiðjur starfræktar og hátíðarklúbbur þar sem leikfé- lög sjá um atriði. Götuleikhús og uppákomur af ýmsu tagi. Bókmenntavaka verður í Deiglunni þann 23. júní kl. 20.30. Fjögur brottflutt akureyrsk ljóðskáld halda upplestur sem ber yfirskriftina Heiman og heim. Jónsmessutónleikar kórs Glerárkirkju í Glerárkirkja kl. 22. Þann 24. júní opnar Sig- tryggur Bjarni Baldvinsson sýningu á efri hæð í Ketilhúsi kl. 16 og Tinna Gunnarsdóttir í forstofu Deiglunnar á sama tíma. Fyrri sýningin stendur til 16. júlí en sú seinni allt sum- arið. Gjörningurinn Mörk verður íluttur í Deiglunni kl. 20.30 um kvöldið. Flytjendur eru Anna Richards, Arna Valsdóttir, Wolfgang Saar og Karl Peter- sen. Það verður leikinn Jazz í Deiglunni þann 25. júní kl. 22. Sigurður Flosason leikur á saxófónn, Pétur Östlund á trommur og Þórir Baldursson á hammondorgel. Morgunblaðið/BFH unni við glæsilegar veitingar og Iíflegan hljóðfæraleik. Að lokum var gengið í blíðuveðri heim á kirkjuhólinn þar sem opnuð var sýning Mývatnssafns í gamla fjós- inu, á munum, myndum og text- um úr Mývatnssveit fyrri tíðar. Fjögur hótel eru nú rekin í Mývatnssveit, þar af 2 á Skútu- stöðum og 2 í Reykjahlíð. Samtals eru þau með 179 rúmum. Gisti- heimili eru 7 með 294 rúmum. SLÁTTUR er hafinn á nokkrum bæjum í Eyjafirði. Spretta hefur tekið vel við sér síðustu daga eftir vætukafla síðustu viku og er nú að verða allgóð. Hörður Snorrason Sláttur hafinn í Eyjafirði bóndi í Hvammi í Eyjafjarðarsveit á þessu sumri en hann hefur slegið var með þeim fyrstu til að byrja slátt nokkuð á heimatúni. Þegar ljós- Morgunblaðið/Benjamín Baldursson myndari átti leið um var hann í óða önn að slá tún við Kropp en hann hefúr nýlega fest kaup á þeirri jörð. Alls sagðist hann þurfa að heyja á milli 60 til 70 hektara á þessu sumri. Skólameistari Menntaskólans á Akureyri um búseturöskun TRYGGVI Gíslason, skólameistari Menntaskólans á Akureyri, gerði búseturöskun á Islandi að umtals- efni í ræðu sinni við skólaslit og sagði stjórnvöld lengi hafa reynt að sporna við fólksflóttanum á lands- byggðinni. Búferlaflutningar hefðu staðið alla þess öld og ekki væri séð fyrir endann á, enda ynni margt gegn dreifðri byggð í landi. í Evrópu hefði þessi þróun staðið yfir í 500 ár og afleiðingin væri breyting á atvinnuháttum og viðhorfi. „Enginn - ekkert virðist fá spornað við þessari þróun og tel ég að stjómvöld og almenningur verði að fara að horfast í augu við þá staðreynd og vinna að því að snúa þessum breytingum á þjóðfélaginu til góðs og bæta fólki, sem á enga sök á þróun mála, tjón sitt og missi með sértækum stjórnvaldsaðgerð- um. Mætti annaðhvort nota auknar tekjur ríkissjóðs til þess að greiða þessar skuldir við almenning í land- inu ellegar taka af væntanlegu fisk- veiðigjaldi, sagði Tryggvi. Hann nefndi að í umræðu um byggðaþróun hefði því verið haldið Fólki verði bætt tjón sitt með sórtækum stj’órnvaldsaðgerðum fram að menning íslendinga sé inga borgarmenning. Menning Islend- inga gæti hins vegar ekki verið borgarmenning, því hér væri engin borg heldur ofvaxið sveitaþorp sem héti Reykjavík. „Til þess að hrista af sér sveitina eftir þúsund ár þarf líka lengri tíma en eina öld og menning lands, þar sem meginhluti fólks er kominn úr sveit í annan eða þriðja ættlið, er ekki borgarmenn- ing. Auk þess getur menning þjóðar aldrei orðið borgarmenning nema öll þjóðin sé í einni borg - og þegar svo er komið, að allir búa í einum stað - er menningin orðin fátækra- menning því það land er fátækt sem ekki á sér fjölbreytta byggð og ólíka búsetu, sagði Tryggvi. Borgarmenning gengur úr sér á þremur mannsöldrum Hann sagði hinu ekki að neita að höfuðborgarsvæðið væri stærsta höfuðborgarsvæði í heimi. Á svæð- inu sem næði nær austan frá Þjórsá að Hvítaá í Borgarfirði byggju um 200 þúsund manns, eða nær þrír fjórðu hlutar landsmanna. „Ekkert höfuðborgarsvæði getur mælt sig við þetta höfuðborgarsvæði og ef svo fer fram sem horfir munu um 90% landsmanna búa á þessu lands- væði að 30 árum liðnum. Það er óvænlegt að Stór-Reykja- vík endi sem eina byggðin á Islandi. Borgríki verður ekki aleinasta ein- hæft, einsýnt, sjálfhverft og sjálf- umglatt, eins og löngu er orðið um Reykjavík, heldur getur ekkert borgríki lifað án landsbyggðar. Að öðrum kosti gengur borgarmenn- ingin úr sér á þremur mannsöldr- um. Af þeim sökum ættu stjórnvöld og stofnanir ríkisins að taka upp nýja stefnu, horfast í augu við stað- reyndir, bæta fólki tjón sitt og fara að efla byggðakjarna annars staðar en á höfuðborgarsvæðinu. Hins vegar er ekki unnt að halda öllu landinu í byggð eins og menn vildu fyrir 50 árum,“ sagði skóla- meistari. VINNUST0FA I LISTAGIU AKUREYRI Gilfélagið á Akureyri auglýsir eina vinnustofu í Listagili lausa til afnota fyrir listamann. Vinnustof- an er 41 fermetri að stærð og er eitt herbergi. UMSÓKNARFRESTUR ER TIL 28. JÚNÍ. Umsóknir skal senda á skrifstofu Gilfélagsins á Akureyri, Kaupvangsstræti 23, pósthólfi 115, 602 Akureyri, s. 461 2609, fax 461 2928, netfang listagil@nett.is Sel-Hótel Mývatn opnað Á SKÚTUSTÖÐUM var mikil veisla föstudaginn 16. júní og fagnað merkum áfanga í upp- byggingpi ferðaþjónustu í Selinu sem margir þekkja. Þau Sigrún Jóhannsdóttir og Kristján Yngvason hófu rekstur smáverslunar í íbúðarhúsi sínu á þessum stað 16. júní 1973 og seldu þá m.a. ferðamönnum pyls- ur og fleiri skyndirétti. Smám saman hefur verið aukið við reksturinn og byggingar stækk- aðar, nú var það 6. áfanginn og sá langstærsti til þessa, glæsilegt hótel á 3 hæðum með 35 her- bergjum, 29 tveggja manna og 6 eins manns herbergjum, fyrir var veitingasalur, skyndibitastaður og verslun ásamt alhliða ferða- þjónustu. Sóknarpresturinn sr. Ornólfur mm J. Ólafsson blessaði mannvirkið og starfsemina. Yngvi Ragnar Kristjánsson, hótelstjóri, flutti ræðu þar sem hann fór yfír sögu fyrirtækisins, Halldór Blöndal, Bryndís fvars- dóttir og Tómas Ingi Olrich fluttu ávörp en veislustjóri var Jóhannes Sigmundsson í Syðra- Langholti. Mannfjöldi, bæði Mývetningar og lengra að komnir gestir, fagn- aðiþessum áfanga með fjölskyld-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.