Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 9

Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 9 FRÉTTIR Skýrsla Rannsóknarnefndar umferðar- slysa um banaslys í umferðinni 1999 Hámarkshraði verði lækkaður að vetrarlagi Astfanginn af zetu Morgunblaðið/Þorkell Atli Freyr Þórsson var með framúrskarandi góðar einkunnir á sam- ræmdum prófum og var hann eini nemandinn sem fékk 10 í einkunn á samræmdu prófí í íslenzku. RANNSÓKNARNEFND umferð- ai’slysa beinir þeim tilmælum til Vegagerðarinnar og dómsmálaráðu- neytisins að athugað verði hvort hægt sé _að lækka heimilaðan öku- hraða á íslandi á veturna. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýút- kominni skýrslu nefndarinnar um banaslys í umferðinni árið 1999. Er bent á í skýrslunni að slíkt hafi þegar verið gert í Finnlandi með góðum árangri og að í bígerð sé að hefja tO- raunir með slíka lækkun hámarks- hraða í Svíþjóð. Er það mat nefndar- innar að gefa þurfi ökumönnum mun skýrari skilaboð um æskilegan öku- hraða, þannig að þeir verði frekar í stakk búnir að haga akstri eftir að- stæðum eins og segir í umferðarlög- um að ökumenn skuli gera. Afengi, hraðakstur og bflbeltanotkum Samkvæmt skýrslu nefndarinnar voru það áfengis- eða lyfjaneysla ökumanna, of hraður akstur og van- höld á notkun bflbelta sem ollu flest- um banaslysum í umferðinni á síð- asta ári. Af 21 banaslysi á árinu má rekja tólf tfl þessara þriggja þátta; þar af fimm til áfengis- eða lyfjanotk- unar, fjögur tfl hraðaksturs og þrjú til þess að ökumenn eða farþegar hafi ekki hirt um að nota bílbelti. Ails má rekja sautján af 21 slysi beint til mannlegra mistaka af ýmsu tagi og má auk ofangreindra orsaka minnast á að ökumenn hafi ekki virt biðskildu, hafi ætlað fram úr hægra megin við bíl eða að útvarp eða sími hafi truflað einbeitingu ökumanns. Er þetta í takt við niðurstöður síðustu ára þar Skírteinið klippt á staðnum LÖGREGLAN á Húsavík stöðvaði um helgina ungan öku- mann á 164 km hraða á vegin- um um Aðaldalshraun, en þar er hámarkshraði 90 km. Skipti engum togum að skír- teini ökumannsins var tekið af honum á staðnum. Lögreglan á Húsavík vill minna ökumenn sem leið eiga um Þingeyjar- sýslur á að virða hámarkshraða á vegum. sem mannleg mistök hafa ávallt verið helsti slysavaldurinn. Æfingasvæði, fræðsla og hraðamörk á vetrum í skýrslunni er sérstaklega tekið tfl þess að reynsluleysi ungra öku- manna eigi oft stóran þátt í umferð- arslysum. Þannig sýna tölur Um- ferðarráðs frá árinu 1999 að 17-20 ára gamlir ökumenn, sem eru um 9% ökumanna, valdi 29% umferðarslysa og 21-24 ára ökumenn, sem eru 7% ökumanna, valdi 12% slysa. Rann- sóknamefndin leggur því til að lögð verði áhersla á þjálfún yngri öku- manna í akstri við mismunandi að- stæður s.s. í hálku, snjó og lausamöl, til dæmis með því að koma upp svæð- um utan vega þar sem nemendur geti æft akstur við erfiðar aðstæður með leiðbeinendum. Meðal annarra tillagna sem fram koma til úrbóta í skýrslu nefndarinn- ar er að haldið verði áfram að auka eftirlit, fræðslu og áróður til að spoma við slysum af völdum áfengis- neyslu, hraðaksturs og vanhalda á bílbeltanotkun. Þá leggur nefndin tfl að athugað verði hvort hægt sé að lækka leyfilegan hámarkshraða á vegum landsins yfir vetrarmánuðina. Slíks sé full þörf þar sem íslenskir ökumenn vanmeti oft vetraraðstæð- ur og aki of hratt í hálku og snjó. Gangandi vegfarendur í hættu í höfuðborginni Flest banaslys árið 1999 urðu í dreifbýli, líkt og árið áður. Ríflega 70% banaslysa urðu í dreifbýli en tæp 30% í þéttbýli og er það heldur minni munur en árið 1998. Það sem vekur þó athygli er að í þéttbýlinu, og þá sérstaklega höfuðborgarsvæðinu, em það gangandi vegfarendur sem em í meirihluta þeiiTa sem láta lífið í umferðinni. í Ijósi þessa leggur nefndin til að gripið verði til afger- andi aðgerða í því að gera fólki ókleift að komast yfir umferðargötur ann- ars staðar en á göngubrúm eða öðr- um öraggum svæðum. I dreifbýlinu leggur nefndin hins vegar til að aukið verði við varúðarráðstafanir á vega- mótum, að aukið verði við vegmerk- ingar, t.a.m. við krappar beygjur, blindhæðir og vegamót, og að haldið verði áfram að fækka einbreiðum brúm. Þá bendir nefndin einnig á að kunnáttu almennings í almennri skyndihjálp þurfi að bæta og hvetur yfirvöld heilbrigðismála til fræðslu- herferðar um skyndihjálp. Framúrskarandi námsárangur hjá ungum Garðbæingi ATLI Freyr Þórsson lauk námi í 10. bekk í Garðaskóla á dögunum og var námsárangur hans fram- úrskarandi, jafnt á samræmdum prófum sem á öðrum prófum. Atli fékk 10 í ensku, dönsku og íslenzku og 9,5 í stærðfræði á samræmdum prófum en auk þess var hann með sex aðrar tíur á lokaönn sinni í skól- anum. „Ég fékk reyndar upphaflega 9,5 á samræmda prófinu í íslenzku en síðan kom íljós við prófskoðun að mistök höfðu átt sér stað við yfír- ferð og rétt cinkunn var 10,“ segir Atli en hann var eini nemandinn á þessu skólaári sem fékk 10 í ís- lenzku. Við skólaslit í vor fékk Atli sex viðurkenningar, fyrir fram- úrskarandi námsárangur á grunn- skólaprófí, í dönsku, ensku, þýzku, íslenzku og líffræði. Atli vill ekki þakka árangur sinn neinum sérstökum námsaðferðum og segist ekki hafa legið í bókunum í vetur. „Ég er tiltölulega fljótur að tileinka mér það sem ég læri en ég beiti engum sérstökum aðferðum eða tækni við lærdóminn. Eitt af mínum helztu áhugamálum er að lesa og það hefur væntanlega hjálp- að.“ Aðspurður hvers vegna slakur árangur var á samræmdum prófum í ár segist hann telja að það sé al- mennt áliugaleysi hjá krökkunum Forstjóri Holl- ustuverndar til starfa í Brussel ÁKVEÐIÐ hefur verið að HeiTnann Sveinbjörnsson, forstjóri Hollustu- verndar ríkisins, fari til starfa á veg- um umhverfisráðuneytisins til Brassel. Ráðuneytið hefur verið þar með starfsmann í hálfri stöðu á móti iðnaðarráðuneytinu, en Hermann mun verða í fullu starfi á vegum ráðuneytisins. Margar viðamiklai’ reglur hafa verið settar af hálfu Evrópusam- bandsins á sviði umhverfismála og gilda þær einnig á Evrópska efna- hagssvæðinu. Er talið brýnt fyrir ís- lensk stjórnvöld að fylgjast betur með því sem er að gerast hjá ESB á þessu sviði og reyna að hafa áhrif á efni tilskipana sambandsins. Leifur Eysteinsson mun gegna starfi forstjóra Hollustuverndar þangað til búið er að ráða í stöðuna. Gert er ráð fyrir að hún verði auglýst í lok ársins. sjálfum. „Ég tel að þetta sé ekki kennurunum að kenna eins og alltaf er verið að staglast á. Ég held að þetta sé sökum almenns áhugaleysis sem grafið hefur verið í fslendinga frá alda öðli. Ef það á að bæta náms- árangur þá þarf að bæta hugarfarið tel ég.“ I vetur gerði Atli gott betur en að fara í gegnum námsefni 10. bekkjar því hann er búinn að taka fimm áfanga á framhaldsskólastigi. „Það er samstarf í gangi milli Garðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ sem hefur gert mér kleift að taka áfanga sem kenndir eru í fjölbrautaskólanum. Því er ég búinn með fyrstu önn í fímm námsgreinum í framhaldsskóla. Þessar greinar koma nú ekki til með að nýtast mér neitt sérstaklega, ég hef frekar gert þetta áhugans vegna,“ segir Atli. Atli hefúr nám næsta vetur í Menntaskólanum í Reykavík á mála- braut og segir hann að það verði eitt af hans fyrstu verkum þai’ að stofna félag um endurupptöku zetunnar og segir Atli að hann hafi orðið ástfanginn af þessum staf eftir að hafa séð hann á síðum Morgunblaðs- ins og víðar. I sumar verður hann að vinna í ut- anríkisráðuneytinu við þýðingar og önnur verk. „Ég er ekki byrjaður að vinna ennþá en það má segja að eins og er sé ég í fullri vinnu við að bíða eftir símtali frá ráöuneytinu um það hvenær ég eigi að byija þar.“ AUGUST SILK á Islandi HeiCdsöCuvctð á 100% siCltf í dag. SíðnHtúCa 35, 2. (kaeð, %C. h-7. Peysasett, peysar, náttsett, sCoppar. ÚTSA LA Verslunin hættir - allt á að seljast Í3QI3I3SEE Klapparstíg 33, s. 551 2527 og 551 9801. Fasteignir á Netinu vfþmbl.is W LISTIN AÐ GEFA ROYAL COPENHAGEN BING & GR0NDAI1L GEORG JEþJSEN HOLME GAARD OF COPENHAGEN XS KÚNÍGÚND , sími 551 3469. Lokað á iaugardögum í sumar. Full búð af nýjum vörum. Mæðradagsplattinn er kominn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.