Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 27

Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 27 ERLENT Óöld á Mólúkkaeyjum akarta. AP. KRISTNIR menn sökuðu í gær múslímska árásarmenn um að hafa á mánudag banað fjölda þorpsbúa á Mólúkkaeyjum í Austur-Indónesíu. Að sögn vitna voru allt að 135 manns myrtir, þar af 127 kristnir og átta múslímar. Eru þetta ein- hverjar mestu blóðsúthellingar er orðið hafa í óöld þeirri er geisað hefir um langa hríð milli trúarhópa á eyjunum. Lögi'eglumenn sögðu að 108 kristnir og átta múslímar hefðu fallið í árás er gerð hafi verið á þorpið Dúma, þar sem búa kristnir menn, á Halmahera-eyju. Sögðu lögreglumennirnir að árásarmennirnir hefðu verið búnir hervopnum, en þorpsbúar hafí bar- izt við þá með heimagerðum vopn- um eða lagt á ílótta inn í frumskóg- inn. OiTustan hafi staðið í u.þ.b. eina klukkustund. Opinber fréttast- ofa Indónesíu, Antara, sagði að 70 manns hefðu særzt. Einnig greindi fréttastofan frá því, að eldur hafí verið lagður að 292 heimilum og einni kirkju. Langvinn átök Atök milli trúarhópa hafa staðið með hléum á Mólúkkaeyjum í eitt og hálft ár og hafa yfir 2.500 manns fallið í þeim átökum. Haft var eftir hðsforingja í indónesíska hernum að her- og sérsveitarmenn hafi gengið í milli hópanna er börðust á mánudaginn, en í gær var ástandið á eynni engu að síður viðkvæmt. Hadi, prestur í nágrannabænum Tobelo, sagði að um eitt þúsund manns byggju í Dúma, en undan- farnar vikur hefðu alls verið þar um tvö þúsund manns vegna þess að margir hefðu flúið þangað úr sveit- unum í nági'enninu vegna átaka. Mólúkkaeyjar voru áður hollenzk nýlenda og kölluðust þá Kryddeyj- ar. Ibúar Indónesíu eru um 210 milljónir og eru 90% þeirra múslím- ar. Reuters Múslímskir íbúar frá Mólúkkaeyjum efndu til mótmæla í Jakarta í gær og boðuðu sumir þeirra, t.d. þessi maður, „heilagt stríð“ gegn kristnum. Þingkosningar í Japan Búist við sigri Frjálslynda lýð- ræðisflokksins Reuters Yoshiro Mori, forsætisráðherra Japans. Ttíkýó. AFP. FRJÁLSLYNDI lýð- ræðisflokkurinn, stærsti stjórnarflokkur Japans, er talinn líklegur til að fara með sigur af hólmi í þingkosningum sem fram fara í landinu á sunnudag, þrátt fyrir að vinsældir Yoshiro Mori, forsætisráðherra Jap- ans, hafi dvínað veru- lega. Margir stjórnmála- fræðingar höfðu áður spáð flokknum falli í kjölfar þess að vinsældir stjórnar Moris mælast nú innan við 20% skv. flestum skoðanakönnun- um. Kannanir sem gerð- ar vora á vegum Asahi Shimbun og Manichi Shimbun nú í vikunni fyrir kosningar benda hins vegar til þess að flokkurinn kunni að fara með sigur af hólmi þó hann tapi ein- hverjum þingsætum. „Þrátt fyi’ir að fyrri kosningaspár hafi bent til annars er útlit fyrir að Frjálslyndi ' lýðræðisflokkurinn verði sigurvegari þessara kosninga og nái öruggum meirihluta," sagði í greinargerð Manichi Shimbun. As- ahi Shimbun taldi könnun sína þó óáreiðanlega þar sem um helming- ur aðspurðra var enn óákveðinn og niðurstöður kosninganna því sagðar geta orðið mjög frábrugðnar niður- stöðum könnunarinnar. Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn Japans frá myndun flokksins 1955, fyrir utan tíu mánuði árið 1993. LLINGSEN Grandagarði 2 | Reykjavík | sími 580 8500 J I kr. 3.980 Þessir skór fást í stæröunum 36-41 -skódagar- Einnig höfum viö nokkrar geröir af skóm í yfirstæröum 46-51 ÍEKKERT Nú ber vel í veiðil Maxon AAX-2450 Tilboð: IHfuToH Listaverð: 19.980,- Léttkaup Símans 3.980,- út og 1.000 kr. á mán. í ár EkkertStofngjald í júní og júlí er ekkert stofngjald í NMT farsímakerfinu. NMT - langdræga farsímakerfið Utbreiðsla NM T farsímakerfisins Fáðu nánari upplýsingar um NMT í gjaldfrjálsu númeri f 800 7000] eða á netinu www.siminn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.