Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 47

Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 47^ > Það var alltaf notalegt að koma á Fomhagann til Þuru og Ella. Þá var alltaf fyrst farið í eldhússkápana og athugað hvort ekki væri þar að finna súkkulaðihjúpaða döðluköku sem var algört uppáhald okkar systkin- anna. Maturinn hennar Þuru var líka alltaf miklu betri en heima. Það var líka gott að skjótast til hennar milli tíma í háskólanum því hún sá alltaf til þess að enginn færi svangur frá henni. Þura saumaði öll föt á okkur fram eftir aldri enda góð saumakona. Hún kenndi okkur fljótt að leika ekki að títuprjónunum hennar með því að leyfa okkur að finna hvernig það væri að fá títuprjón í handarbakið. Það var alltaf skemmtilegt að fá að sofa hjá Þuru og Ella í flatsæng á gólfinu, heyra sögurnar hennar af dýrunum í sveitinni og fá „nammi“ sem hún átti alltaf í veskinu. Hún var okkur sem önnur móðir og hafði alla tíð áhuga á að vita hvað við tókum okkur fyrir hendur. Stundunum með henni gleymum við aldrei. Blessuð sé minning hennar. Við sendum Ella, Didda, Kristínu og fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur. Rannveig og Óli. Að morgni 12. júní bárust mér þau tíðindi að Þuríður frænka mín hafi farið í ferðina sem á eftir að liggja fyrir okkur öllum. Ég vil minnast frænku minnar nokkrum orðum, eða Þura eins og hún var kölluð af sínu frændfólki. Það var gaman að ná frænku á spjall og setjast inn í litlu fínu stofuna hennar og heyra hana rifja upp bemskuminningar sínar. Ég man hvað ég var hissa þegar hún sagði mér að hún hefði verið tólf ára þegar hún sneið fyrstu buxurnar og saumaði á föður sinn. Móðir hennar hafði á orði að hún myndi gera þær ónýtar. En frænka spretti upp göml- um buxum og sneið nýjar og allt gekk vel. Þura var um tvítugt þegar hún lærði karlmannafatasaum hjá Gunnari Sæmundssyni klæðskera. Frænku fannst alitaf gaman að sauma enda kom það henni vel þegar hún átti tvíburana sína. Frænka var mikill dýravinur og hefði því orðið mikil búkona hefði hún búið í sveit. Hesturinn var frænku ætíð kær. Útreiðar var sú íþrótt sem maður stundaði í þá daga þegar við vorum ungar. Hún minntist oft á Mósa sinn og hafði alltaf mynd af honum uppi við. Hún hafði gott lag á hrossum og talaði við þau með blíðri röddu. Hún sagði mér að þegar hún hefði farið með hesta yfir keldur þá stappaði hún fyrir þá með fótunum áður. Hestamir voru þá fljótir að elta hana alveg sama hve keldumar vora slæmar. Hún sagði mér frá því þegar hún fór fyrst suður og kom svo aftur heim í jólafrí. Köttminn heyrði mál- róm hennar úr forstofunni og sperrti strax eyran og fór heldur betur að leggja við hlustimar. Köttminn þekkti þá strax málróminn, kom fram og vildi ekki frá henni víkja. Margar sögumar sagði hún mér frá dýranum sínum. Alltaf var góður andi á heimili þeirra hjóna og svo gott að koma til þeirra. Frænka mín, þakka þér alla þá góðvild sem þú hefur sýnt mér. Ég vona að húnvetnskt sólarlag hafi lýst þér til himinsins heim. Ég sendi Guðmundi Ellert, börnunum þeirra og öðram ástvinum innilegustu sam- úðarkveðjur. Þar sem hljómar ótal óma, óskagestir ljóðin þylja, fljúga svanir fjallasýn, þar sem angan ungra blóma örvar gleði, starf og vhja, þar er sveitin, sveitin mín. (Arinbjöm Amason.) Þín frænka, Arný Kristófersdóttir. Þegar ég kom suður til Reykjavík- ur í byrjun sjöunda áratugarins tengdist ég fljótlega íbúðinni í stiga- ganginum á annarri hæð til hægri að Fomhaga 11. Fóstursystir föður míns, hún Kristbjörg Þorbergsdótt- ir, bjó þar og ég var tíður gestur hjá henni. Stundum voram við nokkrir frændur þarna og gerðum allt vit- laust í blokkinni um það leytið sem börnin fóra að sofa. Þá áttum við það til að hringja á öllum dyrasímum og létum okkur þá hverfa. Mæðurnar undu þessu illa og börnin hrukku upp af blundinum. I íbúðinni á móti henni frænku minni bjó gamall sýslumaður utan af landi. Okkur strákum þótti hann nokkuð strangur og voguðum okkur ekki að abbast upp á hann. Svo liðu nokkur ár. Hún Krist- björg gekk yfir móðuna miklu og ég flutti burt úr Reykjavík en kom þangað aftur og bjó þá um árabil á Fomhaganum og var til heimilis hjá systur minni og mági. í íbúðina beint á móti var flutt nýtt fólk, hjónin Guð- mundur Erlendsson og Þuríður Skarphéðinsdóttir, sem verður jarð- sett í dag, 21. júní. Þuríður og Guð- mundur vora afar dagfarsprútt fólk og það fór lítið fyrir þeim. Við heils- uðumst á fömum vegi en samgangur var ekki teljandi. Enn liðu árin og ég bjó enn á Fornhaganum og nú við breyttar að- stæður. Ég hafði gift mig og nú bjuggum við þrjú í íbúðinni beint á móti Guðmundi og Þuríði. Svo fór að við eignuðumst kettling. Honum var vel tekið í blokkinni og eftir að kött- urinn kom á Fornhagann fór ég að kynnast henni Þuríði fyrir alvöra. Hún vék sér að mér með sínu hæg- láta fasi og spurði hvernig hún „kiesa“ hefði það. Hún hafði dulítið skrið á i-hljóðinu. Svo fór ég að veita því athygli að þær Þuríður og kisa vora orðnar vinkonur. Því miður varð þessi köttur ekki langlífur. Hann fór út eitt sinn að kvöldi til, fór að elta bréf og gætti ekki að sér og varð fyrir bíl. Það syrgðu hann margir í stigagangin- um. Fljótlega kom annar kettlingur á svæðið, hún Skotta. Þuríður hændi Skottu að sér og þær urðu perluvin- konur. Ég man einu sinni eftir því að það var opið inn til okkar og einnig var opið upp á gátt hjá Þuríði og Guðmundi. Skotta litla var inni í stofu hjá okkur að hamast og svo birtist Þuríður inni í ganginum hjá sér og sagði: „Komdu.“ Kötturinn rauk beint til hennar og kom ekki aftur fyrr en hann hafði þegið góm- sætar veitingar. Það virtist vera sammerkt þeim hjónunum að vera góð við menn og málleysingja. Einu sinni kom Guð- mundur heim úr vinnu á jeppanum sínum og var eitthvað að dytta að bflnum. Skotta kom til hans, fór inn í bfl og sofnaði. Þuríður kallaði á Guð- mund í kvöldmatinn og í miðri máltíð stóð Guðmundur upp og sagðist ætla að gæta að henni Skottu, hún svæfi útií jeppa. Þegar Þuríður varð sjötug hér um árið ákváðum við að reyna að halda kisu frá henni svo að hún gæti nú haldið upp á afmælið sitt í friði. Að kvöldi afmælisdagsins var ég með Skottu í fanginu og mæti Þuríði og óska henni til hamingju með daginn. Hún þakkaði mér fyrir og strauk kisu og sagði: „Hún var nú sú fyrsta sem kom til mín í morgun." Svona sögur af Þuríði og sam- skiptum hennar við málleysingja gætu margir sagt. En Þuríður var einstök manneskja og reyndist öllum vel sem hún kynntist. Um nokkurra vikna skeið hafði hún ekki gengið heil til skógar. En nú hefur hún fengið hvfldina og von- andi mæta henni allir ferfættu vin- imir hennar sem hún var svo góð við. Kannski hann Stjarni, hesturinn hennar, reki henni rembingskoss og hver veit nema hún Skotta litla hitti hana. Það er mannbætandi og lær- dómsríkt að hafa fengið að kynnast manneskju eins og Þuríði Skarphéð- insdóttur. Blessuð sé minning hennar. Gísli Helgason. DÓRA GUÐJÓNSDÓTTIR + Dóra Guðjóns- ddttir fæddist í Reykjavík 6. júní 1935. Hún lést á Landspítalanum 24. maí síðastliðinn og fdr útför hennar fram frá Seljakirkju 6. júní. Hún hvarf inn í eilífð- ina á sama tíma og við flugum af landi brott og var til grafar borin áður en við komum heim. Að geta ekki fylgt henni var erfitt en minning hennar lifir með okkur og við sökn- um hennar. Það skiptir meira máli hvemig menn taka örlögum sínum en hver þau era. Hún Dóra Guðjóns vinkona mín tók örlögum sínum hverja stund með þrautseigju og festu en það þýð- ir ekki að hún hafi alltaf verið sátt við það sem lífið bauð henni. „Get, ætla, skal“ gætu hafa verið einkunnarorð hennar allt hennar líf. Hún sagðist heita Dóra Guðjóns Guðjónsdóttir þegar við kynntumst árið 1963 á Borgarbflastöðinni þar sem við unnum við símavörslu. Hún sagði að fóstri sinn hefði líka heitið Guðjón. Mér varð ljóst að þar fór ein- staklega greiðvikin og hjartahlý kona, hjá henni átti ég athvarf ef ég komst ekki heim af næturvakt upp í Selás. Eftir því sem árin liðu kom enn betur fram hennar sérstaki pers- ónuleiki, það var bara tfl ein Dóra Guðjóns. Dóra var dugleg að hringja og betra var að vera ekki upptekin þá, því það gat teygst vera- lega úr þeim samtölum. Hún vildi fylgjast með lífi þeirra, sem henni þótti vænt um og tryggð hennar var einstök. Það var sérstakt fyrir hana hve orðvör hún var um vini sína, þó hafði hún mjög ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum og lá ekki á því ef svo bar undir. Lovísa einkadóttir hennar gaf henni tvö barnabörn og tók Dóra strax ábyrgð á uppeldi þeirra, önnur eins böm vora ekki til. Gleði og stolt ömmunnar, umhyggja hennar um velferð þeirra og þroska átti sér eng- in takmörk. Þegar ég varð amma skildi ég hana betur og sagði henni það. Þá hló hún. Þegar Einar kom inn í líf hennar gekk hann Lovísu í fóður stað, bömin hennar eiga hann fyrir afa sem stendur með þeim nú. Ég sakna Dóra, enginn hringdi eins oft og hún bæði til að segja mér þeg- ar Dóra Björk og Guðjóni Emi gekk vel í því sem þau vora að gera eða til að fá fréttir af mér og mínum. 4. júlí 1999 var hún við hlið mér í afmælis- veislu Amar míns, mjöðmin var samt eitthvað að angra hana meira en venjulega. Hún hefði aldrei verið kvartsár og færi ekki að væla nú. 7. júlí var annar fóturinn orðinn þannig að hún fór til læknis, 13. júlí fékk hún úrskurðinn. Baráttan var hörð og erfið, Dóra mín ætlaði ekki að gefa eftir, hún hafði allt sitt líf barist tfl sigurs, nú átti hún við ofurefli að etja en hún tapaði með reisn. I lokaátökunum sagðist hún vera umkringd svo góðu fólki, mér finnst hún hafa átt það skilið. Þegar við kvöddumst sagðist hún skyldu láta mig vita þegar hún væri komin yfir, hún stóð við það. Synir mínir, Páll og fjölskylda hans í Danmörku, Þór í Bandaríkjun- um og við Öm þökkum Dóra vináttu og tryggð. Fjölskyldu Dóra sendum við innilegar samúðarkveðjur, þeirra er missirinn mestur. Biðjum við þeim Guðs blessunar nú og alltaf. Far þú í friði, friðurGuðsþigblessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. GekkstþúmeðGuði, Guð þérnúfylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt (V. Briem.) Hulda Guðmundsddttir. KRISTJANA BR YNJÓLFSDÓTTIIt + Kristjana Brynj- dlfsddttir (Nanný) fæddist í Reykjavík 24. ndv- ember 1923. Hún lést á hjúkrunarheimil- inu Skdgarbæ 12. júní síðastliðinn og fdr útför hennar fram frá Ddmkirkj- unni 20. júnf. Elsku amma mín. Þegar ég loka augun- um sé ég fyrir mér Hlyngerðið þar sem þið afi áttuð heima. Þegar ég kem inn tekur þú á móti mér með geislandi brosi og hlýju. Þú byrjar að hlæja og faðmar mig að þér, um mig fer sælutilfinning. Þú hvattir mig alltaf áfram í öllu sem ég tók mér fyrir hendur, lést mig aldrei gefast upp. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og aðra fjölskyld- umeðlimi. Góðsemi þín átti sér engin takmörk. Sumarbústaðurinn var sælureitur ykkar afa og sem strákur vildi ég hvergi annars stað- ar vera. Á fjölskylduhá- tíðunum í sumarþjjtþ staðnum varst þú hrókur alls fagnaðar. Þú hélst fjölskyldunni saman. Þú verður alltaf mitt leiðarljós í lífinu. Ég sakna þín meira en orð fá lýst. Þinn Brynjdlfur Bjarnason. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Senda má greinar til blaðsins í bréfsíma 5691115, eða á netfang þess (minning@mbl.is). Nauðsynlegt er, að símanúmer höf- undar/sendanda fylgi. Nánari upplýsingar má lesa á heimasíðum. Pað eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Móðir okkar og tengdamóðir, HULDA BJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, frá Víðivöllum Fnjóskadal, andaðist að heimili sínu 19. júní. Jarðaförin auglýst síðar. Fyrir hönd annarra vandamanna, börn og tengdabörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐLAUG SVEINSDÓTTIR, Garðbraut 19, Garði, verður jarðsungin frá Útskálakirkju föstudaginn 23. júníkl. 14.00. Sveinn Ragnar Björnsson, Loftveig Sigurgeirsdóttir, Guðrún Erla Björnsdóttir, Júlíus Jónsson. barnabörn og barnabarnabörn. Þegar andlát ber að höndum Önnumst alla þætti útfararinnar. Við Útfararstofu kirkjugarð- anna starfa nú 14 manns með áratuga reynslu við útfaraþjónustu. Stærsta útfararþjónusta landsins með þjónustu allan sólarhringinn. Prestur Kistulagning Kirkja Legstaður Kistur og krossar Sálmaskrá Val á tónlistafótki Kistuskreytingar Dánarvottorð Erfidrykkja ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA EHF. UTFARARSTOFAISLANDS Sjáum um alla þá þætti sem hafa ber í huga er andlát verður Útfararstjórar okkar búa yfir áratuga reynslu af störfum við útfararþjónustu. Sjáum um útfarir á allri landsbyggðinni. tSverrir lEinarsscn lútfararstjóri, ls Msítni 896 8242 Baldur Sverrir HKjjjpMj Frcderiksen Olsen K Æ útfararstjóri, útfararstjóri. nmS Æfsinu 895 9199 Útfararstofa íslands, Suðurhlíð 35, Fossvogi. Sími 581 3300. Þjónusta allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is T íl

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.