Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVTKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000 59 < -
Endimörk í óendanleikanum
I Frá Atla Hraunfjörð:
I ÞEGAR huganum er leitt að him-
ingeimnum, reynist mönnum hugs-
unin um óendanleikann yfirþyrm-
andi og mörgum verður að orði, að
honum sundli við þá hugsun og
reynir að leiða hana hjá sér.
Þrátt fyrir að heimurinn virðist
vera og er sannarlega óendanleg-
ur, hefur hann takmörk, sem felast
i í útþenslu og endimörkum þess
efnis sem við tilheyrum og er sá
útþenslumassi sem vísindamenn
hafa viljað kenna við Miklahvell,
en hann varð í árdaga okkar efnis-
heims, fyrir tólf milljörðum ára.
Nýlegar athuganir hafa sýnt,
að eftir því sem nær dregur
endimörkum efnisheimsins, virð-
ist efnið auka hraðann og er að
hverfa út úr sjónsviði okkar.
Sennilega er efnið farið veg allr-
ar veraldar, því það sem við grein-
um, hefur verið tólf milljarða ára á
leiðinni að skilningarvitum manns-
ins.
Hugmyndir manna um eðli efn-
isins hafa verið nokkuð á reiki, en
menn hafa verið almennt á því, að
efnið hefði þann eiginleika að þenj-
ast út og síðan dragast saman og
fara aftur á byrjenda reit og verða
að þéttum efnismassa, sem síðan
vegna innri krafta, springi aftur út
og myndar nýjan heim og svo koli
af kolli í það óendanlega.
í hinni miklu víðáttu geimsins
eru stjörnur öðru hvoru að springa
og síðan, í fyllingu tímans, aðrar
að myndast úr öskustó hinna.
Þrátt fyrir að tortíming sólar
séu ragnarök fyrir það líf sem við-
komandi sól hefur hugsanlega
fóstrað í sínu lífbelti, er samt tign-
arlegt og ægifagurt að verða vitni
að sprengingunni og fylgjast með
útþenslu þeirra efnisagna er áður
mynduðu lítinn lífheim.
Miðað við víðáttu heimsins, jafn-
vel þó þessi fyrrum sólstjarna hafi
verið í stærra lagi miðað við okkar
litlu sól, þá var hún eins og ryk-
korn á sendinni strönd, miðað við
stærð þess heims sem hún var
hluti af.
Með endurbættum tækjum hef-
ur ýmislegt komið í ljós sem ekki
passar inn í þá mynd sem maður-
inn hefur gert sér um eðli og aldur
þess efnisheims er við tilheyrum.
Eftir að Hubble-sjónaukinn kom
til sögunnar og síðan endurbættir
samþættaðir sjónaukar á Hawaii-
eyjum, sem gerðu allar rannsóknir
markvissari, en áður var hægt,
virðist sem sumar stjörnur (sólir)
séu allt að helmingi eldri en hug-
myndir manna um aldur Mikla-
hvells.
Sólnasveipir, sem við köllum
vetrarbrautir, eru samsafn sól-
kerfa svo tugum og hundruð þús-
unda milljónum skiptir.
Ekki er ofsagt þó fullyrt verði,
að vetrarbrautir þær sem tilheyra
okkar efnismassa séu fleiri en þær
sólstjörnur og sólhverfi sem þær
eru samsettar úr.
Hvað það er, sem er utan þess
svæðis, sem okkar Miklahvells-
massi nær til, er önnur saga, en þó
má láta hugann reika og geta sér
þess til, að þar séu aðrir heimar og
aðrir efnismassar í útþenslu, elleg-
ar í samhruni til upphafs síns og
síðan í fyllingu tímans í nýrri út-
þenslu og myndun nýrra veralda.
Eða, að heimurinn hafi alltaf
verið til og sé í sífelldri endur-
nýjun, sólir fæðast og sólir deyja.
Eðli heimsins er sífelld sköpun
og endurnýjun, eins og við sjáum
allt í kringum okkur.
Heimurinn er endalaus og með
endalausa möguleika til sköpunar
lífs og líftegunda. Veröldin er
endalaus þroskaleið lífsins, frá
minnstu frumu til vitiborinna líf-
vera og áfram til óendanlegra
þroskaleiða hins guðlega máttar.
ATLI HRAUNFJÖRÐ,
Marargrund 5, Garðabæ.
i
4
i
Nií reynir
á ríkis-
stjórn
FráÁsgerði Jónsdóttur:
í SJÓNVARPSFRÉTTUM að
kvöldi 5. júní sl. kynnti Hafrann-
sóknastofnun tillögur um heildar-
veiðiheimildir á næsta fiskveiðiári.
Sumar þeirra standa í stað frá aflíð-
andi ári, aðrar dragast verulega sam-
an, s.s. heimildir fyrir þorsk, ýsu og
rækju. Fyrstu viðbrögð gegn þess-
um fréttum voru: Kristján Ragnars-
son fékk skeifu og verðbréf tóku
dýfu. Hvort tveggja færðist þó að
fyrra horfi daginn eftir, líkt og þegar
„brýnn“ Egils Skalla-Grímssonar
færðust í lag eftir að Aðalsteinn kon-
ungur veitti honum fébætur eftir
Þórólf bróður hans. Kannski hefur
strax borist einhver von um huggun.
I Morgunblaðinu miðvikudaginn 7.
júní viðra margir málsmetandi menn
á fiskimálasviði skoðanir sínar á til-
lögum Hafrannsóknastofnunar. Um-
ræða þeirra er að vonum mörkuð
varkárni, en hnígur þó að því að
draga úr þeirri vá, er lagðist í loftið
við tíðindin. Enginn þeirra leggur í
að gefa bein ráð nema Sverrir Her-
mannsson. Utanríkisráðherra þykja
tíðindin ekki váleg og vísar til sjávar-
útvegsráðherra að taka ákvarðanir
og veita aðgerðir. Hér hljóta að
vakna stórar spurningar. Er það
ekki í verkahring allrar ríkisstjórn-
arinnar að móta ákvarðanir og að-
gerðir í jafnstórum málum og þeim,
hvort farið skuli að tillögum Haf-
rannsóknastofnunar og skerða kvóta
hinna tilteknu fiskitegunda og þá
hvemig þeirri skerðingu skuli hag-
að?
Það er stórpólitísk ráðstöfun, sem
öll ríkisstjórnin hlýtur að koma að en
ekki aðeins einn ráðherra. Ef til
skerðingar kemur, ætlar ríkisstjórn-
in þá að standa við orð sín og yfir-
lýsingar um stuðning við atvinnuvegi
landsbyggðarfólks og skerða ekki
fiskveiðirétt/veiðiheimildir þess og
fiskvinnslu - eða halda áfram að
gæla við kvótabraskara með fé sitt í
annars konar fyrirtækjum, í verð-
bréfum og í útlöndum? Hér liggur
við sú ábyrgð stjómmálamanna - og
embættismanna - er sífellt hækkar
laun þeirra en íþyngir þó ekki ferli
þeirra eða hag. Abyrgð í stórmálum
eins og þeim, er um ræðir í þessari
grein, hlýtur að liggja í höndum
þeirra og þeir geta ekki þvegið hend-
ur sínar af henni.
ÁSGERÐUR JÓNSDÓTTIR,
Drápuhlíð 32, Reykjavík.
tiðlBni hreinsunin
gsm897 3634
Þrif á rimlagluggatjöldum.
ynSUS
/ LJ ara
apmæLisHaTiÐ
Hlutverk ungra sjálfstæðismanna
Föstudaginn, 23. júní2000
Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 17:30
Opinn fundur um hlutverk og starf
ungra sjálfstæðismanna ífortíð og framtíð.
Framsögumenn:
Styrmir Gunnarsson
Friðrik Sophusson
Egill Helgason
Sigurður Kári Kristjánsson
Fundarstjóri: Ásdís Halla Bragadóttir
Útgáfuhóf 50 ára afmælisrits Stefnis að fundi loknum.
Þingvallaferð
Laugardaginn, 24. júní2000
Lagtafstað frá Valhöll, Háaleitisbraut 1, kl. 13:00
Gengið í fylgd Geirs H. Haarde að Hvannagjá,
þar sem sambandið var stofnað 27. júní 1930.
Blómsveigur lagður að minnisvarða dr. Bjarna Benediktssonar,
fyrrverandi forsætisráðherra, eiginkonu hans og dóttursonar þeirra.
Hátíðarkvöldverður
Laugardaginn, 24. júní2000
Sjálfstæðishúsinu við Austurvöll, kl. 19:00
Heiðursgestir:
Davíð Oddsson og Ástríður Thorarensen.
Skemmtiatriði.
Eftir matverður stiginn léttur dans við undirleik
kvintetts Árna Heiðars Karlssonar.
Guðmundur Guðmundsson, fyrirliði landsliðs matreiðslumeistara
til margra ára töfrar fram gull úr greipum Ægis: Skötusel og humar með
villisvepparisotto, basil og gulrótarolíu • Humarseyði • Steinbít og smálúðu
á seljurótarmauki með engifersósu og rauðvínsgljáa • Passionfrauð á
suðrænum ávöxtum.
Miðaverð: 3.900 kr.
Pantanir í síma 5151700 eða í gegnum tölvupóst sus@xd.is
WWW.SUS.IS
SAMBAND UNGRA
SJÁLFSTÆÐISMANNA
x