Morgunblaðið - 21.06.2000, Side 66
MORGUNBLAÐIÐ
66 MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
I tilefni aö útgáfu nýjustu smáskífu
Selmu, Respect yourself, býður
mbl.is upp á laufléttan spurninga-
leik. Kíktu á heimasíðu Selmu,
www.selma.is, og svaraðu nokkrum
spurningum á mbl.is, þar sem hægt
er að vinna:
• Smáskífuna Respect m:
yourself með Selmu résÍDecéál
• Smáskífuna Hitgirl ^ J á|
með Selmu ^ÍmA ™
• 100 miða á tónleika í Háskólabíói
með Selmu 24. júní kl. 14
• Árituð póstkort með Selmu
Auk þess fá nokkrir heppnir þátttak-
endur skemmtilegan vinning:
Hádegisverð fyrir tvo
MEÐ SELMU á veitinga
staðnum Apótekið.
Selma er einn okkar vinsæiasti tónlistarmað-
ur og á næstunni mun hún feta sín fyrstu spor
í útgáfumáium erlendis. Útgáfa nýjustu smá-
skífu Selmu, Respect yourself, er væntanleg
28. júní næstkomandi.
Skráðu þig strax á mbl.is!
FÓLK í FRÉTTUM
Yel heppnuð brettakeppni
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Hjólabrettakapparnir sýndu fín tilþrif á tónlistarhátíðinni góðu.
Hjólabrettarennsli er
vinsæl íþrótt, flókin og
erfíð. Ingvi Matthfas
Árnason fylgdist með
hjólabrettakeppni á
Tónlistarhátíð Reykja-
víkur.
HJÓLABRETTI hafa verið afar
vinsæl á íslandi síðastliði ár, íþrótt-
in er frekar ung og byrjuðu menn
ekki að iðka hjólabrettarennsli hér
að ráði fyrr en fyrir um tveim ára-
tugum. Mun styttra er þó síðan
heimurinn viðurkenndi að þarna
væri á ferðinni ein sú flóknasta og
erfiðasta íþrótt sem til er og ekki
bara leikföng fyrir yngri kynslóð-
irnar.
Allt frá upphafí hefur íþróttin
verið afar tengd tónlist og á flestum
tónleikum eða hátíðum sem haldnar
eru þessa dagana virðist alltaf
einhvað vera tengt hjólabrettum
eða snjóbrettum enda hóparnir sem
stunda báðar íþróttirnar ansi stórir.
Á tónlistarhátíðinni sem haldin
var í Laugardalnum síðustu helgi
stóð Brettabúð Reykjavíkur fyrir
Hjólabrettakeppni fyrir bæði yngri
og eldri brettamenn og heppnaðist
afar vel báða dagana. Reyndar
þurfti að flytja alla keppnina niður
á Eyjarslóð á sunnudaginn vegna
rigningar en þar er hjólabretta
„park“ rekið af ITR staðsett.
Á undan keppninni sýndu at-
vinnumennirnir John Rattray, Paul
Shier og Colin Kennedy íslending-
um hvað maður þarf að vera góður
til að verða atvinnumaður á hjóla-
bretti í dag og sannaði að Bretar
eru afar stutt á eftir Bandaríkja-
mönnum í íþróttinni.
í fyrsta sæti yngri flokks varð
Ómar, í öðru Hlynur og í þriðja
Doddi. Keppnin var ekki mjög löng
sökum minni þátttöku en búist var
við.
Á sunnudaginn var keppni eldri
flokks haldin og var öllu meiri kraft-
ur í henni. Egill, sem álitinn var sig-
ustranglegastur eftir síðustu keppn-
ir, þurfti að lúta í lægra haldi fyrir
Hadda sem var að koma úr tveggja
mánaða pásu eftir meiðsli eða eitt-
hvað svoleiðis. Úrslitin urðu þessi:
1. Haddi, 2. Egill, 3. Arnar Steinn.
Dj Össi sá um að þeyta skífur
fyrir mannskapinn á sunnudag og
hlaut fólk bestu skemmtun af.
Mun meira er um skemmtanir af
þessu tagi í brettaíþróttageiranum
en í öðrum íþróttum og allt frá byrj-
un hafa Týndi hlekkurinn, Smash,
sem reyndar er hætt að nenna að
gera nokkurn skapaðan hlut, og
Brettabúð Reykjavíkur verið virkar
í alls konar uppákomum fyrir iðk-
endur brettarennslis. Ættu önnur
íþróttafélög að taka brettadeild
ITR sér til fyrirmyndar og reyna að
gera eitthvað skemmtilegt öðru
hvoru.
21 Mami'nhlaMÉSao:
Torfæra
fyrir
tjallann
Á DÖGUNUM var haldin torfæru-
keppni að fslenskum sið í Swindon á
Bretlandseyjum. Skemmst er frá
því að segja að tjallinn var hreint
agndofa yfir því sem fyrir augu bar
enda hefur hæfni hinna djörfu ís-
lensku ökuþóra og ekki síst hin
óárennilegu tryllitæki þeirra vakið
mikla athygli um heini allan. Á mót-
inu í Swindon bar Gunnar Egilsson
frá Selfossi þó höfuð og herðar yfir
aðra ökuþóra er hann spólaði sig til
sigurs á Erninum ógurlega og var
hann hylltur ákaft af fimm þúsund
áhorfendum þegar Þorsteinn Páls-
son, sendiherra í Lundúnum, veitti
honum verðlaunabikar að launum.