Morgunblaðið - 21.06.2000, Síða 72
Drögum næst
28. júní
Heimavörn
Sími: 580 7000
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 21. JÚNÍ 2000
VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK.
Jarðskjálftinn 17. júní
fannst greinilega úti á sjó
Héldu bát-
inn hafa
strandað
„VIÐ héldum fyrst að við hefðum
steytt á grynningu fyrst við vorum
komnir svona nærri landi því það kom
mikið högg á bátinn og strákamir
þustu allir út á dekk og skildu ekki
neitt í neinu,“ sagði Magnús Rík-
arðsson, skipstjóri á Drangvík VE en
skipið var statt um hálfa sjómílu frá
landi á leið inn tíi Þorlákshafnar þeg-
ar jarðskjálftínn reið yfir á laugardag.
„Maður góndi á dýptarmælinn og
sá þá að við vorum ekki strandaðir
þannig að þegar við vorum þess full-
vissir að við hefðum ekki tekið niðri
héldum við að við hefðum fengið eitt-
hvað í skrúfúna en svo var auðvitað
ekki. Ég hefði ekki trúað að maður
fyndi svona vel fyrir þessu og eins
lengi. Við höfum einnig heyrt frá bát-
um sem voru mun lengra útí en við og
þeir fundu margir mjög vel fyrir
skjálftanum," segir Magnús.
Lítil veiði hefur verið á miðunum út
af Vík í Mýrdal síðustu daga og hafa
sérfræðingar úr röðum sjómanna
leitt að því líkum að aflabrestur teng-
ist jarðskjálftanum á einhvem hátt.
Steingrímur Jónsson, haffræðingur
hjá Hafrannsóknastofnun, segir held-
ur ólíklegt að hægt sé að tengja sam-
an lélega veiði og jarðskjálfta. Skýr-
ingin sé þó ekki út í hött þar sem
jarðskjálftar hafi áhrif í sjó.
■ Skjálftí á miðunum/B4
----------------
Slys í glerverk-
smiðjunni á Hellu
Slagæð
skarst
í sundur
MAÐUR skarst illa á handlegg þeg-
ar hann var að vinna við hreinsunar-
störf í glerverksmiðjunni á Hellu í
gær. Slagæð í handlegg mannsins
fór í sundur en félagar hans bragð-
ust skjótt við og náðu að stöðva blæð-
inguna að mestu og koma honum síð-
an á heilsugæslustöðina á Hellu.
Maðurinn var síðan sendur með
sjúkrabíl á slysadeild Landspítalans
í Fossvogi þaðan sem hann var út-
skrifaður seinni partinn í gær eftir
að gert hafði verið að sáram hans.
Að sögn læknis á slysadeildinni í
F ossvogi skiptí það höfuðmáli að rétt
hafði verið bragðist við slysinu strax
á slysstað. Þar var slagæðarblæðing-
in stöðvuð og manninum síðan komið
eins fljótt og hægt var undir læknis-
hendur.
Landspítali - hásköla-
sjúkrahús
Horfur
á 2% halla
á rekstri
Á FUNDI stjómarnefndar Land-
spítalans í gær var lagt fram upp-
gjör fyrir rekstur spítalans fyrstu
fjóra mánuði ársins. Að sögn Guð-
nýjar Sverrisdóttur formanns
stjómar bendir uppgjörið til þess
að 300 milljóna halli verði á rekstr-
inum á þessu ári en það er um 2%
af veltu.
Velta Landspítalans - háskóla-
sjúkrahúss er um 20 milljarðar á
þessu ári og Guðný sagði að 2%
frávik frá rekstraráætlun væri því
ekki mikið en stjómendur spítalans
ætluðu sér að reyna að reka hann á
núlli. Það þyrfti þess vegna að beita
aðhaldi í rekstri ef það ætti að tak-
ast. Magnús Pétursson forstjóri
Landspítalans sagði að þegar hefði
verið lagt fyrir stjórnendur sviða að
gæta aðhalds og sagðist hann gera
sér vonir um að staðan yrði betri
en tölur yfir reksturinn á fyrstu
fjóram mánuðunum bentu tíl.
Jarðfræðingarnir Páll Einarsson, Amy Clifton og Maryam Khondayar unnu í gær
við að mæla sprungur með GPS- staðsetningartæki.
Morgunblaðið/Golli
Ekið á átta
ára stúlku
BIFREIÐ var ekið á 8 ára
gamla stúlku á mótum Suðm'-
götu og Brynjólfsgötu í vestur-
bæ Reykjavíkur um sjöleytíð í
gærkvöldi.
Stúlkan, sem var á reiðhjóli,
fótbrotnaði og hlaut höfuð-
áverka við slysið og var flutt á
slysadeild Landspítalans í Foss-
vogi. Eftir aðhlynningu á slysa-
deild var hún flutt á gjörgæslu-
deild þar sem henni var haldið
sofandi í nótt, en síðan var ætl-
unin að rannsaka áverka hennar
frekar með morgninum. Að
sögn vakthafandi læknis á slysa-
deild leikur ekki vafi á því, að
reiðhjólahjálmur sem stúlkan
var með hafi bjargað lífi hennar.
Yisindamenn kortleggija jarðrask eftir .jarðskjálftann í Holtum
Upptök misgengis á gam-
alli en óþekktri sprungu
PÁLL Einarsson, prófessor í jarð-
eðlisfræði við Háskóla íslands, tel-
ur að þjóðhátíðarskjálftinn eigi
Maestro ÞITT FÉ HVAR SEM
ÞU ERT
upptök í gamalli jarðskjálftaspr-
ungu sem ekki var vitað um. Hann
er að skoða upptakamisgengið og
segir að ummerkin í jarðveginum
séu greinilega öllu minni en eftir
fyrri Suðurlandsskjálfta. Það stað-
festi að áætlanir um stærð fyrri
skjálfta geti verið nálægt lagi.
Mikið jarðrask hefur orðið víða
á upptakamisgengi jarðskjálftans.
Páll Einarsson og samstarfsfólk
hans gengur eftir sprangunni í
þeim tilgangi að reyna að staðsetja
hana í landinu. Bergsprungan er
að minnsta kosti 25 kílómetra löng
því ummerki eftir hana sjást víða á
svæðinu frá Árbæjarhjáleigu,
norður Holtin og yfir Þjórsá að
Hrepphólum í Hrunamannahi-eppi.
Miðja hennar er talin vera við
Skammbeinsstaði.
Alls urðu um 2.500 jarðskjálftar
á Suðurlandi í gær en þeir vora
allir mjög litlir eða í kringum 1 á
Riehterkvarða og þeir stærstu upp
undir 2. Áttu allir jarðskjálftarnir
upptök sín á Suðurlandsundirlend-
inu.
Skjálftinn hefur góð áhrif
á vatnsbúskapinn
Heildaráhrif skjálftans á vatns-
búskap á svæðinu eru talin mjög
góð og telur Ólafur G. Flóvenz,
framkvæmdastjóri rannsóknasviðs
Orkustofnunar, að áhrif skjálftans
muni ganga til baka á fáum dög-
um.
Geir Zoéga, framkvæmdastjóri
Viðlagatryggingar, segir að gríðar-
leg vinna bíði starfsfólks stofnun-
arinnar við mat á tjóni vegna
skjálftans og segir ljóst að eitt-
hvað muni þurfa að fjölga starfs-
fólki. Komið verður upp stjórnstöð
Viðlagatryggingar í skólahúsinu á
Hellu og verður fyrirspurnum
fólks svarað þar og greitt úr þeim
erindum sem kunna að berast. Þá
leituðu á fimmta tug manna að-
stoðar Rauða krossins í grunnskól-
anum á Hellu í gær.
Tveir flokkar björgunarsveitar-
manna frá Landsbjörg í Reykjavík
aðstoðuðu heimamenn í björgunar-
sveitunum á Hellu í gærkvöld við
að flytja innanstokksmuni úr
skemmdum húsum en þeir eru sér-
þjálfaðir til þeirra verka.
Ailir þeir sem misstu hús sín í
skjálftanum hafa fengið húsnæði
til bráðabirgða, að sögn Guðmun-
dar Inga Gunnlaugssonar, sveitar-
stjóra á Hellu.
■ Skjálftinn/6,10,11,36-37