Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 05.07.2000, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Erlendir sendiherrar í Þjóðmenn- ingarhúsinu FJOLDI erlendra gesta á kristnihá- ti'ð heimsótti Þjdðmenningarhúsið við Hverfisgötu í Reykjavík og skoðaði sögusýninguna Kristni í þúsund ár, sem þar var nýlega opn- uð. Meðal gesta í húsinu á laugar- daginn voru sendiherrar erlendra ríkja á Islandi, sem voru í boði Hall- ddrs Ásgrímssonar, utanríkis- ráðherra, og forsetar þjdðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja, sem hér voru staddir á vegum Al- þingis. Snæddu gestirnir í bdkasal Þjdð- mcnningarhússins. I bdkasalnum eru til sýnis helstu kjörgripir íslenskrar bdkmenning- ar frá upphafi prentlistar í landinu. Guðmundur Magnússon, for- stöðumaður Þjóðmenningarhúss- ins, tdk á mdti gestunum og Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörður og Gísli Sigurðsson fræðimaður á Stofnun Árna Magnússonar, leið- beindu um sýningar í húsinu. Gunnar og Hjörleifur Guttormssynir kæra úrskurð um Fljótsdalslínur Lagning línu í farvegi Jökulsár og Lagarfljóts verði könnuð GUNNAR og Hjörleifur Guttormssynir kærðu í gær úrskurð skipulagsstjóra ríkisins um 400 kV Fljótsdalslínur til umhverfisráðherra. Segir m.a. í rökum fyrir kröfum kærenda að úrskurð- urinn „...þar sem heimiluð er lagning nefndra raflína með óverulegum skilyrðum, byggi ekki á fullnægjandi athugun á veigamiklum þáttum málsins og að í aðdraganda úrskurðarins hafi ekki verið aflað svo viðhlítandi sé gagna eins og gera verður kröfu til í svo stóru og afdrifaríku máli.“ Árfarvegir sem línustæði I kærunni setja þeir bræður fram sem aðal- kröfu að úrskurði skipulagsstjóra verði breytt með því að umhverfisráðherra úrskurði að framkvæmdin skuli sett í frekara mat sam- kvæmt lögum nr. 63/1993. Vilja þeir að í frek- ara mati verði m.a. kannaður til hlítar sá mögu- leiki að raflínurnar verði lagðar í árfarvegum Jökulsár og Lagarfljóts út undir Egilsstaði og þaðan í loftlínu yfir Egilsstaðaháls, um Eyvind- ardal og Svínadal til Reyðarfjarðar. Á blaða- mannafundi með Gunnari og Hjörleifi í gær kom fram að með þessari leið yrði stórlega dregið úr þeirri sjónmengun af völdum línanna sem fjölmargir umsagnaraðilar hefðu lýst áhyggjum sínum af. T.a.m. kæmi línan austar að Reyðarfirði en nú er gert ráð fyrir og þann- ig yrði ekki vart við hana svo heitið geti frá þéttbýlinu þar, ólíkt fyrirhugaðri leið Landsvirkjunar þar sem línan liggur fram hjá þéttbýlinu að fyrirhuguðu verksmiðjusvæði. Útsýni frá Hallormsstaðaskógi spillt Samkvæmt áformum Landsvirkjunar munu Fljótsdalslínur verða aðskildar á Hallorms- staðahálsi og önnur línan, lína þrjú, liggja þar vestanvert í hálsinum undir Jökulhæðum. Segir í kæru Gunnars og Hjörleifs að stórkostleg sjónræn lýti hljótist af þessu línustæði þar sem línan muni blasa við og bera við loft frá byggð- inni á Hallormsstað og víða úr skóginum. Því er það varakrafa þeirra að þessi línukafli verði lagður í jörðu enda sé það einnig betri kostur vegna ísingarhættu á hálsinum. í varakröfu fara þeir einnig fram á að línan verði lögð í jörðu á köflum í Fljótsdal, í Skriðdal og fyrir botni Reyðarfjarðar vegna stórkostlegra sjón- rænna lýta sem af henni hljótist að öðrum kosti. Þrautavarakrafa í kæru bræðranna er síðan sú að horfið verði frá fyrrgreindu línustæði á Hallormsstaðahálsi annaðhvort með loftlínu annars staðar eða með því að leggja línuna í jörð. Að öðru leyti verði línan lögð í loftlínu eins og fyrirhugað er. Ekki sama hvernig að málum er staðið Á blaðamannafundi í gær sagði Hjörleifur m.a. að hjá því yrði að sjálfsögðu ekki komist að leggja raflínur ætluðu menn sér að flytja rafmagn á annað borð. Það væri hins vegar ekki sama hvernig að slíkri framkvæmd væri staðið. Sagðist hann vonast til þess að umhverf- isráðherra tæki tillit til kæruatriða og skoðaði málið vandlega enda væri fullt tilefni til. Halldör Ásgrímsson utanríkisráðherra ávarpar sendiherra ríkja á ís- landi í hádegisverðarboði í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn. Besta hefur leikinn í níunda sæti SIGLINGAKEPPNIN milli Reykjavíkur og borgar- innar Paimpol í Frakklandi heldur áfram í dag en þá verður ræst til siðari hluta keppninnar. Skúturnar 10 sem nú liggja í Reykjavíkurhöfn hcfja þá siglinguna aftur til Paimpol þar sem keppnin endar. Þrátt fyrir að hafa komið fyrst í mark í Reykjavík er íslenska skútan Besta í m'unda og neðsta sæti keppn- innar eftir fyrsta legginn. Ástæða þessa er að keppt er eftir forgjöf og er hún dhagstæð Bestu þar sem hún er stærri og hraðskreiðari en aðrar keppnisskútur. Það er skútan Diaoul Gwen sem er efst í keppninni, í öðru sæti er skútan Branec og skútan í þriðja sæti heitir Tamoil. Skútan Gravlinga, sem kom önnur til hafnar á eftir Bestu, er í sjöunda sæti. Tíunda skútan, Magnolia, telst ekki með í' keppninni þar sem hún er eina tvíljytnan í hdpnum. Baldvin Björgvinsson, skipstjdri Bestu, hefur til- kynnt um áhöfn skútunnar fyrir seinni hlutann. Nokkr- ar breytingar hafa verið gerðar á áhöfninni sein auk Baldvins er svo skipuð: Áskell Fannberg, siglingafræðingur, Arnþór Ragn- arsson, liðstjöri og stýrimaður, Emil Pétursson, lið- stjóri og framdekksmaður, Úlfur Hröbjartsson, taktik- er, Ragnar Hilmai sson, taktiker, Ingvar Ágúst Þórisson, kvikmyndatöku- og stýrimaður, Friðrik Ingi Friðriksson, seglastillari, Magnús Arason, seglastillari, Jdhannes Bjarni Bjarnason, framdekksmaður og Magdalena Ásgeirsdóttir, læknir. Auk fslendinganna verða um borð matreiðslumeistarinn Jean Claude Feru og eigandinn Marie Dufour. UTSALA Ein sú magnaðasta! Jakkaföt frá kr. 12.900 Stakir jakkar frá kr. 6.900 Stakar buxur frá kr. 3.900 Flauelsbuxur frá kr. 4. Skyrtur frá kr. 1.990 Peysur frá kr. 2.900 Úlpur frá kr. 6.900 Laugavegi 47 Sími 552 9122 Hafréttardómstóllinn í Hamborg fær nýtt húsnæði AI> NYTT ddmhús Hafréttardömstöls Sameinuðu þjdðanna í Hamborg hef- ur verið tekið í notkun og var Chandrasckhara Rao forseti ddmsins við- staddur vígslu ásamt Kofi Annan, aðalritara Sameinuðu þjdðanna. Nútímadómstóll með skjót viðbrögð „ÞETTA var virðuleg athöfn og við- eigandi," sagði Guðmundur Eiríks- son forseti alþjóðadómstóls sem fer með fiskveiðideilur og heyrir undir Hafréttardómstól Sameinuðu þjóð- anna í Hamborg en nýtt húsnæði dómstólsins var vígt 3. júlí sl. Meðal þeirra sem viðstaddir voru vígsluna voru Kofi Annan, aðalritari Samein- uðu þjóðanna, sem sérstaklega var boðið til athafnarinnar, fulltrúar þýskra stjómvalda og borgaryfir- valda í Hamborg. Guðmundur sagði það hafa verið sérlega ánægjulegt að hlýða á sjón- armið Kofi Ánnan á hlutverki Haf- réttardómstólsins, heildarmynd hans yfir þróun þjóðaréttar í heimin- um og mikilvægi í alþjóðasamskipt- um. Kofi Annan var mjög jákvæður í garð dómsins í ávarpi sínu og sagði að orðstír meðal fagmanna í þjóð- háttarfræði og sérfæðinga væri að Hafréttardómstóllinn væri nútíma- dómstóll sem gæti brugðist fljótt við. Markar tímamót Guðmundur sagði að húsið væri mjög glæsileg í alla staði og vandað að öllum búnaði og markaði tímamót í sögu dómstólsins. Þýska ríkið og borgaryfirvöld í Hamborg byggðu dómhúsið en það er rúmlega 36 þús. fermetrar á tveimur hæðum auk kjallara og er heildarkostnaður rúm- ir 4,5 milljarðar ísl. króna. Þrír dómsalir eru í húsinu, einn stór þegar dómurinn er fullskipaður 21 alþjóðlegum dómara og rúmar hann þá 160 áheyrendur og tveir minni salir sem hægt er að sameina stóra salnum og rúmast þá um 240 áheyrendur. Hafréttardómstóll Sameinuðu- þjóðanna tók til starfa haustið 1996 en í Hafréttarsáttmálanum frá 1982 vai' kveðið á um stofnun hans. Samn- ingurinn tók þó ekki gildi fyrr en eft- ir að 60 ríki höfðu fullgilt hann og sú tala náðist árið 1993.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.