Morgunblaðið - 05.07.2000, Page 17
rljálparstarf kirkjunnar
þakkar frábæran stuðning
við þrælabörn á Indlandi!
Þúsundir landsmanna hafa sýnt velvilja í verki og gefið 30 milljóllir kfóna
til þess að leysa þrælabörn úr ánauð, opna þeim leið til menntunar og
veita foreldrum þeirra stuðning. Þannig er best tryggt að börnin lendi ekki
aftur í skuldaánauð og þrælkun.
Hjálparstarf kirkjunnar og biskup íslands færa öllum
sem þátt tóku kærar kveðjur og einlægar þakkir.
<Gtr HJÁLPARSTARF
KIRKJUNNAR
- heima og lieiman
Biskup Islands
Enn gefst færi á að leysa börn úr ánauð
Reikningur söfnunarinnar er 886 í SPRON Skólavörðustíg
Faðir Martin flytur tvö erindi
Fimmtudaginn 6. júií í Neskirkju
Kl. 20:00
Kristni í straumi hindúisma og annarra trúarbragða og hugmyndafræði á
Indlandi. Erindið fjallar m.a. um þátt hindúisma í að viðhalda fátækt og
stéttaskiptingu, trú og hugmyndafræði sem stjórnunartæki og mátt eða
máttleysi trúar til að breyta lífi fólks til hins betra. Erindið er hluti af dagskrá
ráðstefnunnar Faith in the Future, flutt á ensku.
HLÉ
Kl. 21:00
Faðir Martin segir frá starfinu meðal þrælabarna
og stórauknum möguleikum og áformum með söfnunarfé íslendinga.
Erindið verður túlkað á íslensku.
Ólafiir Sigurðsson fféttamaður stjórnar fyrirspurnum og umræðum.
R B. Martin er prestur og stjórnmálafræðingur,
stofnandi Social Action Movement samtakanna,
samstarfsaðila Hjálparstarfs kirkjunnar.
Samtökin reka verkefnið meðal þrælabarnanna.
Erindin eru öllum opin og ókeypis
O
Omega Farma
www.omega.is
Thorarensen LYF
*spron