Morgunblaðið - 15.07.2000, Page 4

Morgunblaðið - 15.07.2000, Page 4
4 LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Áætlun Landsvirkjunar um mat á umhverfísáhrifum Kárahnúkavirkjunar Eiginleg-t mats- ferli er hafið LANDSVIRKJUN afhenti í gær Skipulags- stofnun áætlun um mat á umhverfisáhrifum Kárahnúkavirkjunar. Afl fyrirhugaðrar virkjunar er allt að 750 MW með allt að 2.200 G1 miðlun. Virkjunin verður byggð í áföngum og er áætlað afl allt að 500 MW í fyrsta áfanga og að virkjunin verði gangsett árið 2006. Gert er ráð fyrir að frumvarp til laga um virkjunina verði lagt fram á Alþingi snemma á næsta ári. Með tillögunni hefst hið eiginlega mats- ferli vegna Kárahnúkavirkjunar. Stefnt er að því að ljúka matsskýrslunni í mars á næsta ári. Tímaáætlun Kárahnúkavirkunar er eftir- farandi: Matsskýrsla auglýst í mars 2001, úrskurður Skipulagsstofnunar júní 2001, gerð útboðsgagna hefst sumarið 2001, upp- haf framkvæmda verður sumarið 2002 og virkjunin gangsett sumarið 2006. Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal stíflaðar Með Kárahnúkavirkjun eru Jökulsá á Dal og Jökulsá í Fljótsdal virkjaðar með stíflum og jarðgöngum í einni virkjun með stöðvar- húsi neðanjarðar við mynni Norðurdals í Fljótsdal. Fyrirkomulag virkjunarinnar er þannig að Jökulsá á Dal er stífluð við Fremri Kárahnúk og þannig myndað miðlunarlón sem nefnt hefur verið Hálslón. Frá lóninu er vatninu veitt um aðrennslisgöng til stöðvar- húss neðanjarðar í Norðurdal og þaðan út í Jökulsá í Fljótsdal skammt frá Valþjófsstað. Jökulsá í Fljótsdal er stífluð skammt neðan við Eyjabakkafoss og vatni úr henni er veitt um jarðgöng inn í aðrennslisgöng Kára- hnúkavirkjunar. Þá er vatni af Hraunum veitt til Jökulsár í Fljótsdal með svokallaðri Hraunaveitu. I tillögunni kemur fram að fyrirhugaðar framkvæmdir komi til með að hafa víðtæk umhverfisáhrif meðan á framkvæmdum stendur og eftir að þeim lýkur. Lagt er til að notuð verði vinsun til að meta helstu áhrif á náttúru og umhverfi, en það er aðferð sem hefst mjög snemma á matsferlinum. Tilgang- urinn með vinsun er að skilgreina helstu um- hverfisþætti sem gera má ráð fyrir að sér- fræðingar og almenningur telji mikilvæga svo að hægt sé að lýsa líklegum áhrifum fyr- irhugaðrar framkvæmdar. Allt að 60 ferkílómetrar lands undir Hálslón Nokkurt landsvæði mun hverfa undir uppistöðulón og þeirra stærst er fyrirhugað Hálslón sem verður allt að 60 ferkílómetrar að stærð og er hluti svæðisins á náttúru- minjaskrá, að því er fram kemur í tillögunni. Neðan við stíflur verða breytingar á rennsli og eðli vatnsfalla. Vatnsrennsli Jökulsár í Fljótsdal mun aukast en Jökulsár á Dal minnka verulega. Fyrirhugað er að dýpka og víkka farveg Lagarfljóts á nokkrum stöðum til að auka flutningsgetu árinnar þannig að yfirborð hækki ekki. Þá mun veita Jökulsár á Dal yfir í Fljótsdal hafa áhrif á sameiginlegan ós ánna og strönd við Héraðsflóa. Samkvæmt tillögunni verður breytt grunnvatnsstaða og önnur afleidd áhrif á gróður og búskap metin sem og áhrif á lífríki sjávar fyrir utan ströndina. Þá verði áhrif vegna mannvirkja- gerðar metin með tilliti til landslags, gróð- urs, dýralífs, jarðvegsrofs, aurburðar, um- ferðar, titrings og annarra umhverfisáhrifa. Fyrirhugað er að leggja 20 km langan veg frá Laugarfelli um Tungu og yfir Kárahnúkastíflu. Lagt er til að samfélagsleg og þjóðhagsleg áhrif framkvæmdarinnar verði metin, bæði svæðisbundið og á landsvísu. Þessa mynd tók Helgi Torfason jarðfræðingur í fyrradag og sýnir hún Geysi í Haukadal og fyrsta fullkomna gos hans í áratugi. Geysir gaus 25-30 m háu gosi í FYRRADAG náði Helgi Torfa- son, jarðfræðingur á Orkustofnun, myndum af Geysisgosi. Tók hver- inn upp á því að gjósa af eigin rammleik og telur Helgi þetta vera fyrsta fullkomna gos hans í áratugi, enda tæmdi hann sig al- veg og endaði með sterku gufu- gosi. Náði gossúlan 25-30 metra hæð. Er þessi virkni hversins núna talin afleiðing jarðskjálftanna á Suðurlandi í júní sl. Geysir í Haukadal, sem áður var ætíð nefndur Stóri-Geysir, er einn frægasti goshver í heimi og hefur nafn hans komist inn í erlend mál sem samheiti yfir goshveri. Geysir er þó hvorki stærstur né mestur af goshverum jarðarinnar en frægð hans er líklega til komin vegna þess að hann varð fyrr þekktur í Evrópu en aðrir goshverir. Hann er talinn hafa myndast í jarð- skjálfta í lok 13. aldar. Geysisskál- in er um 20 metrar í þvermál og um 1 metri á dýpt og niður úr skálinni gengur rúmlega 20 metra langur strokkur. Mestu gos í Geysi hafa náð 70-80 metra hæð og staðið í um 10 minútur. Til saman- burðar er turn Hallgrímskirkju í Reykjavík 74,5 metra hár. Geysir hefur gosið öldum saman en virknin er breytileg og vex hún yfirleitt við öfluga jarðskjálfta en dvínar þess á milli. I Suður- landsskjálftanum 1896 jókst virknin mjög en dvfnaði sfðan og hætti með öllu árið 1916. Þá var vatnsyfirborðið lækkað og gaus Geysir þá að nýju en gosvirknin dvínaði smám saman aftur. Geysir hefur nú verið í hvíld í áratugi en hægt er að framkalla gos með ýmsum aðferðum. Slík inngrip hafa orðið tilefni deilna milli þeirra sem telja að náttúran eigi að fara sfnu fram og hinna sem ekki telja Geysi mikils virði meðan hann ekki bærir á sér. Eflaust er mörgum í fersku minni kröftugt gosið í hvernum hinn 8. júní sl. eftir að rúm 40 kíló af sápu voru látin í hann. Útboð á rekstri Herjdlfs og Baldurs auglýst eftir tíu daga Ferj ureksturmn forauglýstur á EES ÚTBOÐ á ferjuleiðunum á milli Vest- mannaeyja og Þorlákshafnar og Stykkishólms, Flateyjar og Bijáns- lækjar verður auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu 23. júlí næstkom- andi. Utboðið hefur þegar verið for- auglýst innan EES. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru að leggja síðustu hönd á útboðslýs- * Alagningar- skrá birt 31. júlí SAMKVÆMT upplýsingum frá Skattstjóranum í Reykjavík verður álagningarskrá birt hinn 31. júlí næstkomandi. Um þessar mundir er Ríkisbókhald að vinna að útreikningum um innheimtu og álagningu sem er svo deilt niður á gjalddaga. ingu, að sögn Gunnars Gunnarsson- ar, framkvæmdastjóra stjómsýslu- sviðs. Við gerð lýsingarinnar er haft samráð við viðkomandi sveitarfélög sem fulltrúa notenda þjónustunnar. Ákveðið er að útboðið verði auglýst sunnudaginn 23. júh' og að sala út- boðsgagna hefjist 26. júh. Þá er stefnt að opnun útboða 11. september. Leigja aðstöðumannvirki Ríkið á ferjumar Heijólf og Bald- ur sem notaðar era á þessum feiju- leiðum og munu verktakarnir fá þær til afnota. Þá er Vegagerðin að ljúka samningum við Heijólf hf. um leigu á aðstöðumannvirkjum í Vestmanna- eyjum og Þorlákshöfn og aðgöngu- rana. Að sögn Gunnars er talið nauð- synlegt að láta væntanlegum samningsaðila þá aðstöðu í té því ann- ars yrði aðstaða fyrirtækja til að bjóða mjög mismunandi. Heijólfur hf. sem nú annast siglingamar hefði þá mikið forskot á aðra. Þá segir Gunnar að til athugunar sé að leita einnig samninga við Breiðafjarðar- ferjuna Baldur ehf. um leigu á að- stöðu feijunnar í Stykkishólmi og á Bijánslæk en það væri ekki eins nauðsynlegt því þær eignir tengdust ekki beint aðkomu ferjunnar. Ferjuleiðimar era boðnar út til þriggja ára með möguleika á fram- lengingu samnings í tvö ár. Ríkið hef- ur greitt Herjólfi hf. um 100 milljónii- kr. á ári og Breiðafjarðarfeijunni Baldri ehf. 30 milljónir fyrir að reka ferjurnar og nema þessir styrkir um 650 milljónum kr. á fimm ára tímabili. Gunnar segir að núverandi rekstr- arfyrirtækjum sé heimilt að bjóða í áframhaldandi rekstur þótt ríkið eigi 80% í Breiðafjarðarfeijunni Baldri ehf. og 46% í Heijólfi hf. Hann sér einnig fyrir sér að stóru skipafélögin geti haft hug á að bjóða og vísar í því efni til þess að dótturfélag Samskipa annast siglingar á feijuleiðum Sæ- fara á Eyjafirði. Þá kunni fleiri að hafa áhuga, til dæmis fyrirtæki sem nú gera út skip til skemmtisiglinga. Starfsmannaekla á sambýlum í Reykjaneskjördæmi Horfír til vandræða næsta haust TIL VANDRÆÐA horfir í starfsmannamálum á sambýlum sem heyra undir Svæðisskrif- stofu málefna fatlaðra í Reykja- neskjördæmi þegar sumarafleys- ingafólk lýkur störfum í haust. Hefur skrifstofan þegar auglýst 8 til 10 stöður lausar til umsókn- ar og aðeins fengið eina fyrir- spurn, en enga umsókn. Að sögn Sigríðar Kristjáns- dóttur hjá Svæðisskrifstofu mál- efna fatlaðra hefur það verið miklum erfiðleikum bundið að fá fólk til starfa á sambýlum allt frá síðasta hausti, svo miklum að í einstaka tilvikum hefur þurft að leita til aðstandenda vistmanna um aðstoð. Segir hún að til enn meiri vandræða horfi í haust, þegar fólk í sumarstörfum hjá sambýlunum hverfur til náms eða annarra starfa. „Við erum nú þegar með eina þrjátíu til fjöru- tíu starfsmenn sem eru að hætta á næstu vikum,“ sagði Sigríður. Átta til tíu stöður af þessum voru auglýstar til umsóknar í síðustu viku, en síðan hefur aðeins borist ein fyi-irspurn til skrifstofunnar og engin umsókn. Það má því nærri geta hvernig staðan verður þegar enn fleiri stöður losna með haustinu. Árið hefur verið erfitt í þess- um málum að sögn Sigríðar, bæði hvað varðar faglærða þroskaþjálfa og ófaglært starfs- fólk. „Við höfum þurft að ráða ófaglærða í stað þroskaþjálfa til starfa á sambýlunum og það meðal annars í forstöðumanns- stöður. Staðan er því sú á sumum sambýlanna að þar eru engir þroskaþjálfar við störf, sem mér þykir vera orðið mjög alvarlegt ástand." Of mikil ábyrgð á ungar herðar Skrifstofan hefur einnig þurft að brjóta sínar eigin reglur um aldur starfsmanna, einfaldlega í því skyni að geta mannað sam- býlin. Hafa hingað til gilt þær reglur að starfsmenn í þessum störfum verði að vera orðnir tví- tugir, en síðasta árið hafa verið ráðnir starfsmenn, allt niður í 17 ára gamlir. Af þessari þróun seg- ir Sigríður vert að hafa áhyggjur, enda sé það varla ósk manna að í framtíðinni verði sú ábyrgð sem störfum sem þessum fylgi lögð á 16 til 18 ára unglinga. „Þessi störf snúast ekki bara um að sinna grunnþörfunum, heldur um uppeldi, umönnun og þjálfun fatl- aðra einstaklinga, oft með hegð- unarvandkvæði eða geðræn vandamál. Hvernig í ósköpunum eiga unglingar, þótt þeir séu vel að manni, að axla slíka ábyrgð? Við getum einfaldlega ekki ætl- ast til þess,“ sagði Sigríður að lokum. Alvarlegt slys í Viðey í gær Stúlka fell 7-8 m ofan í grýtta fjöru SJÖ ára stúlka slasaðist alvarlega er hún hrapaði 7-8 metra í klettum í Viðey í gærmorgun. Stúlkan höfuð- kúpubrotnaði og skarst á höfði en var ekki talin í lífshættu. Hún var í stóram hópi barna sem voru á leikja- námskeiði í Viðey á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur, ÍTR. Nokkur börn veltu sér kollhnís niður brekku en ekki vildi betur til en svo að stúlkan fór fram af grasi gróinni brún og féll niður í grýtta fjöru. Hún var flutt með báti til lands og þaðan á slysadeild Landspítalans í Fossvogi og síðan á gjörgæsludeild. Óhappið átti sér stað á tólfta tíman- um í gærmorgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.