Morgunblaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 36
. 36 LAUGAKDAGUR 15. JÚLÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Að geta þess sem vel er gert LANDSBYGGÐIN býður upp á fjölbreytta möguleika til ferðalaga. Ein tegund hennar eru gönguferðir sem notið hafa vaxandi vinsælda síðustu árin. Fjölmarg- ir gönguhópar eru til vitnis um það sem stunda gönguferðir hér árlega. Þá er átt við ferðir sem taka nokkra daga. Fjölmörg svæði njóta vinsælda göngufólks. Það má nefna Hom- strandir fyrir vestan og Jdn Kristjánsson Fjörður og Látraströnd fyrir norðan og fjölmargar aðrar leið- ir mætti nefna svo sem „Laugaveg- inn“ og Fimmvörðuháls. A Austurlandi er að finna stór- brotnar gönguleiðir sem vaxandi að- sókn hefur verið að undanfarin ár. Þrjár skulu nefndar hér. Það er svæðið í kringum Borgarfjörð eystra um Víkur til Loðmundarfjarðar, Gerpissvæðið og gönguleiðin frá Snæfelli í Lónsöræfi. Auknar kröfur um aðbúnað Eins og á öðrum sviðum í samfé- laginu hafa kröfur um aðbúnað í skipulögðum gönguferðum vaxið. í samræmi við þetta hafa risið skálar til gistingar á gönguleiðum. Þeir gera það mögulegt að gista við góðar að- stæður eftir erfiða göngudaga í mis- jöfnu veðri. Þetta breikkar þann hóp sem getur hugsað sér að fara í langar gönguferðir. Ekki er á vísan að róa með veður í okkar misviðrasama landi og gildir þá einu hver árstíðin er. Borgarljörður eystri Hugleiðingar mínar um þetta eru sprottnar af því að nýlega átti ég leið um Borgarfjörð eystri. Þar hefur ferðamálahópur í hinu fámenna sam- félagi unnið af einstökum dugnaði að því að búa í haginn íyrir ferðamenn. Gefin hafa verið út góð kort um gönguleiðir og aðkoman að þeim merkt með varanlegum hætti. Félag- ar í Ferðafélagi Fljótsdalshéraðs hafa tekið höndum saman við Borg- firðinga og byggt tvo skála nú á stutt- um tíma á leiðinni um Víkur. Annar skálinn er í Breiðuvík og hinn í Húsa- vík en hann er nú um það bil að verða fuUbúinn. Framtak ferðafélaganna á Austurlandi í skálabyggingum hefur verið til mikillar fyrinnyndar og lögð hefur verið til gífurlega mikil sjálfboðavinna í þessar byggingar. Borgarfjarðarsvæðið er stórbrotið svæði fyrir göngufólk. Fjallasýn er þar einstök á góðum degi. Dyi'fjöll, Hvít- serkur, Staðarfjall og Skælingur eru glæsi- fjöll ásamt fleiri litfögr- um og tilkomumiklum fjöllum sem þama er að finna. Auk fjalianna eru fjölmargar náttúruperl- ur að finna á svæðinu. Þar má nefna Stóruurð undir Dyrfjöllum, þar sem framhlaup úr fjallinu myndar einstakt svæði. Aðkomuleiðir þangað eru nú vel merktar. Einnig má nefna Álfaborgina við þorpið Bakkagerði og Hafnarhólma við hafnarsvæði Borg- firðinga. Þar hefur nú verið lagður stigi upp hólmann með útsýnispalli og Ferdaþjónusta Starf ferðamálamanna og heimamanna á Borg- arfírði eystra og sam- vinna þeirra við Ferða- félag Fljótsdalshéraðs á það skilið, segir Jón Kristjánsson, að vakin sé athygli á því. sætum fyrir ferðalanga þar sem hægt er að fylgjast með fuglalífinu í návígi. Þessum mannvirkjum er vel fyrir komið og bera framtaki heimamanna í ferðamálum gott vitni. Það sem vel er gert Oftar en ekki er stungið niður penna til þess að vekja athygli á því sem miður fer. Þó að slíkt geti verið nauðsynlegt er engin goðgá að vekja einnig athygli á því sem vel er gert. Starf ferðamálamanna og heima- manna á Borgarfirði eystra og sam- vinna þeirra við Ferðafélag Fljóts- dalshéraðs á það skilið að vakin sé athygli á þvi. Höfundur er alþingismaður og vara- formaður Ferðamálaráðs. Þurfa bæjarfélög, stjérn- málaflokkar o g stofnanir markaðsrannsoknir? ÞAÐ færist í auk- ana að bæjarfélög, stofnanir og stjórn- málaflokkar nýti sér faglegar markað- srannsóknir og skoð- anakannanir til þess að komast að því hvað okkur „viðskiptavin- um“ þeirra finnst. Bæjarfélög og stofn- anir víða um land kanna ímynd sína og þjónustugæði. Þá eru mánaðarlega eða oftar gerðar kannanir á fylgi stjórnmálaflokk- anna. Sigríður Margrét Oddsdóttir Rannsókn fyrir Akureyrarbæ Markaðsrannsóknir og skoðana- kannanir henta jafnt fyrir bæjar- félög og eins fyrirtæki vegna þess að þær eru jafn mikilvægar fyrir bæjarfélög og fyrirtæki. Akureyr- arbær stóð nýverið fyrir metnaðar- fullum og faglegum rannsóknum sem taka á því hvaða þættir standa helst að baki ákvörðunum um bú- ferlaflutninga til og frá bænum ás- amt því að mæla hvernig ástand þeirra þátta er. Umræðan í þjóðfé- laginu um hvaða þættir skipta sköpum við búsetuval hefur verið fjölbreytt. Oft hefur hún snúist á þá leið að þjónusta innan bæjarfé- laga skipti sköpum. Niðurstöður rannsóknanna sem bæjarstjórinn á Akureyri, Kristján Þór Júlíusson, kynnti á blaðamannafundi fyrir skömmu sýndu á hinn bóginn fram á að atvinnumálin vega þyngst í þeirri ákvörðun fólks að flytja frá Akureyri. Akureyrarbær er búinn að greina hvaða þættir standa að baki búferlaflutningum til og frá Akureyri og meta ástand þeirra á þann hátt að matið endurspeglar viðhorf og líðan bæjarbúa. Þessar upplýsingar um þarfir og óskir „viðskiptavinanna" eru dýrmæt fjárfesting í samkeppnisyfirburð- um. Skoðanakannanir og markhópar Markaðsrannsóknir og skoðana- kannanir henta jafnt fyrir bæjar- félög, stjórnmálaflokka og fyrir- tæki. Markhópar eru jafn mikilvægir fyrir alla þessa aðila. Það verð- ur sífellt erfiðara að þjóna öllum markaðn- um. „Viðskiptavinim- ir“ hafa ólíkar þarfir og óskir. Markað- shlutun og val á markhópum er árang- ursrík aðferð sem hef- ur verið stunduð af fyrirtækjum hér heima og erlendis um árabil. Með því að hluta niður markaðinn og velja þann markaðshluta eða markhóp sem best hentar auðlindum og markmiðum fyrirtækisins aukast líkurnar á velgengni. Sama gildir um stjórnmálaflokka og bæjarfé- lög. Þessir aðilar standa frammi fyrir því að staðfærsla þeirra á markaðnum án markaðshlutunar verður sífellt erfiðari. Með því að nýta sér markaðsrannsóknir og skoðanakannanir er hægt að greina markaðshluta, finna mark- Markadur Markaðsrannsóknir, segir Sigríður Margrét Oddsdóttir, tryggja neytendum betri vöru og betri þjónustu. hópa og læra að þekkja þá. Hvern- ig eru þeir samsettir? Hverjar eru þarfir þeirra og óskir? Hvernig er auðveldast að ná í þá? Við hverja eiga þeir viðskipti? Hversu tryggir eru þeir? Þessum spurningum svara markaðsrannsóknir og skoð- anakannanir. Svörin styrkja sam- keppnistöðu þeirra fyrirtækja, bæjarfélaga og stjórnmálaflokka sem nýta sér rannsóknir af þessu tagi. Gallup mælir fylgi stjórnmála- flokka mánaðarlega. Þannig geta stjórnmálamenn fylgst með áhrif- um umfjöllunar, aðgerða og stefnumála á velgengni flokks síns. Hugur og hjarta kjósenda er ekki Listamenn útí móa LANDSLAGIÐ og náttúran hefur verið ís- lenskum myndlistar- mönnum yrkisefni í fjölda listaverka. Þórarinn B. Þorláks- son og Jón Stefánsson máluðu oft á tíðum rómantískar myndir af því sem tignarlegast er talið í íslensku lands- lagi: vötn, jöklar og fjöll böðuð síðsumar- birtu. Ásgrímur Jóns- son og Kristín Jóns- dóttir máluðu meðal annars myndir frá fögrum stöðum, þar sem birkihríslur og annar gróður eru í forgrunni en í bagrunni fjöll og jökl- ar sem minna á stórfengleika náttúr- unnar. Einar Jónsson endurgerði stuðlaberg Austfjarða í lágmyndum sínum og Júlíanna Sveinsdóttir mál- 1 aði hreinskilnar myndir frá æsku- slóðum sínum í Vestmannaeyjum. Meistari meistaranna, Kjarval, opn- aði augu íslendinga fyrir fegurð hraunsins og kenndi okkur að horfa niður fyrir tærnar og njóta þess smáa í náttúrunni. Á tíma abstraktmálverka og síðar minimalisma og conseptlistar var ekki í tísku að mæra náttúruna, en Gerla með endurkomu mál- verksins komu fram á sjónarsviðið listamenn sem eingöngu vinna myndir út frá landslag- inu og nátttúrunni, má þar nefna Eggert Pét- ursson, Guðrúnu Krist- jánsdóttur og Georg Guðna. Frumkvöðlar í íslenskri myndlist mál- uðu myndir frá ákveðn- um stöðum og bera heiti verkanna þess vitni t.d. „Snæfellsjök- ull“ „Útsýni til Heklu“ „Frá Þingvöllum". í dag hafa myndlistar- varpað fyrir róða hug- ,að landslag yrði lítisvirði ef það héti ekki neitt“ en vinna þess í stað með landslagið, náttúruna og þjóðararfinn sem mótvægi gegn al- þjóðlegum straumum. Á tíma hnatt- væðingar þegar heimurinn virðist vera að skreppa saman og verða að einum alþjóða stórmarkaði er nauð- synlegt að draga fram hið sérstaka hjá hverri þjóð. Okkar fremstu myndlistarmenn nú gera einmitt þetta, t.d. Steina Wasulka í videó- verkum sínum af vatni, Birgir Andr- ésson með íslenska fána prjónaða úr lopa, Halldór Ásgeirsson bræðir Vinnuskólinn Listamennirnir nálgast viðfangsefnið hver á sinn hátt og er fjöl- breytileikinn mikill,, segir Guðrún Erla Geirsdóttir og fullyrðir að mörg verkanna séu rammíslensk. menmrmr myndinni hraun óg Brynhildur Þorgeirsdóttir í skúlptúrum sem ýmist minna á fjöll eða forynjur. Hvernig eru þau verk sem mynd- listarmenn gera þegar þeim er boðið að vinna út í náttúrunni og með nátt- úruna? Það er einmitt það sem hægt er að skoða á sýningunni LAND- LIST VIÐ RAUÐAVATN. Sýningin er framlag Vinnuskólans til Reykja- víkur - menningarborgar Evrópu árið 2000. Þar sem þema Reykjavíkur sem menningarborgar er náttúra, fannst stjórn Vinnuskólans vel viðeigandi að skólinn tæki þátt í verkefninu. Þeir unglingar sem sækja skólann vinna í tengslum við náttúruna sum- arlangt, ýmist við að græða upp land með því að gróðursetja tré, sá í rofa- börð og gera gangstíga utan þéttbýl- is eða setja niður blóm og runna, slá gras og hreinsa arfa innan borgar- innar. Ákveðið var að bjóða fram landsvæði við Rauðavatn, en þar hef- ur skólinn unnið undanfarin ár við gróðursetningu og stígagerð. Svæðið er á margan hátt tilvalið til útivistar og þangað er hægt að ganga frá strætisvagnastöð í Arbæjarhverfinu. Sýningin var skipulögð í samvinnu við Samband íslenskra myndlistar- manna. Til þátttöku í sýningunni voru valdir myndlistarmenn sem lögðu fram hugmyndir sem voru inn- an rammans: komu með tillögur að verkum sem vinna átti í náttúruna og með náttúrunni. Myndlistarmenn- irnir útfærðu verk sín með hjálp unglinga í skólanum. Tvö verkanna voru útfærð s.l. sumar en hin fjórtán hafa verið í vinnslu nú í sumar. Lista- mennirnir nálgast viðfangsefnið hver á sinn hátt og er fjölbreytileik- inn mikill, fullyrða má að mörg verk- anna séu rammíslensk, en sjón er sögu ríkari. Sýningin verður opnuð á morgun, sunnudag, klukkan fjögur. Þá mun Ásta Ólafsdóttir myndlistar- maður ganga um svæðið með sýning- argestum og ræða um verkin. Höfundur er stjórimrfornmdur Vinnuskóla Reykjavikur. unnið nokkrum dögum fyrir kosn- ingar, þetta vita stjórnmálamenn. Kannanir fyrir stjórnmálaflokka eru tíðastar fyrir kosningar en jafn mikilvægar yfir allt kjörtímabilið. Gallup, jafnt sem önnur rannsókn- arfyrirtæki, hafa í gegnum tíðina mátt sæta gagnrýni fyrir tíðar mælingar á fylgi stjórnmálaflokka fyrir kosningar. En þessar mæl- ingar eru mikið notaðar. Nýverið unnu Birna Ósk Hansdóttir og Einar Örn Jónsson saman að loka- verkefni í stjórnmálafræði við Há- skóla Islands um áhrif skoðana- kannana á fylgi stjórnmálaflokka á íslandi. í verkefninu sýndu þau fram á að skoðanakannanir virðast ekki hafa áhrif á kjósendur. Þessar íslensku rannsóknir styðja er- lendar rannsóknir og sýna fram á að íslenskir kjósendur flykkjast hvorki að þeim flokki sem hefur mest fylgi né að þeim sem hefur minnst fylgi samkvæmt könnunum. Markaðsrannsóknir fyrir stofnanir Markaðsrannsóknir og skoðana- kannanir henta jafnt fyrir stofnan- ir og fyrirtæki. Afkoma fyrirtækja er háð því að þau uppfylli þarfir viðskiptavina sinna. Þarfir við- skiptavina eru uppfylltar með því að afhenda þeim virði. Viðskipta- vinir meta virði eftir því sem þeir fá: vara eða þjónusta, viðmót starfsfólks og ímynd að því frá- dregnu sem þeir þurfa að greiða: peningalegur kostnaður, tími, orka og tilfinningalegur kostnaður. Markaðslögmálin segja okkur að þau fyrirtæki sem afhenda mest virði séu líklegust til þess að lifa af, hafa mestu markaðshlutdeildina (markaðshlutdeild fyrirtækis er hlutfall viðskiptavina á markaðn- um sem kýs að eiga viðskipti við fyrirtækið). Samkeppni er af flest- um talin holl vegna þess að hún tryggir viðskiptavinum mesta virð- ið. Stofnanir sem ekki eru í sam- keppni hafa ekki markaðshlutdeild. Þær skortir því mælikvarðann markaðshlutdeild á velgengni sína og þurfa að nýta sér aðra mæli- kvarða. Dæmi um aðra mælikvarða eru þjónustustaðlar fyrir starfs- fólk. Jafnt fyrirtæki sem stofnanir nýta sér þá aðferð. Þjónustustaðl- ar eru mótaðir í samstarfi við við- skiptavini. Jafnt innri viðskiptavini sem eru starfsfólkið og ytri við- skiptavini sem eru endanlegir móttakendur vörunnar eða þjón- ustunnar. Þjónustustaðlarnir eru síðan mældir reglulega, til dæmis með hulduheimsóknum. Helsti ávinningurinn af slíkum rannsókn- um er að ákveðin þjónustugæði sem innri og ytri viðskiptavinir hafa komið sér saman um eru stöðluð. Þjónustugæðin eru því óháð tíma, þjónustulund og skapi starfsmannsins þann daginn. Virkt lýðræði og hagur neytenda Skoðanakannanir eru aðferð til þess að tryggja okkur „viðskipta- vinum“ virkt lýðræði. Þannig kom- um við skoðunum okkar á fram- færi oftar en á fjögurra ára fresti. Á sama hátt tryggja markaðsrann- sóknir neytendum betri vöru og betri þjónustu. Islendingar skilja mikilvægi þess að svara könnunum og nýta sér tækifærið til að segja sína skoðun þegar Gallup hringir. Þess vegna búa íslensk fyrirtæki, bæjarfélög, stofnanir og stjórn- málaflokkar við eitt hæsta svar- hlutfall í könnunum í heiminum og þar með áreiðanlegri niðurstöður en ella. Höfundur er ráðgjafi og verkefna- stjóri bjá Gallup.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.