Morgunblaðið - 15.07.2000, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
_________________________________LAUGARDAGUR 15. JÚLÍ 2000 35
LISTIR
Morgunblaðið/Jim Smart
Ein vatnslitamynda Péturs Behrens.
Landslag og
hestar
MYIVDLIST
Gallcrf Reykjavík
PÉTUR BEHRENS. Sýningin er
opin á verslunartíma og stendur til
18. júlí.
í GALLERÍI Reykjavík sýnir nú
Pétur Behrens tuttugu og tvær
vatnslitamyndir.
Hér er annars vegar um að ræða
landslagsmyndir en hins vegar
myndir af hestum. Myndirnar eru
unnar með hefðbundinni tækni og í
RANNVEIG Jónsdóttir sýnir mál-
verk í Galleríi Sölva Helgasonar í
Lónkoti í Skagafirði frá 16.-31. júlí.
A sýningunni eru m.a. ádeilu-
myndir vegna fyrirhugaðra virkj-
anaframkvæmda á hálendinu.
þeim flestum er liturinn léttur og
gagnsær, bjartur og hreinn.
Landslagsmyndir Péturs eru flest-
ar vel heppnaðar, myndbyggingin
klassísk og sterk og litameðferðin
vönduð. Hestamyndirnar ná ekki
að rísa eins hátt og virðast málað-
ar fremur af ást á viðfangsefninu -
Pétur er þekktur hestamaður og
hefur látið að sér kveða í málefn-
um hestamanna - en af virðingu
fyrir myndinni og lögmálum henn-
ar. Hvað um það er hér á ferðinni
létt og aðgengileg sýning með
mörgum eigulegum myndum.
Flestar myndirnar á sýningunni
eru unnar með olíu á krossvið.
Rannveig útskrifaðist úr MHÍ
vorið 1987 og hefur haldið einka-
sýningar og tekið þátt í samsýning-
um.
Danskar har-
monikku-
hljómsveitir
í tónleikaferð
um Island
Barnaharmonikkuhljómsveit tón-
listarskóla Borgundarhólms og
Accordeum-ungdomskvinteten frá
Danmörku ásamt einleikurum eru
staddar hér á landi og verða með
tónleika í Grundarfjarðarkirkju
mánudagskvöldið 17. júlí kl. 20.30.
Hljómsveitirnar koma einnig fram
á Húsavík og í Reykjavík.
Þær hafa spilað við góðar undir-
tektir m.a. í Þýskalandi, Austur-
ríki, Ungverjalandi, Spáni, Ítalíu,
Finnlandi og Eistlandi og unnið til
margra verðlauna.
Hljómsveitin er skipuð um 25
börnum á aldrinum 9-14 ára og
hefur starfað í 2% ár. Hún vann 1.
verðlaun á stórri tónlistarhátíð í
Suður-Þýskalandi árið 1998 og
dönsku landskeppnina 1999 og
2000.
I Accordeum-ungdomskvinteten
eru fímm unglingar á aldrinum 14-
17 ára. Þeir hafa spilað víða, meðal
annars í mörgum kirkjum, segir í
fréttatilkynningu.
Hljómsveitin tekur þátt í alþjóð-
legri tónlistarhátíð í Reykjavík
dagana 13.-23. júlí.
Meistara-
smiðja Phil-
ips Jenkins
MEISTARASMIÐJU Philips
Jenkins í píanóleik hjá Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar lýkur
með tónleikum á sunnudaginn
kl. 17 þar sem sýnishorn af því
besta sem komið hefur fram á
námskeiðinu verða flutt.
Nemendurnir sem leika eru
frá Hong Kong, Suður-Kóreu,
Georgíu, Skotlandi og íslandi.
Lúkas Kárason með eitt af verk-
^ um sínum.
Utskurð-
ur í
rekavið
TÓLFTA júlí var opnuð sýning á
myndverkum Lúkasar Kárasonar á
Drangsnesi við Steingrímsfjörð.
Lúkas hefur undanfarin ár safnað
rekaviði og skorið út og er þetta
fyrsta sýningin sem hann heldur á
verkum sínum. Hann er fæddur og
uppalinn á Drangsnesi og hafði
bæjarfélagið samband við hann og
bað hann um að halda sýningu á
verkum sínum. Sýningin er haldin í
skólahúsinu og í kapellunni á
Drangsnesi. Hún verður opin til 22.
júlí.
Að lesa
er að
ferðast
SVEITARFÉLÖGIN Árborg og
Holta- og Landsveit standa í dag,
laugardag, fyrir menningai’hátíðinni
Mannlíf á Suður-
landi í tengslum
við Reykjavík -
menningarborg
Evrópu 2000.
Hátíðin byggist
á ritverkum hins
sunnlenska
sagnaskálds Guð-
mundar Daníels-
sonar undir þem-
anu „Að lesa er að
ferðast“.
Hátíðin samanstendur af margs-
konar sýningum sem varpa ljósi á
mannlífið á Suðurlandi, séð frá sjón-
arhorni skáldsins. Rétt eins og ævi
manns hefst hátíðin að morgni í átt-
högum skáldsins, Guttormshaga.
Þaðan færist kastljósið yfír á Eyrar-
bakka en Guðmundur var skólastjóri
barnaskólans á Eyrarbakka í 25 ár
og skrifaði á því tímabili mörg af sín-
um helstu skáldverkum. Hátíðin
endar á Selfossi þar sem Guðmundur
bjó síðustu tuttugu æviárin.
Meðal annars má nefna að barna-
kór Selfosskirkju mun syngja víðs-
vegar í sveitarfélögunum, stór-
meistarinn Friðrik Olafsson mun
tefla fjöltefli á Stokkseyri, Leikfélag
Selfoss sýnir leikþætti á óhefð-
bundnum stöðum, sýningar verða
opnaðar í sveitarfélögunum og ýms-
ar aðrar spennandi uppákomur
verða frá morgni til kvölds.
Sýningu
lýkur
MYNDLISTARSÝNINGU
Tolla í Galleríi Sölva Helgason-
ar í Lónkoti í Skagafirði lýkur í
dag, laugardaginn 15. júlí. Á
sýningunni eru 15 landslagsol-
íumálverk.
Jon Proppe
Fjallaál og þokuslæður
Guðmundur
Daníelsson
Eins og hundaeigendum ætti að vera ljóst er bannað að
sleppa hundum lausum í borginni nema á tilteknum svæðum.
Hundabannskilti eru á þeim stöðum sem alfarið
er bannað að hafa hunda og á það t.d. við
um Grasagarðinn í Laugardal, hólmana
í Elliðaárdal og baðsvæðið í Nauthólsvík.
Hundaeigendum er heimilt að fara með
hunda sína í bandi um flesta göngustíga
borgarinnar og til eru svæði þar sem
heimilt er að sleppa hundum eins og
Geirsnef og Geldinganes ásamt fleiri stöðum.
Það eru eindregin tilmæli Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur að hundaeigendur
virði reglur um hundahald svo ekki þurfi að koma til frekari árekstra
á hundabannsvæðum borgarinnar.
Þeir sem vilja kynna sér þessar reglur betur er bent á 12. gr. samþykktar nr. 388/1999
um hundahald í Reykjavík.
Hirðum upp eftir hundana
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur